Morgunblaðið - 29.04.2013, Síða 19

Morgunblaðið - 29.04.2013, Síða 19
FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2013 6,3% Fastir vextir Óverðtryggðir innlánsvextir m.v. 36 mánaða bindingu 2,5% Fastir vextir Verðtryggðir innlánsvextir m.v. 36 mánaða bindingu Nýjung í landslaginu Við bjóðum fjölbreytt úrval innláns- reikninga með föstum vöxtum. Hafðu samband og kynntu þér málið. Ármúli 13a / Borgartún 26 / 540 3200 / www.mp.is Óverðtryggðir innlánsreikningar með föstum vöxtum. Verðtryggðir innlánsreikningar með föstum vöxtum. 3 mánuðir 4,8% 6 mánuðir 5,0% 12 mánuðir 5,2% 24 mánuðir 5,4% 36 mánuðir 6,3% 60 mánuðir 6,4% 36 mánuðir 2,5% 60 mánuðir 2,75% Miðað við útgefna vaxtatöflu MP banka 11. apríl 2013. Guðm. Sv. Hermannsson gummi@mbl.is Enrico Letta, varaformaður ítalska Lýðræðisflokksins, sór í gær emb- ættiseið sem forsætisráðherra Ítal- íu eftir að hafa tekist að mynda nýja ríkisstjórn mið- og hægri- flokka. Letta náði samkomulagi um stjórnarmyndun við hægri flokk Silvios Berlusconis, fyrrver- andi forsætisráðherra, en Berlus- coni á þó ekki sæti í nýju stjórn- inni. Letta, sem er 46 ára og einn yngsti forsætisráðherra á evru- svæðinu, lagði áherslu á ungt ráð- herralið. Er meðalaldur í ríkis- stjórninni 53 ár og kynjahlutföll eru einnig jafnari en verið hefur. Með þessu segist Letta boða end- urnýjun í stjórnmálum og að hann vilji leitast við að endurreisa traust almennings á stjórnmála- mönnum. Angelino Alfano, sem áður gegndi embætti dómsmálaráðherra í ríkisstjórn Berlusconis, verður innanríkisráðherra og varaforsæt- isráðherra í nýju stjórninni. Fabri- zio Saccomanni, einn af banka- stjórum seðlabanka Ítalíu, verður fjármála- og efnahagsráðherra. Hlutverk hans verður það að reyna að koma þriðja stærsta hagkerfi evrusvæðisins út úr verstu kreppu þess í tuttugu ár. Þá verður Emma Bonino, fyrr- verandi sjávarútvegsstjóri Evrópu- sambandsins, utanríkisráðherra. Letta hét því í gær, að draga úr atvinnuleysi og fátækt og skapa tækifæri fyrir ungt fólk svo það þurfi ekki að freista gæfunnar í öðrum löndum. Giorgio Napolitano sagði eftir að hann fól Letti stjórnarmyndun um helgina að þetta hefði verið eina stjórnarmynstrið sem hefði verið mögulegt og ekki hefði verið hægt að bíða lengur, en tveir mánuðir eru liðnir frá því kosið var til þings á Ítalíu. Napolitano sagðist vonast til þess að nýja stjórnin yrði sam- hent og tækist á við vandamálin en flestir fréttaskýrendur, bæði á Ítalíu og annars staðar í Evrópu, telja að stjórnin verði skammlíf. Þannig sagði dálkahöfundur portú- galska blaðsins Diario de Noticias að í nýju stjórninni væru flokks- brot bæði á vinstri og hægri væng og stjórnmálaleiðtogar sem hefðu skipst á ásökunum og móðgunum árum saman. Þá sagði dálkahöfundur austur- ríska blaðsins Kurier að enginn tryði því að Berlusconi myndi ekki reyna að stjórna úr aftursætinu enda væru nánir samstarfsmenn hans í lykilembættum í ríkisstjórn- inni. „Ef Letta óhlýðnast mun Ber- lusconi draga lið sitt til baka og nýjar kosningar verða óhjákvæmi- legar.“ Ungur en reyndur Þrátt fyrir ungan aldur hefur Letta gegnt ráðherraembætti í fjórum ríkisstjórnum. Hann fædd- ist í borginni Pisa árið 1966 og lagði stund á nám í stjórnmála- fræði og alþjóðalögum en tók jafn- framt þátt í starfi Kristilega demó- krataflokksins. Sá flokkur liðaðist í sundur um miðjan tíunda áratug síðustu aldar vegna hneykslismála. Letta starfaði um tíma í ítalska fjármálaráðuneytinu og varð Evr- ópumálaráðherra árið 1998 í vinstristjórn Massimos D’Alema. Hann gegndi einnig ráðherraemb- ættum í ríkisstjórnum Giulianos Amatos og Romanos Prodis. Letta tók þátt í stofnun Lýðræðisflokksins árið 2007 en að þeim flokki stóðu þá leifarnar af ítalska kommúnistaflokknum og nokkrir litlir miðjuflokkar. Letti var kjörinn varaformaður flokksins 2009. Pier Luigi Bersani, leiðtogi flokksins, reyndi að mynda rík- isstjórn í kjölfar þingkosninganna nú í febrúar en mistókst og sagði í kjölfarið af sér leiðtogaembættinu ásamt allri stjórn flokksins. Ný ríkisstjórn tekur við völdum á Ítalíu  Enrico Letta sór embættiseið sem forsætisráðherra í gær AFP Nýr forsætisráðherra Enrico Letta í ræðustóli í ítalska þinghúsinu. Eldur braust í gær út í rústum átta hæða fataverksmiðjuhúss í Dhaka, höfuðborg Bangladess, sem hrundi í síðustu viku. Eldurinn kviknað út frá neistum frá steinsög þegar björgunarmenn reyndu að bjarga konu úr rústunum. Síðdegis í gær hafði slökkviliðs- mönnum tekist að ná valdi á eld- inum en konan, sem reynt hafði verið að bjarga, var þá látin. Sýnt var beint frá björgunaraðgerðunum í sjónvarpi en björgunarmenn höfðu fyrr um daginn ákveðið að bíða með að nota stórvirkar vinnu- vélar við hreinsunarstörf af ótta við að skaða konuna. Björgunarmenn sögðu að konan hefði verið veik- burða en samt getað látið vita af sér í gærmorgun „Hún var hugrökk kona og barð- ist fyrir lífi sínu til loka. Við unn- um í 10-11 stundir við að reyna að ná henni úr rústunum lifandi. Við reyndum en okkur mistókst. Við erum niðurbrotnir,“ sagði Ahmed Ali, slökkviliðsstjóri landsins, við AFP fréttastofuna. Á sjónvarpsmyndum sáust marg- ir slökkviliðsmenn gráta þegar ljóst varð að konan var látin. Eigandinn handtekinn Verksmiðjuhúsið hrundi á mið- vikudag og er talið að um 3 þúsund manns hafi þá verið í húsinu en þar voru fimm fataverksmiðjur til húsa. Um 2.430 komust lífs af en að minnsta kosti 381 lét lífið og yfir þúsund slösuðust alvarlega. Á laug- ardag tókst að bjarga 29 manns úr rústunum en líkur á að fleiri finnist á lífi eru nú taldar litlar sem eng- ar. Sheikh Hasina, forsætisráðherra Bangladess, hefur heitið því að sækja þá til saka, sem bera ábyrgð á slysinu og sinntu ekki viðvör- unum um að húsið kynni að hrynja. Hafa sex verið handteknir, þar á meðal aðaleigandi byggingarinnar en hann var handsamaður í gær skammt frá indversku landamær- unum. Hann hafði þá farið huldu höfði frá því byggingin hrundi. gummi@mbl.is AFP Björgunaraðgerðir Slökkviliðsmenn reyna að bjarga fólki úr rústunum. Eldur kviknaði í verksmiðjurústum Í Bangladess er umfangsmikill fataiðnaður og þar starfar fjöldi fólks í fataverksmiðjum við afar slæmar aðstæður. Launin eru lág og starfsfólk nýtur lítilla réttinda. Slys eru tíð, aðallega vegna eldsvoða, og hafa nærri þúsund manns látið lífið af slys- förum í fataverksmiðum í land- inu frá árinu 2006. Dauðagildrur BANGLADESS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.