Morgunblaðið - 22.05.2013, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2013
Greiningardeild Arion banka spáði í
Markaðspunktum sínum í gær að
vísitala neysluverðs (VNV) í maí-
mánuði yrði óbreytt miðað við apr-
ílmánuð, sem myndi þýða að árs-
verðbólga yrði áfram 3,3%.
Í Markaðspunktum bankans í gær
kemur fram að vísitala neysluverðs
hækkaði þvert á spár greiningar-
aðila í apríl. „Gengi krónunnar hefur
veikst um 2% frá því Hagstofa Ís-
lands mældi verðlag í apríl og hélt sú
veiking aftur af lækkunum í mæl-
ingu VNV í síðustu viku. Hins vegar
mælist styrking krónunnar 7,5% frá
hæsta gildi hennar frá því í lok jan-
úar sem gefur söluaðilum svigrúm til
lækkunar eins og sýndi sig á verði
nýrra bíla, eldsneytis og matvöru í
verðkönnun okkar fyrir maí. Hag-
stofan birtir nýtt gildi VNV 29. maí
næstkomandi,“ segir orðrétt í Mark-
aðspunktum.
Þar kemur jafnframt fram að mik-
il óvissa umljúki bráðabirgðaspá
greiningardeildar Arion banka fyrir
næstu mánuði þar sem hún sé háð
því að Seðlabankinn standi við yfir-
lýsingu peningastefnunefndar frá
því í síðustu viku um að jafna sveiflur
í gengi krónunnar með það að mark-
miði að halda verðbólguvæntingum
lágum. Ef Seðlabankinn sýni fram á
trúverðugar aðgerðir og haldi geng-
inu stöðugu gera Markaðspunktar
ráð fyrir að VNV hækki um 0,3% í
júní, lækki um 0,6% í júlí og hækki
um 0,3% í ágúst. Gangi bráða-
birgðaspáin eftir muni ársverðbólga
mælast 3,7% í ágúst sem samræmist
spá Seðlabankans fyrir annan og
þriðja ársfjórðung, sem greiningar-
deildin gerir ráð fyrir að byggist á
væntum sveiflujafnandi aðgerðum
bankans.
Helstu þættir í spánni fyrir maí
Greiningardeild Arion banka telur
að ferðir og flutningur lækki í maí.
„Verðkönnun greiningardeildar fyr-
ir flugfargjöld í maí gefur til kynna
að þau hafi lækkað að meðaltali um
tæplega 4% milli mánaða eftir að
hafa hækkað um 14% frá því í des-
ember í fyrra. Ástæðuna fyrir lækk-
un flugfargjalda teljum við vera 14%
lækkun heimsmarkaðsverðs olíu frá
því í byrjun febrúar, styrkingu krón-
unnar og aukna samkeppni. Nýir
bílar lækka um rúmlega 1% að með-
altali vegna styrkingar krónunnar
og eldsneyti lækkar um 1,5% en ef
gengi krónunnar hefði ekki veikst
um rúmlega 4% á síðustu dögunum
fyrir og á meðan mæling VNV stóð
yfir hefði lækkun eldsneytisverðs
numið tæplega 2,5%. Áhrif í maí:
-0,23%.
Húsnæði hækkar. Gríðarleg
hækkun reiknaðrar húsaleigu í apríl
kom flestum greiningaraðilum á
óvart og þá sérstaklega að verð fast-
eigna utan höfuðborgarsvæðisins
hækkaði um 8,6% milli mánaða en
viðlíka hækkun hefur ekki sést síðan
í október árið 2009 þegar hækkunin
nam 7%. Við leituðumst við að út-
skýra hækkunina með opinberum
vikulegum gögnum frá Þjóðskrá Ís-
lands en miðað við þróunina á síðast-
liðnum mánuðum skín ekki í gegn
fullkomin útskýring fyrir hækkun-
inni. Könnun greiningardeildar fyrir
maí gefur til kynna að vextir hjá
stóru bönkunum þremur og Íbúða-
lánasjóði héldust óbreyttir milli
mánaða. Vextirnir hafa haldist
óbreyttir á síðustu þremur mánuð-
um fyrir utan 15 punkta lækkun hjá
einum banka. Á síðustu sex mánuð-
um hefur verð fasteigna á höfuð-
borgarsvæðinu hækkað um rúmt 1%
og um 7% á landsbyggðinni. Áhrif í
maí: +0,11%,“ segir orðrétt í Mark-
aðspunktum. agnes@mbl.is
Spáir óbreyttri vísi-
tölu í maímánuði
Arion banki telur að verð á flugferðum lækki um 4%
Verðbólguspá fyrir maí
» Lækki flugferðir um 4%, er
verð á þeim enn 10% hærra en
í desember sl.
» Ástæðuna fyrir lækkun á
flugfargjöldum segir bankinn
vera 14% lækkun á heims-
markaðsverði olíu frá því í
febrúarbyrjun.
» Því er spáð að nýir bílar
lækki um 1% í verði í maí.
Verðbólga og væntingar til eins árs
ársfjórðungsgildi (%)
18
16
14
12
10
8
6
4
2
0
20
03
20
04
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09
20
10
20
11
20
12
20
13
Spá í maí
Tólf mánaða verðbólga
Verðbólguvæntingar stærstu fyrirtækja
Verðbólguvæntingar heimila
Heimild: Seðlabanki Íslands, Hagstofa Íslands og greiningardeild
Tilkynnt var í Lundúnum í gær, að
Nick Buckles, forstjóri breska ör-
yggisfyrirtækisins G4S, stærsta ör-
yggisfyrirtækis heims, muni láta af
störfum fyrir lok þessa mánaðar. Í
frétt á fréttavef breska ríkisút-
varpsins, BBC, í gær kemur fram
að aðalástæða þess að Buckles er
látinn taka pokann sé slæleg örygg-
isgæsla G4S á Ólympíuleikunum í
London í fyrrasumar, þar sem
bresk stjórnvöld neyddust til þess
að kalla út breskar hersveitir til
þess að kröfum um lágmarksfjölda
öryggisvarða vegna leikanna væri
fullnægt.
Sá sem tekur við af Buckles sem
forstjóri er Ashley Almanza, sem
gegnt hefur starfi fjármálastjóra
fyrirtækisins.
BBC hefur eftir John Connolly,
stjórnarformanni G4S, að Buckles
hafi lagt gríðarmikið af mörkum í
þágu félagsins á undanförnum 28
árum.
Einnig er rifjað upp í frétt BBC
að Buckles hafi þurft að koma fyrir
breska þingnefnd í fyrra og svara
því hvernig staðið hafi verið að ör-
yggisgæslunni af hálfu G4S. Við
þær yfirheyrslur hafi hann viður-
kennt að framkvæmdin hafi verið
„auðmýkjandi klúður“.
Við sama tækifæri kom fram að
G4S hefði tapað um 70 milljónum
sterlingspunda á samningnum um
öryggisvarnir vegna Ólympíuleik-
anna, en það er jafnvirði liðlega 13
milljarða króna.
Samt sem áður rifjar BBC upp
að við innri skoðun G4S í fyrra, þar
sem skýrsla var gerð um fram-
kvæmdina, hafi sérstaklega verið
tilgreint að Buckles hafi persónu-
lega ekki gert neitt rangt, í sam-
bandi við framkvæmd öryggiseft-
irlitsins og það „væri í þágu
fyrirtækisins og allra hluthafa þess
að Buckles héldi áfram að vera við
stjórnvölinn“.
Forstjóra G4S hef-
ur verið sagt upp
Klúður vegna Ólympíuleikanna
AFP
Hættir Nick Buckles, forstjóri G4S,
verður látinn taka pokann sinn.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
13
14
26
www.jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind
Útskriftarstjarnan
er komin.
Glæsileg útskriftargjöf.
Okkar hönnun og smíði
FERSKLEIKI • GÆÐI • ÞJÓNUSTA
STEIKARSAMLOKA
á ciabatta brauði með nautastrimlum, sveppum, lauk
og bernéssósu borin fram með frönskum kartöflum
HUMARSAMLOKA
með klettasalati, tómati, rauðlauk,
ferskum mozzarella osti og sinnepssósu
GRILLUÐ SAMLOKA
með skinku og osti,
borin fram með salati og frönskum kartöflum
NACHOS
með fjórum ídýfum, osti, guacamole,
salsasósu og sýrðum rjóma
SUPER NACHOS
með kjúklingi, jalapeno, baunum
ásamt heitri ostasósu, salsasósu og sýrðum rjóma