Morgunblaðið - 05.09.2013, Page 2
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Barack Obama Bandaríkjaforseti fór
á fundi með norrænum leiðtogum í
Stokkhólmi í gær yfir sannanir fyrir
því að stjórn Assads Sýrlandsforseta
beri ábyrgð á efnavopnaárás nýverið.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra sat fundinn og
sagðist aðspurður ekki vilja tjá sig
um hvort rökstuðningur Obama væri
sannfærandi. „Almennt virtist hann
mjög viss í sinni sök,“ sagði Sigmund-
ur Davíð sem kvaðst að öðru leyti
bundinn trúnaði um þennan þátt við-
ræðna. Norrænu leiðtogarnir hefðu
verið sammála um að fordæma notk-
un efnavopna í Sýrlandi. Alþjóðasam-
félagið yrði að bregðast hart við og
draga hina seku til ábyrgðar.
Forsætisráðherra ræddi norður-
slóðir. „Við skiptum með okkur verk-
um, norrænu forsætisráðherrarnir.
Ég fjallaði sérstaklega um norður-
slóðamál. Ég fór yfir mikilvægi þeirr-
ar þróunar sem þar á sér stað og
mikilvægi þess þar af leiðandi að
löndin störfuðu saman að því að und-
irbúa þá þróun, tryggja umhverfis-
vernd, öryggi og innviðina sem þarf
til að nýta þau tækifæri sem eru að
skapast, og svo framvegis. Það var
mjög ánægjulegt hversu mikil við-
brögð voru við þessu, ekki síst frá
Bandaríkjaforseta.
Ég hef haft áhyggjur af því undan-
farin ár að Bandaríkjamenn hafa ekki
sinnt þessum málaflokki sem skyldi
en það er orðin breyting á því núna
með Barack Obama forseta og ekki
síst með John Kerry utanríkis-
ráðherra sem leggur á þetta mikla
áherslu. Obama hafði frumkvæði að
því að bæta við þessa umræðu og
halda henni gangandi. Ég held að það
sé einlægur áhugi þar.“
Skuli vera miðpunktur
Að sögn Sigmundar voru ekki
teknar ákvarðanir um tiltekin skref í
norðurslóðamálum heldur sammælst
um að Norðurskautsráðið skyldi vera
miðpunktur aukins samstarfs. Spurð-
ur hvort hann hefði vakið máls á að
efla þyrfti samskipti Íslands og
Bandaríkjanna sagðist Sigmundur
Davíð hafa lagt áherslu á ríkan vilja
íslenskra stjórnvalda til að auka sam-
starf og samskipti við Bandaríkin. Í
yfirlýsingu leiðtoganna eftir fundinn
segi að hugað skuli að viðskiptasam-
bandi Íslands og Noregs annars veg-
ar og Bandaríkjanna hins vegar sam-
hliða viðræðum Bandaríkjanna og
ESB um fríverslunarsamning.
Utanríkismálanefnd öldungadeild-
ar Bandaríkjaþings samþykkti í gær
ályktun sem greiðir fyrir loftárásum
á Sýrland. »22, 24
AFP
Í Stokkhólmi Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Danmerkur, Sauli Niinistö Finnlandsforseti, Obama for-
seti, Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, og Sigmundur.
Obama ræddi efna-
vopnaárás í Sýrlandi
Forsætisráðherra tjáir sig ekki um málflutning forsetans
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2013
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ef vöxtur í ferðaþjónustu verður að
jafnaði 15% á ári út áratuginn munu
gjaldeyristekjur af greininni aukast
í 759 milljarða kr. árið 2020. Rætist
spáin munu 2,14 milljónir erlendra
ferðamanna koma til landsins 2020.
Þetta áætlar Gunnar Valur
Sveinsson, verkefnastjóri hjá Sam-
tökum ferðaþjónustunnar, þegar
hann er spurður út í horfur um
gjaldeyrisöflun greinarinnar.
Að sögn Gunnars Vals aflaði
ferðaþjónustan 238 milljarða króna í
erlendum gjaldeyri árið 2012, 285
milljarða í ár og að óbreyttu 328
milljarða 2014. Samkvæmt áður-
nefndri áætlun
verður talan
komin í 377 millj-
arða 2015, 434
milljarða 2016,
499 milljarða
2017, 574 millj-
arða 2018, 660
milljarða 2019 og
759 milljarða
2020. Hér er
horft mörg ár
fram í tímann og leggur Gunnar
Valur áherslu á að taka beri þessar
tölur með þeim fyrirvara að um
grófa áætlun sé að ræða, sem taki
hliðsjón af vexti síðustu ára hjá
greininni.
Hlutur ferðaþjónustunnar í gjald-
eyrisöflun þjóðarinnar var 23,5% ár-
ið 2012 og var greinin þá í öðru sæti
á eftir sjávarútvegi sem aflaði 26,5%
gjaldeyrisins, eða ríflega 268 millj-
arða króna. Rætist áætlunin um
vöxt ferðaþjónustunnar verður
greinin því farin að skapa um þrefalt
meiri gjaldeyri fyrir þjóðarbúið árið
2020 en sjávarútvegurinn gerði í
fyrra. Ber í því efni að horfa til þess
að verð á sjávarafurðum sveiflast til
og frá og útgefinn kvóti sömuleiðis.
Um 800.000 ferðamenn í ár
SAF áætla að hingað komi um
800.000 ferðamenn í ár. Miðað við
15% aukningu næstu ár munu hing-
að koma 925.000 ferðamenn 2014,
1,064 milljónir 2015, 1,22 milljónir
2016, 1,4 milljónir 2017, 1,62 millj-
ónir 2018, 1,86 milljónir 2019 og 2,14
milljónir árið 2020. Spurður hvort
slíkur vöxtur sé raunhæfur ár eftir
ár segir Gunnar Valur, sem telur að
mikil tækifæri bíði Íslendinga:
„Ef ferðaþjónustan nýtur stuðn-
ings og ráðist er í að bæta innviði og
gera þá mannsæmandi höfum við
fulla möguleika á því að viðhalda
góðum vexti, vegna þess að Evrópu-
búar og íbúar annarra heimshluta
vilja ferðast til Íslands. Möguleikar
fólks á ferðalögum eru alltaf að
aukast, þ.m.t. fólks í fjölmennum
ríkjum á vaxandi mörkuðum, eins og
til dæmis í Asíu og á Indlandi. Það
gefur Íslandi mikla möguleika hvað
varðar vöxt og fjölda ferðamanna.“
Tekjur í 759 milljarða 2020
Samtök ferðaþjónustunnar áætla að gjaldeyristekjur af greininni margfaldist
Þær voru 238 milljarðar 2012 en verða ef spár rætast 759 milljarðar 2020
Gunnar Valur
Sveinsson
Tekjur Íslendinga af alþjóðlegri
flugumferðarstjórn aukast ár
frá ári. Þær voru um 3,6 millj-
arðar 2012, 3,35 milljarðar
2011, 2,9 milljarðar 2010, 2,1
milljarður 2009, 1,7 milljarðar
2008 og 1,4 milljarðar 2007.
Þetta má lesa út úr árs-
skýrslum Isavia 2010-2012 og
eldri ársskýrslum Flugstoða.
Um er að ræða yfirflug sem
Isavia þjónar á grundvelli samn-
ings við Alþjóðaflugmálastofn-
unina. Greitt er fyrir þjónustuna
með enskum pundum. Tekjurnar
skapast innan ísl. flugupplýs-
ingasvæðisins og hluta þess
grænlenska og færeyska. Spáð
er að tekjurnar verði tæpir fjórir
milljarðar í ár.
Stöðug
tekjuaukning
FLUGUMFERÐARSTJÓRN
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
F
I0
4
3
2
5
9
568 8000 | borgarleikhus.is
Dúfu
rnar –
18 vin
a
leikh
úshó
pur
4 sýn
ingar
að eig
in val
i
Áskri
ftar-
kortið
okkar
Sigmundur Davíð segist aðspurður hafa boðið Obama til Íslands.
„Ég bauð honum og fjölskyldunni til Íslands. Það vildi svo vel til að
hann var nýbúinn að ræða heilmikið um Ísland við upplýsingafulltrúa sinn
sem var á Íslandi fyrir skömmu. Upplýsingafulltrúi þessi hafði talað
þannig um landið að Obama var orðinn spenntur fyrir að koma. Vonandi
getur orðið af því,“ segir Sigmundur Davíð.
Hann segir leiðtogana hafa sýnt íslenskum jarðhita áhuga.
„Það var heilmikið rætt um umhverfismál og endurnýjanlega orkugjafa
og mikill áhugi á framlagi Íslands í þeim efnum, ekki síst í tengslum við
þróunarmál, þ.e.a.s. mikilvægi þess að byggja upp endurnýjanlega orku-
gjafa í Afríku,“ sagði Sigmundur Davíð.
Bauð Obama til Íslands
BANDARÍKJAFORSETI SPENNTUR
Lægsta tilboð í lagningu ljósleiðaranets í Hval-
fjarðarsveit er 66 prósent af kostnaðaráætlun
en verktakinn Þjótandi ehf. bauð lægst í verk-
ið, eða um 198 milljónir króna. „Núna erum við
að fara yfir tilboðin og sjá hvort þau standist
ekki og að tilboðsgjafinn hafi ekki gleymt ein-
hverju,“ segir Laufey Jóhannsdóttir, sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar.
Laufey segir að aflafé sveitarfélagsins sé í kringum 500 milljónir á ári.
„Þetta er auðvitað stór biti en við erum vel sett sveitarfélag og skuldum
mjög lítið. Það er líka brýnt verkefni að nútímavæða íbúa í Hvalfjarðar-
sveit.“ Aðeins tilboð Þjótanda var undir 300 milljónum króna, fimm tilboð
voru á bilinu frá 202 milljónum upp í 235 milljónir. Hæsta tilboð í verkið
var hins vegar upp á tæplega 340 milljónir.
Ljósleiðari lagður í Hvalfjarðarsveit
Persónuvernd hefur synjað prófessor við Háskóla Ís-
lands um samkeyrslu persónuupplýsinga sem urðu til
við rannsókn á hreyfingu og holdafari barna árið 2003
við upplýsingar Námsmatsstofnunar.
Keyra átti upplýsingarnar úr rannsókninni saman
við námsárangur nemenda í samræmdum prófum. Þar
sem rannsakandi sendi ekki tilkynningu til Persónuverndar á sínum tíma
um vinnslu viðkvæmra persónuupplýsinga vegna rannsóknarinnar, sem
honum bar skylda til, og jafnframt liggur ekki fyrir samþykki þátttakenda
fyrir áframhaldandi varðveislu gagnanna eða reynt hafi verið að tryggja
lögmæti vinnslunnar með öðrum hætti, var umsókn um samkeyrslu synjað.
Eins ber að eyða persónulegum gögnum ef ekki fæst samþykki fyrir 1.
nóvember frá þátttakendum rannsóknarinnar frá 2003.
Prófessor synjað um samkeyrslu gagna
Ölvaður maður hótaði í gær að kveikja í Kútter Sigur-
fara sem er á safnasvæðinu á Akranesi. Hann hafði hellt
bensíni á dekk skipsins, sullað á sjálfan sig og hótaði að
kveikja í sér og Sigurfara. Lögreglumenn reyndu að
ræða við manninn og fá hann til að yfirgefa bátinn með
góðu. Erfitt var hins vegar að semja við manninn, en lög-
reglumenn náðu á endanum að yfirbuga hann.
Kútter Sigurfari er 86 smálesta eikarseglskip, smíðað
árið 1885 í Englandi og notað við handfæraveiðar við Ís-
landsstrendur til 1919, og síðan af Færeyingum til 1970.
Hótaði að kveikja í Sigurfara á Akranesi