Morgunblaðið - 22.05.2013, Side 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2013
Af einhverjum ástæðumnáðu hvorki sólríkt úti-vistarveður né fjórgengthrynstappandi söngva-
keppni Evrópskra sjónvarpsstöðva
að draga úr aðsókn á grænu
fimmtudagstónleikum hljómsveitar
allra landsmanna svo neinu næmi.
Eldborgarsalurinn var að vísu ekki
fullsetinn, en það munaði ekki
miklu. Frádráttarþættirnir tveir
réðu þó líklega nokkru um aldurs-
samsetningu hlustenda, er virtist
ívið hærugrónari en oft áður.
Ekki veit ég hversu kunnug sin-
fónísk fantasía Sibeliusar um Dótt-
ur norðursins (heimsþekkt sem
„Pohjola’s daughter“) frá 1906 er
hér Atlantsnyrðra; alltjent kvað
verkið ekki hafa heyrzt af hljóm-
sveitarpalli síðan Petri Sakari flutti
það 1989, ef trúa má fróðleiksmola
tónleikaskrár, „Tónlistinni á Ís-
landi“. Sjálfur kom ég fremur fersk-
ur að stykkinu, ef svo má milda ill-
verjandi þekkingargloppu um
jafnauðheyrt meistaraverk. Fyrstu
drög voru frá 1901, um sama leyti
og 2. sinfónía Jeans kom undir á
Ítalíu, enda mátti heyra eitt og ann-
að frum úr prógrammverkinu um
efni úr Kalevalaljóðum sem minnti
tónrænt á þá vinsælu hljómkviðu.
Hélað heimskautshjarta kirjálsku
norðurdísarinnar gat svo hins vegar
leitt hugann að kínversku prinsip-
issu Puccinis í Turandot.
Frómt frá sagt var erfitt annað
en að stórhrífast jafnt af verkinu
sem hríslandi tærri túlkun þess.
Náttúrutöfrar finnskra freðmýra og
birkiskóga negldu mann bókstaflega
fastan í sæti. Hvílík litaauðgi og
launhiti, þarna næst undir norð-
urheimskautsbaugi! Í breitt epískri
og dýnamískri mótun Inkinens lifði
maður sig inn í Edduveröld Finna í
hlustrænni þrívídd er þurfti engrar
myndlýsingar við, og seiðandi
nornavefur strengja og dulrænn
sjamanasöngur tréblásara gerði at-
riðið að eldvakurri upplifun í sér-
flokki.
Æskuverk Mendelssohns frá
1831, frumraun undrabarnsins í pí-
anókonsertgreininni, sló mig ekki í
sama mæli, enda varla meðal al-
fremstu verka þessa stundum van-
metna snillings. Engu að síður naut
það sín vel í ekki sízt fruntaliprum
slaghörpuleik Ashkars, og mátti í
mesta lagi hnjóta um hrynræna
samstillingu við hljómsveit í blá-
byrjun þátta. Það átti raunar einnig
við sumar aðrar fruminnkomur dag-
skrár og er trúlega með algengustu
einkennum gestastjórnenda hvaðan-
æva er eiga aðeins fimm daga til
stefnu á hverjum stað og tíma. Sól-
istanum var frábærlega vel tekið, en
andstætt væntingum lét hann ekki
aukalag af hendi rakna að þessu
sinni.
6. og síðasta sinfónía Tsjaikovs-
kíjs frá 1893, auknefnd Pathétique
að tillögu bróður tónskáldsins, hefur
á seinni tímum tengzt vangaveltum
um tildrög að andláti höfundar, er
tónleikaskrárritari kvöldsins fór af-
ar „pent“ yfir en gæti í versta falli
hafa verið afleiðing arseníktöku eft-
ir dauðadóm kollegahóps til að forð-
ast yfirvofandi hneyksli sakir sam-
kynhneigðar tónsmiðsins. Manni sat
málið í fersku minni eftir að það var
reifað í Kontrapunktkeppni í Ósló
1990, þótt enn virðist ekki komið
endanlega á hreint.
En hvað sem því á annars eftir að
líða, þá var flutningur þessarar
heimsfrægu sinfóníu hreinasta
eyrnayndi. Enn blómstraði
strengjasveitin undir forystu Ink-
inens, þrátt fyrir nokkra mannfæð
til mótvægis við glæsilegan lúðra-
blástur í einkum III. þætti. Scherzó-
ið (II) leiftraði af ævintýraskotnum
ballettþokka í anda Hnotubrjótsins,
og fínallinn (IV) geislaði sömuleiðis,
þrátt fyrir skynjanlega sálræna ör-
vilnun, þökk sé fagurri mótun og eð-
albornum strokhljómi.
Frammistaða til fyrirmyndar – í
þremur orðum sagt.
Morgunblaðið/Heiddi
Fruntalipur „Æskuverk Mendelssohns frá 1831, frumraun undrabarnsins í píanókonsertgreininni, sló mig ekki í
sama mæli, enda varla meðal alfremstu verka þessa stundum vanmetna snillings. Engu að síður naut það sín vel í
ekki sízt fruntaliprum slaghörpuleik Ashkars,“ segir m.a. í gagnrýni. Hér sést píanóleikarinn Ashkar.
Sinfónísk örvilnun
Eldborg í Hörpu
Sinfóníutónleikarbbbbm
Sibelius: Dóttir norðursins. Mendels-
sohn: Píanókonsert nr. 1. Tsjajkovskíj:
Sinf. nr. 6 (Pathétique). Saleem Abboud
Ashkar píanó og Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands. Stjórnandi: Pietari Inkinen.
Fimmtudaginn 16. maí kl. 19:30.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
Bíólistinn 17.-19. maí 2013
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
Star Trek: Into Darkness
The Great Gatsby
Iron Man 3
Croods
The Place Beyond the Pines
Latibær Bíóupplifun
Mama
Evil Dead
Olympus Has Fallen
The Call
1
Ný
2
4
3
6
7
5
8
9
2
1
4
8
3
4
2
3
5
4
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Star Trek Into
Darkness trónir
á toppi listans yf-
ir tekjuhæstu
myndir kvik-
myndahúsanna
yfir helgi, aðra
vikuna í röð. Sú
næsttekjuhæsta
er The Great
Gatsby, opnunar-
mynd kvik-
myndahátíðarinnar í Cannes sem
nú stendur yfir. Handrit hennar er
byggt á sígildri, samnefndri skáld-
sögu F. Scott Fitzgerald sem þykir
ein sú merkasta í bandarískri bók-
menntasögu.
Járnmaðurinn nýtur enn mikilla
vinsælda, þriðja myndin um hann
dettur úr öðru sæti í það þriðja og
teiknimyndin The Croods heldur
sínu fjórða sæti eftir átta vikur í
sýningum.
Bíóaðsókn helgarinnar
Star Trek
vinsælli en
Gatsby
Leondardo DiCap-
rio leikur Gatsby.
Við sérhæfum okkur í
vatnskössum og bensíntönkum.
Gerum við og eigum nýja til á lager.
KVIKMYNDAÚRVALIÐ ER Í SAMBÍÓUNUM
Á TOPPNUM Í ÁR
KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ Á
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
FAST&FURIOUS6 KL.5:10-8-10:40
THEGREATGATSBY2D KL.5-8-10:55
STARTREKINTODARKNESS3D KL. 5:10 - 8 - 10:50
STARTREKINTODARKNESS VIP KL. 5:10 - 8 - 10:40
PLACE BEYOND THE PINES KL. 5:10 - 8 - 10:50
IRON MAN 32D KL. 5:10 - 8 - 10:40 KRINGLUNNI
THE GREAT GATSBY2D KL. 5:10 - 8 - 10:50
IRON MAN 3 3D KL. 5:20 - 8 - 10:40
PLACE BEYOND THE PINES KL. 8
ÓFEIGUR GENGUR AFTUR KL. 5:50
OLYMPUS HAS FALLEN KL. 10:50
FAST & FURIOUS 6 KL. 5:20 - 8 - 10:40
THE GREAT GATSBY2D KL. 5:10 - 8 - 10:50
STARTREKINTODARKNESS3D KL. 5:10 - 8 - 10:50
IRON MAN 3 2D KL. 5:20 - 8
PLACE BEYOND THE PINES KL. 10:40
NÚMERUÐ SÆTI
KEFLAVÍK
FAST&FURIOUS6 KL.8-10:40
THEGREATGATSBY2D KL.8
STARTREKINTODARKNESS3D KL. 10:55
AKUREYRI
THE GREAT GATSBY2D KL. 5:10 - 8
STAR TREK INTO DARKNESS 3D KL. 5:20 - 8 - 10:40
IRON MAN 3 2D KL. 10:55
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
NEW YORK OBSERVER
THE PLAYLIST
J.J. ABRAMS ER MÆTTUR MEÐ BESTU
HASARMYND ÞESSA ÁRS!
EMPIRE
FILM
T.V. - BÍÓVEFURINN
THE GUARDIAN
STÓRFENGLEG
EXHILARATING
ALDEILIS RÚSSÍBANI, ÞESSI MYND.
SJÁÐU HANA!
FRÁBÆR
EIN STÆRSTA SPENNUMYND SUMARSINS