Morgunblaðið - 22.05.2013, Síða 21

Morgunblaðið - 22.05.2013, Síða 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2013 Óperuunnendur víða um heim minn- ast þess í dag að 200 ár eru liðin frá fæðingu þýska tónskáldsins Rich- ards Wagner. Afmælisins hefur verið minnst með ýmsum hætti, meðal annars hafa verið gefnar út fjölmargar nýj- ar bækur um Wagner, blöð hafa keppst við að birta greinar um tón- skáldið og nýjar uppfærslur á Nifl- ungahringnum, fjórföldu óperuverki Wagners, eru sýndar í óperuhúsum víða um heim, meðal annars Met í New York, Covent Garden í London, La Scala í Mílanó, Bastille í París og Wiener Volksoper í Vín. Í Þýska- landi eru um 80 óperuhús og jafnvel hörðustu aðdáendur Wagners eiga erfitt með að fylgjast með öllu því sem er í boði þar í tilefni af afmæl- inu. Aðdáendur tónskáldsins beina einkum sjónum sínum að borginni Bayreuth þar sem Wagner lét reisa Festspielhaus, óperuhús sem hann hannaði sjálfur. Sérstakir afmælis- tónleikar verða haldnir í Fest- spielhaus í dag undir stjórn Þjóð- verjans Christians Thielemann og fluttar verða aríur úr þekkstu óperum tónskáldsins. Umdeilt tónskáld Á tónlistarhátíðinni í Bayreuth, sem hefst 25. júlí, verður sýnd ný uppfærsla á Niflungahringnum und- ir stjórn þýska leikhússtjórans Franks Castorf. Fá tónskáld eru talin hafa haft meiri áhrif á tónlistarsöguna en Wagner og hann var mjög umdeild- ur meðal tónlistarunnenda þegar hann lifði, sumir dýrkuðu hann en aðrir lögðu fæð á tónlist hans. Hann var einnig mjög umdeildur vegna skoðana sinna, meðal annars vegna haturs hans í garð gyðinga. Adolf Hitler hafði mikið dálæti á Wagner og nasistastjórnin notaði verk hans í áróðursskyni, þannig að þau urðu að eins konar tákni um sjúklegar draumsýnir nasista. Helstu óperur Wagners eru Hol- lendingurinn fljúgandi, Tannhäuser, Lohengrin, Niflungahringurinn, Tristan og Isolde, Meistarasöngvar- arnir í Nürnberg og Parsifal. bogi@mbl.is 20 km Í dag eru 200 ár liðin frá fæðingu þýska tónskáldsins RichardsWagner RichardWagner Festspielhaus, óperuhúsið sem Wagner hannaði, var opnað árið1876 Fæddist 22. maí 1813 í Leipzig Wagner dó í Feneyjum 13. febrúar 1883 Tónskáld, skáld, ritgerðahöfundur og leikhússtjóri Hann samdi þrettán óperur,meðal annars Tristan og Isolde, Hollendinginn fljúgandi, Tannhäuser og Lohengrin Árið 1833 varð hann kórstjóri í Wurzburg þar sem hann samdi fyrstu óperu sína, Álfana Árið1848 byrjaði hann að semja Niflungahringinn og lauk við verkið árið 1874 Árið 1871 lét hann reisa nýtt óperuhús í Bayreuth og Lúðvík II, konungur Bæjaralands, fjármagnaði bygginguna ÞÝSKALAND Festspielhaus Bayreuth 500 m A 9 A 70 Bayreuth BÆJARALAND Nürnberg Haldið upp á 200 ára af- mæli Richards Wagner  Nýjar uppfærslur á Niflungahringnum víða um heim Gos er hafið í eldfjallinu Popocaté- petl í Mexíkó og aska hefur fallið á bæi í grennd við það. Yfirvöld hafa aukið öryggisviðbúnað sinn á svæð- inu og búið sig undir að flytja fólk frá bæjunum. Popocatépetl er 5.452 metra hátt og um 70 km suðaustan við Mexíkóborg. AFP Eldfjall spúir ösku á bæi Grænlendingar ákváðu nýlega að hunsa fund Norðurskautsráðsins til að mótmæla þeirri ákvörðun Svía, sem gegnt hafa formennsku í ráðinu, að leyfa aðeins einn fulltrúa á ráðherrafundi frá Danmörku. Í sameiginlegri yfirlýsingu frá Villy Søvndal, utanríkisráðherra Dana og forsætisráðherra bæði Grænlands og Færeyja, er afstaða Svía gagnrýnd hart. Sagt er að nú sé unnið að því með Kanada, sem verða forysturíkið næstu tvö ár, að finna viðunandi lausn. „Það er afar mikilvægt fyrir okk- ur að segja með skýrum hætti að fyrir okkur er óviðunandi að Græn- land og Færeyjar – sem ná yfir minnst 20% af norðurskautssvæð- inu, fái ekki lengur að taka þátt í öllum þáttum samningaviðræðna í Norðurskautsráðinu.“ kjon@mbl.is NORÐURSKAUTSRÁÐIÐ Hörð gagnrýni á formennsku Svía Humarhúsið 101 Reykjavík · humarhusid@humarhusid.is Amtmannsstíg 1 sími: 561·3303 Þegar njóta á kvöldsins... www.jens.is www.uppsteyt.is Síðumúla 35 Kringlunni og Íslensk hönnun Útskriftir 2013 16.300.- 7.600.- 7.900.- 9.400.- 12.700.- 15.900.- 8.300.- 11.900.- 11.400.-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.