Morgunblaðið - 09.07.2013, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 09.07.2013, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 2013 utilif. isGLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND High Peak Como 32.990 / 42.990 KR. 4 og 6 manna Tvískipt innratjald með fortjaldi á milli. Vatnsvörn 2.000 mm. Yfirlímdir saumar. Hæð 190/200 cm. High Peak ancona 56.990 KR. 5 manna Rúmgott fjölskyldutjald. Vatnsvörn 3.000 mm. Yfirlímdir saumar. Dúkur í fortjaldi. 2 inngangar. Hæð 200 cm. High Peak cave 19.990 / 23.990 KR. 2 og 3 manna Göngutjald sem er auðvelt í upp- setningu og aðeins 2,9 kg. Vatns- vörn 2.000 mm. Yfirlímdir saumar. Fíbersúlur. Hæð 90 cm. The north face tadpole 59.990 KR. 2 manna Létt göngutjald - 2,4 kg. Vatnsvörn 1.500 mm taffeta. Botn 5.000 mm taffeta. Álsúlur. Hæð 100 cm. tjaldaðu ekki til einnar nætur Frábært úrval af tjöldum í tjalda- landi í glæsibæ (við hliðina á tbr húsinu) Á R N A S Y N IR Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Misjafnt er hvort yfirvöld krefjast umhverf- ismats við uppbyggingu sjókvíaeldis. Skipu- lagsstofnun krefst mats við fjórföldun eldis Fjarðalax í Fossfirði í Arnarfirði en upp- bygging 3.000 tonna eldisstöðvar Arnarlax í Arnarfirði þarf ekki að fara í umhverfismat. Úrskurðarnefnd umhverfis- og skipulagsmála sneri við úrskurði Skipulagsstofnunar um 7.000 tonna eldi Hraðfrystihússins – Gunn- varar á laxi og silungi í Ísafjaðardjúpi og krefst umhverfismats. Fjarðalax mun kæra niðurstöðu Skipulagsstofnunar vegna Foss- fjarðar. Umhverfismat tekur vanalega nokkur ár og tilheyrandi rannsóknir kosta mikið fé. Þannig kom fram í máli framkvæmdastjóra Fjarðalax í Morgunblaðinu í gær að matið kostaði 70-120 milljónir kr. Gagnrýndi hann sérstaklega Hafrannsóknastofnun fyrir and- stöðu hennar við umsókn fyrirtækisins um að stækkun sjókvíaeldis í Fossfirði úr 1.500 tonnum í 6.000 tonn skuli ekki háð umhverf- ismati. „Okkar færustu sér- fræðingar fóru yfir málið. Ákvörðunin var tekin af vel yfirlögðu ráði,“ segir Jóhann Sigurjónsson, for- stjóri Hafrannsóknastofn- unar, um gagnrýni Hösk- uldar Steinarssonar, framkvæmdastjóra Fjarða- lax. Hann vekur athygli á því að fyrirhugað sé að fjórfalda eldismagnið í þessum þröskuldsfirði. Sérfræðingar Hafró telji rétt að þegar um jafn stóra framkvæmd er að ræða sé eðlilegt að framkvæmdin sé háð mati á umhverfisáhrifum þar sem litið sé heildstætt á málið, meðal annars til annarrar starfsemi, svo sem eldi, rækjuveiða og þorsk- veiða. Afla meiri grunnþekkingar Höskuldur segir öll gögn sýna að burðarþol fjarðanna sé miklu meira en fyr- irhugað sé að nýta en skortur á rannsóknum og vanþekking skýri úrskurðinn. Einkafyr- irtæki sé ætlað að bæta fyrir getuleysi og vanþekkingu opinberrar fagstofnunar og beinir spjótum sínum þar að Hafró. Jóhann segir vissulega skorta á að fyrir liggi fullkomin þekking á eðli sjávarstrauma og endurnýjun á sjómassa inni í fjörðum og við strendur Íslands. Hafrannsóknastofnun hafi lagt áherslu á að afla meiri grunnþekk- ingar. Tekur forstjórinn fram að það varði ekki aðeins laxeldi heldur einnig fráveitur sveitarfélaga, iðnað og efnistöku. Reynt sé að fara kerfisbundið um landið og áherslan hafi verið á Vestfirði síðustu misserin. „Rétt er að taka fram að með afstöðu Hafrannsóknastofnunar er ekki verið að full- yrða um burðargetu svæðisins, heldur ein- vörðungu að tryggja eðlilega rýni í fyrirliggj- andi upplýsingar með heildstæðum hætti,“ segir Jóhann. Kvarta undan óskilvirku kerfi Fiskeldismenn hafa kvartað undan flóknu leyfisveitingakerfi sem þeir telja að sé of dýrt og óskilvirkt. Landssamband fiskeld- isstöðva vill skilvirkt kerfi þar sem leyfisveit- ingar séu á einni hendi og að ekki taki óhóf- legan tíma að afgreiða umsóknir. Fulltrúar Landssambands fiskeld- isstöðva fara í vikunni á fund Sigurðar Inga Jóhannssonar, ráðherra sjávarútvegs-, land- búnaðar- og umhverfismála. Höskuldur Steinarsson sagði í fyrradag að miklar vonir væru bundnar við árangur af þeim fundi enda miklir hagsmunir í húfi fyrir grein sem sé í mikilli uppbyggingu. Ekki alltaf krafist umhverfismats  Forstjóri Hafrannsóknastofnunar segir að með umhverfismati sjókvíaeldis sé verið að tryggja eðlilega rýni í fyrirliggjandi upplýsingar með heildstæðum hætti  Fiskeldismenn á fund ráðherra Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Fossfjörður Fjarðalax áformar að auka eldi í Arnarfirði úr 1.500 tonnum í 6.000 tonn. Jóhann Sigurjónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.