Morgunblaðið - 05.09.2013, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 05.09.2013, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2013 Áætlunarflug Icelandair árið 2014 til Edmonton í Kanada hefur vakið tals- vert mikla athygli fjölmiðla þar í landi. Borgarstjórinn í Edmonton, Stephen Mandel, fagnaði þessari nýju flugleið á blaðamannafundi ný- verið. „Hingað til hefur okkur skort al- þjóðlega tengingu flugleiðis. Tals- verðrar óánægju hefur gætt með það meðal borgarbúa. Þeir hafa þurft að sækja þá þjónustu til annarra borga. Þetta flug er eitt púsl í því að gera flugvöllinn fullkomnari,“ sagði Man- del á fréttvef Alberta. Þá segja forsvarsmenn flugvallar- ins í Edmonton að með þessu flugi hafi flugvöllurinn sterkari tengingu við Evrópu. Einungis er boðið upp á eitt annað beint flug til Evrópu, það er til London. Samkeppnisstaðan góð „Við teljum samkeppnisstöðu okk- ar í tengiflugi milli Evrópu og Ed- monton mjög góða,“ segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, spurður um ástæður fyr- ir valinu á höfuðborg Albertafylkis. Kaupmátturinn er góður og efna- hagurinn sterkur á svæðinu, að sögn Guðjóns. Það sé stór þáttur sem litið er til þegar nýir áfangastaðir eru skoðaðir. Flugið tekur rúmar sex klukku- stundir. Áætlað er að ferðir hefjist 26. mars 2014 og standi fram yfir áramótin 2014/15. Flogið verður fjórum sinnum í viku. Vancouver í Kanada og Genf í Sviss eru einnig nýir áfangastaðir sem Icelandair mun fljúga til. Flug- áætlun Icelandair fyrir árið 2014 er sögð verða sú stærsta í sögu félags- ins, um 18% umfangsmeiri en 2013. thorunn@mbl.is Flug til Kanada vekur athygli  Borgarstjóri Edmonton ánægður Morgunblaðið/Ernir Flug Ánægja ríkir með Edmonton, nýjan áfangastað Icelandair. Uppgjör fyrir fyrstu sex mánuði ársins hjá Hafnarfjarðarbæ var tekið fyrir á fundi bæjarstjórnar í gær. Afkoma A-hluta bæjarsjóðs og samstæðureiknings A- og B-hluta er jákvæð. Rekstrarniðurstaða A hluta fyrir fjármagnsliði er jákvæð um rúmar 407 milljónir króna og B- hlutinn jákvæður um 722 milljónir króna. Í tilkynningu segir að fjár- magnsliðir séu mun lægri en áætl- un gerði ráð fyrir, vegna hag- stæðrar gengisþróunar á tímabilinu. Rekstrartekjur og önn- ur rekstrargjöld eru í samræmi við áætlun ársins. Heildareignir A- hluta námu í júnílok 37 milljörðum króna, skuldir og skuldbindingar um 33 milljörðum og eigið fé nam nærri 4 milljörðum. Heildareignir A- og B-hluta voru í lok júní sl. 47,6 milljarðar króna. Á tímabilinu námu fjárfestingar um 120,2 millj- ónum kr. og greiddar afborganir á tímabilinu 848 milljónir króna. Afkoma A-hluta bæjarsjóðs Hafnarfjarðar á fyrri hluta ársins jákvæð um 407 milljónir Morgunblaðið/Styrmir Kári Hafnarfjörður Jákvæð afkoma bæjarsjóðs á fyrri helmingi ársins í takt við áætlanir. Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Upphaflegur kostnaður vegna fram- kvæmda Reykjavíkurborgar við Hofsvallagötu nam alls 17,7 millj- ónum króna. Þar af nam heildar- kostnaður vegna uppsetningar á flöggum og fuglahúsum 3,5 millj- ónum króna og kostnaður vegna gróðurkassa kostar borgarbúa rúma 2,7 milljónir króna. Bjarni Brynjólfs- son, upplýsingastjóri Reykjavík- urborgar, segir tölurnar ekki sýna rétta mynd af kostnaðarliðum. „Hvert fuglahús kostar t.d. 15.000 krónur, málunin á þau kostar 1.200 krónur og númerin á þau 1.000 krón- ur þannig að þau kosta hvert og eitt alls 17.200 krónur. Þetta er heildar- kostnaður upp á rúmar 155 þúsund krónur fyrir fuglahúsin,“ segir Bjarni. Járnrörin kostnaðarsöm Það að kostnaður við þessa ein- stöku liði, þ.e. fuglahús og gróður- kassa, er svona hár segir Bjarni stafa af öðrum þáttum. „Inn í t.d. liðnum um flögg og fuglahús eru hulsur fyrir járnrör en þau kosta 17.500 krónur hvert og þarna voru sett niður 57 járnrör svo kostnaður við hulsurnar er rúm milljón krón- ur.“ Kostnaður við járnrörin sjálf var um 733 þúsund krónur og heild- arkostnaður þeirra því um 1,7 millj- ónir króna. „Þau eru umferðarör- yggismálið í framkvæmdinni. Þau voru sett þarna til að hindra umferð og síðan eru sett á þau flögg sem kosta 144 þúsund til þess að varna því að fólk keyri á þau og eins end- urskinsmálun.“ Tilboð við verkið hljóðaði upp á rúmar 16 milljónir að sögn Bjarna en ofan á þau bætist síðan eftirlits- kostnaður borgarinnar. Málningarkostnaður við fram- kvæmdina er töluverður og undir liðnum ýmsar merkingar í ítarlegri kostnaðaráætlun kemur fram að hjólamerki og strætómerki kostuðu hátt í 7,5 milljónir króna. Þá var kostnaður við málaða fleti 553 þús- und krónur. Starfsmenn hverfa- stöðvar Reykjavíkurborgar þrifu á mánudaginn hluta þeirrar málningar af Hofsvallagötu fyrir mistök. Mótmæli Vesturbæinga Framkvæmdir borgarinnar við Hofsvallagötu hafa verið harðlega gagnrýndar af íbúum hverfisins, sem funduðu um málið með borginni í Hagaskóla í síðustu viku. Töluverður hiti var í íbúum Vesturbæjar vegna málsins og tóku margir til máls á fundinum. Kristinn Fannar Pálsson, íbúi við Hagamel, lagði fram undir- skriftir 661 íbúa sem safnað var í Melabúðinni til að mótmæla fram- kvæmdunum. Megintónninn hjá íbú- um var sá að tilraunin væri illa heppnuð. Einstaka voru þó ánægðir með framkvæmdina. Breytingar á Hofsvallagötu dýrar  Heildarkostnaður borgarinnar 17,7 milljónir  Hjólreiða- og strætisvagnamerkingar kostuðu um 7,5 milljónir  Fuglahús, fánar og tengdur búnaður kostuðu 3,5 milljónir  Ætlað að hindra umferð Morgunblaðið/Rósa Braga Óánægja Íbúar við Hofsvallagötu voru ekki á eitt sáttir við framkvæmdir borgarinnar á götunni og var litadýrðin, fánaborgir og fuglahús gagnrýnd. Kostnaður við breytingar á Hofsvallagötu Heimild: Reykjavíkurborg Hönnuðir 680 Þkr. Arkitektar 1.515 Þkr. Eftirlit skv. samningi 1.300 Þkr. Framkvæmd Vinnustaðamerkingar 1.080 Þkr. Sérfræðivinna verktaka 200 Þkr. Strætó biðstöð 2.018 Þkr. Gróðurkassar 2.737 Þkr. Flögg og fuglahús 3.513 Þkr. Bekkir 180 Þkr. Umferðarmerki 114 Þkr. Yfirborðsmerkingar Gatnalínur 1.550 Þkr. Málaðir fletir 662 Þkr. Hjólamerki 2.222 Þkr. Alls 17.771 Þkr. Skemmtilegt námskeið með Guðríði Helgadóttur verður haldið á Heilsustofnun NLFÍ laugadaginn 7. september kl. 13:00 - 16:00. Gurrý kennir okkur ýmsar ræktunaraðferðir og girnilegar uppskriftir með íslenskt grænmeti og jurtir í forgrunni, kryddað með fróðleik og gleði. Geir Gunnar Markússon, næringar- fræðingur HNLFÍ, verður með innslag um næringu. Verð er 6.000 kr. Frír aðgangur fyrir þátttakendur í baðhús HNLFÍ frá kl. 10:00 -17:30. Athugið að það er takmarkaður fjöldi. Skráning á nlfi@nlfi.is og í síma 552 8191 frá kl. 10:00 -12:00. Grænt og gómsætt – matreiðslu- og fræðslunámskeið NLFR SMELLT EÐA SKRÚFAÐ, VIÐ EIGUM BÆÐI Þú getur verið afslappaður og öruggur við grillið með AGA gas. Öruggur um að þú ert að nota gæðavöru og að þú fáir góða þjónustu þegar þú þarft áfyllingu á gashylkið, hvort sem þú nýtir þér heimsendingarþjónustu á höfuðborgarsvæðinu eða þegar þú heimsækir söluaðila AGA. Farðu á www.gas.is og finndu nálægan sölustað eða sæktu öryggisleiðbeiningar og fáðu upplýsingar um AGA gas. www.GAS.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.