Morgunblaðið - 22.05.2013, Side 26

Morgunblaðið - 22.05.2013, Side 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2013 ✝ Anna KristínÓlafsdóttir fæddist í Reykjavík 26. mars 1966. Hún lést 11. apríl 2013. Foreldrar henn- ar voru Lára Mar- grét Ragnarsdóttir alþingismaður, fædd 9. október 1947, dáin 29. jan- úar 2012, og dr. Ólafur Grétar Guð- mundsson augnlæknir, fæddur 26. febrúar 1946. Þau skildu. Maki Ólafs Grétars er Steinunn Aagot Kristjánsdóttir. Bræður Önnu Kristínar eru: Ingvi Stein- ar, fæddur 24. mars 1973, maki Sigrún Guðný Markúsdóttir, og Atli Ragnar, fæddur 14. mars 1976, maki Sólveig Jónsdóttir. Anna Kristín giftist Sigurði Böðvarssyni krabbameinslækni 22. júlí 1995. Þau skildu. Börn þeirra: Lísa Margrét lögfræð- ingur, fædd 3. júlí 1987, maki Kristján H. Johannessen stjórn- málafræðingur, Eysteinn leik- listarnemi, fæddur 14. desem- ber 1990, maki Katrín Eyjólfsdóttir nemi, og Bjarki grunnskólanemi, fæddur 13. janúar 1997. Anna Kristín gift- ist Hjörleifi B. Kvaran hæsta- réttarlögmanni 28. október 2006. Dóttir Hjörleifs af fyrra starfaði Anna Kristín sem sjálf- stætt starfandi ráðgjafi en frá árinu 2011 starfaði hún sem sérfræðingur á Umhverfis- stofnun. Samhliða því starfi stundaði hún meistaranám í lögfræði við Háskólann í Reykjavík. Á námsárum sínum við Há- skóla Íslands átti Anna Kristín m.a. sæti í stúdentaráði og var fulltrúi stúdenta á fundum há- skólaráðs. Hún var formaður verkefnisstjórnar fyrstu Vetr- arhátíðar í Reykjavík veturinn 2001-2002. Hún sat í ýmsum nefndum á vegum Listaháskóla Íslands og var m.a. formaður jafnréttisnefndar skólans. Anna Kristín var fyrsti stjórnar- formaður Vatnajökuls- þjóðgarðs, stærsta þjóðgarðs Evrópu, sem stofnaður var árið 2008. Anna Kristín var mikil áhugakona um útivist og lét umhverfismál mjög til sín taka. Starf hennar sem sérfræðingur á Umhverfisstofnun laut að náttúruvernd og friðlýsingu landslags og landshluta. Anna Kristín tók þátt í starfi Kvenna- listans á upphafsárum þeirra samtaka enda baráttukona fyrir mannréttindum og bættri stöðu kvenna. Önnu Kristínar verður minnst fyrir framlag hennar til jafnréttisbaráttu kvenna í ís- lensku samfélagi á árunum 2010 til 2012. Minningarathöfn um Önnu Kristínu verður haldin í Dóm- kirkjunni í Reykjavík í dag, 22. maí 2013, og hefst athöfnin kl. 15. hjónabandi er Hjördís Isabella, þýðandi, fædd 8. júlí 1981. Anna Kristín lauk grunnámi frá Winchester High School í Massachu- setts 1983, er stúd- ent frá Mennta- skólanum í Hamrahlíð 1985, stundaði nám í al- þjóðastjórnmálum við Wellesley College, Massachusetts 1985- 1986, lauk BA-prófi í stjórn- málafræði við Háskóla Íslands 1995 og meistaraprófi (MPA) í opinberri stjórnsýslu og stefnu- mótun árið 2000 frá La Follette School of Public Affairs, Uni- versity of Wisconsin, Madison. Anna Kristín starfaði sem að- stoðarstjórnmálafulltrúi við sendiráð Bandaríkjanna í Reykjavík árin 1990-1996. Eftir námslok árið 2000 starfaði hún um skeið sem sérfræðingur hjá ríkisendurskoðun Wisconsin- þings. Hún var aðstoðarkona borgarstjórans í Reykjavík árin 2001 til 2003. Anna Kristín starfaði sem forstöðumaður há- skólaskrifstofu Listaháskóla Ís- lands 2004-2007 uns hún tók við starfi aðstoðarkonu umhverfis- ráðherra 2007-2009. Um skeið Það er með miklum söknuði sem ég kveð nú móður mína en jafnframt með miklu þakklæti fyr- ir þann tíma sem við áttum saman sem mæðgur og ekki síst vinkon- ur. Í öllu því sem hún tók sér fyrir hendur á lífsleiðinni endurspegl- aðist sú hlýja, umhyggjusemi, af- burðagreind og fróðleiksfýsn sem hana einkenndu. Hún var mér sterk fyrirmynd alla tíð og kenndi okkur systkinunum þau gildi sem hafa mótað okkur sem einstak- linga. Móðir okkar var hugsjóna- manneskja með ríka réttlætis- kennd og í orði jafnt sem verki kenndi hún okkur mikilvægi þess að berjast fyrir kvenréttindum og jafnrétti og koma fram af heiðar- leika og sanngirni. Hún kenndi okkur einnig að staldra við og njóta smáatriðanna í hversdags- leikanum sem gera lífið svo merki- legt. Fyrir allt þetta og svo ótal- margt fleira verð ég ævinlega þakklát. Vel sé þér, vinur, þótt vikirðu skjótt Frónbúum frá í fegri heima. Ljós var leið þín og lífsfögnuður, æðra, eilífan þú öðlast nú. (Jónas Hallgrímsson) Hún lifir áfram í minningum okkar. Lísa Margrét Sigurðardóttir. Fyrst og fremst var Anna Kristín mikil fjölskyldukona og var samband hennar við börn sín, Lísu Margréti, Eystein og Bjarka, litað af einstakri ást. Leiðir okkar Lísu lágu saman í Menntaskólan- um við Hamrahlíð og fljótlega var ég fluttur inn á heimili Önnu Kristínar og Hjörleifs á Kvist- haga. Heimilið einkenndist ávallt af mikilli birtu og hlýju og á ég þaðan margar góðar minningar. Mér er minnisstætt hversu vel okkur Lísu leið alltaf í litla her- berginu okkar á Kvisthaga. Frá fyrstu kynnum tók Anna Kristín mér einstaklega vel og af mikilli hlýju. Alltaf vildi hún fylgj- ast með hvernig mér gengi í námi og starfi og hvatti mig til dáða. Fyrsta minning mín um hana er þegar við Lísa vorum eitt sinn á göngu skammt frá Kvisthaganum og Anna Kristín kom hlaupandi framhjá okkur. Útihlaup voru meðal helstu áhugamála hennar og naut hún þess að fara út að hlaupa sama hvernig viðraði. Anna Kristín var einnig mikill náttúruunnandi og reistu þau Hjörleifur fallegt sumarhús í Kiðjabergi í Grímsnesi. Húsið nefndu þau Hálsakot og er það fal- lega og hlýlega innréttað í anda Önnu Kristínar. Skammt frá er matjurtargarður sem tengdamóð- ir mín lagði mikla rækt við og fékk fjölskyldan iðulega að njóta upp- skerunnar við matarborðið. Eftir að flutt var í Granaskjól spurði Anna Kristín mig eitt sinn ráða um hvað gera skyldi við til- tekinn reit í nýja garðinum fyrir utan borðstofugluggann. Lagði ég til að settur yrði niður rósarunni. Runninn minnir mig nú alltaf á þá vináttu sem við áttum og þegar ég kom á heimilið fyrir stuttu varð mér litið út um gluggann og á runnann okkar. Hann er nú tekinn að grænka á ný. Þegar við Lísa hófum að búa saman lagði Anna Kristín áherslu á að fjölskyldan hittist og eldaði saman kvöldmat. Það var henni mikilvægt að halda fjölskyldunni saman. Voru þær því ófáar stund- irnar sem við áttum saman inni í eldhúsinu í Granaskjóli og mun ég sakna þeirra. Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst Önnu Kristínu en minning um hlýja og dugmikla konu lifir í hjörtum þeirra sem hana þekktu. Kristján H. Johannessen. Kveðja frá móðursystur Systir mín fönguleg var með barni ári fyrir útskrift frá Menntaskólanum í Reykjavík. Lífsneisti sem kviknaði í ástar- sambandi við skólabróður og verð- andi eiginmann, skagfirskan hlau- pagarp og íþróttaforkólf. Jafn óvænt og sú staða skaut upp koll- inum í fjölskyldunni skall útihurð- in á MR árla morguns á verðandi móður. Því fæddist Anna Kristín fyrir tímann en hún lagði grunn- inn að þriðju kynslóð fjölskyldu okkar. Nýr og fagur veruleiki leit dagsins ljós því Anna Kristín var komin í heiminn, fyrsta barnabarn foreldra minna og föðurömmu sinnar og ekki síst fyrsta lang- ömmubarn Schram-hjónanna á Vesturgötu 36B. Þótt fordómar, fát og fuss hefðu sett svip sinn á upptakt og tilkomu stúlkubarnsins, var stjarna fædd. Ást og athygli afa, langafa, ammanna og langömmu varð öll- um kreddum um barneignir ógiftra menntskælinga yfirsterk- ari. Þessi vendipunktur í lífi fjöl- skyldunnar færði mér rúmlega fermdri móðursysturinni nýtt og gefandi hlutverk. Lítil mamma mótaðist innra með mér á meðan stóra systir lauk skyldum sínum gagnvart menntagyðjunni og hvíta kollinum. Samband okkar Önnu Kristínar frá frumbernsku hennar setti hlutverk og hlutföll sambands okkar í nokkuð óvenju- legt samhengi. Á meðan ég var móðursystir upplifði ég mig ekki síður sem systur. Samt var hún litla frænka mín, en þó svo stór þar sem hún stóð mér svo nærri. Ég þreyttist seint á að heyra þegar sagt var að hún væri jafnvel líkari mér en móður sinni. Kynslóðir og hlutverk, aldur og þroski, gáfur, gæfa og gjörvileiki eru hugtök sem við mátum gjarn- an við tilveru okkar og leitum hlut- falla og svara við. Í söknuði mínum yfir vannýtt- um tækifærum til að deila fleiri stundum með þessari einstöku frænku minni, hugleiði ég aftur og aftur persónuna og lífshlaupið sem nú er á enda runnið. Frammi fyrir mér stendur bráðþroska, greint og fagurt stúlkubarn, svipmikil kona, hjartahrein og sönn, kraftmikil og keik. Við hver lok tekur við nýr kafli og frammi fyrir mér og öðr- um þeim sem elska Önnu Kristínu heitt, standa líka þrjú dásamleg börn, afkomendur hennar sem enduróma styrk hennar og móð- urkærleik. Ég kveð mína elskulega frænku með vögguvísu eftir ömmu Dúnu, föðurömmu okkar systra og langömmu Önnu Krist- ínar, vögguvísu sem ferjaði hana inn í svefninn á bernskuárunum, sinni mömmu Láru hjá. Guð verndi öllu illu frá elsku litlu Baldursbrá. Hún er ósköp sæt og smá sinni mömmu Dúnu hjá. Ásta Kristrún Ragnarsdóttir. Hver er þessi gáfulega þarna á bekknum framar í stofunni? Já, þessi háa, granna með bumbuna! Við sátum saman í tímum í stjórn- málafræði í háskólanum, hún yngri, en svo miklu klárari, þrosk- aðri. Uppgötvuðum skyldleikann í næstu frímínútum. Stuttu síðar sátum við splunkunýju frænkurn- ar saman í Stúdentakjallararum fram á nótt og skönnuðum ætt- garðinn, ættareinkennin, söguna. Komnar af sjófarendum og seig- um formæðrum, harðduglegu fólki og stoltu. Margar sögur sagðar þetta kvöld, sumar lygileg- ar, sumar sárar, aðrar bara fyndn- ar. Einhvers staðar leyndust fleiri sögur sem ekki voru sagðar fyrr en síðar. Hvað við vorum glaðar að hafa fundið hvor aðra. Upphafið að ævarandi vináttu. Úr kjallararum lágu leiðir okk- ar saman í stúdentapólitíkinni, síðar inn í Kvennalistann með öðr- um spútnikskvísum. Systralagið varð til. Ótal myndir af sameig- inlegum stundum birtast, matar- boðum, plottfundum, skoðana- skiptum, næturlangt hlegið, grátið, tekist á, rifist hástöfum um hugmyndir, aðferðir, kvenrétt- indi, réttlátara samfélag, allt var undir, allar með skoðanir. Stíf fundarstjórn með mælendaskrá oft nauðsynleg, fram á rauðan morgun. Dálítið töff vinátta á stundum en oftast svo fáránlega skemmtileg. Svo mikið hlegið. Anna Kristín hafði svo marga kosti, átti sér ótal margar hliðar. Leiftrandi klár, analýtísk, hug- sjónamanneskja, tilfinningarík, athugul, ábyrgðarfull, hlý, um- hyggjusöm, elskaði ungana sína út yfir allt, Lísu, litla bumbubúann úr háskólanum forðum, Eystein og Bjarka og Hjördísi. Svoddan skutla, með blik í auga, ástfangin, alvarleg, vandvirk, hamhleypa til verka. Svo makalaust dugleg. Og mesti hlauparinn í okkar hópi. En veganestið var margvíslegt, ýmislegt í því boxi sem ekki var allt auðvelt að melta, eða finna út úr. Dálítið í okkar ætt að halda áfram og halda andlitinu, sama á hverju gengur. Endalaus dugnað- ur. Það getur tekið á til lengdar. Síðustu mánuðir voru erfiðir þótt birt hafi til inn á milli. Okkar kona ætlaði sannarlega að komast í gegnum þetta. En það er oft svo fjandi erfitt að eiga við sinn innri mann, maður nær ekki alltaf landi þótt margir leggist á árarnar með manni. Og svo er tíminn allt í einu búinn. Tækifærin til að finna út úr þessu ekki lengur til. Síðasta samtalið okkar var þungt en samt svo hlýtt og elsku- legt. Ég vonaði svo innilega að nú færi að birta til hjá þér, elsku vin- kona. Nú erum við einni færri, þú hef- ur ýtt úr vör, róin yfir á bjartari mið. Eftir er sorgin, ennþá óbif- anleg. Við öll sem eftir sitjum, vin- konur, ættingjar, börnin og Hjör- leifur, getum lítið annað en reynt að vanda okkur enn betur við framhaldið, rækta vináttuna og fjölskylduböndin, rækta okkar innri mann. Með sól í hjarta. Reyna að ná landi, saman. Þannig lifirðu áfram með okk- ur, elskulegust. Nína Helgadóttir. Það eru líklega rétt um 20 ár síðan hópur af ungum og efnileg- um stúlkum gekk saman til liðs við okkur í Kvennalistanum. Allar hafa þær síðan látið til sín taka á vettvangi stjórnmálanna, hver með sínum hætti. Ég var svo sem ekki gamalreynd stjórnmálakona á þeim tíma en þær voru samt kynslóð yngri en ég og komu með nýja og ferska strauma inn í Kvennalistann. Anna Kristín var í þessum hópi og vakti strax áhuga og athygli okkar sem fyrir vorum. Að sumu leyti var það vegna þess að mamma hennar var í herbúðum Sjálfstæðisflokksins, sumpart af því hún var frænka Möllu Schram en að mestu leyti vegna þess hvað hún var glæsileg og þroskuð ung kona. Við dáðumst að henni og andlitsfríð, grönn, leggjalöng og spengileg var hún lifandi sönnun þess að kvenfrelsiskonur eru ekki bara greindar heldur líka glæsi- legar. Seinna átti ég eftir að kynn- ast henni enn betur þegar hún réðst til mín sem aðstoðarkona borgarstjóra á árunum 2001-2003. Fór hún m.a. með mér í gegnum borgarstjórnarkosningarnar árið 2002 sem og borgarstjóraskiptin árið 2003 en sú atburðarás öll reyndi mikið á okkur báðar. Reyndist hún mér einstaklega vel í þeim hremmingum og þá kynnt- ist ég því best hvað hún var ósér- hlífin, raungóð og traust. En hún var jafnframt skapmikil tilfinn- ingavera sem var allra kvenna skemmtilegust í góðum fé- lagsskap en brást líka hart við hvers kyns óréttlæti og óheilind- um. Held ég reyndar að fátt hafi hún þolað verr en óheilindi. Allar mínar minningar um Önnu Krist- ínu eru góðar og þó að við höfum ekki haft mikið saman að sælda undanfarin ár þá sakna ég hennar sárt nú þegar hún er horfin af sjónarsviðinu. Það er sárt að fá aldrei aftur að upplifa geislandi fegurð hennar eða kraftmikla nærveru og drífandi atorku. En hún vildi fara og ákvað að ráða sjálf stund og stað. Undir þann vilja verðum við að beygja okkur og í stað þess að dvelja við brott- förina skulum við heiðra og næra minninguna um þessa glæsilegu konu sem lifði sterkt og til fulls meðan hún lifði. Fjarlægð hindrar að ég geti tekið þátt í kveðjuat- höfninni í dag en hugur minn er hjá þeim sem voru henni hjart- fólgnastir; Hjörleifi, Margréti Lísu, Eysteini og Bjarka sem og föður hennar og bræðrum. Megi allar góðu minningarnar um Önnu Kristínu verma þeim og líkna. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Kabul. Það er þyngra en orð fá lýst að fá þær fregnir að heiman að kærr- ar vinu, Önnu Kristínar Ólafsdótt- ur, sé saknað. Enn þyngra er til þess að vita að hún hafi verið stödd í slíku hyldýpi sálar og heilla að það hafi leitt hana út yfir ystu sjónarrönd. Anna Kristín var sterk hugsjónakona og á þeim ár- um sem við vorum nánar voru engar hindranir henni óyfirstígan- legar. Það gustaði af henni, kraft- urinn taumlaus, og hugurinn sí- kvikur og skapandi. Um leið var hún allt umlykjandi, hlý og næm. Þannig stendur Anna Kristín mér lifandi fyrir hugskotssjónum, í erilsömu starfi þar sem hún naut þess að láta til sín taka og finna lausnir á krefjandi málum, og sem góð vinkona og nágranni. Það er ekki í mannlegum mætti að skilja né dæma um hvenær og hvernig öngstræti í sinni nær slík- um undirtökum að ekki verður aftur snúið. Mér verður tíðhugsað til orða Sigfúsar Daðasonar sem segir svo á einum stað í bók sinni Ljóð, 1947-1951: Ég bið ekki um sálarró, stað- settur miðja vega milli himnaríkis og helvítis, nýs og gamals, austurs og vesturs, miðja vega milli hins örðuga og hins fyrirhafnarlausa, þess sem ég verð að gera sjálfur og hins sem þeir liðnu hafa búið í hendur mér – nei það væri til of mikils mælst. En ég bið um að mér sé veitt lausn frá tómi sálarinnar, hinu hluttektarlausa og ónæma, sem sér ekki ljósið, finnur ekki loftið né vatnið né jörðina, ég bið um að mér sé veitt lausn frá slíkum degi sem nú er liðinn að kveldi, yfir tómlegan frosthimin í apríl. Ég sendi Önnu Kristínu hinstu kveðju yfir fjöll og höf með kæru þakklæti fyrir að lýsa upp til- veruna öll góðu árin. Fólkinu sem hún elskaði takmarkalaust, Hjör- leifi manni hennar og börnunum Lísu Margréti, Eysteini og Bjarka sendi ég hugheilar samúðarkveðj- ur og bið allar góðar vættir um að styðja þau og sefa sorg þeirra. Kristín A. Árnadóttir, Peking. Sorgin er kynleg skepna. Einn daginn er hún bjarg sem ekki er hægt að bifa. Þann næsta er kom- in svartaþoka. Á svipstundu um- breytist hún í hvíta reiði. Þess á milli er hún ljúfsár verkur undir bringspölum. Í bókinni Líf mitt með Mozart eftir Erci-Emmanuel Schmitt segir (í þýðingu Sigurðar Pálsson- ar). „Frá sjónarhóli Guðs fáum við dauðann í vöggugjöf, það er sam- eiginlegt hlutskipti allra.“ Ég reyni að hafa þessi einföldu sann- indi í huga á meðan ég hugsa um lífið þitt. Mozart er með í spilinu. Tónlistin líkt og græðandi smyrsl á opið sár. Það var líka alltaf tón- list í kringum þig. Klassíkin í allri sinni dýrð. Fortissimo. Ég hef ekki tölu á tónleikunum sem við þræddum í gegnum árin. Allt frá Patti Smith á Nasa til Kammer- sveitar Reykjavíkur í Hörpu fyrir síðustu jól. Allt nema Carpenters- tribjútinn sem þú afþakkaðir pent. Og fáir vita að við blótuðum við bandaríska sveitatónlist á laun. Vinkonur, samstarfskonur, baráttusystur, femínistar og sein- þroska græningjar. Við áttum sálufélag upp á gott og vont en vorum samt eins langt frá því að vera já-systur eins og hægt er að hugsa sér. Það var oft tekist á og margt látið flakka. En það var svo gaman, Anna Kristín. Svartur húmor og hlátrasköll komu okkur oftar en ekki yfir torfærurnar. Ég læt aðra um að lýsa kven- kostum þínum. Þeir voru augljósir öllum sem kynntust þér. Afburða- manneskja í hverju því sem þú tókst þér fyrir hendur. Og dugn- aðurinn; maður minn. Ekkert gat stöðvað þig. Ekki heldur þetta síð- asta kvöld. Veturinn hafði verið þungur fyrir þig og þína nánustu. Miklu þyngri en flesta grunaði. Það vill gleymast að geðræn vandamál og fíkn geta verið banvæn blanda. Geðsjúkdómar draga fleiri Íslend- inga til dauða en samfélagið kærir sig um að horfast í augu við. Ósjaldan fólk í blóma lífsins. Fá- mennisbölvunin gerir það líka að verkum að í heilbrigðiskerfi sem komið er á ystu nöf er ekki hægt að sérsníða lausnir fyrir einstak- lingana sem veikjast. Margir reyndu sitt besta en allt kom fyrir ekki. Þegar við töluðum síðast saman var lífið sjálft í húfi; heilsan, fjöl- skyldan, samskiptin og sársauk- inn sem felst í því að horfast í augu við þetta allt saman. Þegar ég horfi til baka þá sé ég að það sam- tal hafði staðið með hléum í meira en aldarfjórðung, enda ræturnar djúpar. En hvernig sem allt velkist þá muntu lifa með okkur, elsku vin- kona. Í hjörtum þeirra sem elsk- uðu þig. Í hjörtum barnanna þinna. Og þannig muntu halda áfram að auðga líf okkar. Vittu til, Anna Kristín, á endanum sigrar lífið, kærleikurinn og sumarið. Þórunn Sveinbjarnardóttir. „Flest er hægt að segja í ljóði en margt er ekki hægt að segja öðruvísi en í ljóði. Margt er þess eðlis að ljóðið eitt getur tjáð það“. Þannig komst Snorri Hjartarson skáld að orði og þannig líður mér við að setjast niður og skrifa orð til minnar kæru vinkonu Önnu Krist- ínar. Snorri orti um mannsbarn á myrkri heiði. Dimm og köld er þokan ég veit ekki hvar ég er veit ekki hvert ég fer en þó held ég áfram. Ég veit ekki hvort syrtir veit ekki hvort birtir en þó held ég áfram Dimm og köld er þokan og þó held ég áfram. Anna Kristín vinkona mín hvarf inn í myrkrið og gat ekki haldið áfram. Við því er ekkert að segja nema minnast góðra stunda. Klárari, skemmtilegri, hlýrri og húmorískari konu var vart hægt að finna. Hún Anna Kristín gat einfaldlega allt nema kannski að lifa. Við kynntumst í Háskólanum og höfum haldið hópinn síðan þá, sex ólíkar vinkonur sem höfum deilt gleði-, sorgar- og hamingju- stundum á undanförnum tæplega 25 árum. Ég horfi á ljósmyndina sem við létum taka af okkur þegar Anna Kristín Ólafsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.