Morgunblaðið - 22.05.2013, Page 20

Morgunblaðið - 22.05.2013, Page 20
20 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2013 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Björgunarmenn leituðu í gær í rúst- um húsa sem eyðilögðust í fyrradag þegar öflugur skýstrókur gekk yfir bæinn Moore, skammt frá Okla- homa-borg í Bandaríkjunum. Tugir manna biðu bana í náttúruhamför- unum, þeirra á meðal mörg börn, að sögn bandarískra fjölmiðla. Yfirvöld í Oklahoma-ríki sögðu að 24 lík hefðu fundist á hamfarasvæð- inu og að talið væri ólíklegt að fleiri hefðu farist. Áður höfðu bandarískir fjölmiðlar sagt að óttast væri að um 90 manns hefðu beðið bana, þeirra á meðal mörg börn undir tólf ára aldri. Yfirvöld sögðu að minnst 100 manns hefði verið bjargað úr rúst- unum og yfir 200 manns hefðu slas- ast af völdum skýstróksins. Barack Obama, forseti Bandaríkj- anna, lýsti yfir neyðarástandi á svæðinu og sagði að alríkisstofnanir myndu taka þátt í björgunar- og endurreisnarstarfinu. Hann lýsti hamförunum sem einum af mann- skæðustu skýstrókum í sögu Banda- ríkjanna. Á meðal bygginga sem eyðilögð- ust eða stórskemmdust voru tveir barnaskólar og sjúkrahús í Moore, að sögn bandarískra fjölmiðla. Yf- irvöld létu rýma sjúkrahúsið. Veðurfræðingar sögðu að sjald- gæft væri að svo öflugir skýstrókar gengju yfir bæi í Bandaríkjunum. „Þeir eru yfirleitt um það bil 100 metrar á breidd og standa oft í fimm til tíu mínútur,“ hefur fréttaveitan AFP eftir Ross Reynolds, veður- fræðingi við Reading-háskóla. Hann sagði að skýstrókurinn sem gekk yf- ir Moore hefði verið um þrír kíló- metrar á breidd og staðið í 45 mín- útur. „Það er einstök óheppni að slíkur skýstrókur skuli hafa gengið yfir byggt svæði, yfirleitt ganga ský- strókar yfir landbúnaðarsvæði,“ sagði Reynolds. „Það er skelfilegt þegar þeir fara yfir borgir eða bæi – líkurnar á að það gerist eru mjög litlar.“ Um 1.200 skýstrókar á ári Veðurfræðingar sögðu að vind- hraðinn hefði verið óvenjumikill, eða allt að 90 m/s. Moore og Oklahoma- borg eru á skýstrókabelti sem nær frá Suður-Dakóta til Texas. Hamfar- irnar urðu á svipuðum slóðum og skýstrókur sem olli mikilli eyðilegg- ingu í maí 1999. Þá fórust 44 manns, auk þess sem hundruð manna slös- uðust og þúsundir húsa eyðilögðust. Vindhraðinn var meira en 500 km/ klst., eða 140 m/s, og er það mesti vindhraði sem mælst hefur á yfir- borði jarðar, að því er fram kom á fréttavef breska ríkisútvarpsins. Þrír af hverjum fjórum skýstrók- um, sem myndast í heiminum, verða í Norður-Ameríku. Þeir eru algeng- astir í Texas en skæðustu skýstrók- arnir eru algengastir í Kansas. Ský- strókarnir í Bandaríkjunum myndast oftast á svæði þar sem hlýtt og rakt loft frá Mexíkóflóa og hlýtt og þurrt eyðimerkurloft mætir svölu og þurru lofti frá Klettafjöllum og sléttum í norðurríkjunum. Flestir skýstrókanna verða í maí og júní og algengast er að þeir myndist klukk- an fjögur til níu eftir hádegi, að sögn bandarískra veðurfræðinga. Á hvirfilbyljabeltinu geta mynd- ast þrír eða fjórir skýstrókar á dag. Í Bandaríkjunum verða alls um 1.200 skýstrókar á ári, en aðeins um 2% þeirra eru hættuleg, með vind- hraða yfir 74 m/s. Flestir þeirra ganga yfir strjálbýl svæði. Banda- rískir veðurfræðingar segja að ekk- ert bendi til þess að öflugum ský- strókum hafi fjölgað vegna loftslagsbreytinga. Vegna þess hversu litlir skýstrók- ar eru um sig samanborið við önnur veðurkerfi gengur fremur illa að spá þeim. Varað var við skýstróknum sextán mínútum áður en hann myndaðist. Tugir fórust í hamförunum  Leitað í rústum húsa sem eyðilögðust þegar skýstrókur gekk yfir bæ í Oklahoma-ríki  Sjaldgæft er að svo öflugur skýstrókur gangi yfir byggð svæði í Bandaríkjunum  Vindhraðinn allt að 90 m/s AFP Eyðilegging Mikið tjón varð í bænum Moore af völdum skýstróks í fyrradag. Spáð var fleiri skýstrókum í Oklahoma, Arkansas, Louisiana og Texas í gær. Vindhraðinn getur orðið allt að 110 m/s Heimildir: NOAA/EncyclopaediaBritannica/NatGeo Skýstrókar Skýstrókar myndast þegar þrumuský hefur orðið til í heitu veðri, oft á vorin eða sumrin Kalt loft Ský Hlýtt loft 1 2 3 4 5 Hlýtt, rakt loft rís upp frá jörðinni 1 Hlýja loftið mætir köldu, þurru lofti, hringiða myndast og leitar niður frá þrumuskýinu 2 Hringiðan nær til jarðar 3 Uppstreymið dregur að sér meira loft sem sogast upp að skýinu og hringsnýst 4 Skýstrókurinn snýst á miklum hraða og getur valdið mikilli eyðileggingu 5 Skildi eftir sig slóð eyðileggingar » Skýstrókurinn lagði mörg hús í rúst á stóru svæði í bæn- um Moore, sunnan við Okla- homaborg, meðal annars barnaskóla. Eldar kviknuðu, rafmagnsstaurar brotnuðu og bílar fuku á hvolf. » Um 35.000 manns voru án rafmagns í gærmorgun vegna náttúruhamfaranna. Íbúar Moore eru um 55.000. Stjórnvöld í Aserbaídsjan við- urkenndu í gær að svo virtist sem úrslit atkvæða- greiðslu í landinu vegna Eurovision hefðu verið föls- uð. Atkvæði, sem greidd hefðu ver- ið framlagi Rúss- lands í söngva- keppninni, hefðu ekki verið talin með af einhverjum ástæðum. Rúss- land fékk ekkert stig frá Aserbaíd- sjan en tölur frá aserskum farsíma- fyrirtækjum benda til þess að Rússland hefði átt að fá tíu stig. Málið var ofarlega á baugi á fundi utanríkisráðherra Rússlands og Aserbaídsjans í gær. Rússneski utanríkisráðherrann Sergej Lavrov lét í ljósi óánægju með talninguna. „Þegar fulltrúi okkar í keppninni er rændur tíu stigum erum við ekki ánægð,“ sagði hann. EUROVISION Fulltrúi Rússlands „rændur tíu stigum“ Fulltrúi Rússa í Eurovision. Hjá Parka færðu flottar flísar í hæsta gæða- flokki frá þekktum ítölskum framleiðendum. Bjóðum aðeins það besta fyrir þig! Dalvegi 10-14 • Kópavogi Full búð af flottum flísum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.