Morgunblaðið - 05.09.2013, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 05.09.2013, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2013 Listakonan Sossa verður með sýn- ingu á tveimur stöðum á Ljósanótt í sínum heimabæ. Um samsýningu er að ræða með færeysku listakonunni Birgit Kirke, en þær sýndu saman í Þórshöfn í vor. Þriðja samsýning þeirra er svo fyrirhuguð í Grinda- vík næsta vor en samstarfsverkefni þeirra er styrkt af Menningarsjóði Suðurnesja. Með listakonunum á ferð verða tónlistarmennirnir Gunnar Þórðar- son og Stanley Samuelsen, sem er vel þekktur í Færeyjum. Að sögn Sossu kynntust þeir á vinnustofu hennar í Kaupmannahöfn á menn- ingarnótt þar í borg fyrir tveimur árum og hafa verið í sambandi síð- an. Sýningarnar og tónlistarflutn- ingurinn verða bæði í bíósal Duus- húsa og á vinnustofu Sossu við Mánagötu 1 í Reykjanesbæ. Fyrst koma Gunnar og Samuelsen fram í Duushúsi við opnun Ljósanætur í kvöld, aftur á laugardag og verða einnig á vinnustofu Sossu. Samstarf Listakonurnar Sossa og Birgit Kirke verða með samsýningu á Ljósanótt um helgina. Gunni Þórðar og Stanley Samuelsen flytja tónlist. Sossa og Kirke saman á Ljósanótt  Gunnar Þórðar með Samuelsen Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Sundlaugagestir í Reykjavík hafa ekki farið varhluta af framkvæmdum við laugar borgarinnar undanfarin ár. Þær eru enn í gangi en þó á loka- snúningi. Það var vorið 2011 sem Reykjavík- urborg ákvað að setja um milljarð í endurbætur á sundlaugum borgar- innar og samkvæmt áætlun á verk- inu að ljúka á næsta ári. Kristján Ástráðsson verkefnis- stjóri framkvæmdanna segir að það hilli undir lok þeirra. Mest hafi verið gert við Laugardalslaugina og þar sé allt á lokastigi, 95% vinnunnar sé lokið. „Það er nokkuð eftir við Vestur- bæjarlaugina. Þar er verið að vinna að stórum heitum potti sem verður væntanlega tilbúinn fyrir jól. Svo verða framkvæmdir á búnings- klefum hafnar í næsta mánuði, það verður byrjað á kvennaklefanum,“ segir Kristján. Þá er verið að endurnýja eimbað í Breiðholtslauginni og býst Kristján við að þeirri vinnu ljúki í október. „Þetta er allt saman á áætlun, bæði verkáætlun og fjárhagsáætlun. Það má samt segja að við höfum heldur verið á eftir með búningsklefa í Vesturbæjarlauginni.“ Mistök hjá verktaka Gúmmítartan var sett á gönguleið- ir Laugardalslaugarinnar. Kristján segir það hafa virkað vel fyrir utan smákafla í kringum steinpottana og vaðlaugina þar sem urðu mistök hjá verktakanum við að setja það á. Það hafi losnað upp og nú sé verið að bíða eftir þurrum dögum til að setja nýtt á. Skipta þurfti alveg um gúmmítart- anið á vaðlauginni en það virtist ekki þola núninginn og heita vatnið. „Framkvæmdirnar hafa annars gengið vel og undantekning ef óánægjuraddir heyrast. Menn eru mjög ánægðir með að verið sé að taka laugarnar í gegn,“ segir Krist- ján. Framkvæmdum lýkur brátt  Sundlaugar borgarinnar lagfærðar  Mest eftir við Vesturbæjarlaugina Morgunblaðið/Golli Vesturbæjarlaug Þar er nú unnið við að gera stóran heitan pott sem verður væntanlega tilbúinn fyrir jól. HÁDEGISMATUR Í FYRIRTÆKI OG STOFNANIR VINSÆLT - HEILSUBAKKAR Heilsubakkar eru réttir sem samanstanda af léttu fæði Hólshraun 3 · 220 Hafnarjörður · Símar 555-1810, 565-1810 · Fax: 565-2367 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Fjölbreyttur matseðill og valréttir alla daga Við sendum hádegismat í bökkum og kantínum til fyrirtækja og stofnana alla daga ársins. Boðið er upp á sjö valrétti á virkum dögum: Tvo aðalrétti, þrjá aukarétti, heilsurétt og ávaxtabakka. Aðalréttirnir eru breytilegir frá degi til dags. Matseðill og nánari upplýsingar á veislulist.is Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupsverslunum (Smáralind og Spönginni) og Fjarðarkaupum. Er á Facebook Kvef eða flensa? Ég er asma- og ofnæmissjúklingur og viðkvæm fyrir kvefi, hálsbólgu, eyrnabólgum og ennis- og kinnholusýkingum. Mér finnst tinktúran Sólhattur og hvönn svínvirka fyrir mig og það skemmir ekki hversu einfalt er að nota hana. – Inga Harðardóttir www.annarosa.is Tinktúran Sólhattur og hvönn er talin styrkja ónæmiskerfið. Hún hefur m.a. reynst afar vel gegn kvefi, hálsbólgu, flensu, hósta og ennis- og kinnholusýkingum ásamt því að örva blóðflæði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.