Morgunblaðið - 09.07.2013, Blaðsíða 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 2013
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Sumarhús
Rotþrær, vatnsgeymar og alvöru
moltugerðarkassar
Rotþrær og siturlagnir. Heildarlausnir
- réttar lausnir. Vatnsgeymar frá 300
til 50.000 lítra. Lindarbrunnar.
Borgarplast.is
Mosfellsbæ. S. 561 2211.
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Fyrirtæki
Skemmtistaður í 101 til sölu
Vegna sérstakra aðstæðna er til sölu
skemmtistaður í miðborg Reykjavíkur,
staðurinn hefur verið rekinn í nokkur
ár við góðan orðstír. Hann er vel
búinn tækjum og innréttingum og
með leyfi fyrir meira en 200 manns.
Áhugasamir vinsamlegast sendið
fyrirspurnir á netfangið :
frekarehf@gmail.com
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
3 FRÁBÆRIR !
Teg. 1566 - létt-fylltur og fallegur í
B-, C-skálum á kr. 5.800, boxerbuxur
í stíl á kr. 1.995.
Teg. 31100 Vel fylltur í B-, C-skálum
á kr. 5.800, boxerbuxur á kr. 1.995.
Teg. 21323 - þunn blúnda og hald-
góð í C-, D-skálum á kr. 5.800, boxer-
buxur við á kr. 1.995.
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18,
Lokað á laugardögum í sumar.
Þú mætir - við mælum
og aðstoðum.
www.misty.is
- vertu vinur
VANDAÐIR ÞÝSKIR HERRASKÓR
ÚR LEÐRI, SKINNFÓÐRAÐIR OG
MEÐ GÓÐAN SÓLA.
Teg. 26581 290: Léttir og þægilegir
sumarskór sem lofta út. Úr leðri og
skinnfóðraðir. Stærðir: 41 - 46
Verð. 14.700.
Teg: 204201 23 000: Vandaðir herra-
skór úr leðri og skinnfóðraðir.
Stærðir: 40 - 48 Verð: 16.985.
Teg. 206204 23 000: Vandaðir herra-
skór úr leðri og skinnfóðraðir.
Stærðir: 40 - 46 Verð: 16.975.
Teg. 455201 340 000: Vandaðir
herraskór úr leðri og skinnfóðraðir.
Stærðir: 41 - 47 Verð: 19.975.
Teg. 308301 238: Vandaðir herraskór
úr leðri og skinnfóðraðir. Stærðir:
39 - 47 Verð: 15.885.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán. - fös. 10 - 18.
Lokað laugardaga í sumar.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
BílaþjónustaVinnuvélar
VEGHEFILL KOMATSU 655, árg.’84
Gamall hefill leitar að nýjum eig-
anda. Mælir í 16.475 t. Er í þokka-
legu lagi. Myndir fyrir áhugasama.
Verð 3 - 4 m. Nánari upplýsingar á
bs234@simnet.is eða 892 0034,
Björn.
Þjónustuauglýsingar 569 1100
GODDI.IS Auðbrekku 19, 200 Kóp. s. 544 5550
GÓÐ KAUP
Ný sending af finnskum
saunaklefum 206x206 cm
Lækkað verðAuðvelt að breyta í útihús
Félagsstarf eldri borgara
!
" #
$" #
%
&'
" "
!
(
!
) * +!!
,
- ) ) ./ ,#0
&1
2 ,
%
) )/ ,#0
"#
$%&$' 34
%
56 &
)
#0
5" %
7 !
"
!!
$ -% !'
#
" !,
" # '
()
80
+, 1
*
* & !!
5"
! ) 40
!
$ " "
)
7 " ' 7 ! ) #
+
,
- -
, )
Sálarrannsóknarfélag
Reykjavíkur
Síðumúla 31,
s. 588 6060
Miðlarnir, spámiðlarnir og
huglæknarnir Þórhallur Guð-
mundsson, Ólafur Hraundal
Thorarensen talnaspekingur
og spámiðill, Ragnhildur
Filippusdóttir, Garðar Björg-
vinsson, Michael-miðill,
Símon Bacon, Guðríður
Hannesdóttir kristalsheilari
og auk annarra, starfa hjá
félaginu og bjóða félags-
mönnum og öðrum upp á einka-
tíma. Upplýsingar um félagið,
starfsemi þess, rannsóknir og
útgáfur, einkatíma og tíma-
pantanir eru alla virka daga
ársins frá kl. 13-18. auk þess
oft á kvöldin og um helgar.
SRFR
Félagsstarf
Raðauglýsingar 569 1100
BÍLAR
Sérblað um
bíla fylgir
Morgunblaðinu
alla þriðjudaga
✝ Sigurður KarlÁgústsson
fæddist í Djúpavík
10. júlí 1955. Hann
andaðist á Land-
spítala – háskóla-
sjúkrahúsi 30. júní
2013.
Foreldrar hans
voru Ágúst Sig-
urður Karlsson, f.
19. júlí 1929, d.
29. apríl 2008, og
Rut Sigurðardóttir, f. 18.
ágúst 1936. Sigurður var
næstelstur sjö systkina og
flutti hann ásamt foreldrum
sínum til Reykjavíkur þegar
hann var á þriðja ári. Þar bjó
hann lengst af, þangað til
hann flutti í Voga ásamt fjöl-
skyldu sinni.
Sigurður kvæntist 15. apríl
2000 Lindu Sjöfn
Sigurðardóttur, f.
16. febrúar 1966,
þau eiga Rut Sig-
urðardóttur, f. 25.
janúar 2002. Fyrir
átti Sigurður eina
dóttur, Ýri Kojetin
Sigurðardóttur, f.
12. febrúar 1978,
gift Herbert Eu-
gene Kojetin, f.
15. maí 1977.
Barnabörn Sigurðar eru Jakob
Karl Kojetin, f. 2. maí 2009,
Lerato og Lethabo Makaule, f.
5. júlí 2005.
Sigurður var rafeindavirki
að mennt og starfaði við iðn
sína til margra ára.
Útför Sigurðar fer fram frá
Grensáskirkju í dag, 9. júlí
2013, kl. 13.
Sigurður var góður eigin-
maður, hlýr og traustur vinur
sem verður sárt saknað. Hann
var úrræðagóður og snjall og
hafði einstakan hæfileika til að
horfa björtum augum á lífið og
tilveruna. Að láta sér leiðast
var ekki til í hans huga – hann
kunni það ekki. Hann var húm-
oristi mikill og sá oftar en ekki
skoplegu hliðina á hlutunum
jafnvel í vonlausum aðstæðum
að annarra mati. Sigurður lifði
lífinu lifandi og var alltaf með
eitthvað spennandi á prjónun-
um. Hann bjó yfir mikilli seiglu
sem kom sér vel þegar hann
tókst á við veikindi sín sem
ágerðust undanfarin ár. Að
eyða tímanum í að velta sér
upp úr áhyggjunum vegna
þeirra var honum ekki að skapi
og þegar fólkið í kringum hann
fór á límingunum af áhyggjum
var viðkvæðið oftast „ég er með
fólk í vinnu við að hafa áhyggj-
ur af þessu“. Það var mikilvægt
að halda áfram og lifa í núinu.
Siggi var góður faðir sem gaf
sér góðan tíma fyrir dóttur
okkar sem hann var mjög stolt-
ur af. Ég er þakklát fyrir þau
sextán ár sem við áttum saman
þau liðu alltof hratt.
Hvíl í friði, minn kæri.
Linda Sjöfn Sigurðardóttir.
Hann var æðislegur pabbi
sem sá alltaf björtu hliðina á
öllu. Hann var alltaf tilbúinn að
tala við mig ef mér leið illa og
þurfti að tala við einhvern sem
skildi allt sem ég talaði um.
Mér fannst svo gott að koma
heim úr skólanum vitandi af
honum heima. Ef mig langaði
ekki að fara út með vinkonum
mínum var pabbi alltaf tilbúinn
að gera svo margt. Eins og að
horfa með mér á sjónvarpið,
búa til rafeindadót eða fara
með mig út í óbyggðir til að
fara á krossarann. Hann var
góður vinur sem gat alltaf
fengið mig til að hlæja. Pabbi
stóð alltaf við bakið á mér í
tónlistarskólanum og við gát-
um talað saman um tónlist og
við skildum alltaf hvort annað.
Stundum fórum við að veiða
og þá átti hann það til að ýta
við mér svo að ég datt út í
vatnið. Við pabbi eyddum
miklum tíma saman þegar
hann var ekki á spítalanum.
Hann hjálpaði mér nánast allt-
af við heimanámið og var
stoltur af öllu sem ég gerði í
náminu.
Hvíldu í friði, elsku pabbi.
Rut Sigurðardóttir.
Í dag kveðjum við Sigga,
ástkæran son og bróður.
Siggi naut sín sjaldan betur
en þegar þau hjónin, hann og
Linda, tóku á móti gestum og
hann fékk að elda ofan í þá,
enda matmaður mikill og
kokkur góður. Gestrisinn var
hann, brosmildur og hjarta-
hlýr. Hann var svo innilega
stoltur af dætrum sínum,
tengdasyni og barnabörnum
og ræktaði fjölskylduböndin af
miklum kærleika.
Systkinabörnin litu öll upp
til hins uppátækjasama frænda
síns, og oft hafa þau beðið
ömmu Rut að segja sér Sigga-
sögur. Allt frá bernskubrekum
og strákapörum til uppátækja á
fullorðinsárum, enda eltist
prakkaraskapurinn aldrei af
honum.
Siggi lifði lífinu til fulls og
þegar heilsan tók að bila hélt
hann því áfram eins og kraft-
arnir leyfðu. Í erfiðum veik-
indum sýndi hann fádæma
þrautseigju og baráttuþrek.
Þótt bardaginn hafi verið
óvæginn á köflum síðustu miss-
erin leit hann aldrei á sig sem
sjúkling heldur tók hverri raun
af æðruleysi.
Minningin um Sigga mun
fylgja okkur ævina á enda; fjöl-
skyldumaður og náttúrubarn,
dýravinur og dellukarl, bassa-
leikari og blúsari, dásamlegur
stríðnispúki og hrókur alls
fagnaðar.
Elsku Linda, Rut, Ýr, Her-
bie og börn, þótt missir okkar
sé stór er ykkar missir mestur.
Guð blessi minningu Sigga,
vaki yfir ykkur og styrki.
Mamma, Birna, Guðlaugur,
Ævar, Ína, Magnús
og Berglind.
Siggi frændi var alltaf á
fullu og átti mörg áhugamál.
Það sem marga dreymir um
en fæstir gera; svifdrekaflug,
köfun og sigling yfir Atlants-
hafið á skútu. Siggi gerði
þetta allt, hann kunni ekki að
láta sér leiðast. Hann var allt-
af í góðu skapi, gat snúið
slæmu til góðs, sama hvað
gekk á, hann gat alltaf fengið
okkur til að hlæja. Á erfiðum
stundum fékk hann okkur til
að brosa, hann var maður sem
öllum þótti vænt um. Það eru
ekki allir svo heppnir að eiga
svona frábæran og skemmti-
legan frænda.
Hann var mikill fjölskyldu-
maður og ræktaði vel sam-
bandið við Ýri og fjölskyldu
þótt heimsálfur skildu að. Eins
sinnti hann Rut vel og var
stoltur af tónlistarnámi hennar
og hæfileikum.
Elsku Linda, Rut, Ýr og fjöl-
skylda, ég sendi ykkur mínar
innilegustu samúðarkveðjur,
megi Guð blessa minninguna
um góðan dreng og vera með
ykkur. Þótt Siggi sé farinn frá
okkur á hann samt eftir að fá
okkur til að hlæja þegar við
rifjum upp skemmtilegar sam-
verustundir, öll uppátækin og
prakkarastrikin.
Díana Hjálmarsdóttir.
Sigurður Karl
Ágústsson