Morgunblaðið - 22.05.2013, Side 8

Morgunblaðið - 22.05.2013, Side 8
Morgunblaðið/Júlíus Sprengiefni Hlutur ríkisins á Hólmsheiði er nú til sölu. Ríkiskaup hafa fyrir hönd ríkissjóðs óskað eftir tilboðum í 42,6% hlut rík- isins í sprengiefnageymslunni á Hólmsheiði. Geymslan stendur á óskipulögðu svæði en samkvæmt upplýsingum frá Ríkiskaupum hefur ekki verið ákveðið hvernig skipulagi svæðisins verður háttað í framtíð- inni. Selst geymslan því án sérstakra lóðaréttinda en hún stendur utan þess svæðis sem fyrirhugað er að fari undir nýtt fangelsi og flugvöll á Hólmsheiði. Geymslan hefur staðið þarna frá árinu 1969 og var sérstaklega hönn- uð til að geyma púður. Heildarstærð geymslunnar er 144 fermetrar og brunabótamat hennar er upp á rúm- ar 14 milljónir króna. Vegagerðin og Landhelgisgæslan hafa verið þau ríkisfyrirtæki sem helst hafa notað geymsluna en gera það ekki lengur. Hið sama gildir um verktakafyrirtækin sem hafa átt hlut í geymslunni; þ.e. Ístak, Björgun, Loftorku, Hlaðbæ-Colas, Völ og Dal- verk. Þau fluttu sprengiefni beint inn hér áður fyrr en nú eru aðeins tveir aðilar með leyfi til innflutnings á sprengiefnum; Kemis heildverslun og Ólafur Gíslason og Co hf. Undanfarin ár hefur Kemis heild- verslun fyrst og fremst notað geymsluna en Kemis á ríflega 19% hlut í húsnæðinu. Ólafur Gíslason og Co. notast við annað geymslu- húsnæði. Samkvæmt upplýsingum frá Kemis bindur fyrirtækið vonir við að tilboði þess í hlut ríkisins verði tekið, þar sem enginn annar aðili hafi not- að geymsluna. bjb@mbl.is Sprengiefnageymslan úr hendi ríkisins 8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2013 Þessar vangaveltur StyrmisGunnarssonar á Evrópuvakt- inni eru tímabærar:    Nú blasa enda-lokin við fyrstu hreinu og ómenguðu vinstri- stjórn lýðveldistím- ans.    Og vafalaustvelta sumir ráðherranna því fyrir sér, þegar þeir yfirgefa ráðu- neyti sín öðrum hvorum megin við næstu helgi, hvort þeir eigi ein- hvern tímann afturkvæmt.    Það er kannski stærri spurningen stundum áður, þegar ráð- herrar hafa yfirgefið ráðuneyti.    Ástæðan er sú, að engin veithvernig málin velkjast á vinstri vængnum.    Ljóst er að örvæntingin innanSamfylkingar er orðin svo mikil að þar er á ferð fólk, sem þreifar á því við Vinstri græna að þessir tveir flokkar verði samein- aðir.    Og sjálfsagt eru einhverjir innanVG, sem mundu telja það góð- an kost.    En er ekki betri kostur fyrir VGað leggja undir sig miðju- vinstra svæðið í íslenzkum stjórn- málum, sem þeir hafa augljóslega möguleika á? Og taka þá frekar til sín einstaklinga úr Samfylkingunni heldur en þær leifar sem eftir eru af flokknum sem slíkum?    Þetta er sú „strategíska“ spurn-ing, sem VG stendur frammi fyrir nú.“ Styrmir Gunnarsson Góð spurning STAKSTEINAR Veður víða um heim 21.5., kl. 18.00 Reykjavík 7 léttskýjað Bolungarvík 3 rigning Akureyri 5 skýjað Nuuk 5 léttskýjað Þórshöfn 10 léttskýjað Ósló 16 skýjað Kaupmannahöfn 13 skúrir Stokkhólmur 12 alskýjað Helsinki 18 heiðskírt Lúxemborg 12 skýjað Brussel 8 súld Dublin 16 skýjað Glasgow 16 léttskýjað London 12 skýjað París 11 skýjað Amsterdam 10 súld Hamborg 12 skúrir Berlín 17 skýjað Vín 18 skýjað Moskva 15 heiðskírt Algarve 18 léttskýjað Madríd 18 léttskýjað Barcelona 17 léttskýjað Mallorca 15 léttskýjað Róm 18 súld Aþena 27 heiðskírt Winnipeg 12 skýjað Montreal 13 alskýjað New York 27 heiðskírt Chicago 22 skýjað Orlando 24 þrumuveður Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 22. maí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:50 23:00 ÍSAFJÖRÐUR 3:23 23:37 SIGLUFJÖRÐUR 3:04 23:21 DJÚPIVOGUR 3:12 22:37 „Ég er búin að vera næstum átta ár hjá Alcoa og hef yfirleitt skipt um störf á fimm til átta ára fresti og finnst bara kominn tími á mig að hreyfa mig eitthvað og gera eitthvað nýtt,“ segir Erna Indriðadóttir, upplýsingafulltrúi hjá Alcoa Fjarðaáli, en hún hefur sagt starfi sínu lausu. Starf upplýsingafulltrúa Alcoa Fjarðaáls, með starfsaðstöðu í álveri fyrirtækisins við Reyðarfjörð, var auglýst laust til umsóknar í Morgun- blaðinu síðastliðinn laugardag en Erna, sem er fyrsti varaþingmaður Samfylkingar í Norðausturkjör- dæmi, segist munu láta af störfum með haustinu. Hún segir ekki liggja fyrir hvað taki við en árin hjá Alcoa hafi verið góð. „Þetta hefur verið frábær tími og mikið ævintýri að taka þátt í þessu verkefni og gott að vinna fyrir Alcoa Fjarðaál. Ég mun sakna mikið minna gömlu vinnufélaga, það er eft- irsjá að þeim. En mér finnst bara kominn tími hjá mér til að gera eitt- hvað nýtt og annað.“ holmfridur@mbl.is Erna hættir hjá Alcoa Fjarðaáli Erna Indriðadóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.