Morgunblaðið - 22.05.2013, Blaðsíða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2013
AF CANNES
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Hilmar Sigurðsson og fyrir-tækið hans Gunhil, voru aðlanda hér í Cannes sölu í 28
löndum með alþjóðlega sölufyrirtæk-
inu ARRI Worldsales á teiknimynd
sem er ekki farin í tökur og mun ekki
verða frumsýnd fyrr en árið 2015, ef
allt gengur upp.
Hilmar var einn aðalmaðurinn á
bakvið íslenska þrekvirkið Þór -
Hetjur Valhallar sem var fyrsta ís-
lenska teiknimyndin í fullri lengd og
var seld út um allan heim. Sú mynd
veitti mörgum íslenskum listamönn-
um tækifæri til að sýna að þeir
standa öðrum alþjóðlegum lista-
mönnum ekki að baki. Handritið var
afbragðsvel skrifað, leikstjórn og
teikningar voru langt umfram með-
almennskuna. Undirritaður hefur
orðið þess heiðurs aðnjótandi að lesa
handritið að nýju myndinni sem var
verið að selja til 28 landa hér á Can-
nes og getur vitnað um afbragðs-
handverk.
Friðrik Erlingsson sem skrifaði
bæði handritin er búinn að sanna sig
sem afburðahandritshöfundur og er
sómi að því að Ísland hafi náð að
rækta slíkan höfund. Þegar litið er til
þess hvað Hilmar Sigurðsson og
Gunnar Karlsson teiknari gerðu með
síðasta handrit Friðriks má búast við
því að glæsileg íslensk teiknimynd í
fullri lengd muni von bráðar koma í
bíóhúsin íslensku.
Þegar ég hitti Hilmar hér úti íCannes er hann sáttur með ár-
angurinn. Aðspurður hver sé lykill-
inn að árangrinum segir hann að þeir
séu margir. „Gunnar Karlsson er
náttúrlega töframaðurinn í þessu,“
segir Hilmar. „Hann hannar útlitið
og skapar karakterana í myndinni.
Friðrik er meistari sögunnar og svo
höfum við fengið Árna Ólaf Ásgeirs-
son til að leikstýra með Gunnari og
þegar maður er með svona teymi að
þá eru manni allir vegir færir. Hand-
ritið er frábær þroskasaga lítillar lóu,
litla fuglsins sem við þekkjum svo vel
á Íslandi. Við segjum söguna af
litlum undirmálsfugli á Íslandi sem
er að reyna sig í lífinu. Lóan er lítil og
ekki efnileg í stóra bardaga við
stærri fugla en það er hægt að bjarga
sér ef maður lærir að vera lítill og lifa
af.“ Það sem er svo fallegt í handrit-
Stórtíðindi frá Cannes
Á flugi Lóuunginn sem verður stjarna væntanlegrar teiknimyndar Hilm-
ars Sigurðssonar og félaga í Gunhil, teiknaður af Gunnari Karlssyni.
inu er að maður kynnist flestum fugl-
um Íslands og allir hafa þeir sína
þroskasögu. Hver fugl, hver karakt-
er sögunnar, er áhugaverður, allt frá
versta klisjufugli til besta furðufugls.
Sagan fer yfir þessa flóru fuglalífs en
missir aldrei sjónar á lóunni litlu sem
er aðalpersónan og þroskasaga henn-
ar sem er saga okkar allra sem skilj-
um ekki þennan valdaheim í kringum
okkur og erum bara undirmáls og
verðum það alltaf. Lóan fær óvænta
hjálp alls staðar að og óvæntar árásir
einnig. Þetta er hættulegt líf og við
höldum með lóunni sem ákveður að
vera ekki vorboði heldur þrauka vet-
urinn og vera hér í skítakuldanum
allan ársins hring einsog við hin; ætt-
um við Íslendingarnir ekki að hafa
flogið héðan burt fyrir löngu?
Aðspurður hvað myndin munikosta segir Hilmar að það verði
ekki undir 1,3 milljörðum íslenskra
króna. „Þetta verður á svipuðu róli
og síðasta mynd. Þetta væri ekki
hægt nema út af þátttöku annarra
þjóða í verkefninu. Hún verður að
hluta framleidd í Þýskalandi og að
hluta heima á Íslandi. Það fer ekkert
á flug nema maður komist í alþjóð-
legt samstarf og sölur. Við höfum
verið að vinna í verkefninu lengi en
eftir að alþjóðlega samstarfið hófst
þá fór þetta fyrst af stað fyrir alvöru.
Eftir að við kynntum myndina á
Cartoon Movies í mars er þetta farið
að rúlla. Við munum vonandi ná að
frumsýna árið 2015. Þetta var hálf-
gerður uppboðsmarkaður núna um
helgina og löndin komu í hrönnum til
að kaupa myndina. Rússland, Pól-
land, Belgía, Holland, S-Kórea, Kína
og fleiri – þetta kom bara í „lange ba-
ner“. Það var gaman að vera þarna
og sjá hana seljast svona snemma í
framleiðsluferlinum.“
Aðspurður hvort hann hafi góðareynslu af samstarfi við Þjóð-
verjana segir hann að svo sé. „Þjóð-
verjarnir eru traustir, standa við sitt
og eru eiginlega aldrei í einhverjum
skrítnum dílum. Þegar maður er að
eiga við menn í anglósaxneska heim-
inum þá er alltaf verið að reyna að
skvísa einhverjum skrítnum atriðum
inn í samningana, eitthvað sem ég
hef aldrei upplifað með Þjóðverjun-
um. Það er rosalega gott að vinna
með þeim.“
Aðspurður hvort þetta sé í
fyrsta skiptið sem íslenski fuglinn ló-
an sé fluttur út, heldur hann að svo sé
ekki. „Hún var grilluð á teini hérna
áður fyrr. Og á hinn bóginn er hún
alltaf að flytja út á hverju hausti þeg-
ar hún bara stingur okkur Íslendinga
af. En hún kemur alltaf aftur heim til
okkar,“ segir Hilmar.
» Þetta var hálf-gerður uppboðs-
markaður núna um
helgina og löndin komu
í hrönnum til að kaupa
myndina.
Leikhópurinn Lotta frumsýnir nýj-
an íslenskan söngleik um tröllskess-
una Gilitrutt í Elliðaárdalnum í
Reykjavík í dag kl. 18. Líkt og fyrri
ár hyggst hópurinn ferðast um
landið með sýninguna og sýna hana
alls tæplega 70 sinnum undir berum
himni á 50 stöðum. Þess má geta að
þetta er sjöunda árið sem Lotta
ferðast með sýningu um landið.
Leikstjóri Gilitruttar er Ágústa
Skúladóttir, sem fyrr á leikárinu
leikstýrði Dýrunum í Hálsaskógi í
Þjóðleikhúsinu og Hjartaspöðum í
Gaflaraleikhúsinu. Handritið skrif-
aði Anna Bergljót Thorarensen, en
þetta er þriðja leikritið sem hún
skrifar fyrir hópinn. Þau fyrri voru
Stígvélaði kötturinn og Mjallhvít. Í
Gilitrutt blandar Anna Bergljót
saman þremur velþekktum æv-
intýrum. „Gilitrutt er tröllskessa og
hún er sífellt að reyna að lifa
drauminn, að vera ægilega góð í því
að vera vond. En Bárður bróðir
hennar er sífellt að skemma það
fyrir henni með klaufaskapnum og
óþolandi góða hjartanu sínu. Kýrin
Búkolla og Þóra vinkona hennar
búa saman á bænum Bakka þar
sem Freyja, móðir Þóru og Þór
bróðir hennar gera þeim lífið leitt
með yfirgangi og skepnuskap. Geit-
urnar þrjár leggja á ráðin um að
fara yfir brúna sem Gilitrutt gætir
því grasið er svo miklu grænna hin-
um megin,“ segir m.a. í kynning-
artexta um sýninguna, en þar er
tekið fram að sýningin sé fyrir börn
á öllum aldri.
Í verkinu eru tólf frumsamin lög
eftir fjóra höfunda, þ.e. Björn Thor-
arensen, Gunnar Ben, Helgu og
Baldur Ragnarsbörn. Búningahönn-
uður er Kristín R. Berman. Um
leikmynd sá Guðjón Þorsteinn
Pálmarsson og leikhópurinn, en
hann skipa Andrea Ösp Karlsdóttir,
Anna Bergljót Thorarensen, Baldur
Ragnarsson, Björn Thorarensen,
Helga Ragnarsdóttir, Rósa Ásgeirs-
dóttir, Sigsteinn Sigurbergsson,
Stefán Benedikt Vilhelmsson og
Sumarliði V. Snæland Ingimarsson.
Gilitrutt í Elliðaárdalnum
Sprellfjörugt Í leikritinu er ævintýrunum um Búkollu, geiturnar þrjár og
tröllskessuna Gilitrutt, blandað saman á skemmtilegan og frjóan hátt.
Leikhópurinn
Lotta sýnir á 50
stöðum um landið
Hljómborðsleikarinn Ray Manzarek,
sem stofnaði hina þekktu hljómsveit
The Doors ásamt söngvaranum og
ljóðskáldinu Jim Morrison árið 1965,
lést úr krabbameini í Þýskalandi á
mánudag, 74 ára.
Manzarek var einn áhrifamesti
rokktónlistarmaður sjöunda áratug-
arins og ábyrgur fyrir einkennis-
hljómi The Doors; hvínandi Hamm-
ondorgelinu sem hann notaði til að
flúra í dramatískum leik á móti söng
Morrisons.
The Doors skaut hratt upp á
stjörnuhimininn eftir að gítarleikar-
inn Robbie Krieger og trymbillinn
John Densmore gengu til liðs við
Manzarek og Morrison. Á þeim sex
árum sem hljómsveitin starfaði seldi
hún yfir eitthundrað milljónir hljóm-
platna og sló í gegn með lögum sem
enn lifa, á borð við „L.A. Woman“,
„Love Me Two Times“, „Hello, I
Love You“ „Light My Fire“ þar sem
Manzarek þykir fara á kostum. Þá
hafa lengri ópusar sveitarinnar,
„When the Music’s Over“ og „The
End“ – lag sem
notað var með
eftirminnilegum
hætti í hápunkti
kvikmyndarinnar
Apocalypse Now
– notið hylli.
Eftir dauða
Morrison árið
1971 reyndu þre-
menningarnir að
halda sveitinni á lífi með Manzarek
sem söngvara en það gekk ekki vel
og héldu þeir fljótlega hver sína leið.
Eftir langan sólóferil, þar sem Manz-
arek gaf fyrst út hljómplötuna The
Golden Scarab árið 1974 og samdi
meðal annars tónlist fyrir kvik-
myndir, hófu þeir Krieger að leika
aftur saman árið 2002 og gerðu það
af og til síðasta áratuginn.
„Ég gleðst yfir að hafa getað leik-
ið Doors-lög með honum síðasta ára-
tuginn. Ég mun alltaf sakna hans,“
segir í yfirlýsingu Kriegers þar sem
hann harmar andlát vinar síns og
hljómsveitarfélaga.
Manzarek, hljómborðs-
leikari The Doors, látinn
Ray Manzarek
opnum á nýjum stað í júní
H Ú S G Ö G N
Verslun okkar er opin:
Virka daga kl.9-18
Laugardaga kl.11-16
Sunnudaga lokað
Patti verslun I Dugguvogi 2 I Sími: 557 9510 I vefsíða www.patti.is
Fjarstýringa vasar verð2.500áður 4.900
Sófaborð verð frá12.000áður 44.900
Hornsófi verð119.450áður 238.900
Heilsukoddar verð2.900 áður 6.000
Baststólar verð frá5.000 áður 25.000
Sjónvarpsskápar verð frá23.640áður 59.900
opnum
kl.9
sýningareintök og útlitsgallaðar vörur
með allt að 90% afslætti
fystir koma fyrstir fá
Leður sófasett 311 verð 149.000 áður 558.800
Tungusófi verð 50.000 áður 251.400
2 stk
1 stk
60%-20%
-30%-90%
-10%
-50% 40%
Allt verður að seljast
vegna flutninga
RýmingaRsala