Morgunblaðið - 22.05.2013, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 22.05.2013, Qupperneq 23
23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2013 Ballettdansarar framtíðarinnar Nemendur Danslistarskóla JSB fengu að upplifa töfra leikhússins í gær á árlegri nemendasýningu í Borgarleikhúsinu og eftirvæntingin leyndi sér ekki. Kristinn Engu er líkara en að þungu fargi hafi verið létt af landsmönnum. Tími fyrstu „hreinræktuðu“ vinstri stjórnarinnar er liðinn og innan ör- fárra daga tekur ný ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar við lyklavöldunum í Stjórnarráðinu. Væntingarnar eru miklar og kröf- urnar sem gerðar eru til ríkis- stjórnar endurreisnar eru strangar. Lausn á skuldavanda heimilanna mun litlu skipta ef ekki tekst að byggja að nýju upp samfélag er byggist á frjálsum viðskiptum, hófsemd og sann- girni í skattheimtu þar sem ýtt er undir dugnað og framtakssemi, samhliða því sem stoðir heilbrigð- iskerfisins eru reistar við, menntakerfið treyst og stjórnkerfi ríkisins skorið upp. Hugsanleg leið- rétting skulda heimilanna og skattaafsláttur vegna íbúðakaupa, líkt og verðandi stjórn- arflokkar gáfu fyrirheit um, leysa lítinn vanda ef undirstöður efnahagslífsins verða áfram feysknar. Skýr skilaboð Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsókn- arflokks þarf í upphafi að senda skýr skilaboð um að tími nýrra vinnubragða og viðhorfs sé runninn upp. Gildi borgaralegs samfélags verði hafin til vegs og virðingar að nýju. Þannig verði látið af of- sóknum á hendur einstökum atvinnugreinum, hvort heldur er í sjávarútvegi eða í öðrum atvinnu- vegum. Skjaldborg um stórfyrirtækin sem reist var í skjóli og með stuðningi vinstri stjórnar, verði felld niður. Vegur sjálfstæða atvinnurekandans, sem hrakinn var út í horn, verði ruddur og heil- brigð samkeppni tryggð á öllum sviðum atvinnu- lífsins. Forystumenn og þingmenn nýrrar ríkisstjórnar verða að sýna í orði og á borði að þeir hafi skilning á stöðu þeirra sem reka lítil og meðalstór fyr- irtæki í ójafnri samkeppni við stórfyrirtæki sem voru endurreist eftir hrun fjármálakerfisins. Þeir verða að sannfæra þúsundir sjálfstæðra atvinnu- rekenda, sem hafa lagt allt sitt undir, að tími skiln- ingsleysis og andúðar sé að baki. Uppskurður skattkerfisins er nauðsynlegur. Lækkun tryggingagjalds, sanngjarnt auðlinda- gjald, afnám auðlegðarskatts og langtímastefna í skattamálum skiptir þar miklu en fleira þarf að koma til. Þungar byrðar eftirlitsins Eftirlitsiðnaðurinn hefur á síðustu árum vaxið Íslendingum upp fyrir höfuð og þar er ekki aðeins við fráfarandi ríkisstjórn að sakast. Það eru ekki síst sjálfstæðu atvinnurekendurnir sem bera byrðarnar. Það kostar litla fiskverkandann hundr- uð þúsunda á ári að fá opinbera eftirlitsmenn í heimsókn. Eigandi bifreiðaverkstæðisins, sem er með allt uppi á borðum, fær reglulegar heimsókn- ir frá eftirlitsmönnum hins opinbera, á sama tíma og svört atvinnustarfsemi blómstrar. Margslungið og íþyngjandi eftirlitskerfi í landbúnaði, samhliða flóknu kerfi vörugjalda og óeðlilegum tollum, heldur uppi matarverði á Íslandi og hamlar framþróun í landbúnaði og vinnslu landbún- aðarvara. Í sumum atvinnugreinum er orðið svo flókið að afla sér tilskilinna leyfa að jafnvel fullhugar sem ætla að hasla sér þar völl, gefast upp á hlaupum milli stofnana og eftirlitsaðila. Á stundum virðist sem það sé vanda- samara og meira verk að sinna kröf- um hins opinbera en að huga að þörf- um viðskiptavina. 20 milljarða kostnaður Samkvæmt skýrslu sem Hag- fræðistofnun Háskóla Íslands vann fyrir forsætisráðuneytið árið 2004 var beinn kostnaður fyrirtækja við að framfylgja eftirlitsreglum talinn nema um 7,2 milljörðum króna á verðlagi ársins 2003. (Tekið var fram að líklega væri um vanmat að ræða, þar sem ekki var tekið mið af öllum eftirlitsreglum á öllum sviðum.) Á verðlagi 2012 var þessi beini kostnaður um 12,6 milljarðar króna á ári. Frá þessum tíma hefur reglum verið fjölgað, þær hertar á flestum sviðum og eftirlit hins op- inbera verið aukið. Ekki er óvarlegt að ætla að beinn kostnaður íslenskra fyrirtækja vegna op- inbers eftirlits sé 15-20 milljarðar króna. Óbeinn kostnaður vegna minni framleiðni, lakari sam- keppnisstöðu og skilvirkni hleypur á milljörðum. Uppskurður á opinberu eftirlitskerfi, færri og einfaldari reglugerðir, styrkja hag fyrirtækja og auka möguleika til nýsköpunar. Störfum fjölgar, vöruverð lækkar og skatttekjur ríkisins aukast. Allir hagnast. Bestu eftirmælin Í liðlega fjögur ár hefur verið sótt að sjálfstæða atvinnurekandanum. Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna taldi eðlilegt og sanngjarnt að þeir sem sem höfðu rekið fyrirtæki sín af skynsemi og forðast óeðlilega skuldsetningu, skyldu axla þung- ar byrðar í formi hærri skatta, aukins eftirlits og torveldara regluverks. Árangur í rekstri var litinn hornauga. Í tíð vinstri stjórnarinnar varð það beinlínis hættulegt að skila þokkalegri afkomu og eiga skuldlítil fyr- irtæki. Skattmann var aldrei langt undan með refsivöndinn. Verkefni ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks er að gera það aftur eftirsókn- arvert að stunda sjálfstæðan atvinnurekstur – lofa einstaklingum að njóta þess sem vel er gert. Það á að hefja athafnamanninn aftur til vegs og virð- ingar. Einhver bestu eftirmæli sem ríkisstjórn getur fengið í lok kjörtímabils er að hún hafi unnið að endurreisn sjálfstæða atvinnurekandans og þar með lagt grunninn að efnahagslegri velsæld þjóð- arinnar. Eftir Óla Björn Kárason Óli Björn Kárason Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins. Endurreisn sjálfstæða atvinnurekandans » Verkefnið er að gera það aft- ur eftirsóknarvert að stunda sjálfstæðan atvinnurekstur. Það á að hefja athafnamanninn aftur til vegs og virðingar. Seðlabanki Íslands hefur ný- lega gefið út skýrslu um fjár- málastöðugleika. Skýrsla þessi er eftirtektarverðari en ella fyrir þá sök að hún fyrsta út- tektin á skuldstöðu þjóðarinnar (dagsett 30. apríl 2013) sem Seðlabankinn gefur út eftir að ljóst varð að valdatími núver- andi ríkisstjórnar væri á enda runninn. Skýrsla þessi hefur að mínu mati ekki hlotið þá at- hygli sem hún verðskuldar og ástæða til að ítreka boðskap hennar. Samningsbundin erlend skuldstaða er ósjálfbær Í formála seðlabankastjóra að skýrslunni kveður við nokkuð annan tón en á und- anförnum árum. Þar er sagt berum orðum að samningsbundin skuldstaða þjóðarinnar sé að öðru óbreyttu ekki sjálfbær. Með samningsbundinni skuldstöðu er átt við undirritaða skuldasamninga í erlendri mynt. Nánar tiltekið er þessi skuldstaða talin ósjálfbær í þeim skilningi að núver- andi og fyrirsjáanlegar gjaldeyristekjur þjóðarinnar dugi ekki til að greiða vexti og afborganir af þessum skuldum. Orðrétt segir seðlabankastjóri: „miðað við óbreytt gengi nægir fyrirsjáanlegur undirliggjandi viðskiptaafgangur næstu ára ekki til að fjármagna samningsbundnar afborganir erlendra lána.“ (bls. 4). Það sem upp á vantar eru engir smámun- ir. Í téðum formála skýrir seðlabankastjóri frá því að undirliggjandi viðskiptaafgangur, þ.e. það sem til ráðstöfunar sé til að greiða afborganir af erlendum lánum, nemi ein- ungis um 3% af landsframleiðslu og fari minnkandi, en það sem þurfi til að standa í skilum nemi að meðaltali 5,5% af lands- framleiðslu á næstu árum. Hið óbrúaða bil er að því áliti seðlabankastjóra u.þ.b. 2,5-3% af landsframleiðslu árlega á næstu fjórum árum eða nálægt 200 ma. króna mið- að við núverandi verðlag. Þrotabú bankanna og kvikar krónueignir Samningsbundin skuldstaða þjóðarinnar er því miður aðeins tiltölulega lítill hluti gjaldeyrisvandans. Ofan á hana bætist sú mikla gjaldeyrisþörf sem tengist uppgjöri þrotabúa föllnu bankanna og svokallaðri „kvikri“ krónueign erlendra aðila. Sú gjald- eyrisþörf nemur að áliti Seðlabankans um 770 ma. kr. eða um 45% af landsframleiðslu (sjá bls. 86 í skýrslunni). Hvað er til ráða? Seðlabankastjóri nefnir þrjár leiðir til að mæta þessum vanda. Fyrstu tvær leiðirnar eru (i) aukinn útflutningur og þjóðhags- legur sparnaður með eða án gengislækk- unar krónunnar og (ii) nýjar erlendar lán- tökur til að fjármagna endurgreiðslur eldri lána. Fyrri leiðin felur í sér lækk- un á neyslu heimila a.m.k. tíma- bundið upp á u.þ.b. 5-7% árlega næstu árin og aukna verðbólgu ef nauðsynlegt verður að lækka gengið til að auka útflutning og þjóðahagslegan sparnað. Bætist þessi kjaraskerðing þá við lækk- un kaupmáttar heimilanna sem átt hefur sér stað á undanförnum fjórum árum upp á hátt í 20%. Síðari leiðin frestar því að taka á vandanum en skerðir samt kjörin til lengri tíma með hærri vaxta- greiðslum til útlanda en ella væri. Þriðja leiðin snýr sérstaklega að þrotabúum bankanna og hinni „kviku“ krónueign erlendra aðila. Þar er seðla- bankastjóri afdráttarlausari. Orðrétt segir hann: „Hröð losun þessara eigna getur þannig ekki átt sér stað nema verðlagning og viðskiptagengi krónu gagnvart erlend- um gjaldmiðlum feli í sér verulega lækkun frá mælingu þessara eigna nú í erlendum gjaldmiðlum.“ Á mæltu máli er hann að segja að kröfuhafar geti ekki fengið kröfur sínar greiddar í erlendum gjaldeyri nema gegn verulegri lækkun þessara krafna, t.a.m. með yfirfærslu í erlenda mynt á óhagstæðara gengi en nú gildir. Hvað merkir þetta allt saman? Í umræddri skýrslu er seðlabankastjóri að segja þjóðinni að hún geti ekki borgað samningsbundnar erlendar skuldir sínar að óbreyttu. Til að unnt sé að borga þessar skuldir verði þjóðin að herða mittisólina enn á ný. Jafnframt upplýsir hann kröfu- hafa þrotabúanna og eigendur hinna „kviku“ krónueigna um að þjóðarbúið eigi ekki gjaldeyri til að skipta kröfum þeirra í erlenda mynt. Vilji þeir fá slíka mynt fyrir kröfurnar verði þeir að slá verulega af þeim. Þetta er auðvitað skýr áfellisdómur yfir efnahagsstefnu fráfarandi ríkisstjórnar. Í stað þess að takast á við vandann hefur hún ýtt honum á undan sér. Fjórum og hálfu ári eftir hrun er skuldavandi þjóðarbúsins kominn í svo mikið óefni að seðla- bankastjóri telur hann óviðráðanlegan nema gripið verði til nýrra úrræða. Þau úr- ræði fela óhjákvæmilega í sér nýja kjara- skerðingu nema vænlegra sé talið freista þess að fresta vandanum en á ný með frek- ari erlendum lántökum. Eftir Ragnar Árnason » Á mæltu máli er hann að segja að kröfuhafar geti ekki fengið kröfur sínar greiddar í erlendum gjald- eyri nema gegn verulegri lækkun þessara krafna. Ragnar Árnason Höfundur er prófessor. Um erlenda skuld- stöðu þjóðarinnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.