Morgunblaðið - 09.07.2013, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 2013
Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Akralind 8 | 201 Kópavogur | sími 564 6070
fax 564 6071 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is
AF BRIMRÁS
STIGUM OG TRÖPPUM
25%
AFSLÁTTUR
Í kvöld ætla ég með vinkvennahópnum mínum út að borða,“ seg-ir Bryndís Ósk Þ. Ingvarsdóttir, en hún er 25 ára í dag. Þærhittast alltaf á afmælisdaginn hennar og er gleðin þá ætíð við
völd. Bryndís lauk í vor BA-prófi úr náminu fræði og framkvæmd
við leiklistar- og dansdeild Listaháskóla Íslands. Bryndís er nýkom-
in heim úr ferðalagi til Evrópu þar sem hún var m.a. tæknistjóri á
danssýningunni Male Me í Amsterdam. „Hópur af dönsurum af sama
ári og ég í Listaháskólanum fékk boð um að koma fram á Festival
Amsterdam og bað mig um að sjá um hljóð- og ljósavinnuna,“ segir
Bryndís, en tæknistjórn í leikhúsi var hluti af námi hennar í skól-
anum. Sýningin vakti lukku áhorfenda og var hópurinn ánægður.
Bryndís nýtti ferðina einnig til að heimsækja Belgíu og París
ásamt kærasta sínum, Guðjóni Teiti. Bryndís hefur unnið að ýmsum
verkefnum tengdum náminu. „Ég hef séð um leikmynd, tækni og
sýningarstjórn í ýmsum verkefnum í Norðurpólnum og aðstoðað við
sýningar í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu,“ segir hún. Nú vinnur Bryndís
að því finna hentugan sýningarstað fyrir endurupptöku á útskrift-
arleiksýningu sinni, Maskínunni. Hún segir í því samhengi vera
missi að Norðurpólnum, en leikhúsið missti húsnæði sitt á Seltjarn-
arnesinu fyrr á þessu ári. „Það eru vonbrigði fyrir ungt sviðs-
listafólk og vonandi kemur fljótt annar álíka vettvangur í staðinn.“
larahalla@mbl.is
Bryndís Ósk Þ. Ingvarsdóttir er 25 ára í dag
Í Belgíu Bryndís Ósk í bænum Bruges í sumar. Hún útskrifaðist úr
náminu fræði og framkvæmd við leiklistar- og dansdeild LHÍ í vor.
Slógu í gegn í
Amsterdam
Íslendingar Pétur Atli Lárusson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Hákon Hjartarson og Guðmundur Tómas Magnússon héldu tombólu á Garða-
torgi og söfnuðust 6.578 kr. sem þeir gáfu Rauða krossi Íslands.
Hlutavelta
V
iktor fæddist á Ísafirði
9. júlí 1963 og ólst þar
upp til 12 ára aldurs.
Þá flutti hann til
Reykjavíkur en var öll
sumur á Ísafirði til 23 ára aldurs
að spila fótbolta og vinna í Hrað-
frystihúsinu Norðurtanganum hf.
Viktor var í barnaskólanum á
Ísafirði, Austurbæjarskóla í
Reykjavík í eitt ár og lauk gagn-
fræðaprófi í Álftamýrarskóla.
Hann lauk stúdentsprófi frá Versl-
unarskóla Íslands 1983 og útskrif-
aðist sem viðskiptafræðingur frá
Háskóla Íslands 1988.
Unnið lengi fyrir lífeyrissjóði
Viktor hefur verið í lífeyris-
sjóðabransanum síðan 1989. Fyrst
hjá Lífeyrissjóði starfsfólks í veit-
ingahúsum, Framsýn lífeyrissjóði,
Reiknistofu lífeyrissjóða og síðan
verið skrifstofustjóri hjá Lífeyris-
sjóðnum Lífiðn, síðar Stöfum líf-
eyrissjóði, frá árinu 2000. Viktor
var formaður Foreldrafélags
Hvassaleitisskóla í nokkur ár og
síðan í skólaráði Hvassaleitisskóla
í þrjú ár. Hann er í Elliðaárnefnd
Stangaveiðifélags Reykjavíkur og
hefur verið formaður Lands-
sambands stangaveiðifélaga síðast-
liðin tvö ár.
Viktor Guðmundsson, skrifstofustjóri hjá Stöfum – 50 ára
Reykjavíkurmaraþon 2012 Margrét, Jóhanna, Viktor, Linda og Guðrún Katrín eftir vel heppnað skemmtiskokk.
Veiðileyfin alltof dýr
Einn 15 punda úr Svalbarðsá „Þessi lét hafa fyrir sér. Ég þurfti að hlaupa
fjórum sinnum upp og niður hylinn, en svo sleppti ég honum að sjálfsögðu.“
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is