Morgunblaðið - 22.05.2013, Page 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2013
Tollgæslan stöðvaði nýverið gáma-
sendingu frá Kína við reglubundið
eftirlit. Gámurinn reyndist innihalda
á annað hundrað húsgögn sem öll
voru eftirlíkingar af verkum frægra
hönnuða frá Bretlandi, Danmörku,
Ítalíu og Þýskalandi. Um var að
ræða eftirlíkingar af þekktum hús-
gögnum sem seld eru í sérverslunum
hér á landi. Húsgögnunum var farg-
að í móttökustöð Sorpu undir eftirliti
tollvarða.
Kári Gunnlaugsson, yfirtollvörður
tolleftirlits, segir nokkuð algengt að
við eftirlit á innflutningi finnist eft-
irlíkingar af þekktum vörum. Í flest-
um tilvikum sé þó um að ræða minni
varning en það sé aðallega í stærri
málum sem þessu að hinn löglegi
umboðsaðili vörunnar krefjist þess
að eftirlíkingunum sé fargað. Í sum-
um tilvikum er það jafnvel svo að
kaupandi vörunnar haldi að hann sé
að kaupa upprunalegu vöruna en
þegar varan er komin hingað til
lands reynist hún ódýr eftirlíking.
Kári telur mega sjá merki þess að
innflutningur á eftirlíkingum sé að
aukast um alla Evrópu. Algengastur
er innflutningur á eftirlíkingum af
fatnaði en einnig á öðrum vörum eins
og t.d. lyfjum og leikföngum. Mál
hafa einnig komið upp þar sem eft-
irlíkingarnar eru gerðar úr ódýrum
og jafnvel hættulegum efnum.
bmo@mbl.is
Eftirlíkingum var fargað
Ljósmynd/Tollgæslan
Ólöglegt Húsgögnunum var fargað hjá Sorpu undir eftirliti tollvarða.
Á annað hundrað húsgögn í gámi Tollgæslan sér merki
þess að smygl á eftirlíkingum sé að aukast um alla Evrópu
Kynferðisbrotadeild lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu rannsakar
nú hvort karlmaður á fertugsaldri,
sem er í haldi grunaður um kyn-
ferðisbrot gegn 10 ára gamalli
stelpu í síðustu viku, tengist eldri
málum af sama tagi. Maðurinn
kvaðst ekkert muna við fyrstu yf-
irheyrslu á miðvikudag. Hann
verður yfirheyrður aftur í vikunni.
„Það er verið að fara yfir upp-
lýsingar um tilkynningar sem við
höfum fengið í gegnum tíðina og
varða tilraunir til tælingar,“ segir
Björgvin Björgvinsson, yfirmaður
kynferðisbrotadeildar lögreglunn-
ar á höfuðborgarsvæðinu.
Aðspurður segir Björgvin ekki
vitað til þess að maðurinn hafi áð-
ur framið kynferðisbrot gegn
börnum. Tilefni þykir þó til að
ganga úr skugga um hvort lýs-
ingar á fyrri sambærilegum brot-
um gætu átt við um hann. Að sögn
Björgvins hafa engin vitni gefið
sig fram
Gaf greinargóða
lýsingu á manni og bíl
Stúlkan var á heimleið úr skóla í
Vesturbæ Reykjavíkur síðdegis á
þriðjudaginn fyrir viku þegar mað-
urinn þvingaði hana upp í bíl sinn
og ók með hana í Heiðmörk þar
sem hann beitti hana kynferðisof-
beldi. Hann hafði jafnframt í gróf-
um hótunum við stúlkuna. Að því
loknu ók hann aftur í Vesturbæinn
og hleypti henni þar út úr bílnum,
fjarri heimili hennar.
Stúlkan gekk heim og sagði for-
eldrum sínum frá því sem fyrir
hana hafði komið og var lögregla
strax kölluð til. Stúlkan gat gefið
greinargóða lýsingu á manninum,
bílnum hans og leiðinni sem hann
ók. Má þakka það viðbrögðum
hennar að maðurinn var handtek-
inn í austurborg Reykjavíkur síðar
um daginn.
Maðurinn var úrskurðaður í
gæsluvarðhald til 29. maí. una@m-
bl.is
Lögreglan
skoðar eldri
tælingarmál
Morgunblaðið/Júlíus
Engin vitni hafa
gefið sig fram