Morgunblaðið - 05.09.2013, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 05.09.2013, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2013 Bandalag kvenna í Reykjavík af- henti nýlega styrki úr Starfsmennt- unarsjóði ungra kvenna í sextánda sinn frá stofnun sjóðsins árið 1995. Alls var úthlutað 20 styrkjum fyrir skólaárið 2013-2014 úr starfs- menntunarsjóðnum að heildar- upphæð rúmlega 2,2 milljónir króna. Tilgangur sjóðsins er að hvetja og styðja við bakið á konum, sem ekki eiga kost á námslánum, til að afla sér aukinnar menntunar. Í gegnum tíðina hafa styrkþegar einkum verið ungar einstæðar mæður, sem einhverra hluta vegna hafa þurft að hætta námi á sínum tíma. Frá upphafi hefur verið úthlutað 139 styrkjum úr sjóðnum að fjár- hæð samtals 15,8 milljónir króna. Styrkveiting Ingibjörg Rafnar Péturs- dóttir, formaður BKR, afhenti styrkina. Bandalag kvenna styrkir 20 konur Málþing til heið- urs Gerði G. Ósk- arsdóttur sjö- tugri verður haldið á föstudag undir yfirskrift- inni Skóli á nýrri öld. Málþingið er haldið í samstarfi skóla- og frí- stundasviðs Reykjavíkur- borgar og Rannsóknarstofu um þró- un skólastarfs og hefst það kl. 15.30 í Skriðu, fyrirlestrarsal Mennta- vísindasviðs HÍ við Háteigsveg. Gerður hefur verið leiðandi á sviði skólamála hér á landi í marga áratugi og komið við á öllum skóla- stigum frá leikskóla og upp í há- skóla. Málþing til heiðurs Gerði Óskarsdóttur Gerður G. Óskarsdóttir Hjóladagur í Breiðholti verður haldinn á laugardaginn, 7. sept- ember. Íbúasamtökin Betra Breið- holt standa fyrir viðburðinum. Dagskráin hefst við Breiðholts- laug kl. 10 og verður ókeypis í sund milli kl. 10 og 12. Kl. 12 verður far- ið í hjólaferð frá Breiðholtslaug áleiðis í Seljahverfi, umhverfis það og endað í Mjódd. Kl. 13 hefst þar dagskrá þar sem ýmislegt verður á boðstólum. Hjóladagur í Breið- holti á laugardag STUTT Jóhann Óli Hilmarsson Stokkseyri Hinn 1. september átti Jóhann Hallur Jónsson tvítugsstarfsafmæli hjá Org- elsmiðju Björgvins Tómassonar. Af því tilefni var slegið í köku og kveikt á afmæliskertum í morgunkaffinu og átti fréttaritari Morgunblaðsins þar leið um. Björgvin hóf störf sem orgelsmiður á Íslandi árið 1986, eftir átta ára dvöl við nám og störf í Þýskalandi, en hann er eini menntaði orgelsmiður landsins. Árið 1988 smíðaði hann sitt fyrsta orgel en við þrjú fyrstu hljóð- færin vann með honum vinur hans og samstarfsmaður frá Þýskalandi, Pet- er Fuchs. Björgvin söng með kór Hallgríms- kirkju og fyrir hvítasunnu árið 1993 var verið að smíða prédikunarstól fyrir kirkjuna. Þar var að verki Jó- hann Hallur húsgagnasmiður. Björg- vin dáðist svo að handbragði Jóhanns að hann bauð honum starf við orgel- smíðar, enda var hann þá einn að störfum á verkstæði sínu. Jóhann tók heldur fálega í þá málaleitan, enda var hávært orgel kirkjunnar að gera út af við hann við prédikunarstólssmíðina. Sagði upp hjá Söginni Hann kom þó í heimsókn á verk- stæðið, sem þá var til húsa á Blika- stöðum í Mosfellssveit, og kynnti sér starfsemina. Nokkrum dögum síðar mætti hann aftur, var þá búinn að segja upp störfum hjá Söginni og var tilbúinn að hefja orgelsmíðar hinn 1. september. Síðan hafa þeir félagar starfað saman en eitt af fyrstu verk- um Jóhanns var að smíða hið glæsi- lega orgel Digraneskirkju í Kópavogi. Í því verki liggja eftir hann um 2.000 klst. í vinnu. Þegar Björgvin flutti orgelverk- stæðið frá Blikastöðum austur í Hólmarastarhúsið, eða gamla frysti- húsið á Stokkseyri, árið 2005, fluttu þeir félagar báðir austur. Þar bættist þriðji maðurinn í hópinn, Guðmundur Gestur Þórisson smiður. Þeir hafa síðan starfað saman þrír og synir Björgvins stundum hlaupið undir bagga þegar mikið liggur við. Eftir hrun dró heldur úr eftirspurn eftir kirkjuorgelum og hafa þeir fé- lagar, Jóhann og Guðmundur, því orðið að taka að sér smíðaverkefni ut- an verkstæðisins. Þeir eru listasmiðir eins og fréttaritari hefur áþreifanlega komist að raun um, þar sem þeir end- urbyggðu nærri 100 ára gamalt hús hans á Stokkseyri. Þeir vilja þó sinna sínu starfi sem mest og hneykslast Jóhann á að orgelnefnd þjóðkirkj- unnar skuli ekki hafa sýnt starfsemi þessarar einu orgelsmiðju landsins viðhlítandi virðingu og það sé sárt að sjá á eftir verkefnum til útlanda sem þeir geta sinnt hér. Síðasta verk þeirra félaga var orgel í Vídalíns- kirkju í Garðabæ, en engin stórverk- efni eru framundan. Smíðar fallegustu orgelin  Jóhann Hallur hefur stundað orgelsmíðar í 20 ár  Sjá á eftir verkefnum frá þjóðkirkjunni til útlanda Morgunblaðið/Jóhann Óli Orgelsmiðir Haldið upp á 20 ára starfsafmæli Jóhanns Halls, t.h. Með honum er Guðmundur Gestur Þórisson. í yfir 50 fallegum litum Þönglabakka 4, sími 571-2288, www.gauja.is VINSÆLA ARWETTA CLASSIC GARNIÐ Skráning hafin á hekl- og prjónanámskeið SJÓN ER SÖGU RÍKARI!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.