Morgunblaðið - 22.05.2013, Blaðsíða 10
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Ingibjörg Helga Ágústsdóttirendurskapar íslenskar þjóð-sögur í fallegum útskurðisem nú er til sýnis í Land-
námssetri Íslands í Borgarnesi.
Ingibjörg lærði fatahönnun í Lond-
on og Kaupmannahöfn á sínum tíma
en fannst það starf síðan ekki höfða
nógu vel til sín. Hún lagði því áform
um slíkan feril á hilluna en hafði þó
sem fyrr mikinn áhuga á bún-
ingahönnun.
Handverk í útrýmingarhættu
„Eins og margar stúlkur fékk
ég upphlutinn hennar ömmu minnar
og nöfnu og þá vaknaði áhugi minn
á þjóðbúningum og þá sérstaklega
faldbúningum. Á þeim tíma sem ég
gerði minn fyrsta faldbúning voru
litlar sem engar upplýsingar um
hann að hafa. Eitt leiddi þó af öðru
og ég endaði í Faldafeyki, hóp hjá
Heimilisiðnarfélagi Íslands sem var
settur á laggirnar til að endurvekja
íslenska faldbúninginn og hand-
verkið sem tengist honum. Þarna
kom saman fullt af hæfileikaríkum
konum með ólíkan bakgrunn sem
áttu sameiginlegt að hafa gert
svona búning, langaði til þess eða
höfðu áhuga á handverkinu. Það má
segja að það hafi kannski verið síð-
ast en ekki síst vinnan með þessum
hóp kvenna sem varð til þess að
vekja áhuga minn fyrir alvöru á öllu
sem viðkemur handverki. Þessu
starfi Faldafeykis má þakka að nú
eru reglulega haldin námskeið hjá
Heimilisiðnaðarfélaginu þar sem
konum gefst færi á að sauma sér
faldbúning. Námskeið þessi hafa
verið mjög vinsæl enda verður hver
búningur einstaklingsbundinn og
passar því vel fyrir íslenskar konur
sem vilja vera svolítið öðruvísi í
klæðaburði,“ segir Ingibjörg.
Dæmisögur fyrir börn
Í heimsóknum Ingibjargar á
söfn landsins skoðaði hún mikið af
gömlu handverki sem varð kveikjan
að útskurðinum og litunum sem hún
notar í verkin. Ingibjörg ákvað að
byrja á nýjum grunni en hún hafði
lengi haft áhuga á útskurði og fór á
námskeið í tengslum við skátastarf
sem hún hélt utan um í heimabæ
sínum Stykkishólmi. Fyrsta út-
skurð-arverkið gerði hún fyrir sam-
sýningu í Norska Húsinu. Þema
sýn-ingarinnar var blái liturinn sem
hverjum og einum var frjálst að
túlka á sinn hátt.
„Ég hafði lengi ætlað að búa til
útskurðarverk fyrir börnin og
ákvað því að búa til myndverk á
vegg sem hægt væri að „fikta“ dálít-
Fagurlega út-
skornar þjóðsögur
Litagleði Fallegir og bjartir litir
einkenna verk Ingibjargar.
Bláa ævintýrið Fyrsta verk Ingibjargar Helgu sem sýnt var í Norska Húsinu.
Íslenskar þjóðsögur og gamalt handverk veittu Ingibjörgu Helgu Ágústs-
dóttur innblástur við að skera út listaverk úr linditré. Hvert verk Ingi-
bjargar Helgu er einstakt en öll eru þau mjög litrík.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2013
Víðsfræg menntaskólahljómsveit frá
Iowa í Bandaríkjunum, The Luther
College Concert Band, mun standa
fyrir tónleikum í Hörpunni miðviku-
daginn 22. maí. Sveitin var stofnuð
árið 1878 og hefur síðan þá getið sér
gott orð sem ein færasta skóla-
hljómsveit Bandaríkjanna. Auk þess
að spila þar í landi hefur sveitin spil-
að víðsvegar um Evrópu, Japan og
Kína. Hljómsveitin er um þessar
mundir undir stjórn Joan deAlbu-
querque og mun hún meðal annars
flytja verk eftir Joseph Turrin, Ola
Gjeilo og J.S. Bach. Þess má til gam-
ans geta að skólinn var stofnaður af
norskum innflytjendum í Bandaríkj-
unum en nánar má lesa um sögu
sveitarinnar á heimasíðu hennar.
Hljómleikarnir verða í Hörpuhorni á
annarri hæð Hörpunnar, hefjast
klukkan 17, verða um klukkutími að
lengd og öllum velkomið að mæta.
Vefsíðan www.luther.edu/music/ensembles/concertband
Menntaskólasveit Það eru nemendur Luther-menntaskólans í Iowa-fylki í
Bandaríkjunum sem skipa sveitina sem stendur fyrir tónleikunum.
Veraldarvön sveit í Hörpunni
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Ofurhetjuárshátíðin Hluti af sögu Unu Bjarkar.
Sigurvegarar Veitt voru verðlaun fyrir bestu myndasöguna í
þremur aldursflokkum, 10-12 ára, 13-16 ára og 17 ára og eldri.
Nýi Caracterinn Vinningssaga Filips Más Helgasonar.
makes a difference
F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð
Skeifan 3 E-F • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is
Vatnsdælur
Neysluvatnsdælur, brunndælur, borholudælur
Hentugar á heimilið, í garðinn, sumarhúsið eða bátinn
GP 60
Garðdæla fyrir
aukinn þrýsting
BPP 4500
Dæla með þrýstikút
og þrýstijafnara
SPP 6D Inox
Ryðfrí og öflug
borholu- og
brunndæla
SDP 9500
Dæla -
fyrir óhreint vatn
SCD 12000
Dæla - fyrir ferskvatn.
Stillanlegur vatnshæðarnemi
S
tillanlegur
vatnshæ
ðarnem
i