Morgunblaðið - 22.05.2013, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 22.05.2013, Blaðsíða 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2013 Anna Kristín varð þrítug og svo samskonar mynd af sömu stelpum tíu árum síðar. Það eru aðeins örfá ár í næsta tug en á þeirri mynd verður þú ljósið sem lýsir. Hvíldu í friði, elsku mannsbarn- ið mitt. Steinunn Valdís Óskarsdóttir. Við sjáum á bak yndislegri samstarfskonu. Anna Kristín var leiftrandi persónuleiki sem fékk alla með sér hvert sem viðfangs- efnið var. Henni var mjög í mun að vandað væri til verka og öllum væri sýnd virðing. Hún var leið- togi í eðli sínu og þannig var oft eins og dregið væri frá ský þegar hún hafði tekið málin í sínar hend- ur. Drifkrafturinn var einstakur. Hún var góður félagi sem kunni að gleðjast með sínu fólki. Hún sló í gegn með stórkostlegum tilþrif- um. Eftirminnilegt er þegar hún mætti bleikklædd á furðufatadag með hárkollu Sollu stirðu. Hún var flottust. Anna Kristín kom að stofnun hlaupaklúbbsins hjá Um- hverfisstofnun og var þar vel virk. Hún var meðal hörðu naglanna sem drifu sig út í hvaða veðri sem var. Hún efldi hópandann og stóð fyrir því að hópurinn hljóp undir merkjum stofnunarinnar í Reykjavíkurmaraþoninu. Oftast hljóp hún hálfmaraþon en ekki höfðu allir svo mikið úthald. Á starfstíma sínum hjá Um- hverfisstofnun lauk hún fjölda- mörgum glæsilegum náttúru- verndarverkefnum. Vinna við friðlýsingar hentaði henni líka vel þar sem þá reyndi virkilega á hæfileika til að hlusta, greina, skilja og leita lausna. Hún sýndi öllum virðingu og hlýju í sam- skiptum en átti líka til ákveðni ef á þurfti að halda. Hún hafði þétt handtak og horfði ávallt í augun á þeim sem hún talaði við. Hún var heimskona í eðli sínu en naut sín gríðarlega vel í hinum dreifðu byggðum landsins, hvort sem var í stórbrotinni náttúru Vestfjarða eða Mývatns. Anna Kristín var ávallt reiðubúin, með allt í tösk- unni og snaraðist í að bjarga mál- unum fyrir allan hópinn ef eitt- hvað óvænt kom upp. Hún tvísteig ekki yfir hlutunum heldur gekk hreint til verks. Sátt og samvinna var lykill hennar að úrlausn allra mála. Ef í harðbakkann stefndi þá skerpti hún á varalitnum og brosti svo breitt að öll heimsins vanda- mál féllu í skuggann. Við eigum eftir að njóta hennar krafta lengi enn þar sem hún var dugleg að skipuleggja verkefni fram í tím- ann. Þekking hennar á opinberri stjórnsýslu var framúrskarandi og var hún dugleg að gefa ábend- ingar sem leitt gætu til frekari ár- angurs. Anna Kristín var mikil fjöl- skyldumanneskja og talaði af mik- illi hlýju um manninn sinn og börnin sem eru svo glæsileg öll. Það var svo spennandi að heyra frásagnir af því hvað þau hafa tek- ið sér flotta og ólíka hluti fyrir hendur. Við heyrðum sögur af því hvernig góðir hlutir gerast hægt og bítandi í golfinu með Hjörleifi. Engum duldist sem sá þau saman að þarna voru samhent hjón og af þeim stafaði ljómi. Efst í huga okkar er þakklæti og minningar um gleðilegar stundir með okkar kæru sam- starfskonu Önnu Kristínu. Hún gaf mikið af sér til allra í kringum sig og verður sárt saknað. Fyrir hönd starfsfólks Um- hverfisstofnunar, Kristín Linda Árnadóttir og Sigrún Ágústsdóttir. Mér er enn í fersku minni er ég hitti Önnu Kristínu í fyrsta sinn. Fyrir tuttugu og eitthvað árum, átti erindi á skrifstofu Kvennalist- ans og þar var mín kona, í hádeg- ispásu frá störfum í bandaríska sendiráðinu. Við heilsuðumst, skiptumst stutt á praktískum upplýsingum um hagi og stöðu en fyrr en varði vorum við komnar í hörkuumræð- ur um alþjóðamál; öryggi heims- ins og lykilhlutverk kvenna í að tryggja framtíð jarðarbúa. Ég man svo glöggt hvað ég varð hrifin af henni; rökfestunni, þekkingunni, óbilandi ástríðunni; augun geisluðu þar sem hún sat með salatbakkann sinn. Ég man ég hugsaði: Vá, þetta er æðisleg stelpa. Og það var hún. Alla tíð. Gef- andi vinkona. Falleg, skemmtileg kona með flottan húmor. Fag- manneskja fram í fingurgóma í öllum þeim störfum sem hún tók að sér. Velmenntaður, skarpur analítíker með ríka réttlætis- kennd. Og síðast en ekki síst fem- ínisti í allri sinni dýrð; í nálgun á lífið, tilveruna, samfélagið, rétt- lætið. Enda sýndi hún og sannaði að hún hafði kjark og þor til að taka feminíska baráttu við hvaða „garða“ sem er – og sigra þá. Anna Kristín áorkaði meiru en margur gerir á tæpum fimmtíu ár- um. Hún bjó lengi erlendis, bæði sem barn og fullorðin kona, og öðl- aðist ferska sýn á lífið. Hún tók virkan þátt í starfi Kvennalistans og Reykjavíkurlistans og átti rík- an þátt í að innleiða þau gildi og stefnu sem þessi tvö stjórnmálaöfl stóðu fyrir. Gildi og stefnu sem ennþá má finna víða og voru í raun upphafið að nýrri stjórnmálahefð á Íslandi. Hún stýrði háskólaskrifstofu Listaháskóla Íslands og lagði mik- ið af mörkum til uppbyggingar hans. Hún sérhæfði sig á síðari ár- um í umhverfismálum, var stjórn- arformaður Vatnajökulsþjóðgarðs á fyrstu árum hans og drifkraftur í friðlýsingum landsvæða á vegum Umhverfisstofnunar. Og hér er aðeins fátt eitt talið. Við söknum hennar sárt, allir vinir hennar, og óskum þess heitt að svona hefði ekki farið. Dýpstur er þó söknuður krakkanna hennar flottu þriggja, stjúpdóttur, elsku Hjörleifs, bræðra, föður og frænd- garðs alls og sendi ég þeim öllum mínar hlýjustu samúðarkveðjur. Ég mun minnast Önnu Kristínar eins og ég hitti hana fyrst; geisl- andi flottrar konu sem gerði alla ríkari, sem kynntust henni. Ása Richardsdóttir. Anna Kristín Ólafsdóttir var einn þeirra nema sem gáfu lífinu við lagadeild Háskólans í Reykja- vík lit. Hún kom í meistaranám með grunngráðu í öðru: Snagg- araleg, dökkhærð kona, afburða vel lesin og máli farin, greind, upp- byggileg við samnemendur sína og okkur kennarana og skemmti- leg. Hún var framúrskarandi nemandi og ein þeirra sem kenn- arar miðuðu sig gjarnan við: Ef Anna Kristín skildi ekki, þá voru útskýringar sennilega ófullnægj- andi. Hún var líka ein þeirra sem gáfu af sér, sagði frá eigin reynslu og hafði góð áhrif á umræður um lagaleg viðfangsefni. Við minnumst Önnu Kristínar með virðingu og hlýju og vottum aðstandendum innilega samúð. Margrét Vala Kristjánsdóttir og Ragnhildur Helgadóttir. Þar sem jökulinn ber við loft hættir landið að vera jarðneskt en jörðin fær hlutdeild í himninum þar búa ekki framar neinar sorgir og þessvegna er gleðin ekki nauðsynleg þar ríkir fegurðin ein ofar hverri kröfu. (Halldór Laxness) Á Látrabjargi horfum við suður yfir Breiðafjörð á Snæfellsjökul. Útsýnið er fagurt og umhverfið er magnað. Það er engu líkara en að orkan frá jöklinum nái alla leið yfir á Látrabjarg, slíkur er krafturinn sem fylgir þessu svæði. Sagan er við hvert fótmál, fornminjar sem segja merkilega sögu um útræði og lífsbaráttu sem var harðari en hörð, örlítil mistök gátu kostað menn lífið. Og þarna er einn merkilegasti staður landsins, ef ekki heimsins þegar horft er til náttúrufars og fuglalífs. Síðustu tvö ár hefur Anna Kristín unnið ásamt samhentum hópi fólks að deiliskipulagi og friðlýsingu Látrabjargs. Anna hafði mikla reynslu af verkum sem þessu. Það var mikill fengur fyrir Vestur- byggð að Önnu Kristínu Ólafs- dóttur skyldi vera falið þetta veigamikla hlutverk f.h. Umhverf- isstofnunar. Verður ekki ofsagt að Anna Kristín á stærstan þátt í því hversu vel vinnan hefur gengið. Hennar fallega og heillandi fram- koma, skynsemi og stefnufesta hefur komið verkefninu lengra en marga óraði fyrir. Önnu Kristínar er sárt saknað úr hópnum okkar sem hefur tengst þéttum böndum við þetta vandasama og mikilvæga verk. Síðast hittumst við á Patreks- firði nú í vor þar sem enn einum áfanga var náð í vinnunni og allt var bjart. Við glöddumst yfir því að Anna Kristín væri með okkur enda höfðum við ekki farið var- hluta af veikindum hennar og von- uðum að sólin væri farin að skína í hjarta hennar – allt benti til þess. Hún var að venju glæsileg og brosandi, með eldrauða varalitinn sinn og lék við hvern sinn fingur. Samstarfskonur mínar dásömuðu þessa fallegu og skemmtilegu konu sem hlyti að vera langhlaup- ari því hún væri svo flott, sem hún auðvitað var. Á dagskrá var Flór- ídaferð með fjölskyldunni og ís- lenska vorið og hún var full til- hlökkunar og orku. Við kvöddumst og ákveðið var að hitt- ast fljótt til að ræða næstu skref í vinnunni okkar og njóta samvista enda orðnar góðar vinkonur. En eigi má sköpum renna. Sólin í hjarta hennar Önnu skein ekki eins skært og við héldum – eða vonuðum – og síðustu vikur höfum við staðið frammi fyrir mörgum áleitnum spurningum en svörin eru sýnu færri. Fyrir hönd bæjarstjórnar Vest- urbyggðar, skipulagshópsins á Látrabjargi og fjölskyldu minnar vil ég þakka okkar kæru vinkonu fyrir samfylgdina. Ástvinum hennar vottum við okkar dýpstu samúð. Önnu Kristínar Ólafsdótt- ur verður ætíð minnst með virð- ingu og hlýju. Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar. Það er þyngra en tárum taki að kveðja Önnu Kristínu Ólafsdóttur, efniskonu á besta aldri. Óraun- verulegt og ósanngjarnt er það líka. Tómleikatilfinning ríkir, ekk- ert virðist hægt að gera. Erfiðast er vitanlega fyrir hennar nánustu að halda áfram og takast á við lífið sem ekki stöðvast. Anna Kristín Ólafsdóttir var aðstoðarmaður borgarstjóra og minn nánasti samstarfsmaður í tæpt ár árið 2003. Hún var glað- sinna, samviskusöm og uppörv- andi í öllum sínum verkum. Hún leiddi mig um lendur opinberrar stjórnsýslu og vann málum fram- gang af lagni. Hún var vel liðin af samstarfsfólki sínu í Ráðhúsinu og var þekkt að því að vera sönn í sín- um verkum. Dagurinn gat hafist á erfiðu verki, sem síðan var leitt til lykta. Um miðjan dag kom hún, hoppandi inn, jafnfætis, með upp- örvandi frétt, svo glöð að ekki var hægt annað en að hrífast með. Næst sest niður á ný með erfitt viðfangsefni. Fyrstu viðtölin voru undirbúin, hún tók af skarið: „Þetta tek ég með þér.“ Gott var að fá slík holl ráð, gefin af einlægni með hagsmuni annarra að leiðar- ljósi. Ekki sérhagsmuni heldur starf heildarinnar. Hún var jafn- aðarmaður, eins og sagt var í forn- sögunum þegar mikið lá við að mæra góðan dreng. Lífið er flókið og oft óskiljan- legt. Hvernig getur grunni og staðfestu verið kippt burt á skömmum tíma? Margar spurn- ingar vakna en það verður fátt um svör. Við Margrét vottum öllum að- standendum samúð okkar og biðj- um að þeim auðnist að halda á lofti jákvæðum minningum um þær góðu stundir sem Anna Kristín gaf þeim. Þórólfur Árnason Þegar ég sit hér eitt vorkvöld í Reykjavík og skrifa þessi orð verð ég að berjast við óraunveruleika- tilfinningu þá sem ég hef verið að upplifa frá 12. apríl. Ég trúi því ekki ennþá að ég eigi ekki eftir að tala aftur við eða hitta Önnu Krist- ínu, ástkæra vinkonu mína, en það er erfitt að hugsa sér gjörvulegri konu. Í gegnum hugann fara svo margar hugsanir. Minningin um hana er svo ótrúlega björt og fal- leg því að hún var allt í senn falleg, greind og hæfileikarík. Allt frá því við kynntumst um og upp úr tví- tugu og þegar við urðum vinkon- ur, sem gerðist eiginlega í eldhús- inu hennar í litlu íbúðinni á Víðimelnum þegar ég hjálpaði henni að þrífa íbúðina fyrir flutn- ingana yfir í Barmahlíðina þegar við hlógum saman heila nótt yfir þrifunum. Frá því hefur alltaf ver- ið strengur á milli okkar sem hef- ur ekki slitnað þó að við höfum verið hvor í sínu landinu eða í okk- ar daglega stússi. Þegar ég rifja upp samveru- stundir okkar hér og þar á Íslandi, í Madison þangað sem ég heim- sótti hana á námsárunum, í New York þar sem við skokkuðum saman í Central Park og fannst við vera miklir heimsborgarar og einnig í ógleymanlegri ferð til Pét- ursborgar sem við fórum í árið 2006 þá brosi ég í gegnum tárin. Samvistir okkar voru með fjöl- skyldunum, stórum og smáum börnum og líka bara við stelpurn- ar. Anna Kristín var yndisleg vin- kona, hlý, raungóð, hjálpsöm og alltaf reiðubúin til að sjá nýja hlið- ar á tilverunni. Það var alveg dæmigert fyrir hana að þegar ég var að flytja í nýtt hús í janúar 2007 – kasólétt að þriðja barninu þá var hún mætt til að hjálpa mér að tína fötin úr skápum og raða þeim í nýja húsinu og skipaði mér að sitja og horfa á sig. Í allri sorginni er samt falin mikil birta í minningunni og þeirri gæfu að hafa fengið að kynnast Önnu Kristínu og hafa fengið að vera vinkona hennar. Elsku bestu Hjörleifur, Lísa Margrét, Eysteinn og Bjarki og aðrir aðstandendur, ég og mín fjölskylda vottum ykkur innilega samúð. Tanya Zharov. ✝ Margrét Guð-björnsdóttir fæddist í Bjarnar- nesi, Kaldrana- neshr., Strand. 30. apríl 1928. Hún lést á Dvalar- og hjúkr- unarheimilinu Höfða Akranesi 15. maí 2013. Foreldrar Mar- grétar voru Guð- björn Bjarnason, f. 26. sept. 1880 á Eyjum, Kaldr- ananeshr., Strand, d. 25.o kt. 1952 og Katrín Kristín Guð- mundsdóttir, f. 19. okt. 1885 á Klúku, Kaldrananeshr., Strand, d. 20. jan. 1967. Systkini Mar- grétar voru Gunnar Magnús, f. 1910, Sigríður, f. 1911, Bjarni Kristófer, f. 1913, Anna Mikael- ína, f. 1915, Kristbjörg Róselía, f. 1916, Elín Rósa, f. 1918, Arn- grímur, f. 1920, Guðrún, f. 1922, Þorsteinn Gunnar, f. 1925 og Torfi, f. 1929. Öll systkini Mar- steinssyni, börn þeirra eru Arn- ór, Ingi Þór og Sunna Rún, b) Ás- laug Ragna, í sambúð með Þórólfi Guðmundssyni, börn þeirra eru Bryndís Rún, Birna Rún og Daníel Rafnar, c) Hrefna Rún, gift Hlina Baldurssyni, börn þeirra eru Kristófer Áki, Erik Vilhelm og óskírð, d) Jón Vil- helm, í sambúð með Berglindi Pétursdóttur, dóttir þeirra er Maren Rún. 3) Guðbjörn, f. 26.1. 1958, kvæntur Þóru Sigurðar- dóttur, sonur þeirra er Tryggvi Björn, börn Þóru af fyrra sam- bandi eru Lilja og Sigurður. 4) Tryggvi Grétar, f. 23.5. 1970, kvæntur Þóreyju Þórarins- dóttur, börn þeirra eru Maren Ýr, Andri Már og Sunna Lind. Margrét vann lengst af í eld- húsinu á Sjúkrahúsi Akraness. Einnig vann hún mörg sumur hjá Sigurði Gunnarssyni í gróðr- arstöðinni. Margrét var mikil handavinnukona og hafði gaman af fótbolta og söng. Margrét og Tryggvi bjuggu lengst af á Jað- arsbraut 33 en Margrét flutti ár- ið 2012 að Dvalar- og hjúkrunar- heimilinu Höfða á Akranesi. Útför Margrétar fer fram frá Akraneskirkju í dag, 22. maí 2013, og hefst athöfnin kl. 14. grétar eru látin. Margrét giftist 8. maí 1954 Tryggva Björnssyni frá Smá- hömrum, Kirkju- bólshr., Strand., f. 1. júní 1927. Foreldrar hans voru Björn Halldórsson, f. 1902, d. 1932 og El- ínborg Steinunn Benediktsdóttir, f. 1896, d. 1980. Börn Margrétar og Tryggva eru: 1) Björn Halldórs, f. 3.8. 1949, d. 18.1. 2012, kvæntur Helgu Bjarnadóttur, börn þeirra eru a) Bjarni Ingi, giftur Ingibjörgu Barðadóttur, börn þeirra eru Björn Ingi og Helgi Rúnar, b) Guðrún Hallfríður, í sambúð með Bergi Jónssyni, c) Elínborg, í sambúð með Sturla Magnússyni, synir þeirra eru Viktor og Mar- inó. 2) Bryndís, f. 24.5. 1953, gift Áka Jónssyni, börn þeirra eru, a) Margrét, gift Sigurði Þór Sigur- Elsku mamma. Ég var ekki stór þegar ég kom til ykkar upp á Akranes, og einhvern veginn var ég alltaf litli strákurinn hennar Möggu og er kannski enn. Upp- eldið var mest á þínum herðum enda sagði pabbi stundum við þig þegar ég var sem erfiðastur á ung- lingsárunum: „svona vildir þú ala hann upp“ og held ég að það hafi ekki verið neitt grín að ala upp kenjóttan og mislyndan dreng sem datt stundum í „Gorkytime“. Ég man samt aldrei eftir öðru en að faðmurinn þinn ljúfi hafi verið opinn alla daga og allar nætur. Þegar við Þórey hófum búskap uppi á Skaga ætlaðir þú aldeilis að hugsa vel um strákinn og fjöl- skyldu hans með því að bjóðast til að sjá um allan þvott, strauja og önnur tilfallandi heimilisverk meðan við værum í vinnu. Þér hef- ur trúlega ekki líkað handbragð okkar nógu vel. Ég skil ekki enn þann dag í dag hvers vegna mín heittelskaða afþakkaði þetta góða boð. „Illu er best af lokið,“ sagðir þú þegar við tilkynntum þér áform okkar um fyrirhugað brúðkaup síðasta sumar, það vantaði ekkert upp á orðheppnina. En mikið er ég glaður, mamma mín, að þú náðir að taka þátt í þeim stóra degi með okkur, þar varst þú geislandi og sjálfri þér lík þrátt fyrir að veik- indin væru að byrja að taka yf- irhöndina. Alltaf fannst börnunum okkar yndislegt að koma í heimsókn til ykkar pabba á Jaðarsbrautina þar sem dótakassinn var tekinn fram og nýbakaðar pönnukökur voru á borðum. Þau sakna góðrar ömmu. Elsku mamma, þú varst mín stoð og stytta í gegnum lífið og ég mun sakna þín út í það óendan- lega. Ég veit að þú ert komin á betri stað og án efa tekur Bjössi vel á móti þér. Ég læt hér fylgja með textabrot sem ég veit að þér þótti svo fallegt og lýsir hug mín- um til þín þessa stundina. „Ég er undir þínum áhrifum í dag og verð áfram enginn vafi er um það.“ (Stefán Hilmarsson.) Þinn Tryggvi Grétar. Elsku amma Magga. Við systk- inin erum afar þakklát fyrir hvað þú hefur verið stór hluti af okkar lífi í langan tíma. Þú varst einstak- lega hjálpsöm og vildir allt fyrir okkur gera. Það var sama hvort það var að gæta langömmu- barnanna, prjóna sokka, vettlinga eða aðstoða á annan hátt. Það voru ófáar heimsóknirnar á Jaðar- sbrautina til ykkar afa þar sem boðið var upp á slátur og heimsins besta grjónagraut. Þegar við kom- um í kaffi til ykkar var alltaf eitt- hvað nýbakað og gott, pönnukök- urnar þínar voru þar í miklu uppáhaldi hjá okkur. Þú varst glæsileg kona, alltaf svo fín og flott, þú varst algjör snillingur í höndunum og eftir þig liggja ófáar lopapeysurnar, heklaðir dúkar og fleira fallegt. Meðan þú hafðir heilsu til varstu dugleg að fylgjast með okkur í fótboltanum. Þú og afi mættuð á marga leiki og var gott að finna fyrir stuðningi ykkar. Við vorum þó ekki alltaf sammála um boltann og ósjaldan litum við hvort á annað brosandi yfir skoð- unum þínum. Þegar þú vannst í eldhúsinu á sjúkrahúsinu fannst okkur ansi spennandi að koma í heimsókn og fylgjast með þér að störfum og fá að velja sér eitthvað úr búrinu. Frá því að við munum eftir okk- ur höfum við haldið jólin með þér og afa, bæði á aðfangadagskvöld á Víðigrundinni og svo hangikjötið á Jaðarsbrautinni á jóladag. Alltaf var mikið spilað, hlegið og var bingóið stór partur af hátíðinni og slógu happaþrennurnar þínar ávallt í gegn. Á okkar yngri árum dvöldum við mikið hjá ykkur afa. Við fórum oft niður á Langasand og fylgd- umst með afa synda í sjónum, byggðum sandkastala, gerðum stíflur og annað skemmtilegt. Svo var komið upp til þín þar sem þú hafðir alltaf tíma fyrir okkur. Síðastliðið ár dvaldir þú á Dval- arheimilinu Höfða þar sem hugsað var vel um þig. Hinn 30. apríl sl. varðst þú 85 ára og haldin var veisla þar sem við komum og glöddumst með þér, fyrir það er- um við þakklát. Að leiðarlokum viljum við þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur og kennt í gegn- um tíðina. Elsku afi, mamma, pabbi, Guð- björn, Þóra, Tryggvi Grétar, Þór- ey, Helga og fjölskyldur, missir okkar er mikill en minningarnar margar og fallegar um frábæra konu. Takk elsku amma, Margrét, Áslaug Ragna, Hrefna Rún og Jón Vilhelm. Elsku amma, ég mun sakna þín óendanlega mikið. Ég mun sakna þess að koma á Jaðarsbrautina og fá bestu pönnukökur í heiminum. Ég veit að þú vildir ekki lifa svona veik þannig að ég vona að þú sért á betri stað núna. Ég á erfitt með að hugsa mér líf mitt án þín. Ástarkveðja, Maren Ýr. Margrét Guðbjörnsdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku amma Magga. Við eigum eftir að sakna þín og sakna þess að koma til þín og afa á Jaðarsbraut og fá bestu pönnukökur í heimi. Vonandi líður þér vel núna. Ástarkveðja, Andri Már og Sunna Lind.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.