Morgunblaðið - 05.09.2013, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2013
AFP
Sex ára kínverskur piltur, Guo Bin, sem var blindaður í
hrottalegri árás, er hér á sjúkrahúsi í Shanxi-héraði í
norðurhluta Kína. Talið er að frænka piltsins hafi framið
ódæðið og stungið augun úr honum, að sögn lögregl-
unnar. Hermt er að blóð úr drengnum hafi fundist á fatn-
aði frænkunnar. Konan fyrirfór sér sex dögum eftir að
ráðist var á drenginn í síðasta mánuði. Foreldrar hans
fundu hann alblóðugan úti á götu eftir árásina. Augun
fundust á staðnum en að sögn kínverskra fjölmiðla hafði
hornhimna þeirra verið fjarlægð og þykir það benda til
þess að líffæraþjófar hafi staðið fyrir árásinni.
Augnlæknir í Hong Kong hefur boðist til að veita pilt-
inum ókeypis læknisaðstoð og setja í hann rafeindaaugu
sem geti gert honum kleift að greina ljós og skugga og
hugsanlega orðið til þess að hann fái 20-40% sjónarinnar
aftur eftir um það bil tíu ár.
Talið er að frænka hafi blindað piltinn
Veitingahúsið Perlan • Sími 562 0200 • Fax 562 0207 • perlan@perlan.is • www.perlan.is
Nýr 4ra rétt
a seðill og A
la Carte í P
erlunni
Stefán Elí Stefánsson
yfirmatreiðslumaður
ÞORSKUR
ÁTVOVEGU
með tómat-
maís salsa,
laukspírum
, svörtum o
lívum og gr
aslaukssósu
.
Cod on tw
o ways wi
th tomato
- corn sal
sa, black
olives and
chive sau
ce
HUMAR
SÚPA
rjómalö
guð, me
ð Madei
ra og gr
illuðum
humarh
ölum
Cream of
lobster wi
th grilled
lobster ta
ils
FISKUR
DAGSIN
S
ferskast
i fiskuri
nn hver
ju sinni
útfærðu
r af mat
reiðslum
önnum
Perlunn
ar
Catch of t
he day a l
a chef
eða/or
LAMBAH
RYGGUR
með sm
ælki, rau
ðrófum,
gulrófum
og rósm
arinsósu
.
Fillet of la
mb with b
aby potat
oes, red b
eet, beet a
nd rosma
rin-sauce
HVÍTSÚ
KKULAÐ
I MÚS
með sky
rfroðu, f
erskjum
, garðbló
ðbergi, o
g bláber
jasorbet
.
White cho
colate mo
usse with
peaches,
thyme an
d blueber
ry sorbet
Gjafabréf
Perlunnar
Góð gjöf við öll
tækifæri
Jóhannes Gunnarsson
yfirframleiðslumaður
Stærsti vind-
myllugarður
Danmerkur var
opnaður með við-
höfn í gær milli
Djursland á Jót-
landi og eyj-
unnar Anholt í
Kattegat. Orkan
frá vindmyllu-
garðinum er þó
dýr því verðið á rafmagninu frá
honum er fjórum sinnum hærra en
lægsta verðið og tvisvar sinnum
hærra en verðið á rafmagni frá öðr-
um vindmyllugarði sem var áður sá
stærsti í Danmörku, að sögn Berl-
ingske.
Danska þingið samþykkti árið
2008 að reisa 111 risavindmyllur
við Anholt með samanlagða fram-
leiðslugetu upp á 400 megavött til
að framleiða rafmagn fyrir um
400.000 dönsk heimili. Fram-
kvæmdirnar voru liður í því að
draga úr útblæstri Dana á gróður-
húsalofttegundum.
Framkvæmdirnar voru svo viða-
miklar og tímaáætlunin svo knöpp
að aðeins eitt fyrirtæki bauð í verk-
ið þegar það var boðið út. Vind-
myllugarðurinn kostaði rúma 10
milljarða danskra króna, jafnvirði
215 milljarða íslenskra.
Fréttavefur danska ríkisútvarps-
ins hefur eftir Martin Lidegaard,
loftslags- og orkumálaráðherra
Danmerkur, að stjórnin ætli að
beita sér fyrir því að næstu vind-
myllugarðar verði ódýrari. „Við
höfum lært mikið af útboðinu,“
sagði hann og bætti við að m.a. yrði
kappkostað að tryggja samkeppni í
næsta útboði.
DANMÖRK
Stærsti vindmyllu-
garðurinn dýr
Fangelsisyfir-
völd í Bandaríkj-
unum hafa stað-
fest að Ariel
Castro, sem
rændi, pyntaði
og nauðgaði
þremur konum í
um áratug á
heimili sínu í
Cleveland, hafi
fyrirfarið sér, en hann fannst látinn
í klefa sínum í fangelsi í Ohio í
fyrrinótt.
Talsmaður fangelsismálastofn-
unar Ohio sagði að ekki léki vafi á
því að fanginn hefði fyrirfarið sér
með því að hengja sig. Fangelsis-
yfirvöld segja að Castro hafi verið
einn í klefa en fangavörður litið inn
til hans á hálftíma fresti.
Talsmaður fangelsismálastofn-
unarinnar vildi ekki veita nánari
upplýsingar um dauða Castros en
sagði að réttarmeinafræðingur
hefði skoðað líkið og von væri á
frekari upplýsingum innan
skamms.
Castro var dæmdur í lífstíðar-
fangelsi fyrir brot sín en hann
samdi við saksóknara um að játa
sig sekan gegn því að ekki yrði far-
ið fram á dauðarefsingu. Castro var
fundinn sekur um að hafa rænt
Michelle Knigth, Amöndu Berry og
Ginu DeJesus þegar þær voru 20,
16 og 14 ára og haldið þeim föngn-
um. Við réttarhöldinn sagðist
Knight ánægð með samkomulag
Castros og saksóknarans og sagði
að dauði hefði verið kvalara hennar
léttbærari. „Ég eyddi ellefu árum í
helvíti og nú er þitt helvíti rétt að
byrja,“ sagði hún við Castro.
BANDARÍKIN
Castro fyrirfór sér í
fangaklefanum