Morgunblaðið - 29.04.2013, Side 27

Morgunblaðið - 29.04.2013, Side 27
aði mig svo að fara austur á Norð- fjörð til þeirra og kynnast þeim betur og sjá mig um á landinu okkar fagra. Það var auðsótt mál og tóku þau mér opnum örmum og ég fann að ég var svo velkomin á þeirra heimili. Það var yndislegt að vera hjá þeim í alla staði. Það var margt hægt að læra af Jónu, hún var ekki bara skemmtileg og glaðvær, hún var hörkudugleg og fljót að vinna og gat gert marga hluti í einu. Þvegið þvott, sem var nú ekki eins auðvelt þá og nú, eld- að, þrifið og bakað eins og ekkert væri eðlilegra. Hún kenndi mér margt í matargerð sem ég bý að í dag og það var svo skemmtilegt að vinna með henni, allt virkaði svo auðvelt í návist hennar. Svo var það „síldin“, hún skrapp náttúru- lega út í kaupstað til að salta síld á Sæsilfursplaninu þegar bátar komu að landi. Enginn var fljótari að salta en Jóna og auðvitað tók hún mig með sér og kenndi mér að salta síld sem varð svo til þess að ég kom aftur tveimur árum seinna og vann á Ásplaninu. Elsku Jóna mín, takk fyrir að vera vinur minn og félagi, mér þótti mjög vænt um þig og hefði viljað geta fylgt þér síðasta spöl- inn en verð með hugann hjá þér og þínum. Ég mun ávallt minnast þín með kærleika meðan ég lifi. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir) Þórði frænda mínum og fjöl- skyldunni allri votta ég mína dýpstu samúð. Kolbrún Ólafsdóttir. Mig langar að minnast Jónu sem ég hef alltaf dáðst að og litið upp til frá því ég var lítil stelpa. Nú er ljósið hennar slokknað og eftir stend ég meyr en þó svo þakklát fyrir það að hafa kynnst þessari merku konu og fyrir allt það sem hún gaf mér og var mér. Minningarnar úr sveitinni ótelj- andi og allar svo jákvæðar og skemmtilegar. Jóna var ótrúleg kona sem erfitt er að lýsa með orð- um, en það sem kemur fyrst upp í hugann er dugnaður og vinnu- semi, hjartahlýja og síðast en ekki síst hvað hún var ávallt hrókur alls fagnaðar. Ég var svo lánsöm að þekkja Jónu allt frá því að ég kom í þenn- an heim. Hvert og eitt einasta sumarfrí frá því ég var nokkurra mánaða gömul og fram á mín ung- lingsár var okkar Benidorm hinn fallegi Norðfjörður eða nánar til- tekið Skorrastaður. Ég man ekki til þess að mér hafi nokkurn tím- ann fundist við eiga að gera eitt- hvað annað í okkar fríi en að fara til Jónu og Júlla í heyskap til þess að hjálpa til og ekki síður til þess að njóta samvista við heimilisfólk- ið allt. Andrúmsloftið á Skorra- stað var engu líkt á þessum tíma, gleðin var ávallt í fyrirrúmi og fjörið náttúrulega eftir því. Þá munaði húsfreyjuna ekki um að bjóða manni í dans svona endrum og sinnum til að gera uppvaskið aðlaðandi nú eða syngja hins ýmsu lög og var Jóna sérdeilis glöð þegar manni tókst að halda í við hana í söngnum. Já uppvask, þrif, umbúnaður, þvottastúss, bakstur og allt það sem sönn hús- móðir þarf að kunna var ég svo lánsöm að læra hjá þeirri bestu því Jóna var sko með doktors- gráðu í þessum fræðum og söng svo og dansaði til að gera verkin skemmtilegri. Dásamlegt alveg og þvílík forréttindi sem það var að fá að aðstoða Jónu og læra þessi verk öllsömul og ég bý svo sann- arlega að því í dag. Jóna og Júlli eignuðust einn son og fimm barnabörn og svo áttu þau fjöldann allan af öðrum börnum og barnabörnum, því þau með sitt stóra hjarta tóku ansi marga að sér um ævina og ég leit ætíð á þau sem ömmu og afa í sveitinni. Jóna naut sín svo sann- arlega í ömmuhlutverkinu því hver hefði ekki viljað eiga svona lífsglaða, skemmtilega og hlýja ömmu sem bakaði bestu kleinurn- ar í öllum heiminum? Allir hefðu viljað það og við fengum svo sann- arlega mörg að njóta allra þinna kosta elskulegust og mikið sem ég á eftir að sakna þín, elsku Jóna mín. Júlli hefur eflaust verið far- inn að bíða þín og nú getið þið stig- ið dansinn saman og leiðst um grænar grundir eilífðarinnar og jafnvel bara þarf kannski að heyja eitthvað þar og fá sér svo kleinur og mjólk fyrir svefninn. Hafðu þakkir fyrir allt, yndislega Jóna mín, án þín hefðum við öll verið svo miklu fátækari því þú glæddir líf okkar allra með þínum per- sónuleika og þínum hæfileikum, þú varst algjörlega einstök perla og ég geymi þig á besta stað í mínu hjarta. Elsku Doddi, Thea, börn og barnabörn, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Megi allar fallegu minningarnar styrkja ykkur á þessum erfiða tíma. Við getum öll hlakkað til að hitta þig aftur, elsku Jóna, og bjóða þér upp í dans þegar okkar tími kemur. Ellen Óskarsdóttir. Mæt og góð vinkona Jóna Ár- mann húsfreyja á Skorrastað er fallin frá. Í barnæsku tókust kynni með okkur, er ég fór að heim- sækja son hennar Þórð og við urð- um ævivinir. Á Skorrastað kynnt- ist ég sveitasælunni sem gerði dvölina að raunverulegri sveita- sælu og allt frá upphafi vináttunn- ar hafa tengsl við Skorrastaðar- fólkið verið bæði sterk og góð. Það situr margt eftir í minningunni sem á upphaf sitt á Skorrastað undir handleiðslu Jónu og Júlla og vinanna allra. Í eldhúskróknum við eldhúsborðið var gjarnan rabbað um heima og geima og stundum tók Jóna lagið eða kenndi okkur einhverja texta, sem hún hafði lært í barnæsku, en hún hafði fallega og góða söngrödd. Oft vorum við mörg í sveit hjá þeim hjónum, og þau létu sér annt um okkur öll og við lærðum vel til verka. Var það góður skóli. Eitt leiddi svo af öðru; hestamennsk- an, búskapurinn, áhugi fyrir rækt- un, áhugi fyrir framtíðinni og landinu sjálfu, allt kom þetta sem af sjálfu sér og allir dagar frá ung- lingárunum eru á einhvern hátt tengdir góðum minningum frá Skorrastað. Við Doddi urðum ævi- vinir og nánast sem bræður. Jóna vann lengi úti meðfram húsmóð- urstörfunum og við strákarnir reyndum að létta undir með henni, sjá um uppvaskið eftir mat- inn og skiptum með okkur verk- um, til að þessi verk biðu ekki er hún kæmi úr vinnu. Vann hún hjá SÚN í fiskvinnslunni og var þar bæði starfsöm og vel liðin. Við hjónin og börnin okkar eigum margs að minnast og nú þegar þessi mæta vinkona er öll ríkir einlæg þökk fyrir samleiðina og góða minningu. Jóna og Júlli voru auðfúsugest- ir á mínu heimili og áralöng vin- átta sem bjó að baki og styrkti öll tengsl á mörgum gleðistundum. Allt mitt fólk hefur notið vináttu Jónu og Júlla svo lengi sem séð verður. Að koma heim, austur í heimahagana, sem sóknarprestur, var okkur gleðiefni og skrýtið hvernig lífið fer í hringi og reynir mann í ótal aðstæðum. Það var alltaf gaman að koma á Skorra- stað af ýmsum tilefnum, og eiga samverustundir með góðum vin- um þar. Oft færði ég þeim ljóð og þakkir fyrir alla þeirra einlægu vináttu. Eftir að Júlli og Jóna hurfu frá búskapnum og nutu umönnunar þar sem þeim var búin bærileg vist, eftir langan vinnudag, fannst okkur hjónum ekki síður gott að koma og eiga stund með þeim þótt margt væri breytt. Eftir fráfall Júlla fyrir þremur árum var farið að bregða birtu hjá Jónu og hún átti oft við veikindi að stríða. Að vera á stofnun var heldur ekki í hennar anda, en um annað var ekki að ræða. Hún var lengst af nokkuð málhress og ævinlega gaman að hitta hana á hjúkrunar- deildinni og var hún minnug á margt og oft gat hún farið með texta sem öðrum voru löngu gleymdir. Nú hefur Drottinn sam- einað þau hjón á ný og gert alla hluti nýja, hið fyrra er farið. Guð blessi minninguna um Jónu Ár- mann og alla hlýjuna sem fylgdi henni ævinlega og hún gaf svo mikið af. Nú er það Drottinn sem blessar hana og varðveitir og gef- ur henni frið, þar til við hittumst á ný. Kæra vina, hafðu heila þökk fyrir allt og allt. Sigurður Rúnar Ragnarsson, Ragnheiður Hall og börn. Ég man ekki eftir mér öðruvísi en að ég hafi leitað allra leiða til að komast á Skorrastað á mínum yngri árum, þar gerðust ævintýrin og þar var gleðin. Í eldhúsinu hjá Jónu, fullt af fólki, fluttar heilu leiksýningarnar og sagðar gaman- sögur. Tanta fór á kostum, sagði frá og lék sögurnar, skellti sér í hlutverk eftirhermunnar og við sem hlýddum á, lágum í krampa- kasti af hlátri. Í þessu sama eld- húsi voru tekin fyrstu skrefin í eldamennsku, bakaðar lummur, vöfflur eða pönnsur, viljinn til verksins metinn. Maturinn borð- aður þó svo að uppskriftirnar hefðu aflagast í meðförum, haft gaman af og hlegið að mistökun- um. Þegar ég var að vinna í SÚN með Töntu, og enginn var til að keyra okkur til vinnu og Tanta ekki búin að taka bílprófið, skellti hún sér á Land Rovernum út á Nes, flissaði og sagði „iss þetta er allt í lagi, það halda bara allir að þetta sé Jóa systir“. Eitt sinn reið hún með mér frá Skorrastað heim á Eskifjörð á gömlu Skessu minni. Tanta í essinu sínu þegar hún var komin á bak og sló undir nára og aldrei var ég jafnfljót yfir Skarðið eins og í þetta skipti. Jóna frænka var flink saumakona, saumaði lengi vel á fótstigna Singer, og var mikið sport að fá að ýta á fótstigið þegar saumað var og ekki fárast yfir því þó saumavélin gengi skrykkjótt. Gott var að leita til Jónu með ráðleggingar um sauma- skap, oft bjó ég á loftinu hjá Töntu um lengri eða skemmri tíma og var þá stundum saumað í steríó. Við vorum mörg sumarbörn Jónu, sem dvöldum stuttan eða langan tíma í sveitinni. Jóna pass- aði að öllum liði vel og enginn væri útundan, reddaði hestum svo eng- inn sæti stúrinn á hestasteininum, þegar margir riðu úr hlaði og sett- ist niður og ræddi málin ef von- brigði eða lífið var að trufla. Jóna átti einn dreng, ætlaði sér samt alltaf að fylla húsið af börnum. Systkinabörnin og sumarbörnin notaði hún til að gera það. Hastaði á okkur þegar þess þurfti en glotti oft að okkur í laumi. Með árunum áttaði ég mig enn betur á mann- kostum Jónu og að baki mörgum hennar fíflalátum bjó mikil hugs- un. Allir voru jafnir fyrir Jónu og á heimili þeirra Júlla voru allir vel- komnir. Einstaklingar, heilu fjöl- skyldurnar, ættingjar og vinir sem komu í sumardvöl áður en bænda- gisting kom til. Allir velkomnir, frítt og með fullri þjónustu. Þessir gömlu góðu dagar, sveip- aðir sólskini og gleði æskunnar, og þar var hlutur Jónu stór. Ég er þakklát fyrir þennan tíma, allir samankomnir á Skorrastað, syst- urnar „Skorrdal“ og líka amma og afi – og Jóna hrókur alls fagnaðar, létt og kvik í hreyfingum. Minn- ingarnar eru óteljandi. Ég kveð með vísu eftir Guðrúnu Ólafsdóttur, sem bjó hjá ömmu og afa á Skorrastað. Komdu blessuð og sæl litla vina mín kær sem er blómið í meyjanna krans. Þú ert gleðin mín hér ef eitthvað amar að mér Jóna Halldóra Guðjónsdóttir. Hafðu þökk fyrir allt og allt og farðu í Guðs friði, Jóna Ármann. Þóra Sólveig. MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2013 ✝ Sævar MárÓlafsson fædd- ist í Reykjavík 16. desember 1949. Hann lést á Land- spítalanum í Foss- vogi 20. apríl 2013. Foreldrar hans voru Ólafur Krist- ján Jónsson, f. 23. maí 1919 frá Mjóa- bóli í Dalasýslu, d. 14. desember 1999 og Iðunn Kristjánsdóttir, f. 24. júni 1913, Snæfellsnesi, d. 10. nóvember 1979. Alsystkini Sæv- ars eru Jón Haukur Ólafsson, f. 20. febrúar 1948, Grétar Þór- arinn Ólafsson, f. 15. apríl 1951 og Ragnheiður Ólafsdóttir, f. 7. júlí 1952. Hálfsystkini Sævars eru Valgeir Vilhelmsson, f. 26. apríl 1933, d. 22. apríl 2013, Þuríður Sveinbjörg Vilhelms- dóttir, f. 16. ágúst 1937, d. 16. desember 2008, og Hrafnhildur Vilhelmsdóttir, f. 11. október 1940. 20. maí 1972 giftist Sævar borgu Ásu Bjarnadóttur, f. 10. júlí 1971. Eiginmaður hennar er Valur Sæþór Valgeirsson, f. 12. júní 1969. Börn þeirra eru Berg- rós Eva, f. 6. janúar 1992, Ástrós Þóra, f. 19. febrúar 1995, Ágúst Orri, f. 10. mars 2000 og Sverrir Rafn, f. 14. júli 2008. Sævar ólst upp í Bústaða- hverfinu í Reykjavík og lauk grunnskólaprófi frá Rétt- arholtsskóla. Hann vann ýmis störf á sjó og landi, lengst af hjá Loftorku við vinnuvélar þar til hann stofnaði sitt eigið fyr- irtæki Vélaleiguna hf. sem var starfandi í Straumsvík til ársins 1993. Eftir það starfaði hann sem verkamaður hjá sama fyr- irtæki þar til hann lét af störf- um. Sævar var mikill fjöl- skyldumaður og naut fjölskyldan góðs af. Alltaf hafði hann hana í fyrirrúmi og vildi öllum vel. Heiðarleiki, virðing og vinátta voru hans helstu ein- kenni. Hann hafði mikla unun af veiði og fór ófáar veiðiferðirnar út á land og þá sérstaklega norður á heimaslóðir Regínu. Að ferðast um Ísland og fræðast um landið var honum hugleikið og naut fjölskyldan góðs af. Útför Sævars fer fram frá Digraneskirkju í dag, 29. apríl 2013, og hefst athöfnin kl.12. Már Ólafsson Reg- ínu Gunnhildi Jó- hannsdóttur, f. á Dalvík 22. október 1951. Sævar og Regína eignuðust þrjú börn. Þau eru Ólafur Már, f. 18. október 1971, Jón Gunnlaugur, f. 16. júlí 1972, og Hildur Ása, f. 7. ágúst 1974. Börn Ólafs eru Atli Dan, f. 28. apríl 1992, og Aníta Líf, f. 29. maí 1996. Sam- býliskona Ólafs er Katla Guð- laugsdóttir, f. 20. desember 1980. Börn Jóns Gunnlaugs og sambýliskonu hans Helgu Guð- mundsdóttur, f. 13. nóvember 1973, eru Hulda Karen, f. 12. nóvember 1998, og Sævar Breki, f. 7. september 2010. Eig- inmaður Hildar er Kjartan Þór Þorvaldsson, f. 18. nóvember 1970, börn þeirra eru Sandra María, f. 28. nóvember 1996, og Kristófer Þór, f. 29. maí 2002. Fyrir átti Sævar dótturina Vil- Elsku hjartans pabbi minn. Minningarnar hrannast upp í huga mér þegar ég hugsa um þig, það er gott og ljúfsárt að geta fyllt tómarúmið í sálu minni með þess- um minningum. Þú varst mér svo kær og miklu meira en pabbi minn. Þú varst líka vinur minn og fyrir það er ég svo óendanlega þakklát. Ég gat alltaf leitað til þín og sagt þér það sem mér lá á hjarta og þú hlustaðir ætíð á mig og gafst mér ráð. Vinátta, heiðar- leiki og virðing voru þau gildi sem þú kenndir mér og hef ég ávallt haft þau að leiðarljósi. Þú kenndir mér að standa ávallt á eigin fótum en ef ég hrasaði varst þú tilbúinn til þess að grípa mig. Nú er sum- arið á næsta leiti og ferðalög og veiði taka við hjá okkur fjölskyld- unni eins og við gerðum með þér síðastliðin 17 ár. Þú munt þá verða með, í huga okkar og hjörtum. Ég vil þakka þér, elsku pabbi minn, fyrir samverustundirnar og sérstöku símhringingarnar sem ég fékk frá þér alla daga kl. 11.30 síðustu mánuði, þeirra mun ég sakna. Sumir hverfa fljótt úr heimi hér Skrýtið stundum hvernig lífið er Eftir sitja margar minningar þakklæti og trú þegar eitthvað virðist þjaka mig þarf ég bara að sitja og hugsa um þig þá er eins og eitthvað losni úr læðingi lausnir öllu við þó ég fái ekki að snerta þig veit ég samt að þú ert hér og að ég veit að þú munt elska mig geyma mig og gæta hjá þér. (Bob Dylan, þýð. Ingibjörg Gunnarsdóttir) Ég elska þig ætíð. Þín dóttir, Hildur Ása. Mig langar að minnast tengda- föður míns Sævars í nokkrum orð- um. Það var fyrrihluta árs 1995 sem við fyrst hittumst og þá í Holta- gerðinu, ég að vinna hörðum höndum í því að verða tengdason- ur hans og hann að gera ekkert annað en taka vel á móti mér. Okkar kynni náðust strax vel og þá sem vinir. Við eyddum ófáum tímunum í bílskúrnum drullugir upp fyrir haus í að koma bíltíkunum okkar í ferðafært ástand þegar ferðalög voru fram- undan enda var alltaf nóg af þeim. Við deildum þar sameiginlegum áhuga á bæði bílum og ferðalögum og erum búnir að eyða miklum tíma í ferðalögin en bílarnir bötn- uðu og vegirnir einnig þannig að undirbúningstímabilið styttist. Sævar var viskubrunnur á lífið. Ég á m.a. honum að þakka áhuga minn á veiðimennsku. Veiði- mennskan eins og ég lærði hana af honum snýst ekki bara um að veiða mikið og stórt, það er auka- atriði, heldur að njóta staðar og stundar þar sem þú ert, þegar þú ert þar og á slíkum stundum nýtur maður náttúrunnar til fulls. Sæv- ar eignaðist svo í seinni tíð lítinn jeppa sem var bíll sem hentaði honum til fulls. Hann gat komist allt sem hann vildi á honum og lét þá ekkert stoppa sig að komast í næstu á. Sævar hefur reynst börnum mínum besti vinur, virt þau og hvatt í hverju því sem þau hafa tekið sér fyrir hendur. Elsku Regína mín, Hildur, Ása, Gulli, Óli, megi Guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Kjartan Þór Þorvaldsson. Hann var alltaf kallaður Sævar bróðir. Sævar var næstelstur af okkur alsystkinunum og þegar við hittumst, einhver okkar, var alltaf spurt: Hefur þú heyrt í Sævari bróður? Sævar ólst upp í Ásgarð- inum ásamt okkur systkinunum. Þar eignaðist hann marga vini og var vinsæll í vinahópnum. Sævar byrjaði ungur að vinna ýmist á sjó eða í landi og naut ég stundum góðs af því þegar launin komu og mikið fannst mér gaman að fá að fara á rúntinn með honum í fína Zodiacnum sem hann átti. Þegar Sævar kynntist Gínu konu sinni var hann svo hamingjusamur og ung stofnuðu þau heimili og eign- uðust börnin sín þrjú. Sævar var mikill fjölskyldumaður og var stoltur af sínu fólki. Hann þurfti að vinna langa vinnudaga og fannst það bara sjálfsagt mál. Það var gott og gaman að fá að vera þátttakandi í þeirra lífi sem ég gerði óspart. Sævar fékk lungna- sjúkdóm sem var honum mjög erf- iður og þurfti hann að hætta að vinna rúmlega fimmtugur vegna veikinda sinna. Gína var honum svo góð og hugsaði svo vel um hann. Takk fyrir það, elsku Gína mín. Ég gæti skrifað svo margt og mikið um hann Sævar bróður en læt staðar numið hér. Elsku Gína mín, Óli, Gulli, Hild- ur og Ása, sendi ykkur og fjöl- skyldum ykkar mínar dýpstu samúðarkveðjur. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir) Ragnheiður Ólafsdóttir. Ég kveð í dag minn góða mág og vin Sævar Ólafsson sem fallinn er frá langt um aldur fram. Alla tíð var mikill og góður vinskapur hjá mér og Ragnheiði minni konu og systur Sævars og hans góðu konu Gínu. Við komum oft í heimsókn til þeirra og alltaf var tekið vel og innilega á móti okkur og aldrei fór maður svangur þaðan því Gína sá um að hennar gestir fengju með kaffinu þegar vinir og skyldmenni sóttu þau heim. Það var afskap- lega gott og gaman að eiga tal við Sævar því hann hafði sínar skoð- anir á flestum hlutum en fór ekki yfir strikið með allskonar fullyrð- ingum sem höfðu ekkert með hlut- ina að gera. Þess konar fólk hef ég áhuga á að ræða við og þess vegna fannst mér alltaf tilefni til að heimsækja þau hjón frekar en aðra því það hefur ekki verið of- arlega á lista hjá mér að storma í heimsóknir til fólks þrátt fyrir að allir sem ég þekki taki vel á móti mér og er því við engan að sakast nema mig. Svo að sjálfsögðu komu Sævar bróðir eins og Ragnheiður kallaði hann jafnaði og Gína oft í heimsókn heim til okkar og þá var spjallað í eldhúsinu en þar vildu þau hjón alltaf sitja og fannst mér það líka hið besta mál því það var svo heimilislegt en Sævar vildi hafa alla hluti eins látlausa og af- slappaða og kostur var á. Þetta samneyti við þau hjón var mér og Ragnheiði af kærkomið og sýnir að Sævar og Gína rækta sinn vin- skap við vini og fjölskyldur enda eru þau hjón vinamörg og það er áhugavert að sjá hvað fjölskylda Gínu, bræður og systur standa þétt og vel saman í gleði og sorg og naut Sævar þess alla tíð bæði þegar allir voru heilir og ekki síð- ur þegar hann og Gína veiktust og dauðsföll herjuðu á eins og þau hjón og þá sérstaklega Gína hafa þurft að horfa upp á. Þegar Sævar var orðinn það veikur að hann komst ekki lengur af sjúkrahúsi þá heimsóttum við Ragnheiður hann reglulega og mér fannst hann standa sig svo vel í því að halda stillingu og jákvæðni sem hann og gerði fram á síðasta dag, þrátt fyrir allt mótlætið sem hann þurfti að takast á við þá síð- ustu mánuði sem hann lifði. Það sem mér er efst í huga á þessari stundu er þakklæti yfir því að hafa haft hann sem einn af mínum nán- ustu en um leið söknuður yfir því að hafa hann ekki lengur á meðal okkar. En hann mun ekki gleymast því minningin um góðan dreng mun lifa með okkur hinum sem eftir lifa. Ég bið að allt það góða sem lífið hefur upp á að bjóða umvefji elsku Gínu konu hans og besta vin sem hún var honum því þar er sökn- uðurinn mestur. Börnum hans, barnabörnum og öðrum ástvinum færi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Ingibergur Finnbogi Gunnlaugsson. Sævar Már Ólafsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.