Morgunblaðið - 05.09.2013, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 05.09.2013, Blaðsíða 43
4 sýningar á 13.900 kr. HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS Englar alheimsins (Stóra sviðið) Fös 6/9 kl. 19:30 23.sýn Sun 8/9 kl. 19:30 25.sýn Mið 30/10 kl. 19:30 Aukas. Lau 7/9 kl. 19:30 24.sýn Mið 16/10 kl. 19:30 Aukas. Leikrit ársins 2013 - fullkomið leikhús! Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið) Sun 8/9 kl. 14:00 Aukas. Sun 15/9 kl. 13:00 Aukas. Sun 15/9 kl. 16:00 Lokas. Aðeins þessar þrjár sýningar! Maður að mínu skapi (Stóra sviðið) Lau 14/9 kl. 19:30 Frums. Lau 21/9 kl. 19:30 4.sýn Lau 5/10 kl. 19:30 7.sýn Fim 19/9 kl. 19:30 2.sýn Fös 27/9 kl. 19:30 5.sýn Fös 20/9 kl. 19:30 3.sýn Lau 28/9 kl. 19:30 6.sýn Nýtt íslenskt leikrit eftir Braga Ólafsson! Harmsaga (Kassinn) Fös 20/9 kl. 19:30 Frums. Mið 25/9 kl. 19:30 Aukas. Lau 28/9 kl. 19:30 5.sýn Lau 21/9 kl. 19:30 2.sýn Fim 26/9 kl. 19:30 3.sýn Lau 5/10 kl. 19:30 6.sýn Ofsafengin ástarsaga sótt beint í íslenskan samtíma! Skrímslið litla systir mín (Kúlan) Lau 14/9 kl. 12:00 Frums. Lau 21/9 kl. 14:00 4.sýn Lau 28/9 kl. 14:00 7.sýn Lau 14/9 kl. 14:00 2.sýn Sun 22/9 kl. 12:00 5.sýn Sun 29/9 kl. 12:00 8.sýn Lau 21/9 kl. 12:00 3.sýn Lau 28/9 kl. 12:00 6.sýn Barnasýning ársins 2012 Karíus og Baktus (Kúlan) Lau 5/10 kl. 13:30 Lau 12/10 kl. 19:30 Lau 5/10 kl. 15:00 Lau 12/10 kl. 19:30 Karíus og Baktus mæta aftur í október! Hættuför í Huliðsdal (Kúlan) Sun 8/9 kl. 16:00 Frums. Lau 14/9 kl. 16:00 3.sýn Lau 14/9 kl. 13:00 2.sýn Sun 15/9 kl. 13:00 4.sýn Hugrakkir krakkar athugið - aðeins þessar sýningar! Rautt – aftur á svið í kvöld! Mary Poppins (Stóra sviðið) Fös 6/9 kl. 19:00 1.k Fös 20/9 kl. 19:00 9.k Fös 4/10 kl. 19:00 17.k Lau 7/9 kl. 19:00 2.k Lau 21/9 kl. 19:00 10.k Lau 5/10 kl. 19:00 18.k Sun 8/9 kl. 15:00 3.k Sun 22/9 kl. 13:00 11.k Fim 10/10 kl. 19:00 19.k Fim 12/9 kl. 19:00 4.k Fim 26/9 kl. 19:00 13.k Mið 16/10 kl. 19:00 20.k Fös 13/9 kl. 19:00 5.k Fös 27/9 kl. 19:00 14.k Mið 23/10 kl. 19:00 21.k Lau 14/9 kl. 19:00 6.k Lau 28/9 kl. 19:00 15.k Fim 24/10 kl. 19:00 22.k Sun 15/9 kl. 15:00 7.k Sun 29/9 kl. 13:00 aukas Fös 25/10 kl. 19:00 23.k Fim 19/9 kl. 19:00 8.k Fim 3/10 kl. 19:00 16.k Súperkallifragilistikexpíallídósum! Leiksýning á nýjum skala. Rautt (Litla sviðið) Fim 5/9 kl. 20:00 1.k Sun 15/9 kl. 20:00 4.k Sun 22/9 kl. 20:00 7.k Sun 8/9 kl. 20:00 2.k Fim 19/9 kl. 20:00 aukas Fim 26/9 kl. 20:00 8.k Fim 12/9 kl. 20:00 3.k Fös 20/9 kl. 20:00 5.k Fös 27/9 kl. 20:00 9.k Lau 14/9 kl. 20:00 aukas Lau 21/9 kl. 20:00 6.k Lau 28/9 kl. 20:00 10.k Margverðlaunað meistaraverk sem hreyfir við, spyr og afhjúpar. Jeppi á Fjalli (Nýja sviðið) Fös 4/10 kl. 20:00 frums Mið 16/10 kl. 20:00 8.k Fös 25/10 kl. 20:00 15.k Lau 5/10 kl. 20:00 2.k Fim 17/10 kl. 20:00 9.k Lau 26/10 kl. 20:00 16.k Sun 6/10 kl. 20:00 3.k Fös 18/10 kl. 20:00 10.k Sun 27/10 kl. 20:00 17.k Fim 10/10 kl. 20:00 4.k Lau 19/10 kl. 20:00 11.k Fös 1/11 kl. 20:00 18.k Fös 11/10 kl. 20:00 5.k Sun 20/10 kl. 20:00 12.k Lau 2/11 kl. 20:00 19.k Lau 12/10 kl. 20:00 6.k Mið 23/10 kl. 20:00 13.k Sun 3/11 kl. 20:00 20.k Sun 13/10 kl. 20:00 7.k Fim 24/10 kl. 20:00 14.k Fös 8/11 kl. 20:00 21.k Benni Erlings, Bragi Valdimar og Megas seiða epískan tón - sjónleik MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2013 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Rússneski hljómsveitarstjórinn Dmítríj Kítajenko stjórnar Sinfón- íuhljómsveit Íslands í Eldborg í Hörpu í kvöld, á upphafstónleikum hennar á nýju starfsári. Á efnis- skránni eru tvö stórvirki eftir rúss- nesk tónskáld: Myndir á sýn- ingu eftir Mú- sorgskíj og hljómsveitarsvíta Rimskíj-Korsa- kovs, Schehera- zade. Kítajenko þyk- ir með merkari hljómsveitar- stjórum samtím- ans og stýrir reglulega heimskunnum hljóm- sveitum á borð við Berlínarfílharm- óníuna, Sinfóníuhljómsveit Vín- arborgar og Gewandhaus-hljóm- sveitina í Leipzig. Hann hefur áður stýrt SÍ, árið 2001 þegar hljóm- sveitin hafði aðsetur í Háskólabíói. Af gamla skólanum „Hann er einn af þessum rúss- nesku hljómsveitarstjórum af gamla skólanum,“ segir Arna Kristín Einarsdóttir, framkvæmda- stjóri SÍ, um Kítajenko sem fædd- ist árið 1940 í Leníngrad í Sovét- ríkjunum. „Hann er náttúrlega yngri en Rozhdestvenskíj sem er önnur goðsögn, svona tíu árum yngri, en þeir koma úr þessum jarðvegi sem þetta rússneska veldi var og voru í þeirri sérkennilegu stöðu sem listamenn að lokast inni í landinu,“ bætir Arna við. Kítajenko var skipaður aðalstjórnandi Fíl- harmóníuhljómsveitarinnar í Moskvu árið 1976 og kom henni í fremstu röð en árið 1990, eftir fall Sovétríkjanna, fluttist hann til Vesturlanda og gegndi aðalstjórn- andastöðum við Útvarpshljómsveit- ina í Frankfurt og Fílharmóníu- hljómsveitina í Bergen. Arna segir Kítajenko afar tæknilegan hljóm- sveitarstjóra sem hafi hljómsveit- ina fullkomlega á valdi sínu. „Hann þarf ekkert að segja, bara sýna. Þetta verður eins og galdur í hönd- unum á honum.“ – Nú hlýtur hljómsveitin að læra eitthvað nýtt með hverjum hljóm- sveitarstjóra hvað varðar túlkun á þessum verkum? „Já, það er náttúrlega engin spurning. Hljómsveitarstjórinn þarf að ná því besta út úr hljóð- færaleikurunum. Hljóðfæraleikar- arnir eru hans hljóðfæri. Þegar maður hlustar á verk eins og þarna er verið að flytja, Myndir á sýningu eða Scheherazade, „standard“ stykki, getur verið ótrúlega mikill munur á flutningi eftir stjórn- endum þannig að þeir móta þau vissulega með sínum hætti. Þess vegna er lifandi flutningur svona spennandi, þessi lifandi mótun sem á sér stað,“ segir Arna. „Tónlistin leiðir mann inn í ákveðna sögu, eins og í Scheherazade sem er 1001 nótt. Þú ferð inn í þennan tónheim, situr inni í Hörpu en ert svo kom- inn í einhverja aðra vídd. Það eru tónarnir sem kalla það fram og það er galdurinn í þessu.“ Spennandi tímar – Þú ert nýtekin við sem fram- kvæmdastjóri hljómsveitarinnar. Hvernig leggst starfið í þig? „Mjög vel. Ég þekki þetta orðið ansi vel af því ég hef bæði verið hljóðfæraleikari og tónleikastjóri hjá hljómsveitinni. Og núna er maður tekinn við rekstrinum þann- ig að ég þekki vel til og veit alveg á hvaða hlutum mig langar að taka strax.“ – Þú tekur við starfinu á góðum tíma, það er mikill uppgangur hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands. „Já, þetta eru ótrúlega spenn- andi tímar og það magnaðasta við þetta allt saman er að fá þennan mikla stuðning áheyrenda, þeim hefur fjölgað um 100% frá því við vorum í Háskólabíói. Þegar ég var í meistaranámi í menningarstjórnun á Bifröst skoðaði ég reynslu ann- arra hljómsveita af því að flytja í ný tónlistarhús, skoðaði nokkrar hljómsveitir en aldrei nokkurn tíma sá ég tölur á borð við þessar. Þann- ig að þetta er magnaður árangur og við erum ótrúlega þakklát fyrir þessi viðbrögð. Við erum með mjög flott og markvisst markaðsstarf sem hefur skilað sér en þetta er fyrst og fremst af því að fólki finnst gaman að koma á tónleika og nú er þetta allt önnur upplifun, í Hörpu. Við þökkum það líka spennandi efnisskrá sem við bjóðum upp á allt starfsárið og síðast en ekki síst okkar frábæru hljómsveit.“ Tónleikarnir í kvöld hefjast kl. 19.30. Frekari upplýsingar má finna á vef SÍ, sinfonia.is. „Eins og galdur í höndunum á honum“  Dmítríj Kítajenko stjórnar SÍ á upphafstónleikum Ljósmynd/Gert Mothes Mikilsvirtur Rússneski hljómsveitarstjórinn Dmítríj Kítajenko þykir með þeim fremstu í heiminum í dag. Arna Kristín Einarsdóttir Málstofa um Jón lærða Guðmundsson (1574-1658), einn sérstæðasta Íslend- ing siðskiptaaldar, verður haldin í dag kl. 16 í bókasal Þjóðmenningarhússins í tilefni af útgáfu bókarinnar Í spor Jóns lærða. Þar munu nokkrir af höf- undum bókarinnar flytja erindi um viðfangsefnið og verður einnig boðið upp á tónlistaratriði. Ritstjóri bók- arinnar er Hjörleifur Guttormsson. Hið íslenska bókmenntafélag gefur bókina út og býður upp á hressingu að málstofu lokinni. Ritstjóri Hjörleifur Guttormsson. Málstofa um Jón lærða

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.