Morgunblaðið - 22.05.2013, Síða 12

Morgunblaðið - 22.05.2013, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2013 Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Ekki er ástæða til að breyta frá fyrri ákvörðunum um verkframkvæmdir við nýjan Álftanesveg. Þetta er sam- eiginleg niðurstaða bæjarstjórnar Garðabæjar og Vegagerðarinnar í greinargerð sem lögð var fram á fundi bæjarráðs í gær. Greinargerðin var unnin fyrir inn- anríkisráðherra en hann hafði sent bænum bréf þann 22. apríl þar sem hann óskaði eftir því að Vegagerðin og bærinn færu sameiginlega yfir forsendur vegarins að nýju og könn- uðu hvort unnt væri að vinna að sam- göngubótum í meiri sátt við mál- svara náttúruverndar. Minnihlutinn gerði athugasemd við greinargerðina Niðurstaða greinargerðarinnar er sú að engar breytingar hafi orðið eða séu fyrirhugaðar á skipulagi eða þró- un byggðar sem breyti forsendum fyrir færslu Álftanesvegar. Í henni er því sjónarmiði bæjaryfirvalda í Garðabæ jafnframt lýst að með sam- einingu hans við sveitarfélagið Álfta- nes verði uppbygging í Garðaholti sett framar í forgangsröðunina en ella. Fulltrúar Bæjarlistans og M- listans í bæjarráði gerðu athuga- semd við greinargerðina í umræðum á fundi ráðsins. Engu að síður var til- laga formanns bæjarráðs um að greinargerðin yrði samþykkt og send ráðherra samþykkt. Fulltrúi M-listans greiddi atkvæði gegn þeirri tillögu. Breyta ekki fyrri áætlun  Umdeild lega nýs Álftanesvegar um Gálgahraun verður ekki endurskoðuð Morgunblaðið/Kristinn Hraunið Umhverfisverndarsinnar vilja bjarga Gálgahrauni. Gunnar Dofri Ólafsson gunnardofri@mbl.is Ásmundur Ásmundsson myndlistarmaður hef- ur stefnt Kristni E. Hrafnssyni myndlistar- manni fyrir meiðyrði. Stefnan kemur í kjölfar ritdeilna Kristins og Ásmundar, sem spratt af ráðningu nýs rektors Listaháskóla Íslands. „Ég hef bara ekki haft tækifæri til að kynna mér þessa stefnu eða fá lögfræðing í málið. Það hafa allir verið í fríi og ég er alveg ókunnugur svona málum. Ég er bara að safna saman gögnum og skoða málið sjálfur,“ segir Kristinn. „Næstu skref hjá mér verða að finna mér lögfræðing svo ég geti áttað mig á hver farvegur svona mála er.“ „Kunnastur fyrir að eyðileggja listaverk annarra listamanna“ Í grein sem birtist í Morgunblaðinu þann 8. maí síðastliðinn hafði Kristinn meðal annars eftirfarandi orð um Ásmund: „Ofan á þetta er hann kunnastur fyrir að eyðileggja listaverk annarra listamanna […].“ Í stefnu krefst Ás- mundur þess að ummælin verði dæmd dauð og ómerk. Hann færir meðal annars þær máls- ástæður að ummæli Kristins séu til þess fallin að skaða starfsheiður hans og orðspor í lista- heiminum. Ásmundur krefst einnig að Kristni verði gerð refsing fyrir brot á 235. grein al- mennra hegningarlaga, en til vara fyrir brot gegn 234. grein sömu laga. Þá krefst Ásmund- ur einnar milljónar króna í miskabætur og 150.000 króna í kostnað til birtingar dómsnið- urstöðunnar í dagblaði, auk málskostnaðar. Fallegasta bók í heimi Kristinn vísar væntanlega í ummælum sínum til verksins „Fallegasta bók í heimi“, höfundarverks Ásmundar Ásmundssonar, Hannesar Lárussonar og Tinnu Grétars- dóttur, sem var sýnt á sýningunni Koddu í Ný- listasafninu vorið 2011. Í því verki hafði einu eintaki bókarinnar „Flora Islandica“ eftir Eggert Pétursson verið umbreytt á mjög af- gerandi hátt með því að maka blaðsíðurnar matvælum. Listamaðurinn Eggert Pétursson sagði í fréttum útvarpsins á þeim tíma að níð- ingsverk hefði verið unnið á bókinni á Koddu. Hart var deilt um sýninguna og einnig um höfundarrétt og sæmdarrétt listamanna, sam- kvæmt frétt Morgunblaðsins í apríl 2011. Verkið Fallegasta bók í heimi var einkum gagnrýnt og ákvað stjórn safnsins að taka verkið niður eftir að farið var fram á lögbann vegna þess. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögfræðingur Ásmundar, sagði að með ummælum sínum hefði Kristinn ekki vísað til neins ákveðins verks, heldur til þess að Ásmundur væri „kunnastur fyrir að eyðileggja listaverk ann- arra listamanna“. „Af því einfaldlega að lesa það sem Kristinn skrifar í grein sinni getur hinn almenni lesandi ekki með neinu móti átt- að sig á að Kristinn sé að vísa til eins ákveðins verks, heldur þvert á móti að umbjóðandi minn geri sér það að leik að eyðileggja verk annarra listamanna,“ sagði Vilhjálmur. Stefnir fyrir meiðyrði um listaverk  Ásmundur Ásmundsson hefur stefnt Kristni Hrafnssyni fyrir meiðyrði  Segir ummælin til þess fallin að skaða starfsheiður sinn og orðspor í listaheiminum  Krefst milljónar í miskabætur Morgunblaðið/RAX Umdeilt listaverk Ásmundur makaði blaðsíð- ur bókarinnar Flora Islandica matvælum. EINFÖLD ÁKVÖRÐUN VELDU ÖRYGGI FYRIR ÞIG OG ÞÍNA Smiðjuvegi 68-70, Kópavogi  544 5000 Hjallahrauni 4, Hfj  565 2121 Rauðhellu 11, Hfj  568 2035 Fitjabraut 12, Njarðvík  421 1399 Eyrarvegi 33, Selfossi  482 2722www.solning.is Smurþjónusta RafgeymarSmáviðgerðir RúðuvökviRúðuþurrkurHjólastillingarDekkjaverkstæði Bremsuklossar Peruskipti – UMBOÐSMENN UM LAND ALLT – Þú paSSaR HaNN VIÐ PÖSSUM ÞIG Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími: 534 9600 · heyrn.is Erum með allar gerðir af heyrnartækjum Fáðu heyrnartæki til reynslu og stjórnaðu þeim með ReSound Appinu Komdu í greiningu hjá faglærðum heyrnarfræðingi Heyrðu umskiptin og stilltu heyrnartækin í Appinu „Þetta er bara sorglegt en við erum ekki hætt,“ segir Reynir Ingibjartsson, formaður Hraunavina sem hafa barist gegn því að nýr Álftanesvegur verið lagður um Gálgahraun, um niðurstöðu Garðabæjar og Vegagerðarinnar. Hann segir að allt hafi verið gert vísvitandi til þess að hunsa það sem náttúruverndarsinnar hafi lagt til í málinu. Þannig hafi kostir núverandi vegar ekki ver- ið metnir í greinargerðinni held- ur aðeins vísað í 10-15 ára gamla úttekt. „Dómstólaleiðin er ekki full- reynd og við erum að skoða hana. Við viljum fá efnislegan dóm og að farið verði ofan í þetta mál frá A til Ö,“ segir Reynir um hvað samtökin ætli nú til bragðs að taka. Dómstólaleið ekki fullreynd HRAUNAVINIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.