Morgunblaðið - 22.05.2013, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.05.2013, Blaðsíða 14
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fyrstu íbúakosningu um skipulags- mál í Vestmannaeyjum lýkur í kvöld. Bæjarstjórn Vestmannaeyja leitar álits íbúa á fyrirhugaðri út- hlutun lóðar undir hótel í svokall- aðri Hásteinsgryfju, ofan við íþróttavöllinn. Atkvæðagreiðslan á aðallega að vera rafræn en íbúum sem ekki hafa aðgang að tölvu er gefinn kostur á að mæta í Safnahúsið til að greiða atkvæði á hefðbundinn hátt. Fram- an af degi í gær greiddu mun fleiri atkvæði í Safnahúsinu en á netinu. Margrét Rós Ingólfsdóttir verkefn- isstjóri sagði að þangað kæmi eldra fólk en einnig fólk sem aðgang hefði að tölvu en þætti þægilegra að greiða atkvæði með gamla laginu. Til að greiða atkvæði rafrænt þarf að sækja um svonefndan Íslykil sem birtist í heimabanka viðkom- andi. Hann er notaður sem auð- kenni þegar greidd eru atkvæði í íbúagátt Vestmannaeyjabæjar. Margrét sagði að þetta tæki aðeins nokkrar mínútur. Vestmannaeyjabær hefur gefið út kynningarefni um málefnið sem kosið er um. Fjörug umræða er sögð vera um málið á kaffistofum í Eyj- um. Verður sýnilegt Hásteinsgryfja er gömul náma sem einnig var notuð til urðunar en aldrei hefur verið gengið frá. Unnið hefur verið að undirbúningi hót- elbyggingar á svæðinu í tvö ár. Útbúin var lóð fyrir hótel með breytingum á aðal- og deiliskipu- lagi. Gagnrýni kom fram á málið á meðan unnið var að skipulagsbreyt- ingum, ekki síst vegna sjónrænna áhrifa hótelsins. Í mati sem gert var kemur fram að fyrirhugað bygg- ingasvæði er hluti af verðmætri landslagsheild Norðurkletta. Hót- elið muni standa hátt í landinu og vera sýnilegt. Þegar H-Eyjar ehf. lögðu fram umsókn um hótellóðina ákvað bæj- arstjórn að óska álits íbúa. Guð- bjarni Eggertsson, stjórnarformað- ur fyrirtækisins, segir að ákvörð- unin hafi komið á óvart. Búið sé að fara með málið í gegnum ítarlegt skipulagsferli og leggja mikla vinnu og fjármuni í það. Hinsvegar telur hann ekkert að óttast varðandi nið- urstöðuna. Hluti af Hring hotels Reiknað er með að niðurstaða at- kvæðagreiðslunnar verði birt á fimmtudag. Hún er ekki bindandi fyrir bæjarstjórn. Áformað er að byggja 120 her- bergja hótel sem gert er ráð fyrir að verði fjögurra stjarna ásamt veit- ingaaðstöðu og veislusal. Það verð- ur rekið undir heitinu Hótel Heima- ey. Áætlaður byggingarkostnaður er 1,5 milljarðar kr. H-Eyjar mun byggja hótelið en áformað er að Hring hotels leigi það og annist reksturinn. Drög að samn- ingi liggja fyrir að sögn Guðbjarna en ekki er unnt að skrifa undir fyrr en lóðinni hefur verið úthlutað. Flestir mæta á kjörstað  Fyrsta íbúakosningin um skipulagsmál í Vestmannaeyjum stendur yfir  Leitað álits íbúa á úthlutun lóðar undir hótel í Hásteinsgryfju við íþróttavöllinn Hótel Heimaey Fyrirhugað hótel í Hásteinsgryfju verður mikil bygging og áberandi í landinu. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2013 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, Kjartan Magnússon, telur að meirihluti stjórnar fyrirtækisins hafi slegið af Hrafnabjargavirkjun í Skjálfanda- fljóti í pólitískum tilgangi. Kjartan greiddi einn atkvæði gegn heimild til sölu á hlut Orkuveitunnar. Kjartan vekur athygli á því að Orkuveitan sé með mikil uppsett afl í virkjunum en að uppistöðu til í jarð- varmavirkjunum. Menn séu sammála um að best sé að hafa blöndu af jarð- varma- og vatnsaflsvirkjunum en þau vatnsaflsverkefni sem Orkuveitan hafi átt aðild að hafi dottið út eitt af öðru og Hrafnabjargavirkjun sé það síðasta. Í bókun sem Kjartan gerði á fundi 19. apríl, þegar stjórnin heim- ilaði söluna, sagði að margir sérfræð- ingar Orkuveitunnar teldu óráðlegt að gefa frá sér möguleika á þátttöku í slíku verkefni og fækka þar með orkuöflunarkostum fyrirtækisins fyrir almennan markað til framtíðar. Vakti hann athygli á fundi Hrafna- bjargavirkjunar 18. júní 2012 þar sem bókað er eftir Bjarna Bjarna- syni, forstjóra OR, að hann hafi fullan hug á þessum virkjanakosti, svo framarlega að vel takist til með um- hverfismálin. Bjarni á ekki sæti í stjórn Hrafnabjargavirkjunar en var á umræddum fundi ásamt fulltrúum annarra eigenda. Kjartan segir aug- ljóst að meirihluti stjórnar hafi slegið virkjunina af í pólitískum tilgangi. Bjarni segist hafa haldið þeim sjónarmiðum fram að Orkuveitan þyrfti að horfa langt fram á veginn í orkuöflun. Það sé eðli fyrirtækisins. Spurður hvort bókunin frá í fyrra og samþykkt meirihluta stjórnar um að draga sig út úr Hrafnabjarga- virkjun endurspegli ágreining á milli forstjóra og meirihluta stjórnar í málinu segir Bjarni að það þurfi ekki að vera. Niðurstaðan sé frekar dæmi um mismunandi hlutverk þess sem stýrir daglegum rekstri fyrirtækis og stjórnar sem tekur stefnumarkandi ákvarðanir. Hann segist leggja fram sín rök og stjórnin horfi til fleiri sjón- armiða. Bjarni segir að heilmikil óvissa sé um það hvort heimilt verði að virkja í Skjálfandafljóti og leggja þurfi í kostnaðarsamar rannsóknir til að fá úr því skorið. Orkuveitan sé á þessari stundu ekki tilbúin að leggja mikið fé í slíkar rannsóknir. Pólitískar ástæður að baki  Fulltrúi Sjálfstæðisflokks segir sérfræðinga telja óráðlegt að hætta við Hrafnabjargavirkjun  Forstjóri Orkuveitu segir að horfa þurfi langt fram á veginn í orkuöflun  Stjórnin marki stefnuna Morgunblaðið/Kristján Aldeyjarfoss Rennsli Skjálfandafljóts í Bárðardal mun breytast verði Hrafnabjargavirkjun byggð, einkum yfir vetrartímann. Fulltrúar eigendanna skoðuðu aðstæður við Aldeyjarfoss þegar þeir stofnuðu virkjunarfélagið 2004. Bjarni Bjarnason Kjartan Magnússon Orkuveitan stofnaði fyrir níu árum félag um virkjun í Skjálf- andafljóti, svonefnda Hrafna- bjargavirkjum, með heima- mönnum. Orkuveitan á 60% félagsins á móti Þingeyjarsveit, Orkuveitu Húsavíkur og Norð- urorku. Ekki hefur verið ráðist í umhverfismat og virkjunarkost- urinn er í biðflokki samkvæmt þingsályktun um vernd og orkunýtingu náttúrusvæða. Stjórn Orkuveitunnar sam- þykkti á fundi sínum í byrjun apríl að ganga til viðræðna um sölu á eignarhlut Orkuveit- unnar til meðeigenda og að ganga þar með út úr félaginu. Síðar í mánuðinum voru sam- þykktir samningar um sölu eignarinnar til meðeigendanna. Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, segir að félagið sjálft hafi hafn- að forkaupsrétti og ekki séu komin svör frá öllum meðeig- endum og salan því ófrágengin. Hann segir að stjórn Orkuveit- unnar þurfi að taka málið fyrir að nýju ef þeir samningar gangi ekki eftir. Með heima- mönnum KOSTUR Í BIÐFLOKKI Kröfu verjenda níu fyrrverandi stjórn- enda og starfsmanna Kaupþings, um að sérstökum saksóknara yrði bannað að leggja fram ýmis gögn, var vísað frá með úrskurði í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Málið gegn níumenningunum er eitt það umfangsmesta sem sérstakur sak- sóknari hefur sent frá sér. Krafa verjenda snerist um að sak- sóknara yrði bannað að leggja fram ýmis gögn, bæði lögfræðiálit, skýrslur og greinargerðir. Dómari hafnaði þessari kröfu. Sakborningar hafa nú þriggja sólar- hringa kærufrest, fram til föstudags. Fram kom fyrir dóminum að miklar líkur væru á því að úrskurðurinn yrði kærður til hæstaréttar. Dómari sagð- ist raunar ganga út frá því og óskaði eftir aðstoð saksóknara við að útbúa málið fyrir hæstarétt þar sem um væri að ræða mikið gagnamagn. Má leggja fram gögn Nú er búið að opna Stórahring í Dimmuborgum, en það er hringleið sem tekur 20-30 mínútur að ganga og liggur meðal annars að Gat- kletti. Vonast er til að hægt verði að opna alla göngustígana í Dimmuborgum um næstu helgi. Veðrið er búið að vera gott síðustu daga í Mývatnssveit og snjó hefur tekið hratt, segir á vef Umhverfis- stofnunar. Betri aðstæður í Dimmuborgum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.