Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.04.2013, Blaðsíða 9
að þeir væru ekki þarna til að svala
eigin egói heldur væri tilgangur
þeirra að þjóna áhorfendum. Rauða
nefið er minnsta gríma í heimi. Það
gefur fólki hugrekki til að vera ein-
lægt og þegar fólk setur það upp er
erfitt að ljúga. Líkt og þegar feimin
börn fela andlit sitt í lófa sér – það
sést strax hvernig þeim líður og það
er eins með fölskvalausan trúðinn.
Hann er bara hann sjálfur.“
Tinna mun kynna verkefni sitt á
ráðstefnu í Háskólanum í Reykjavík
24. maí en hún segir að trúðurinn
eigi fullt erindi út í íslenskt sam-
félag. Hann sé dæmi um hvernig
góður leiðtogi eigi að vera. „Hann
hlustar svo vel á umhverfi sitt og
tekur eftir öllu sem er að gerast í
kringum hann. Þannig á hann auð-
velt með að bregðast við aðstæðum
hverju sinni og hann sér tækifæri í
mistökum. Einnig má nefna lítið
dæmi um það hvernig hann talar við
hóp fólks. Hann skannar ekki rýmið
heldur er hann í augnsambandi við
einn í einu. Um leið og hann gerir
það fær hann athygli hinna því þeim
finnst þetta samband svo áhugavert.
Trúðurinn bíður líka alltaf í þrjár
sekúndur þegar hann er spurður að
einhverju og ígrundar vel hverju
hann ætlar að svara. Í því felst mik-
ill styrkur.“
Tinna Lind Gunnarsdóttir, leikkona og mastersnemi.
7.4. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9
Þegar Þórhildur Sif Þórmundsdóttir sagði sonumsínum sögur sem hún þekkti úr norrænnigoðafræði, af sérstæðum tjáningarkrafti sínum,
fann hún þær kveikja óvenjusterkt í strákunum.
Eldri sonurinn var sjö ára og sá yngri tæplega sex
þegar hún fann að þarna gátu þau öll saman vaxið í
sameiginlegu áhugamáli.
En hún furðaði sig á hve fátt væri um fína drætti.
„Þegar ég fór að garfa betur og skoða hvaðeina sem
fyrirfannst um þessa menningararfleifð, þá fannst
mér þær skorta aðgengileika. Sérstaklega fyrir börn
á fyrri stigum grunnskóla. Börn ættu að kynnast
mun fyrr og betur þessum heillandi goðsögnunum og
persónunum, öllum sérstæðu sögunum af upphafi
heimsins og skýringum á náttúrufyrirbrigðum,“ segir
Þórhildur Sif.
Innblásin af áhuga sonanna tók hún þær persónur
og sögur sem henni þóttu æðisgengnastar og endur-
sagði með það fyrir augum að krakkar á barnaskóla-
aldri gætu hrifist með í ævintýrinu. Óðinn, Loki,
Freyja, Sif, Fenrisúlfur og fleiri góðar fígúrur lifn-
uðu við á prenti, sitt á hvað, á íslensku og ensku.
Að endingu sótti hún penslana sína. Við þrettán af
þeim 25 sögum, úr 20 köflum, af goðum, gyðjum og/
eða goðsögnum, málaði hún sterka, litríka mynd.
Þannig hafði hún vakið úr dvala og sameinað ein af
sínum elstu áhugamálum, sem henni fannst hafa leg-
ið fulllengi í láginni. Myndirnar hafa þótt það góðar
að hún hefur haldið sýningar með þeim einum, í
galleríinu Kingdom Within Tattoo Studio á Skóla-
vörðustíg og á Kaffi Loka, Lokastíg.
„Það tók um ár frá því ég byrjaði og þangað til
verkefninu var lokið. Ég skrifaði bækurnar jöfnum
höndum. En ég hefði ekki getað það nema með
hjálp pabba míns og tengdamömmu sem lásu yfir
textann aftur og aftur. Maðurinn minn var líka
hjálplegur og ráðagóður,“ segir hún.
Þegar hún ákvað að gefa út myndskreyttar sög-
urnar komu þær samhliða út á íslensku og ensku.
Þær seljast nokkuð jafnt á þessum tungumálum, en
gegnum söluvefsíðuna Amazon.com hefur áhuginn á
sögunum á enskri tungu vaxið nokkuð. Hún viður-
kennir þó að hafa ekki verið nógu öflug í markaðs-
setningunni, þar sem hún hafi einfaldlega ekki haft
tíma til. Nú eigi námið hug hennar allan, en hún
lýkur senn gráðu í uppeldis- og menntunarfræði.
Þórhildur hefur komið víða við, enda áhugasviðið
vítt. Meðal annars lærði hún myndlist frá unga aldri
við Myndlistaskólann í Reykjavík. Grúskara- og
dundureðlinu finnur hún víða farveg.
KRAFTUR ÚR GOÐAFRÆÐI
Þórhildur Sif hefur lengi heillast af goðafræði.
Norrænar
goðsagnir fyrir börn
ÞÓRHILDUR SIF HREIFST AF ÁHUGA SONA SINNA Á NORRÆNUM GOÐSÖGNUM.
HÚN ÁKVAÐ AÐ LYFTA ÞEIM ÚR STÖÐNUN OG ENDURVEKJA Í MÁLI OG MYNDUM.
Katrín Mixa katrinmixa@gmail.com
* „Börn ættu að kynnast munfyrr og betur þessumheillandi goðsögnunum og per-
sónum,“ segir Þórhildur Sif sem
gefið hefur út eigin endursagnir
úr norrænni goðafræði á íslensku
og ensku fyrir börn á grunn-
skólaaldri.
Gott hljóðfæri er kærkomin
fermingargjöf sem
nýtist umókomin ár
Sunnuhlíð 12, Akureyri, sími 462 1415
www.tonabudin.is
Síðumúla 20, Reykjavík, sími 591 5340
www.hljodfaerahusid.is
Skeifan 2 • Sími 530 5900 • www.poulsen.is
Bílalakk
Blöndum alla bílaliti
og setjum á spreybrúsa
Bjóðum uppá
heildarlausnir
í bílamálun frá
DuPont og getum
blandað liti fyrir allar
gerðir farartækja