Morgunblaðið - 29.04.2013, Síða 22

Morgunblaðið - 29.04.2013, Síða 22
22 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2013 Við léttum þér lífið F A S TU S _H _0 5. 01 .1 3 Komið í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00 | Síðumúli 16 | 108 Reykjavík | Sími 580 3900 WWW.FASTUS.IS Stuðningshandföng Göngugrindur Griptangir Salernis- og sturtustólar Fastus ehf. býður upp á heildarlausnir innan endurhæfingar, hjúkrunar og hjálpartækja. Í verslun Fastus að Síðumúla 16, 2. hæð er að finna gott úrval af heilbrigðisvörum. Sérhæft fagfólk á sviði endurhæfingar, hjúkrunar og hjálpartækja leggur metnað sinn í að finna lausnir og aðstoða við val á vörum fyrir einstaklinga og stofnanir. Komdu og skoðaðu úrvalið - við tökum vel á móti þér og finnum réttu lausnina fyrir þig. Hvergi er að finna land á jörðu þessari, þar sem Ísland er jafn elskað og vin- sælt og það er í Grikklandi í dag, en einnig á Kýpur. Grikkir eru yfir sig hrifnir af þeirri ákvörðunarfestu sem Íslendingar sýna og af því trygglyndi og ást sem fólkið í landinu sýnir ætt- jörð sinni. Á hverjum degi má finna upplýsandi fréttir og at- hugasemdir um Ísland og Íslend- inga í grískum fjölmiðlum, sem gríska þjóðin les af miklum áhuga og aðdáun. Í dag finnst Grikkjum hin fjarlæga þjóð í Norður- Atlantshafinu standa sér nær, en jafnframt líta þeir á Íslendinga, þessa ósigrandi og framúrskarandi þjóð, sem bræður sína í barátt- unni um þjóðlega reisn og hug- rekki. Hvernig tekist var á við hrun bankanna þriggja og hvernig striti og sparifé fólksins í landinu var bjargað má að miklu leyti þakka hetjulegri íhlutun hins framsýna forseta íslenska lýðveldisins. Þetta var sparifé sem hinn vinnusami og heiðarlegi almenningur í landinu hafði unnið fyrir. Ólafur Ragnar Grímsson sem er bæði hygginn og mikill föðurlandsvinur, kom í veg fyrir að fjármálavandi bankanna yrði að fjármálavanda þjóðarinnar, eins og gerðist fyrir stuttu á Kýp- ur. Hann kom einnig í veg fyrir að landið yrði niðurlægt með því að gera landsmenn háða erlendum fjármálastofnunum sem með ánægju lána þér á eigin for- sendum, í þeim tilgangi að hafa þig í hendi sér. Það gerðist ein- mitt í Grikklandi þar sem þjóðinni er ekki lengur stjórnað af löglega kosinni ríkisstjórn landsins, held- ur af „Þríeykinu“ sem vinnur hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, Evr- ópubankanum og íhaldssömum áhrifamönnum innan Evrópusam- bandsins. Ólafur Ragnar Grímsson er jafn þekktur í Grikklandi og jafn elsk- aður af grísku þjóð- inni og hið heims- fræga gríska tónskáld og þekkti stjórn- málamaður Mikis Theodorakis. Þessi staðreynd gerir okkur sem tilheyrum hinni litlu íslensku nýlendu hér í Grikklandi, mjög stolt, sérstaklega þeg- ar við finnum fyrir hinum mikla kærleika sem hin gríska þjóð sýnir Íslendingum og hinum vin- sæla forseta þeirra. Ég er laus- ráðinn greinhöfundur við blaðið Kifissia og hef ítrekað skrifað svipaðar greinar í blaðið, þar sem ég lofa fallega Ísland og hina dug- miklu þjóð þessa lands. Þess vegna er boð íbúanna í Kifissia, þessa úthverfis Aþenu sem nýtur mikilla forréttinda og er eitt af stærstu hverfum borgarinnar, þar sem þeir bjóða forsetahjónum Ís- lands að heimsækja heimaslóðir sínar, nýtt og ferskt. Hinn vinsæli fyrrverandi bæjarstjóri í Kifissia, Vassilis Varsos, sagði mér að hann myndi gjarnan taka skipu- lagningu heimsóknar forseta- hjónanna að sér og ég tilkynnti Jannis Lyberopoulos, ræðismanni Íslands í Aþenu, þessa ákvörðun og hann ber nú ábyrgð á að senda boðið eftir réttum og opinberum leiðum. Grikkir bíða í ofvæni eftir að ís- lenskir ferðamenn sæki Grikkland aftur heim og þeir munu taka á móti Íslendingum með margfaldri gestrisni. Í ár er aftur að aukast ferðamannastraumurinn frá Ís- landi til Grikklands og það eru hinir kurteisu og glaðlegu Íslend- ingar sem Grikkir vilja hafa sem gesti í landi sínu. Grikkjum er hlýtt til Íslendinga Eftir Tassó, Elías Elíasson Tassó, Elías Elíasson » Það eru hinir kurt- eisu og glaðlegu Íslendingar sem Grikkir vilja hafa sem gesti í landi sínu. Höfundur er bókmenntafræðingur og félagi í Rithöfundasambandi Íslands. Garðbæingar mega þakka Ögmundi Jón- assyni ráðherra sam- göngumála fyrir að hafa brugðið hlífiskildi um sinn yfir einstaka náttúruvin þeirra í Gálgahrauni. Bæj- arstjóri og vegamáls- tjóri tóku beiðni ráð- herra vel um að endurskoða og yfirfara nýjan Álftanesveg og sögðu að sú vinna tæki ekki nema nokkra daga. Hraunavinir mótmæla því að málið sé svo einfalt. Þetta er vandasamt verk þar sem öryggi og nátt- úruvernd þurfa að fara saman. Ekki má kasta til þess höndunum. Bæjarstjórinn í Garðabæ hefur sagt að eina leiðin, án þess að fara um hraunið, felist í að setja veginn í stokk fyrir þrjá millj- arða. Aðrar lausnir eru til. Hraunavinir gera þá sjálfsögðu kröfu að Vegagerðin uppfylli lagalega skyldu sína og leggi fram svokall- aða núll-lausn, þ.e. teikni og meti nýjan veg í núverandi vegstæði, svo vel sé. Sú vinna verður ekki unnin á örfáum dögum. Engin þörf er á mislægum gatnamótum í hrauninu eins og til stóð að gera. Hins vegar má stýra umferð og hægja á henni með hringtorgum við Prýðahverfi. Óháður umsagnaraðili ætti síðan að tryggja að tillagan sé unnin af sanngirni en ekki aðeins til þess að klekkja á andstæðingum vegar um Gálgahraun. Hraunavinir eru tilbúnir til að vinna með yfirvöldum að lausn málsins með hagsmuni íbúa og náttúru að leiðarljósi. Álftanesvegur lagður í núverandi vegstæði Eftir Gunnstein Ólafsson » Vegagerðin teikni og meti nýjan veg í núverandi vegstæði Gunnsteinn Ólafsson Höfundur er tónlistarmaður. Eystra var Framsókn á fullu, ferlegum lands- spjöllum ullu. Í Lagarfljót þeir söfnuðu leir svo Ormurinn dó þar úr drullu. Sú mikla fylgi- saukning sem skoð- anakannanir eigna Framsóknarflokknum er að mestu borin uppi af flóttafólki úr Sjálf- stæðisflokknum, sem kann ekki að meta sinn formann. En þar eru þessir blessaðir einfeldningar að fara úr öskunni í eldinn því enginn fjórflokkanna hefur eins margar beinagrindur í skápum sínum og Framsókn. Lagarfljóti fargað Ein slík, sem er Kárahnjúkavirkjun, hrundi í andlitið á þjóðinni á dögunum en í þeim djöfulskap öll- um fóru fyrir Halldór Ásgrímsson, Siv Frið- leifsdóttir og Val- gerður Sverrisdóttir, fyrst og fremst til að skara eld að sinni at- kvæðaköku. Algerlega voru hundsaðar at- hugasemdir og niðurstöður Skipu- lagsstofnunar, álit og viðvaranir vísindamanna og fagstofnana, sem að málinu komu, svo og víðtæk andmæli náttúruverndarsamtaka. Siv taldi efnalega ávinninginn vega miklu þyngra en nokkra gróna fer- metra uppi undir Vatsnajökli eða silungatitti í Leginum. Og því fór sem fór. Ómetanlegri öræfafegurð var drekkt og jökulkorgurinn er að drepa allt líf í Lagarfljóti. Díox- íðmengun hrellir Reyðfirðinga og auðhringurinn fær orkuna á tom- bóluverði og forðar sér frá tekju- skatti með framtalshundakúnstum. Virkjunin olli ofþenslu í hagkerfinu á versta tíma svo sem vel er tíund- að í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis og átti þannig sinn drjúga þátt í hruninu og síðan skulda- vanda fjölda þeirra sem nú virðast ætla að verðlauna skaðvaldinn með atkvæði sínu. Án iðrunar og eftirsjár Þá má ekki gleyma algjörlega þarflausum skipulagsbreytingum Valgerðar iðnaðarráðherra á orku- sölufyrirkomulagi, sem hafði í för með sér 25 til 30 prósenta hækkun á orkuverði, fyrst og fremst í dreifbýli. Við neytendur höfum því í bráðum áratug sopið seyðið af þessum afglöpum Lómatjarn- arfrúarinnar. Þegar Siv og Valgerður eru spurðar um ábyrgð sína vísa þær öllu slíku frá sér enda löngu hætt- ar í pólitík. En ekki meira en svo að þær skipa heiðurssæti hjá Framsókn í sínum gömlu kjör- dæmum, njóta semsagt ennþá vel- þóknunar og trausts núverandi flokksforystu sem enn hefur ekki heldur, svo vitað sé, fjarlægt myndir af Halldóri eða Finni Ing- ólfssyni úr flokkskapellum, né talið þeirra pólitísku eða persónulegu auðsældarvegferð á nokkurn máta ámælisverða. Úr beinagrindasafni Framsóknar Eftir Indriða Aðalsteinsson » Þessir blessaðir einfeldningar eru að fara úr öskunni í eldinn því enginn fjórflokk- anna hefur eins margar beinagrindur í skápum sínum og Framsókn. Indriði Aðalsteinsson Höfundur er bóndi á Skjaldfönn í Nauteyrarhreppi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.