Morgunblaðið - 22.05.2013, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Rósa Braga
Útskurður Áhugi Ingibjargar Helgu kviknaði í framhaldi af verkefni fyrir Heimilisiðnaðarfélag Íslands.
ið í, þ.e.a.s breyta eða hreyfa til
landslagið og fígúrur í verkinu. Út-
koman varð Bláa Ævintýrið sem er
hálfgert brúðuleikhús sem sonur
minn kallaði ævintýrabox. Í fram-
haldi af þessu fór ég að túlka þjóð-
sögurnar okkar á þennan hátt en
verkin hafa vissulega tekið breyt-
ingum og ekki er hægt að neita því
að umhverfi mitt við Breiðafjörðinn
hefur áhrif á verkin mín og efnisval.
Það skemmtilegasta við að vinna
með þjóðsögurnar er að þær eru oft
nokkurnskonar dæmisögur. Þótt ég
hafi ekki gert mér
grein fyrir því í æsku þegar amma
var að segja mér þessar sögur þá
fór ég að sjá boðskapinn í þeim þeg-
ar ég fór að segja börnunum mínum
þær,“ segir Ingibjörg.
Spænir í eldhúsinu
Í verkin notar Ingibjörg lindi-
tré sem er harðviður en með-
færilegur í útskurði og góður að því
að leyti að hann er kvista- og æðalít-
ill. Hún vinnur verkin sín á nokkr-
um stöðum en sker að mestu út
heima og er því húsið gjarnan
undirlagt í spæni. Hvert verk er
einstakt þó Ingibjörg noti stundum
sömu söguna oftar en einu sinni.
Einnig sker hún út fugla en þá gerir
hún í fleiri eintökum. Ingibjörg hef-
ur sýnt nokkrum sinnum í Stykkis-
hólmi en einnig víðar og tók hún
t.a.m. þátt í verkefni á Minjasafninu
á Akureyri sem fjallað var um gjafir
frá huldufólki.
„Ég gerði nokkur verk sem
túlkuðu sögurnar en síðan voru hin-
ir eiginlegu gripir sem huldufólk er
sagt hafa gefið, fengnir að láni á
söfnum víða um land og
sýndir með,“ segir Ingi-
björg. Sýning hennar 7
börn í sjó á Landnáms-
setrinu í Borgarnesi
mun standa í allt sum-
ar. Hún samanstendur
af 7 verkum sem flest
byggjast á þjóðsög-
um eða þjóðtrú en
verk hennar má sjá
nánar á síðunni:
www.bibi.is.
Gæsir Út-
skornir fuglar
hafa einnig bæst
við verk Ingi-
bjargar
Helgu.Íslenskt Stuðlabergið er mörgum
listamönnum innblástur.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2013
Tónlistarmennirnir Snorri Helgason
og Hjalti Jón stilla saman strengi á
Loft Hostel annað kvöld klukkan
20:30. Ef þið viljið njóta þess að
hlýða á lágstemmda ljúfa tóna ætt-
uð þið að taka kvöldið frá, hafa
samband við einhvern sem er ykkur
kær og bjóða með ykkur.
Það getur verið gaman að leyfa
sér að vera ferðamaður í eigin landi
og skoða þá staði sem hinir erlendu
gestir heimsækja eins og til dæmis
Loft Hostel í Bankastrætinu. Þar
getur að líta bæði fallega og frum-
lega hönnun og því kannski sniðugt
að koma hálftíma fyrir tónleika,
skoða sig aðeins um og finna sér
síðan sæti.
Með gott í glasi eða kaffi í krús
er svo hægt að slappa af og njóta
blíðrar tónlistar þeirra Hjalta Jóns
og Snorra Helgasonar. Svo væri
kannski hægt að loka vel heppnaðri
stund með kvöldgöngu í kringum
tjörnina með þeim sem ykkur þykir
vænt um.
Endilega...
...lyftið ykkur upp
á Loft Hostel annað kvöld
Morgunblaðið/Eggert
Ljúfir tónar Tónlist Snorra Helgasonar er bæði þjóðlagakennd og einlæg. Hann
mun koma fram ásamt Hjalta Jóni á morgun á Loft Hostel.
Borgarbókasafn og Myndlistaskólinn
í Reykjavík standa árlega fyrir
myndasögusamkeppni. Um síðustu
helgi voru veitt verðlaun í Borgar-
bókasafni fyrir bestu myndasögurnar
og sýning með verkunum opnuð. Yfir-
skrift keppninnar í ár var Marvel, til
heiðurs ofurhetjuteymunum X-Men
og The Avengers, sem fagna fimm-
tugsafmæli í ár. Ríflega fimmtíu
myndir og sögur bárust í keppnina.
Sigurvegari í flokki 10-12 ára var
Una Björk Guðmundsdóttir, í flokki
13-16 ára var Filip Már Helgason de
Jesus og í flokki 17 ára og eldri voru
þau Elizabeth Katrín Mason og Arnar
Heiðmar Önnuson með sögunni Dear
Captain America, sem fjallar um
dekkri hliðar þess stríðsáróðurs sem
segja má að kapteinninn standi fyrir.
Sérstaka viðurkenningu hlutu þau
Birkir Hallbjörnsson og Sylvía France
Skúladóttir. Myndasögusýningin
stendur til 16. júní á fyrstu hæð Borg-
arbókasafnsins við Tryggvagötu.
Marvel mynda-
sögukeppnin
Áhugasamir aðilar hafi samband við
gunnar@kontakt.is eða í síma 414 1200.
Miðbæjarradíó
Eigendur Miðbæjarradíós horfa nú til þess
að draga sig í hlé frá rekstri fyrirtækisins
og hafa falið Kontakt að kanna með sölu á því.
Reksturinn hefur gengið vel, veltan stöðug
og hagnaður góður.
Miðbæjarradíó (sjá www.mbr.is) flytur inn íhluti, varahluti,
aukahluti, kapla, tengla, verkfæri, mælitæki og fleira
á rafeindasviði og selur til endursölu og í smásölu.
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
H
a
u
ku
r
0
5
.1
3
viðarparket
Verðdæmi:
Eik 3ja stafa kr. 4.590 m2
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Nýtt
2-lock
endalæsing