Morgunblaðið - 09.07.2013, Blaðsíða 27
Veiðin gæti breyst
Helstu áhugamál Viktors eru
stangaveiði, golf, fótbolti, spilaði
m.a. í meistaraflokki hjá ÍBÍ, úti-
vist og hreyfing. Stangaveiði er
samt áhugamál númer eitt og er
hann meðlimur í Veiðifélaginu Rot-
aranum sem í eru að megninu til
skólafélagar úr Verslunarskóla Ís-
lands og er sá félagsskapur einmitt
að halda upp á 20 ára afmæli sitt
um þessar mundir.
Landssamband stangaveiði-
félaga hefur tekið æ meiri tíma hjá
Viktori enda gætu verið ákveðin
tímamót hjá stangaveiðimönnum
og samtökum þeirra, stangaveiði-
félögunum, varðandi verðlags- og
leigumál og því nauðsynlegt að
standa vörð um hagsmuni þeirra
eins og frekast er unnt.
„Það er enn allt í biðstöðu og
menn hafa varann á, laxinn er bet-
ur haldinn en í fyrra, það er satt.
En í raun er þetta svipað start og í
fyrra. Þá byrjaði veiðin ágætlega.
Nú verður t.d. stórstreymt í dag
og hvað verður eftir þennan
straum, gerist það sama og í
fyrra? Auðvitað fyllast menn bjart-
sýni og menn hafa sakað okkur um
að vilja tala niður veiðina en við
munum samt að það varð algjör
aflabrestur um miðjan júlí og sum-
ir vilja hinkra enn og sjá hvernig
málin þróast. Margir veiðirétt-
areigendur vilja ekki lækka verð
og það er spurning hvort það er
orðið of seint. Það getur vel verið
að menn hafi ráðstafað fríinu í eitt-
hvað annað eða fundið sér aðra af-
þreyingu. Maður vonar að veiði-
réttareigendur og veiðileyfasalar
nái saman en það er samt stað-
reynd að veiðileyfin eru of dýr og
það er ákveðinn hópur manna sem
mun ekki kaupa leyfi nema þau
lækki verulega. Maður vonar nátt-
úrlega hvort tveggja að ekki verði
aflabrestur og að komið verði til
móts við stangaveiðimenn um að
lækka verð.“
Fjölskylda
Kona Viktors er Margrét Dröfn
Óskarsdóttir, f. 21.12. 1963, hjúkr-
unarfræðingur. Foreldrar hennar
eru Óskar Sumarliðason, f. 25.6.
1920, d. 1.6. 1971, húsasmiður í
Reykjavík og Jóhanna Margrét
Þorgeirsdóttir, f. 6.9. 1926, fyrr-
verandi gangavörður í
Breiðagerðisskóla í Reykjavík.
Börn Viktors og Margrétar eru
Jóhanna Björk, f. 19.8. 1994, nemi í
Verslunarskóla Íslands; Linda
Ósk, f. 4.11. 1997, nemi Versl-
unarskóla Íslands; Guðrún Katrín,
f. 13.6. 2000 nemi í Háaleitisskóla.
Systkini Viktors eru Jensína
Sigríður, f. 19.2. 1948, verkakona í
Reykjavík;
Ingigerður Anna, f. 13.7. 1949,
bankastarfsmaður í Reykjavík;
Rúnar, f. 23.3. 1952, verkstjóri í
Reykjavík; Katrín, f. 8.6. 1954, d.
26.12. 2012, bankastarfsmaður í
Mosfellsbæ.
Foreldrar Viktors eru Ragnheið-
ur Guðrún Loftsdóttir, f. 8.9. 1928,
húsfreyja í Reykjavík og Guð-
mundur Móeses Jónsson, f. 30.6.
1917, d. 12.3. 2007, yfirverkstjóri á
Ísafirði. Þau skildu og Guðmundur
kvæntist síðar Sigrúnu Stellu
Ingvarsdóttur, f. 13.1. 1935, skrif-
stofukonu á Ísafirði, nú búsett í
Reykjavík.
Úr frændgarði Viktors Guðmundssonar
Viktor
Guðmundsson
Katrín Þorleifsdóttir
húsfr. að Múla við Ísafjörð
Móses Illugason
b. að Múla, nefndur
Móeses í kirkjubók
Jensína Þorbjörg Mósesdóttir
klæðskeri á Ísafirði
Jón Hálfdánarson,
sjómaður í Hnífsdal
Ragnheiður Guðrún Loftsdóttir
húsfr. í Kópavogi
Guðrún Halldóra Níelsdóttir
húsfr. í Bolungarvík
Hálfdán Örnólfsson
hreppstj., sjóm. og b. í Bolungarvík
Björg Sigurðardóttir
húsfr. á Bólstað
Bjarni Sigfússon
b. á Bólstað
Pálfríður Ingigerður Áskelsd.
húsfr. á Bólstað, Kaldrananeshr.
Loftur Annas Bjarnason
b. á Bólstað, Kaldrananeshr.
Guðmundur Móeses Jónsson
yfirverkstjóri á Ísafirði
Guðríður Jónsdóttir
húsfr. á Bassastöðum
Áskell Pálsson
b. á Bassastöðum, Kaldrananeshr.
Viktor Guðmundsson Formaður
Landssambands stangaveiðifélaga.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 2013
Hringur Gretarsson hefur útskrif-
ast með doktorsgráðu í fjár-
málastærðfræði frá stærð-
fræðideild Imperial College í
London. Hringur varði dokt-
orsritgerð sína, „A Quadratic
Gaussian Year-on-Year Inflation
Model“ (Annars stigs normal-
dreift ársverðbólgulíkan), í janúar
síðastliðnum. Prófdómarar voru
Michael Monoyios, lektor við Ox-
ford-háskóla, og Damiano Brigo,
prófessor við Imperial College.
Leiðbeinandi Hrings við verkefnið
var Mark Davis, prófessor við Im-
perial College. Verkefnið vann
Hringur í samvinnu við Lloyds-
bankann í London.
Á undanförnum árum hefur
orðið aukning í viðskiptum með
afleiður tengdar verðbólgu í Bretlandi, á evrusvæðinu og víðar. Lífeyrissjóðir
og ýmis þjónustufyrirtæki nota slíkar afleiður til að vernda sig gegn hugs-
anlegu tapi sökum breytinga á verðlagi. Í ritgerð sinni kynnti Hringur nýja
aðferð til að líkja eftir hreyfingum ársverðbólgu og verðleggja verðbólguaf-
leiður. Ritgerðina má finna á vefslóðinni http://ssrn.com/abst-
ract=2274034.
Hringur lauk stúdentsprófi frá MR árið 2004, BSc-gráðu í stærðfræði frá
Háskóla Íslands árið 2007 og MSc-gráðu í fjármálastærðfræði frá Imperial
College árið 2009. Hann vann við hlutabréfaafleiður í Landsbanka Íslands í
London 2007-2008. Frá janúar síðastliðnum hefur hann unnið í Lloyds-
bankanum í London. Vinnan felst í að rannsaka gjaldþrotalíkön fyrir verð-
lagningu á fjármálaafurðum tengdum vöxtum, verðbólgu og gjaldeyri.
Hringur fæddist 1984 og er sonur Gretars Reynissonar myndlistarmanns
og Margrétar Ólafsdóttur fyrrum leikkonu og skrifstofumanns. Sambýlis-
kona Hrings er Matthildur Anna Gísladóttir píanóleikari.
Doktor í fjármálastærðfræði
Hringur
Gretarsson
90 ára
Elínbjörg Guttormsdóttir
85 ára
Sigurrós Sigurbergsdóttir
Svanbjörg Hróbjartsdóttir
80 ára
Ástþór Eydal Ísleifsson
Birna Hjaltalín Pálsdóttir
Guðlaug Á. Lúðvíksdóttir
Hilmar Jónsson
Jón Halldór Borgarsson
75 ára
Axel Gomez Retana
Bryndís Schram
Gísli Rúnar Guðmundsson
Magnús Heiðar Jónsson
Magnús Örn Óskarsson
Margrét Eggertsdóttir
Sigríður Jónsdóttir
Sonja Sveinsdóttir
Vilhjálmur Pétursson
70 ára
Aðalbjörg Garðarsdóttir
Ásthildur I. Haraldsdóttir
Bjarni H. Guðmundsson
Guðríður V. Guðjónsdóttir
Hildur Einarsdóttir
Hrafnhildur Guðmundsd.
Ragnheiður Gestsdóttir
Sigurjón Hjálmarsson
Ögmundur H. Guðmundss.
60 ára
Anton Pétursson
Björn Sævar Ástvaldsson
Elísabet Ingólfsdóttir
Jónatan Guðjónsson
Jón Helgi Jónsson
Magnús Jónsson
Ólafur Danivalsson
Zygmunt Mical
Þorvaldur Jón Viktorsson
50 ára
Ágústa Ýr Rosenkjær
Áshildur Sveinsdóttir
Baldvin Nielsen
Dóra Pétursdóttir
Einar Sævarsson
Gná Guðjónsdóttir
Ingólfur Jón Hauksson
Jaroslaw Czeslaw Jucha
Jenný Karlsdóttir
Jóhanna Guðmundsdóttir
Jóhanna Ólafsdóttir
Pétur Pétursson
Ragnar Geir Júníusson
Sigurður Sigurðarson
Viktor Guðmundsson
40 ára
Ellen Svava Guðlaugsdóttir
Gísli Sigmundsson
Guðrún Elín Arnardóttir
Júlíus Sigurþórsson
Leó Þór Þórarinsson
Marcela Lysá
Olayinka Isaac Abioye
Ragnar Þorkell Hannesson
Sigrún Jóhanna Eiríksdóttir
Sigurjón Ólafsson
Sigþór Samúelsson
Sóley Björk Stefánsdóttir
Tómas Ingi Ragnarsson
30 ára
Arnar Þór Hjaltason
Ásgeir Ingi Óskarsson
Birgitta Rós Björgvinsdóttir
Eva Rós Gunnarsdóttir
Eygló Bjarnadóttir
Eyþór Örn Ernstsson
Gunnþóra V. Gunnarsdóttir
Páll Benediktsson
Pálmi Freyr Bárðarson
Piotr Jan Jacukowicz
Tomas Dovydaitis
Valves Gunnarsson
Þór Jónsson
Til hamingju með daginn
50 ára Ágústa er Hafn-
firðingur, bús. í Kópavogi
og starfar sem aðstoðar-
maður tannlæknis.
Maki: Jóhann Viðarsson,
f. 1964, sölustjóri hjá
Heimilistækjum.
Börn: Sandra Ýr, f. 1992,
og Telma Rún, f. 1998.
Foreldrar: Árni Rosen-
kjær, f. 1932, rafvirkja-
meistari í Hafnarfirði, og
Guðríður Karlsdóttir, f.
1938, framhaldsskóla-
kennari í Hafnarfirði.
Ágústa Ýr
Rosenkjær
50 ára Jóhanna fæddist í
Paradise, Kaliforníu, en
ólst upp í San Fransciso
Bay Area, lærði hár-
greiðslu þar en er hús-
móðir í Hafnarfirði.
Maki: Ásgeir Halldórsson,
f. 1965, múrari.
Börn: Jóhanna á fimm
börn með fyrri eiginmanni
og þrjú með Ásgeiri.
Foreldrar: Ólafur Gunn-
arsson, f. 1931, og
Elísabet Albertsdóttir, f.
1940.
Jóhanna
Ólafsdóttir
30 ára Arnar Þór er frá
Kvistási í Eyjafjarðarsveit,
bús. á Akureyri og starfar
sem vörubílstjóri.
Maki: Rakel Vilhjálms-
dóttir, f. 1979, nemi í sál-
fræði við Háskólann á
Akureyri.
Sonur: Alexander Þór, f.
2009.
Foreldrar: Hjalti Þórsson,
f. 1957, verktaki, og Arn-
björg Jóhannsdóttir, f.
1964, hjúkrunar-
fræðingur.
Arnar Þór
Hjaltason