Morgunblaðið - 29.04.2013, Page 37

Morgunblaðið - 29.04.2013, Page 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2013 Slúðurmiðlarnir í Hollywood halda að nú styttist í að leikaraparið Kristen Stewart og Robert Patt- inson gangi í hjónaband eftir að kvisaðist út að hann gaf henni hring, sem áður var í eigu ömmu hans, í afmælisgjöf nú nýverið. Til Stewart heyrðist þegar hún sagði vinkonu sinni að hringurinn væri til marks um skuldbindingu þeirra hvors í annars garð og að hún vonaðist til að þau létu pússa sig saman. Heimildir herma að Pattinson hafi gefið Stewart hring- inn til að sýna að samband þeirra sé aftur orðið gott eftir að hún tók smáhliðarspor síðasta sumar og að hann taki sambandinu af mikilli al- vöru og sé tilbúinn til þess að gleyma fortíðinni. Hjónaband í kortunum? AFP Ástfangin Kristen Stewart. Á meðan ungar ástir í Hollywood blómstra eiga aðrir í erfiðleikum. Nú berast fregnir af því að hjóna- band Clints og Dinu Eastwood standi á brauðfótum og sást nýverið til leikarans og leikstjórans án gift- ingarhringsins. Sökum álagsins hefur Dina leitað hjálpar við kvíða og þunglyndi. Hjónin hafa verið gift síðan 1996. Eastwood Hefur verið giftur í 17 ár en nú er komið babb í bátinn. Eastwood án giftingarhringsins Hvað ertu að hlusta á um þessar mundir? Ég er að hlusta mikið á popp frá níunda áratugnum eins og The The, Soul Mining og hinu vanmetnu bresku goth rokk sveit Gene Loves Jezebel. Einnig að enduruppgötva iðnaðar hávaða sveit frá New York sem heitir Controlled Bleeding sem er búin að gefa út helling af plötum síðan 1978. Það nýjasta sem ég er hlusta á er hljómsveit sem kallar sig Light Asylum sem gáfu út sína fyrstu plötu á síðasta ári og er algjör snilld! Síðan er ég mjög hrifinn af nýjustu plötu Ultravox sem ber heitið Brilliant. Hvaða plata er sú besta sem nokkurn tíma hefur verið gerð að þínu mati? Metallica – Master Of Puppets. Ég gleymi aldrei þegar ég heyrði þessa plötu í fyrsta skipti. Mér leið eins og þræl í byltingu sem var við það að frelsast undir stjórn gagnrýni á eigin frammistöðu og of miklum, óraunhæfum kröfum til sjálfs mín. Svo hreint og gott að það eru engin takmörk! Besta plata ever! Eða And Justice For All. Hver var fyrsta platan sem þú keyptir og hvar keyptir þú hana? Það gæti verið Best of Vangelis eða Best of Jerry Lee Lewis, annars gæti það líka verið N.W.A., Straight Outta Compton. Ég bara man það ekki. :) Ég byrjaði að kaupa mér rave/hardcore tónlist mjög snemma og ætli það hafi ekki verið 12 tomma með laginu „Close Your Eyes“ eftir Acen en þeir sampla frá The Do- ors, þar sem Jim Morrison fer með þessa setningu „Just close your eyes, forget your name, forget the world, forget the people.“ Goðsagnakennt rave lag! Hvaða íslensku plötu þykir þér vænst um? Það er platan Life’s Too Good með Sykurmolunum. Hún er svo heilsteypt og ljúfsár, alveg eins og ég vil hafa tónlistina mína. Ég hlustaði á þessa plötu mörgum sinnum á dag í vasadiskóinu mínu þegar ég var að fara í gegnum gagnfræðaskóla og það má eiginlega segja að hún hafi hjálpað mér í gegnum unglingsárin. Mér þykir alveg sjúk- lega vænt um þessa plötu og þessa hljómsveit! Ég hlusta á hana reglulega ennþá. Meistaraverk! Hvaða tónlistarmaður værir þú mest til í að vera? Ég hef enga löngun fyrir að vera annar en ég sjálfur! Fáránlegt að dreyma um að vera einhver annar, nema þú sért smákrakki kannski. Hvað syngur þú í sturtunni? Stundum lög eftir sjálfan mig til að muna texta. En ég get dottið í blús lög og 80’s popp stundum. Enn annars finnst mér gott að hugsa og þegja þegar ég er sturtu og hugleiða. Hvað fær að hljóma villt og galið á föstudagskvöldum? Ætli það sé ekki oftast eitthvert pönk eins og Black Flag, The Germs eða NoMeansNo. Gæti líka verið eitt- hvert mega slummu 80’s popp eða fyrstu plötur Metallica eða Zeppelin. En hvað yljar þér svo á sunnudagsmorgnum? Gram Parsons, Townes Van Zandt eða Red House Pain- ters. Rólegt, alternative þunglyndis kántrí virkar mjög vel. Í mínum eyrum Krummi Björgvinsson tónlistarmaður „Þykir alveg sjúklega vænt um þessa plötu“ Krummi Hlustar á popp frá níunda áratugnum. KVIKMYNDAÚRVALIÐ ER Í SAMBÍÓUNUM ÁTOPPNUM Í ÁR KYNNTUÞÉRMÁLIÐ Á EGILSHÖLLÁLFABAKKA IRONMAN33D KL.5:20-6:20-8-9-10:40 IRONMAN32D KL. 5:20 -8 -10:40 IRONMAN3VIP KL. 5:20 -8 -10:40 OLYMPUSHASFALLEN KL. 5:30 -8 -10:30 BURTWONDERSTONE KL.8 -10:10 SIDEEFFECTS KL.5:50 KRINGLUNNI IRONMAN3 3D KL. 5:20 - 8 - 10:40 OLYMPUSHAS FALLEN KL. 5:30 - 8 - 10:30 OBLIVION KL. 10:10 ÓFEIGURGENGURAFTURKL.5:50-8 IRONMAN3 3D KL. 5:20 - 7 - 8 - 10:40 IRONMAN3 2D KL. 9:40 OLYMPUSHAS FALLEN KL. 10:30 OBLIVION KL. 8 - 10:30 NÚMERUÐ SÆTI KEFLAVÍK IRONMAN 3 3D KL. 8 - 10:40 THE CALL KL. 8 OLYMPUS HAS FALLEN KL. 10 AKUREYRI IRONMAN 3 3D KL. 5:20 - 8 - 10:40 OLYMPUS HAS FALLEN KL. 8 - 10:40 ÓFEIGURGENGURAFTUR KL. 6  H.S. - MBL WALL STREET JOURNAL TIME STÓRMYNDIN SEM TEKIN VAR UPP Á ÍSLANDI  T.K., KVIKMYNDIR.IS  H.V.A. FRÉTTABLAÐIÐ MÖGNUÐ GRÍNMYND STEVE CARELL JIM CARREY FRÁ LEIKSTJÓRA TRAINING DAY OG HANDRITSHÖFUNDINUM KATRÍN BENEDIKT GRJÓTHÖRÐ SPENNUMYND Í ANDA DIE HARD ROBERT DOWNEY JR. GWYNETH PALTROW BEN KINGSLEY GUY PEARCE FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐU OKKUR  EMPIRE  HOLLYWOOD REPORTER KORTIÐ GILDIR TIL 31. maí 2013 – MEIRA FYRIR ÁSKRIFENDUR MOGGAKLÚBBURINN 33% AFSLÁTTUR Á TVEGGJA NÁTTA GISTINGU Á HÓTEL GRÍMSBORGUM MOGGAKLÚBBURINN Hótel Grímsborgir er staðsett á glæsi- legum stað við Sogið í Grímsnesi. Um 45 mín. akstur er frá Reykjavík. Tveir gistimöguleikar eru í boði: • Gisting í 56 fm íbúð með tveimur svefn- herbergjum, stofu og baðherbergi, með sturtu. Fjórir geta bókað saman og deilt íbúð ef óskað er eftir því. • Tveggja manna hótelherbergi, með hjónarúmi og baðherbergi, með sturtu. Fullt verð: 59.200 kr. Moggaklúbbsverð: 39.800 kr. fyrir tvo í tvær nætur með morgunverðarhlaðborði FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á MBL.IS/ASKRIFT EÐA Í SÍMA 569 1100 Áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa meðlimir í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða. Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á moggaklubburinn.is og fá tilboðin send í tölvupósti með því að skrá sig á póstlistann. Hafðu samband í síma 569 1100 eða askrift@mbl.is hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér. Hægt er að bóka tilboðið allar gisti- nætur á tímabilinu 18. mars – 1. júní. Gefa þarf upp kennitölu áskrifanda og taka fram að um Moggaklúbbstilboð sé að ræða. Bókaðu á info@grimsborgir.com eða í síma 555 7878.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.