Morgunblaðið - 26.08.2013, Blaðsíða 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. ÁGÚST 2013
Dagurinn er tilhlökkunarefni og þá ekki síst til að hitta góðavini sem við höfum boðið hingað heim; fólk sem kann aðgleðjast á góðri stundu,“ segir Þórir Matthíasson sem er
fimmtugur í dag. Hann er norðan frá Dalvík, en löngu kominn suð-
ur. Er í dag framkvæmdastjóri Scanmar hf., fyrirtækis á Grand-
anum í Reykjavík sem selur ýmsar tæknivörur fyrir útgerðina.
Sem ungur maður var Þórir til sjós og aflaði sér skipstjórnarrétt-
inda. Kom svo í land og starfaði sem sölu- og markaðsstjóri hjá Sæ-
plasti í allmörg ár. Þá var hann um skeið framkvæmdastjóri sjávar-
útvegsfyrirtækisins BGB-Snæfells, sem Samherji tók síðar yfir.
Þórir og fjölskylda fluttust vegna atvinnu til Bretlands árið 2003
þar sem þau bjuggu í þrjú ár ár, fluttust þá aftur heim og þá tóku
önnur verkefni við
„Ég er náttúrubarn,“ segir Þórir aðspurður um áhugamál sín.
Hann kveðst hafa gaman af veiði og þá helst að renna fyrir lax og
silung. Önnur útivist heilli sig sömuleiðis, eins og til dæmis göngu-
ferðir. Ofarlega á blaði og í minni eftir sumarið sé til dæmis göngu-
ferð frá Látrum við Eyjafjörð og inn á Grenivík. Þar voru saman á
ferð Þórir, Dóróthea Elva Jóhannsdóttir eiginkona hans og dætur
þeirra hjóna sem eru þrjár. sbs@mbl.is
Þórir Matthíasson er 50 ára í dag
Göngufólk Þórir og Dóróthea Elva Jóhannsdóttir saman í gönguferð
á fjöllum fyrr í sumar, en útivist er ofarlega á blaði sem áhugamál.
Náttúrubarnið er
norðan úr landi
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Embla Þórhallsdóttir, Júlía Hrafnsdóttir, Edda Lilja Viktorsdóttir og Júlía Kar-
en Lárusdóttir héldu tómbóla við Austurver. Þær söfnuðu 10.552 kr. og gáfu
Rauða krossinum ágóðann.
Hlutavelta
Emma Guðmundsdóttir hélt tombólu
fyrir utan Melabúðina í Reykjavík. Hún
seldi dót sem hún og litli bróðir henn-
ar Tómas höfðu átt og ágóðann gaf
hún Rauða krossinn 2.470 kr.
Hlutavelta
Hafnarfjörður Gabríel Þór fæddist 6.
desember kl. 11.19. Hann vó 3.085 g
og var 51 cm langur. Foreldar hans eru
Erna Pálrún Árnadóttir og Ómar
Daníel Halliwell.
Nýir borgarar
G
unnlaugur fæddist í
Reykjavík, ólst upp á
Rauðalæknum til níu
ára aldurs en síðan í
Fossvoginum: „Ég
gerði nokkrar heiðarlegar tilraunir
til að vera í sveit á sumrin, hjá föð-
ursystur minni að Furubrekku á
Snæfellsnesi, en komst fljótlega að
því að ég er of mikið borgarbarn
þó ég sé að vísu mikill dýravinur.“
Gulli varð gagnfræðingur frá
Réttarholtsskóla, lauk sveinsprófi í
húsasmíði frá Iðnskólanum í
Reykjavík 1981 og varð meistari í
greininni 2001. Þá stundaði hann
leiklistarnám við American Aca-
demy of Dramatic Arts í Los Ang-
eles og útskrifaðist þaðan 1993.
Gulli lærði húsasmíði m.a. hjá
húsasmíðameisturunum Sveinbirni
Sigurðssyni og Jóni Hannessyni og
starfaði síðan í Stáliðjunni hjá
föður sínum 1982-84.
Gunnlaugur Helgason, húsasmíðam. og fjölmiðlamaður – 50 ára
Fjölskyldan Gulli og Ágústa, með Alexander, Díönu Sif og Sævari Þór. Á myndina vantar Helga Steinar.
Húsasmiður í sjónvarpi
Þrír frægir Gulli, Simon Le Bon og John Taylor úr Duran Duran, í LA 1987.
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Frá okkur færðu
skyrturnar þínar
tandurhreinar og
nýstraujaðar
Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík www.bjorg.is • Sími 553 1380
ÞVOTTAHÚS
EFNALAUG
DÚKALEIGA