Morgunblaðið - 22.05.2013, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2013
um leitað svolítið að síðastliðin 10-12
ár, er fólginn í þeirri stefnufestu
stjórnvalda að tryggja stöðugleika
gengisins. Þetta gerðum við með
fastgengisstefnu í tíu ár sem var far-
sælt að okkar mati en með flotgeng-
inu frá 2001 og talsverðri óstjórn í
efnahagsmálum hefur verðbólgan og
gengissveiflurnar verið með þeim
hætti að þessi leið hefur ekki verið
fær. Áður en menn tjá sig um vilja
til að fara í aðra slíka vegferð þarf að
liggja betur fyrir hvað stjórnvöld
ætla sér.“
Gylfi telur breiða sátt um að bæta
megi vinnulagið en það verði ekki
slitið frá þeim grundvelli sem samn-
ingar hvíli á, sem sé efnahagsstefn-
an og hvort sameiginlegur skilning-
ur er á hvað best móti getu
samfélagsins til að standa undir
kaupmáttarbreytingum. Ræða þurfi
betur í einstökum samböndum og fé-
lögum hvort menn sjái verðmæti í
því að fara þessa leið. Sátt þurfi að
ríkja um það. Annaðhvort fari hana
allir eða enginn.
Fráfarandi ríkisstjórn hafi gefið
upp bolta sem einstaka hópar hafi
gripið á lofti um að leiðrétta þurfi
kjör þeirra gagnvart öðrum hópum.
Morgunblaðið/Eggert
Kjaramál Um 170 manns, fulltrúar stéttarfélaga og samtaka launþega og vinnuveitenda, komu saman á fundi í Rúg-
brauðsgerðinni þar sem skýrsla vinnuhóps um kjarasamninga og vinnumarkaðinn á Norðurlöndum var kynnt.
Þorsteinn Víglundsson, fram-
kvæmdastjóri SA, segir mjög gagn-
legt að fá upplýsingar um undir-
búning og verklag við gerð kjara-
samninga annars staðar á
Norðurlöndum. Það hafi verið já-
kvætt á fundinum í gær, þar sem
skýrslan Kjarasamningar og vinnu-
markaður á Norðurlöndum var
kynnt, að allir séu reiðubúnir að
vinna áfram að þessu verkefni.
„Það er augljóst af þeirri skýrslu
sem þarna var kynnt að ávinningur
Norðurlandanna af þessu verklagi
hefur verið verulegur,“ segir hann.
Þorsteinn bendir á að á níunda
áratugnum glímdu önnur lönd á
Norðurlöndum við svipuð vandamál
og Íslendingar hafa verið að glíma
við undanfarin tíu ár. „Þar var nærri
6% verðbólga að meðaltali á hverju
ári, fast að 7% launabreytingar á
hverju ári og
gengisfellingar.
Þó þeir næðu ár-
angri í að auka
kaupmátt var
hann þó talsvert
lakari en þessi
lönd hafa náð á
síðustu 20 ár-
um,“ segir hann.
Í dag búa þessi
lönd við góðan árangur hvað varðar
hagvöxt, mikinn verðstöðugleika,
þar sem verðbólga er 1 ½% að jafn-
aði á undanförnum áratug og góður
árangur hefur náðst í að auka kaup-
mátt. „Við teljum til mikils að vinna
að komast inn í svona umhverfi og
verklag í tengslum við kjarasamn-
inga. Það mun líka mæða mikið á
ríkinu og ríkisfjármálunum í þeim
efnum.“
Það er til mikils að vinna
ÞORSTEINN VÍGLUNDSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI SA
Þorsteinn
Víglundsson
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Niðurskurður í heilbrigðiskerfinu
hefur enn sem komið er ekki haft telj-
andi áhrif á gæði á Landspítalanum,
segir framkvæmdastjóri lækninga á
LSH. Hann segir að verði hins vegar
ekki snúið frá fjársveltistefnu í heil-
brigðismálum, sé hrun í þjónustu og
gæðum á spítalanum rétt handan við
hornið.
Morgunblaðið sagði frá því í apríl
að áhyggjur væru uppi vegna þrifa á
spítalanum eftir að þau voru boðin út
og þá kom fram í tilkynningu frá Holl-
vinum Grensásdeildar að á aðalfundi
félagsins hefði yfirlæknir deildarinn-
ar sagt frá því að afleiðingar niður-
skurðar birtust m.a. í því að vörur
væru oft lélegar og lyf væru ekki til
þegar á þyrfti að halda.
Allar vörur gæðavottaðar
Ólafur Baldursson, framkvæmda-
stjóri lækninga og yfirmaður gæða-
mála á LSH, segir hins vegar að þrátt
fyrir að leitast hafi verið eftir því und-
anfarin ár að hagræða sem mest í inn-
kaupum, hafi það ekki bitnað á gæð-
um aðfanga.
„Við höfum
náttúrlega lagt
meiri áherslu á
það núna en áður
að leita hagstæð-
ustu tilboða en það
breytir því ekki að
allar vörur sem við
sækjumst eftir eru
gæðavottaðar á
einhvern hátt,“
segir Ólafur. „Hins vegar hafa komið
upp mál þar sem einstaka vörur hafa
ekki reynst nógu góðar en það er eitt-
hvað sem hvaða fyrirtæki sem er sem
pantar einhverja vöru getur lent í; að
hún reynist ekki vel. Og þá skiptir
maður um vöru í samræmi við það.“
Stritað á bjargbrúninni
Ólafur segir þekkt að á síðastliðn-
um árum hafi spítalar á Vesturlönd-
um lent í því að lyf væru ekki fáanleg
hjá birgjum og það sama hafi gerst
hérlendis. Hann bendir á að í vetur
hafi komið upp sú staða að algengt
sýklalyf fékkst ekki hjá birgja en það
hafi ekki haft neitt með niðurskurð
eða fjárskort að gera.
Hann segir gæðamálin í stöðugri
endurskoðun, þótt enn vanti fé og
mannafla til að vinna að gæðamálum
sérstaklega. „Það hefur auðvitað kost-
að óheyrilega vinnu að reka spítalann
á þessari bjargbrún sem við erum á og
passa upp á það að ódýrustu og bestu
tilboðunum sé alltaf tekið. Og það er
alveg klárt að þjónusta spítalans, eins
og oft er búið að tala um, hefur minnk-
að á síðustu árum. En stóru gæða-
viðmiðin sem við höfum, spítalasýk-
ingarnar til dæmis; við sjáum ekki að
þær versni,“ segir hann.
Hættuleg stefna
Ólafur segir niðurskurð undanfar-
inna ára augljóslega hafa komið illa
niður á spítalanum og segir blasa við
að hrun verði í þjónustunni ef haldið
verður áfram á sömu braut.
„Fólkið okkar stendur sig gríðar-
lega vel og leggur á sig aukalega til að
halda spítalanum í þeim gæðum sem
hann er. En það er ekki hægt að búa
við þessa fjársveltistefnu lengur. Það
er hættulegt og það bíður okkar hand-
an við hornið, ef svona verður haldið
áfram, að þjónustan hrynur og þar
með gæðin líka. Tölurnar sýna að við
erum innan marka í dag en stefnan er
ekki góð ef það á að fjársvelta spít-
alann áfram. Það er alveg klárt.“
Nauðsynlegt að víkja frá
fjársveltisstefnunni
Gæði á Landspítalanum mikil þrátt fyrir niðurskurð
Ólafur Baldursson
Otrivin Comp, nefúði, lausn. Innihaldslýsing: Xýlómetazólínhýdróklóríð 0,5 mg/ml og ipatrópíumbrómíð.
Ábendingar: Einkenni nefstíflu (þrútinnar nefslímhúðar) og nefrennslis af völdum kvefs. Skammtar og
lyfjagjöf fyrir fullorðna eldri en 18 ára: 1 úðaskammtur í hvora nös eftir þörfum, að hámarki þrisvar á
sólarhring. Að minnsta kosti 6 klukkustundir skulu líða milli tveggja skammta, draga skal úr skömmtum
þegar einkenni lagast. Ekki má nota Otrivin Comp lengur en 7 daga þar sem langvarandi notkun
xýlómetazólínhýdróklóríðs getur leitt til bólgu í nefslímhúð og aukinnar slímmyndunar. Snýttu þér.
Fjarlægðu glæru plasthettuna. Skorðaðu úðaflöskuna milli fingranna. Úðað er með því að þrýsta
kraganum niður að flöskunni. Hallaðu höfðinu örlítið fram. Stúturinn á úðaflöskunni er settur upp í nösina.
Úðað er einu sinni, um leið og andað er að sér inn um nefið. Farðu eins að í hina nösina. Ekki má nota lyfið
ef þú ert með ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna, ofnæmi fyrir atrópíni eða svipuðum efnum (t.d.
hýoscýamín eða skópólamín), ef þú hefur gengist undir aðgerð í gegnum nefið eða munninn, ef þú ert með
nefþurrk vegna slímhúðarbólgu eða ert með gláku. Ráðfærðu þig við lækni áður en lyfið er notað ef þú
ert: Þunguð, með barn á brjósti, næmur fyrir adrenvirkum efnum, hjarta- eða æðasjúkdóm,
skjaldvakaóhóf, sykursýki, háþrýsting, erfiðleika við þvaglát (stækkaðan blöðruhálskirtil), æxli í nýrnahet-
tum, ef þú færð oft blóðnasir (t.d. aldraðir), ert með þarmalömun, slímseigjusjúkdóm, þunglyndi og ert á
lyfjameðferð við því. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður
en byrjað er að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Markaðsleyfishafi:Novartis
Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
Nýtt lyf sem verkar bæði gegn
nefstíflu og nefrennsli
Andaðu með nefinu
Nýtt!