Morgunblaðið - 29.04.2013, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 29.04.2013, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2013 H a u ku r 1 0 .1 2 Guðni Halldórsson lögfræðingur, gudni@kontakt.is Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, lögg. verðbr.- og fasteignasali, brynhildur@kontakt.is Gunnar Svavarsson viðskiptafræðingur, gunnar@kontakt.is Jens Ingólfsson rekstrarhagfræðingur, jens@kontakt.is Sigurður A. Þóroddsson hrl. sigurdur@kontakt.is Forgangslisti er nýjung fyrir kaupendur og fjárfesta. Skráning á www.kontakt.is Ferðaþjónustuparadís á Suðurlandi. Gistiaðstaða fyrir 100• manns, veitingastaður og tjaldsvæði á 6 hektara vel grónu landi á árbakka. Einstakt tækifæri til frekari uppbyggingar. Góður rekstur og hagnaður. Ferðaþjónustufyrirtæki í miklum vexti. Góða afkoma.• Stórt innflutningsfyrirtæki með góð umboð í tæknivörum fyrir• sjávarútveg. Ársvelta 800 mkr. EBITDA 70 mkr. Rótgróin verslun við Laugaveg. Góð afkoma.• Heildverslun með vörur fyrir stórmarkaði. Ársvelta 100 mkr.• Áhugavert þjónustufyrirtæki sem er með fasta erlenda• viðskiptavini. Ársvelta 40 mkr. Framleiðslufyrirtæki með matvæli á sérhæfðu sviði. Góð• afkoma. Spennandi verslun með eigin innflutning á íhutum, aukahlutum,• köplum, verkfærum og mörgu fleira á rafeindasviði. Stöðug velta um 70 mkr. og góð afkoma. Fyrirtæki í innflutningi og þjónustu með sérhæfðan tæknibúnað• fyrir fyrirtæki og stofnanir. Ársvelta 100 mkr. Lítið hótel með mikilli veitingasölu á einstökum ferðamannastað• á Suðurlandi. Mjög góð afkoma. Deild úr heildverslun með þekktar sokkabuxur. Ársvelta 40 mkr.• Handverksbakarí fyrir sælkera LLSBAKARÍ Aldagamlar aðferðir í bland við nýjar til að gefa hverju brauði sinn karakter. Úrval af hollum og góðum brauðum unnum úr gæða hráefnum. Við bökum 100% speltbrauð, heilkornabrauð, gerlaus brauð, ítölsk brauð, hvítlauksbrauð, kúmenbrauð, sigtibrauð o.fl. o.fl. Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík s. 566 6145 | mosfellsbakari.is MOSFE Framvirkir samningar á gulli með afhendingu í júní lækkuðu um 0,6% á föstudag og enduðu í 1.453,60 döl- um á únsuna, í viðskiptum á Co- mex-markaðinum í New York. Málmurinn hafði hækkað framan af föstudeginum vegna frétta um að efnahagsvöxtur í Bandaríkjunum á fyrsta fjórðungi hefði verið minni en búist var við. MarketWatch hefur eftir gull- greinanda að lækkunin sem átti sér stað frá miðjum degi stafi helst af því að miðlarar voru að leysa út hagnað fyrir helgina. Yfir vikuna styrktust framvirkir samningar á gulli um 4,2% en eins og Morgunblaðið hefur áður greint frá hafði gull lækkað töluvert fyrr í mánuðinum. Framvirkir samningar hækkuðu meira en nokkru sinni áð- ur á árinu á fimmtudag eða um 2,7%. Í skýrslu sem World Gold Coun- cil, samtök gullnámafyrirtækja, gaf út á föstudag kom fram að eft- irspurn eftir gulli hefði aukist úr 348 tonnum árið 2001 pp í 1.538 tonn árið 2012. Segja samtökin að ekki sé um það að ræða að eft- irspurnin eftir málminum sé of mik- il. Silfur lækkaði um 1,6% á föstu- dag en hækkaði samtals um 3,5% yfir vikuna og kopar veiktist um 1,6% en hækkaði 2,3% samtals yfir vikun. Framvirkir samningar á platínu f. júlí hækkuðu um 0,9% og höfðu hækkað um 3,7 í vikunni sem leið. ai@mbl.is Gullið slaknar ögn í vikulok  Bætti við sig 4,2% yfir vikuna AFP Stangir Gullmarkaðurinn hefur gengið í gegnum ýmislegt í apríl. Facebook-dáðadrengurinn Mark Zuckerberg hefur ákveðið að lækka sjálfan sig í launum. Á árinu 2012 voru grunnlaun Zuckerbergs 503.000 dalir en heildarlaun 2 milljónir dala, og er þá hagnaður af hlutabréfum og kaupréttindum undanskilinn. Á þessu ári verða laun Zucker- bergs hins vegar ekki nema einn dalur. Greinir MarketWatch frá að þessi launalækkun gildi frá 1. janúar í ár, en upplýsingar þessa efnis komu fram gögnum sem Facebook hefur sent Verðbréfa- eftirliti Bandaríkjanna, SEC. Árið 2011 fékk Zuckerberg 1,7 milljónir dala í laun. Af launun- um sem Zuckerberg fékk greidd árið 2012 voru 266 dalir í formi árangursbónuss og 1,2 milljónir dala í formi „annarra greiðslna“ s.s. vegna einkanotkunar á flug- vél á vegum fyrirtækisins. Zuckerberg á ráðandi hlut í fyrirtækinu, með um 486 milljón hluti sem metnir eru á um 13 milljarða dala. Zuckerberg nýtti sér kaupréttarákvæði þegar Fa- cebook fór á markað á síðasta ári. Keypti hann 60 milljón hluti en seldi 30 milljónir til að greiða skatta af hagnaðinum af kaupun- um. Næstráðandi Zuckerbergs, Sheryl Sandberg, fékk samtals í laun 26,2 milljónir dala árið 2012 en hafði fengið 31 milljón dala ár- ið áður. Segir Facebook að launanefnd fyrirtækisins ákvarði laun æðstu stjórnenda með hlið- sjón af þeim launum sem bjóðast hjá keppinautum á borð við Ama- zon, Netflix, Apple, Oracle, Miro- soft og Google. Í gögnunum sem SEC fékk í hendurnar segir að bæði grunnlaun og heildarlaun hjá Facebook séu undir því sem tíðkast hjá neðsta fjórðungi við- miðunarfyrirtækjanna. ai@mbl.is Zuckerberg lækkar í launum  Milljarðamæringurinn verður með aðeins 1 dollar í laun á þessu ári AFP Annríki Zuckerberg er önnum kafinn ungur maður. Hann þarf ekki að kvarta yfir auraleysi þó að launin hans verði með lægsta móti á þessu ári. Forbes metur auðæfi hans á 13,3 milljarða dala sem jafngildir í dag um 1.560 milljörðum króna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.