Morgunblaðið - 09.07.2013, Blaðsíða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 2013
Einrúm
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi · Sími 535 4300 · axis.is
Opnunartími: mán. - fös. 9:00 - 18:00
Sófi úr hljóðísogsefni sem býr
til hljóðskjól í miðjum skarkala
opinna skrifstofurýma, auk
þess að bæta hljóðvist rýmisins
STOFNAÐ 1987
M
ál
ve
rk
:
Ú
lf
ar
Ö
rn
einstakt
eitthvað alveg
Ú r v a l e i n s t a k r a m á l v e r k a o g l i s t m u n a e f t i r í s l e n s k a l i s t a m e n n | Sk ipholt 50a Sími 581 4020 | www.gal ler i l i s t . i s
Sinfóníuhljómsveit unga fólksins
heldur tónleika í Langholtskirkju í
kvöld kl. 20. Hljómsveitin leikur þá
nýtt verk eftir Huga Guðmundsson,
Minningarbrot – Glimpsed Memories
sem hann samdi sérstaklega fyrir
hana. Þá leikur Gróa Margrét Valdi-
marsdóttir einleik í fiðlukonsert Moz-
arts í A-dúr og loks flytur hljóm-
sveitin svítu úr Hnotubrjótnum eftir
Tjækovský.
Stjórnandi á tónleikunum er Gunn-
steinn Ólafsson.
Á sunnudaginn var hélt hljóm-
sveitin tónleika á Þjóðlagahátíðinni á
Siglufirði, fyrir troðfullri Siglufjarð-
arkirkju. Hún er skipuð fimmtíu tón-
listarnemum á aldrinum 13 til 25 ára. Einleikarinn Gróa M. Valdimarsdóttir.
Einleikur Gróu Margrétar með Ungfóníu
Danir eru enn ekki búnir að ákveða
hvar Eurovision verður haldin að
ári, en hins vegar liggja dagsetn-
ingar keppninnar loks fyrir. For-
svarsmenn hjá Danmarks Radio til-
kynntu í gær að aðalkeppnin fari
fram laugardaginn 10. maí 2014, en
undankeppnirnar þriðjudaginn 6.
maí og fimmtudaginn 8. maí.
Ákvörðun um keppnisstað verður
ekki tekin fyrr en undir lok sumars.
Borgirnar þrjár sem vilja hýsa
keppnina eru Horsens og Herning,
sem báðar eru á Jótlandi, auk Kaup-
mannahafnar. Keppnisborgin þarf
að geta boðið upp á gistingu fyrir
mörg þúsund manns, þ.á.m. þátttak-
endur, fylgdarlið og fjölmiðlafólk
sem telja um sex þúsund manns.
Ljósmynd/D. Stachel og T. Hanses
Eurovision Emmelie de Forest söng til
sigurs fyrir hönd Dana í vor sem leið.
Dagsetning ljós en
keppnisstaður ekki
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Það er alltaf gaman að sýna í Fær-
eyjum, enda eru Færeyingar vinir
okkar og frændur,“ segir Steinunn
Þórarinsdóttir myndhöggvari, en hún
er annar tveggja listamanna sem
sýna á Sumarsýningu Norðurlanda-
hússins í Færeyjum. Aðspurð segist
Steinunn síðast hafa sýnt í Færeyjum
á níunda áratug síðustu aldar þegar
hún tók þátt í samsýningu nokkurra
íslenskra listamanna og því kærkom-
ið að fá tækifæri til að leggja leið sína
til Færeyja aftur.
Sumarsýningin í Norðurlandahús-
inu stendur til 25. ágúst nk. Sýning-
arstjóri sýningarinnar er Inger Smæ-
rup Sørensen, en hún er danskur
listfræðingur, og valdi hún í sam-
vinnu við Sif Gunnarsdóttur, for-
stjóra Norðurlandahússins, að stilla
saman verkum eftir Steinunni annars
vegar og hins vegar Silju Strøm, sem
er ungur færeyskur málari. Spurð
hvort verk þeirra kallist á svarar
Steinunn því játandi. „Silja Strøm er
fígúratívur málari og það er einhver
góður þráður milli verkanna okkar,“
segir Steinunn og bendir á að Silja
Strøm, sem býr og starfar í Glasgow,
hafi í fyrra verið valin mest lofandi
listamaður ársins af menningarráði
Færeyja.
Fer með Borders til Chicago
Að sögn Steinunnar fór hún utan í
febrúar sl. til að undirbúa sýninguna
og skoða aðstæður. „Í framhaldinu
vann ég ný verk sérstaklega fyrir
sýninguna og valdi einnig eldri verk
sem mér fannst passa vel við um-
hverfið. Fljótlega kviknaði sú hug-
mynd að vera með verkin bæði inni
og úti, enda er umhverfið í Þórshöfn
svo skemmtilegt og fallegt. Ég hef
lengi unnið að umhverfismótandi list
og þarna eru margir spennandi staðir
sem ég hafði áhuga á að tengjast,“
segir Steinunn og nefnir sem dæmi
að eitt verkanna sé staðsett í ánni
sem rennur í gegnum bæinn.
„Sýningargestir fá sérútbúið kort
sem verkin eru merkt inn á,“ segir
Steinunn og tekur fram að gengið
hafi á ýmsu frá sýningaropnun í sein-
asta mánuði. „Við urðum að færa eitt
verkanna sem hafði verið fellt af sýn-
ingarstað sínum. Sömu nótt og það
gerðist var annað verk, sem staðsett
var úti í skógi, skemmt. Svo virðist
sem einhver hafi lamið það með
stórum steini með þeim afleiðingum
að í það komu sprungur, en verkið er
úr pottjárni,“ segir Steinunn og tekur
fram að bæjaryfirvöld í Þórshöfn
hyggist láta gera við verkið.
Steinunn hefur sýnt verk sín úti
um allan heim og því liggur beint við
að spyrja hvort verk hennar verði oft
fyrir barðinu á skemmdarvörgum.
„Miðað við magnið sem ég hef verið
að sýna úti um allan heim, m.a. í stór-
borgum Bandaríkjanna, þá hefur
merkilega lítið borið á skemmdum
verka minna. Við vorum því nokkuð
hissa á því að þetta skyldi gerast í
Færeyjum af öllum stöðum,“ segir
Steinunn og tekur fram að það fylgi
því vissulega bæði kostir og gallar
hversu aðgengileg verk hennar séu.
„Verkin mín bjóða upp á mjög náin
tengsl við áhorfendur vegna þess að
þau eru í líkamsstærð og eru gjarnan
á sama plani og vegfarendur. Það
þýðir auðvitað að þau eru útsett fyrir
ýmislegt, en um leið verður nálægðin
við mannlífið hluti af verkunum sem
er spennandi.“
Spurð hvað sé framundan hjá
henni segist Steinunn vera á leiðinni
til Chicago í byrjun ágúst. „Þar verð
ég með útiverkasýningu sem hefur
verið að ferðast um Bandaríkin. Sýn-
ingin nefnist Borders og var fyrst
sýnd í New York fyrir utan höf-
uðstöðvar Sameinuðu þjóðanna árið
2011. Chicago er fjórði áfangastað-
urinn, en sýningin verður sett upp
rétt suður af Chicago Art Institute,
skammt frá Millenium Park, en þetta
verkefni er unnið í samvinnu við Chi-
cago Parks. Það verður gaman að
sýna í Chicago, sem er þekkt fyrir
fjölskrúðuga flóru listaverka í op-
inberu rými.“
„Nálægðin við mannlífið spennandi“
Skemmdir unnar á verkum Stein-
unnar Þórarinsdóttur í Færeyjum
Ljósmynd/Ólavur Frederiksen
Fótabað Steinunn Þórarinsdóttir myndhöggvari sýnir á þriðja tug verka í
Færeyjum og er eitt þeirra staðsett í ánni sem rennur í gegnum Þórhöfn.