Morgunblaðið - 05.09.2013, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2013
Sumarþing eftir kosningar ogseptemberþing í örfáa daga
eru skrítin fyrirbæri. Það fyrra
ætti eingöngu að vera til að skipa
innri málum þingsins og halda eina
umræðu um fyrstu tölu nýs for-
sætisráðherra. Það seinna er verra
en ekkert.
Fólk ætti ekki aðgera sér vænt-
ingar vegna slíks
þinghalds, en gerir
það stundum.
Styrmir Gunnars-
son hugsar upphátt
um stöðu ríkis-
stjórnarinnar:
Fólk í öllum flokkum veltir fyrirsér stöðu nýrrar ríkisstjórnar,
kannski fyrst og fremst vegna þess
að hún gefur lítið sem ekkert upp
um áform sín í efnahagsmálum al-
mennt, ríkisfjármálum sérstaklega,
að ekki sé talað um skuldavanda
heimilanna.
Uppi eru tvær kenningar umþessa þögn.
Önnur er sú, að hún lýsi aðgerð-arleysi. Það sé lítið sem ekkert
að gerast í ráðuneytum.
Hin er sú að í þögninni felistmikil stjórnvizka.
Ríkisstjórnin ætli að láta verkintala.
Bæði stefnuræða forsætisráð-herra og fjárlagafrumvarp
fjármálaráðherra eigi eftir að
koma rækilega á óvart og botninn
detti úr stjórnarandstöðunni.
Það skyldi þó aldrei vera!“
Styrmir
Gunnarsson
Eru væntingar
varasamar?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 4.9., kl. 18.00
Reykjavík 10 léttskýjað
Bolungarvík 10 léttskýjað
Akureyri 10 léttskýjað
Nuuk 8 skýjað
Þórshöfn 9 skúrir
Ósló 18 léttskýjað
Kaupmannahöfn 17 skýjað
Stokkhólmur 20 heiðskírt
Helsinki 17 léttskýjað
Lúxemborg 27 heiðskírt
Brussel 27 heiðskírt
Dublin 21 léttskýjað
Glasgow 20 léttskýjað
London 25 heiðskírt
París 30 heiðskírt
Amsterdam 23 heiðskírt
Hamborg 18 skýjað
Berlín 20 léttskýjað
Vín 23 skýjað
Moskva 10 skúrir
Algarve 27 heiðskírt
Madríd 32 heiðskírt
Barcelona 26 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 30 léttskýjað
Aþena 25 heiðskírt
Winnipeg 12 skýjað
Montreal 17 alskýjað
New York 24 heiðskírt
Chicago 23 heiðskírt
Orlando 31 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
5. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:23 20:30
ÍSAFJÖRÐUR 6:22 20:41
SIGLUFJÖRÐUR 6:05 20:24
DJÚPIVOGUR 5:51 20:01
Árni Grétar Finnsson
Gunnar Dofri Ólafsson
„Þriggja vikna frestur til þess að
áfrýja málinu er ekki útrunninn og
fyrsta vikan er ekki einu sinni liðin.
Og ef ákveðið verður að áfrýja munu
réttarfarsleg áhrif héraðsdóms
frestast á meðan. Menn verða að
sýna biðlund,“ segir Guðrún Ragn-
arsdóttir, framkvæmdastjóri Lána-
sjóðs íslenskra námsmanna.
Á mbl.is hefur komið fram að
kröfur sjóðsins vegna námslána eru
óbreyttar: Stúdent þarf að ljúka 22
einingum á önn til þess að eiga rétt á
námsláni. Í Héraðsdómi Reykjavík-
ur á föstudaginn sl. féll dómur þess
efnis að LÍN er óheimilt að krefjast
þess að námsmaður ljúki fleiri en 18
einingum á önn.
„Námsmaður reyndi að sækja
um námslán í dag og fékk þau svör
að lágmarksnámsframvindukrafa
væri enn 22 einingar á önn, sem er
þvert á niðurstöðu héraðsdóms síðan
á föstudaginn,“ sagði Jórunn Pála
Jónasdóttir, hagsmuna- og lána-
sjóðsfulltrúi Stúdentaráðs Háskóla
Íslands, í samtali við mbl.is. „Það er
alveg klárt að á meðan LÍN og ríkið
eru ekki búin að áfrýja dómnum
þurfa þau að hlíta niðurstöðu hér-
aðsdóms.“ Hún bætti við að það
hljóti að vera alvarlegt mál þegar
ríkisstofnun hlítir ekki niðurstöðu
dómstóls. Mikil óánægja er meðal
stúdenta við Háskóla Íslands vegna
afstöðu lánasjóðsins og hefur stúd-
entaráð kvartað til mennta-
málaráðuneytisins vegna málsins.
Guðrún Ragnarsdóttir segir að
ekkert sé því til fyrirstöðu að stúd-
entar sæki um námslán jafnvel þótt
þeir sjái ekki fram á að klára 22
ECTS-einingar. „Ef námsmenn
gætu ekki sótt um lán væri allt önn-
ur staða uppi,“ segir Guðrún.
Málinu verður líklega áfrýjað
Guðrún segir að meiri líkur en
minni séu á því að LÍN muni áfrýja
dómi héraðsdóms. „Við erum að taka
þessa umræðu heildrænt og fara yfir
alla málavexti. Mér finnst þetta mál
ekki eingöngu snerta LÍN heldur
alla stjórnsýsluna,“ segir Guðrún.
Hún telur að deilan hafi ekki nei-
kvæð áhrif á háskólann.
„Við sáum fréttir nýlega af met-
aðsókn í HÍ svo að þetta hefur ekki
haft neikvæð áhrif á það, en örugg-
lega eru einhverjir námsmenn sem
þetta snertir. Það er eðlilegt að hver
og einn hugsi út frá sínum þörfum,
en stundum þurfa menn aðeins að
standa upp og horfa yfir skóginn en
ekki bara horfa yfir laufblöðin sem
blasa við þeim,“ segir Guðrún að lok-
um.
Stúdentar sýni LÍN biðlund
Stúdentaráð Háskóla Íslands segir LÍN hundsa niðurstöðu héraðsdóms
Morgunblaðið/Ómar
Háskóli Stúdentar eru ósáttir.
Hjá Parka færðu gullfallegar innihurðir.
Mikið úrval, sjón er sögu ríkari!
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
Dalvegi 10-14 • Kópavogi
Margar gerðir
af innihurðum