Morgunblaðið - 05.09.2013, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 05.09.2013, Blaðsíða 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2013 Mig langar í nokkrum orðum að minnast Skúla Skúlasonar, fyrrverandi fjármálastjóra og aðstoðarfram- kvæmdastjóra Stafa lífeyris- sjóðs. Ég minnist Skúla fyrst og fremst sem góðs vinar. Ég kynntist honum á því umbro- taári 2008 en mér finnst ég hafa þekkt hann mun lengur. Mann- kostir hans komu þá berlega í ljós. Hann reyndist mér einstak- lega vel og ég á honum mikið að þakka. Missir fjölskyldu Skúla, samstarfsfólks Stafa lífeyris- sjóðs og annarra vina er mikill og votta ég þeim mína dýpstu samúð. Skúli var einstaklega velvilj- aður og maður mikilla og aug- ljósra mannkosta. Hann var ábyrgur og heiðarlegur. Aldrei brá skugga á vináttu okkar. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Fyrir skemmstu ræddum við Skúli um að taka golf og hádeg- isverð. Við verðum líklega að taka golfið og hádegisverðinn síðar við kjöraðstæður, skýjað en logn. Í lífinu er allra veðra von. Mér var brugðið þegar mér bár- ust til eyrna fréttir af andláti þínu. Vinátta okkar var traust og fölskvalaus. Takk fyrir auð- sýnda vináttu og traust. Þú reyndist mér vel, hafðir trú á mér og varst vinur í raun. Bless- uð sé minning þín. Karl J. Steingrímsson. Vinur okkar og félagi Skúli Skúla lést þriðjudaginn 27. ágúst eftir margra ára baráttu við illvígan sjúkdóm. Skúli var mikill baráttumaður í leik og starfi, æðruleysi, kjarkur og kraftur einkenndu Skúla alla tíð. Við félagar í Golfklúbbi Húsa- víkur nutum góðs af vináttu hans og trúmennsku, því alltaf var Skúli tilbúinn að rétta okkur hjálparhönd ef hann mögulega gat. Skúli lék í sveitakeppni GSÍ fyrir Golfklúbb Húsavíkur, þótt hann væri fluttur suður yfir heiðar fyrir mörgum árum. Ótal minningar lifa með okkur um Skúla, t.d. þegar hann og vinur hans Kristján Hjálmars, ungir drengir, tjölduðu á Katlavelli og æfðu og léku golf, því þeir vildu ekki eyða tíma í að fara milli heimilis og golfvallar. Einbeitni Skúla til að ná markmiðum sín- um kom því fljótt í ljós og for- gjöfin hans í golfinu talaði sínu máli um það. Við þökkum fyrir þau ár sem við fengum að njóta samvista við traustan og ljúfan vin. Fyrir hönd félaga í Golfklúbbi Húsavíkur eru öllum aðstand- endum og vinum Skúla sendar innilegustu samúðarkveðjur. Pálmi Pálmason, formaður Golfklúbbs Húsavíkur. Skúli Skúlason ✝ Skúli Skúlasonfæddist á Húsa- vík 7. október 1964. Hann lést á Land- spítalanum við Hringbraut 27. ágúst 2013. Útför Skúla fór fram frá Grafar- vogskirkju 4. sept- ember 2013. Hægt er að lýsa Skúla á afar ein- faldan hátt. Hann var drengur góður. Hann var heið- arlegur og hrein- skiptinn og alltaf vissi maður hvar maður hafði hann. Sumum líkaði heið- arleikinn og hrein- skiptnin verr en öðrum í fyrstu og gátu móðgast og fyrst við. Oft var hægt að hafa gaman af þeim samskiptum því ekki bakkaði Skúli ef hann hafði rétt fyrir sér. Allan þann tíma sem ég þekkti Skúla var hann með krabbamein en hann greindist fyrst fyrir tíu og hálfu ári. Hann sagði mér frá því fljótlega eftir að við kynntumst en ég held að sú upplýsing hafi verið óvenju- leg og einungis komið í kjölfar þess að hann kom við á leikskól- anum hjá Markúsi syni sínum þegar við vorum á leið út á flug- völl og lét hann hafa vettlinga. Við vorum hlið við hlið í vélinni og hann byrjaði að segja mér frá meininu. Svo horfði hann á mig í smá stund og sagði: „Það eina sem ég hef áhyggjur af er að ég fari það snemma að sonur minn muni ekki eftir mér.“ Svo var málið ekki rætt meira og í þann tíma sem ég þekkti hann þá barmaði hann sér nánast aldrei. Undanfarin tvö ár voru erfið fyrir Skúla og dró úr atgervi og orku nokkuð hratt. Hann vann eins mikið og eins lengi og hon- um var mögulega unnt og var alltaf hægt að leita til hans til að fá ráðleggingar og leiðbein- ingar. Með honum er farinn frá- bær starfsfélagi og góður vinur. Skúli var sómamaður, mikil fyrirmynd og drengur góður og votta ég fjölskyldu hans mína dýpstu samúð. Óskar Örn Ágústsson. Þó að allir vissu að það kæmi að þeirri stund að vinur minn og einlægur félagi Skúli Skúlason félli frá eftir áratuga baráttu við krabbamein, þá brást ég illa við, þvílíkur baráttumaður og því- líkur keppnismaður, kvartaði aldrei við einn eða neinn sama hversu kvalinn hann var í lokin. Skúla kynntist ég fyrst í stjórn Golfklúbbsins Kjalar árið 1999, hann sem gjaldkeri og síðar for- maður GKj , hann varð fljótt mjög virkur í starfi klúbbsins. Við urðum strax miklir vinir sem bara styrktist með árunum. Og þvílíkur kraftur sem fylgdi þessum góða dreng alla tíð var með ólíkindum. Golfklúbburinn Kjölur á honum mikið að þakka fyrir hans störf í gegnum árin, við værum ekki með þennan frábæra 18 holu golfvöll sem við Kjalarfélagar eigum, án aðkomu Skúla Skúlasonar. En elsku vinur, mikið á ég eftir að sakna okkar tíma sam- an. Þú sem persóna, elsku kall- inn minn, varst mér ómetanleg- ur sem vinur og félagi alla tíð. Þú kvartaðir aldrei, sama hvað þú gekkst í gegnum í þinni bar- áttu í meira en áratug. Eitt at- vik verð ég að nefna, eftir eina af mörgum skurðaðgerðum sem þú fórst í, þá vorum við búnir að bóka ferð til Manchester á leik með United á laugardegi. Það átti að fara í golf á föstud., leik- inn á laugard., og golf á sun- nud., og flug heim á mánud. Þú fórst í aðgerðina á þriðjudegi, gleymi því aldrei, elsku vinur, þegar ég kom að heimsækja þig á fimmtud., tveimur dögum eftir aðgerð, ég var búinn að afskrifa ferðina eðlilega, nei nei, stóðst þú ekki í slopp inni á sjúkrastof- unni og varst að sveifla hönd- unum, í golfsveiflu. Ég kom og spurði, hvað ertu að gera dreng- ur nýkominn úr skurðaðgerð? Þú sagðir, ég er góður, við för- um á morgun, ég finn ekkert til í saumunum, ég get spilað golf, sjáðu þetta er í lagi og þú sveifl- aðir og sveiflaðir og bannaðir mér að afbóka ferðina. Lækn- irinn kom stuttu seinna og sagði að þú færir ekkert, og átti ekki orð yfir það sem þú varst að gera og skipaði þér í rúmið. Ég fór og afbókaði þessa ferð. Síðar fórum við flotta ferð með Mark- úsi þínum og Hilmari mínum til Manchester, og um árið þegar við fórum um landið og spiluðum flesta velli á Norður- og Austur- landi. Gistum á Seyðisfirði í góðu yfirlæti hjá Guðjóni bróður og Hrönn. Allar ferðirnar til Tyrklands, Spánar og Myrtle Beach, þar náðum við að spila 50 velli, með Steini og Hauk á nokkrum árum. Danmerkurferð með bræðrum þínum Bigga og Steinþóri. Já, minningarnar eru margar, kæri vinur. Skúli minn vá hvað ég á eftir að sakna þín rosalega, svona vin- áttu tínir maður ekki af trjánum, það er mér ljóst. Verð að nefna eitt og það er hvernig þú og Markús sonur þinn áttuð góðar stundir saman og stundirnar með litla ljósinu þínu Unni Kar- en dóttur Írisar, sem ég veit að gaf þér mikið. Ég vil líka nefna alla golf- hringina og spilakvöldin með okkur félögunum úr Kili, þeim Skúla Guðmunds, Dísu, Kjartani, Hrefnu, Jónsa og Rósu í gegnum árin. Elsku Skúli minn, takk fyrir ómetanlegu stundirnar sem við áttum saman þessi 15 ár, ég mun sakna þín mikið, elsku vin- ur. Ég sendi börnum þínum Markúsi, Írisi og Hildi og öllum ættingjum og vinum, mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Takk fyrir mig, kæri vinur. Þinn vinur, Hilmar Harðarson. Meira: mbl.is/minningar Elsku hjartans Skúli minn, mikill er söknuðurinn nú þegar þú ert farinn. Það var mikil gleði árið 2007 þegar við hittumst óvænt í Mos- fellsbænum eftir að ég fluttist aftur til Íslands. Bernskuvinir frá Húsavík sem voru óvænt bæði búsett í sama bæjarfélag- inu á ný. Skrítið hvernig lífið togar fólk í allar áttir. Það var eins og við manninn mælt, við tókum upp vinasamband sem enginn skuggi féll á og nærði okkur þar til yfir lauk. Betri vin var ekki hægt að hugsa sér, þér var alltaf svo umhugað um að passa upp á alla vini þína, hvað þá börnin þín sem voru þér lífið sjálft, stolt þitt og ánægja. Ég þakka hamingjunni að þú hafir fengið að kynnast afahlutverkinu áður en þú fórst. Takk, elsku Skúli minn, fyrir allar góðu stundirnar okkar, ferðirnar, matinn, hjólatúrana, heimsóknirnar, bíókvöldin og allt sófaspjallið sem við gátum gleymt okkur við. Við sjáumst svo síðar, elsku vinur minn, Sumir hverfa fljótt úr heimi hér skrítið stundum hvernig lífið er, eftir sitja margar minningar Þakklæti og trú. Þegar eitthvað virðist þjaka mig þarf ég bara að sitja og hugsa um þig, þá er eins og losni úr læðingi lausnir öllu við. Þó ég fái ekki að snerta þig veit ég samt að þú ert hér, og ég veit að þú munt elska mig geyma mig og gæta hjá þér. Og þó ég fengi ekki að þekkja þig þú virðist alltaf getað huggað mig, það er eins og þú sért hér hjá mér og leiðir mig um veg. Og þegar tími minn á jörðu hér, liðinn er þá er ég burtu fer, þá ég veit að þú munt visa veg og taka á móti mér. (Ingibjörg Gunnarsdóttir.) Elsku Hildur Ósk, Íris Anna, og Markús Máni, fjölskylda og vinir, missir ykkar er mikill en minningin um heilsteyptan og góðan dreng lifir. Þín vinkona, Guðrún Margrét Þrastardóttir. Í dag kveðjum við yndislegan bekkjarbróður okkar, Skúla Skúlason, sem lést langt fyrir aldur fram eftir langa og hetju- lega baráttu við illvígan sjúk- dóm. Skúli var mikill keppnis- maður og ætlaði að sigrast á þessu eins og öðrum stórum verkefnum sem hann tók sér fyrir hendur en nú var verkefnið of stórt. Við minnumst bekkj- arbróður okkar af hlýhug. Hann var einstaklega ljúfur, hugul- samur og greiðvikinn. Einnig var Skúli afar jákvæður, lífsglað- ur og þægilegur í alla staði. Hann var góður námsmaður og sýndi fljótt mikla hæfileika þeg- ar kom að hugaríþróttum svo sem bridds og skák. Skúli var ekki gamall þegar hann áttaði sig á notagildi peninga, hann lagði fyrir og eignaðist ungur skellinöðru. Bekkjarbræður hans minnast þess með hlátur í huga þegar hann seldi þeim hring á Torginu á skellinöðrunni fínu, gegn vægu gjaldi. Honum var ungum treyst til ábyrgðarstarfa og fór snemma að vinna á skrif- stofu Fiskiðjusamlags Húsavíkur þegar við hin í bekknum urðum starfsmenn á gólfi. Golfíþróttin átti hug hans allan og hefur ver- ið hans ástríða frá fermingar- aldri. Áhuginn var svo mikill að hann átti það til að tjalda uppi á Katlavelli þegar hann var ung- lingur. Í lok júlí var bekkjarmót á Húsavík og treysti Skúli sér ekki til að koma en við sökn- uðum hans sárt. Við vottum börnum Skúla, barnabarni, foreldrum, systkin- um og öðrum aðstandendum og vinum, okkar innilegustu samúð og minnumst Skúla með mikilli hlýju. Minning hans lifir í hjört- um okkar. Fyrir hönd bekkjarsystkina á Húsavík, Dóra Ármannsdóttir, Soffía Helgadóttir og Sigurjón Sigurðsson. Haustkoman er fögur á Bif- röst í Borgarfirði. Laufblöð birk- isins byrjuð að fölna, grasið á flötunum farið að sölna og í kyrrð hauststillanna og litanna verður fegurð staðarins ólýsan- leg. Inn í þetta umhverfi komum við, hópur ungmenna á vorskeiði lífsins, árið 1983, til að hefja undirbúning að nýju tímabili í lífi okkar. Einn í hópnum var Skúli Skúlason. Kvikur, glaður, bros- mildur og umfram allt, hjálp- samur og góðgjarn strákur úr Þingeyjarsýslu. Skúli var ímynd hreystinnar, kappsfullur íþrótta- maður í hverju sem hann tók sér fyrir hendur, hvort heldur námi, leik eða starfi. Hann var sífellt boðinn og búinn til að hjálpa, ávallt jákvæður og lagði til lausnir. Áhugi Skúla var einlæg- ur í hverju því sem hann tók sér fyrir hendur. Í 40 manna hópi fer ekki hjá því að til verði kjarnar þar sem fólk velur sér félag við þá sem þeim líkar helst við. Ekki svo að skilja að hópurinn hafi verið sundurlaus eða miklar deilur hafi ríkt, heldur þvert á móti. En Skúli féll ekki inn í neinn sérstakan vinahóp. Hann var einfaldlega sá sem átti auðveld- ast með að vinna með öllum, deila gleði sinni með öðrum og hvetja alla til dáða með vinnu- semi sinni og dugnaði í fé- lagsstörfum, íþróttaiðkun eða námi. Markmið Samvinnuskólans á Bifröst var að kenna nemendum að vera virkir þátttakendur í hverju því sem við tækjum okk- ur fyrir hendur og vera óhrædd við forystu, væri okkur hún fal- in. Það var því mikil spenna og eftirvænting í loftinu þegar hvert og eitt okkar kvaddi skól- ann sinn, samfélagið og full vona og bjartsýni héldum við á vit nýrra áskorana í lífinu. Við viss- um hvert af öðru og glöddumst yfir velgengni félaganna, hvort heldur í einkalífi eða starfi. Fyr- ir áratug fréttum við að Skúli hefði greinst með krabbamein, nokkuð sem ekkert okkar gat ímyndað sér að ætti eftir að henda hann. En það fylgdi líka fréttinni að Skúli væri að berj- ast með þeim krafti sem við þekktum hann af en því miður dugði hann ekki til. Það hryggir okkur mjög að horfa á eftir kærum vini okkar, Skúla, falla frá á sumartíma lífs- ins, en fá ekki að njóta haustsins í lífinu. Fá ekki að sjá uppskeru lífshlaups síns með börnum og barnabörnum, fá ekki að njóta návistar við fjölskyldu sína og vini eða njóta kyrrðar eðlilegs ævikvölds. Um leið og við kveðjum okkar kæra vin þá sendum við að- standendum Skúla okkar dýpstu samúðarkveðjur. F.h. sambekkinga á Bifröst árin 1983-1985, Sigurgeir B. Kristgeirsson. MBA-hópurinn sem settist á skólabekk í Háskóla Íslands haustið 2004 taldi ríflega 40 manns. Hópurinn varð fljótt samrýndur og hefur félagsskap- ur og vinátta haldist í gegnum árin. Strax varð eftirtektarverður lágvaxinn, ljóshærður maður í fremstu röð sem laumaði hnyttnum athugasemdum inn í umræður um leið og hann geisl- aði af hlýju og áreynslulausum hæfileikum í mannlegum sam- skiptum. Þau sem voru svo heppin að lenda í vinnuhópum með honum áttu aðstoð hans og vinnuað- stöðu vísa. Af sinni einstöku ljúfmennsku miðlaði hann þekk- ingu og reynslu og var ávallt reiðubúinn að leggja fram tíma og vinnu, jafnvel að kenna al- gjörum byrjanda grunnatriðin í excel svo dæmin ættu möguleika á réttri útkomu. Skúli valdist til forystu í nem- endaráð okkar og var drifkraft- ur í félagslífinu. Hann var pott- urinn og pannan í golfferðum og jeppaferðum og var einnig höfð- ingi heim að sækja. Meira að segja þau sem ekki komust í Kínaferðina komu heim til Skúla til að sýna samstöðu þeirra sem heima sátu og töldu það kvöld varla síðra en tíu daga ferð hinna. Skúli glímdi við veikindi sín meðan á námi stóð en hafði helst engin orð þar um og kímnigáfa hans og æðruleysi var einstakt. Við höfum fylgst með ótrúlegri baráttu hans og dáðst að lífsgleði hans og krafti. Nú er hópurinn okkar sorg- mæddur en um leið þakklátur fyrir að hafa átt Skúla að félaga og vin. Hann var einstakur, höf- um við mörg skrifað hvert öðru nú á þessum síðustu dögum. Við biðjum Guð að blessa minningu Skúla og styrkja börn hans og aðra ástvini. Fyrir hönd MBA-hópsins, Margrét Bóasdóttir. Látinn er langt um aldur fram samstarfsmaður minn til margra ára Skúli Skúlason. Það mun hafa verið árið 1988 sem Skúli var kynntur fyrir mér vegna umsóknar um starf hjá Samvinnulífeyrissjóðnum. Starfsmaður sem var að hætta störfum hjá sjóðnum vegna flutnings út á land hafði bent Skúla á að tala við mig en þeir voru báðir ættaðir frá Húsavík. Eftir upplýsandi samræður réði ég Skúla á staðnum. Var hann þá kornungur maður eða ein- ungis 25 ára. Mér varð fljótlega ljóst að hér var um að ræða skarpgreindan og duglegan starfmann sem vílaði ekki fyrir sér að ganga í hvaða verk sem var. Eitt af fyrstu verkefnum hans var að hefja undirbúning að betrumbótum á tölvukerfi sem sjóðurinn hafði fest kaup á. Náði hann fljótt tökum á kerfinu þótt sjálfmenntaður forritari væri. Fyrir tölvubjálfa eins og mig var ekki slæmt að geta leit- að til Skúla í þessu sambandi. Smám saman voru honum falin aukin verkefni og leið ekki á löngu þar til hann var orðinn staðgengill minn. Okkar sam- starf gekk mjög vel þótt við værum ekki alltaf sammála. Skúli sagði alltaf meiningu sína sem ég tel stóran kost í fari hvers manns. Áfram var haldið að nútímavæða sjóðinn og tók Skúli virkan þátt í því. En Skúli gerði meira en að vinna fullan vinnudag hjá sjóðnum. Meðfram starfi hóf hann að auka við menntun sína. Fyrst tók hann stúdentspróf og nokkrum árum síðar lauk hann BA-prófi í fjár- málafræðum frá Endurmenntun HÍ. Seinna ávann hann sér rétt- indi sem löggiltur verðbréfa- miðlari. Allt þetta í fullu starfi og með skerta heilsu gera ekki nema afreksmenn. Fáum mönn- um hef ég kynnst sem tóku veikindum sínum með slíku jafn- aðargeði eins og Skúli gerði. Í tæp 11 ár barðist hann við vá- gestinn mikla og hélt ótrauður áfram að starfa þrátt fyrir ótelj- andi áföll. Mikið er þeim ein- staklingum gefið sem hafa slík- an kraft bæði andlega og líkamlega. Skúli var ekki einungis góður starfsmaður heldur einnig góður faðir. Hann var ákaflega stoltur af börnum sínum og fylgdist vel með lífi þeirra. Þá var hann í sérstaklega góðu sambandi við systkini sín og foreldra sem er því miður ekki alltaf raunin á. Nú að leiðarlokum eru Skúla þökkuð góð og ánægjuleg sam- skipti í gegnum tíðina. Megi góður guð styrkja aðstandendur hans í þeirra miklu sorg. Margeir Daníelsson. Við kveðjum Skúla Skúlason vin okkar og samstarsfmann til margra ára. Skúli var á margan hátt fyrirmynd okkar í starfi. Hann var einstakur að því leyti að það var sama hve mikið var að gera hjá honum, ávallt hélt hann borðinu sínu hreinu og svaraði öllum tölvupóstum. Hann var nákvæmur og fylginn sér og lét ekkert eftir sig liggja óklárað. Hann var ósérhlífinn og kláraði sín verkefni af kost- gæfni. Á 25 ára starfsferli fyrir Samvinnulífeyrissjóðinn og síðar Stafi lífeyrissjóð aflaði hann sér reynslu og yfirburða þekkingar á lífeyriskerfinu. Þekkingar sem hann hefur verið óþreytandi við að miðla til okkar sem tökum nú við keflinu, stolt af því að hafa unnið með þessum sómamanni. Skúli hefði fyrir löngu, sökum veikinda, getað látið af störfum. En það var ekki það sem hann vildi. Síðastliðin fjögur ár hafa bæði verið erfið og krefjandi fyrir okkur öll. Á þessum tímum hefur Skúli staðið eins og klett- ur með okkur og leyst þau verk- efni sem að okkur ber. Fyrir okkur hefur það verið aðdáun- arvert að upplifa þann styrk sem Skúli hefur sýnt undanfarin ár. Þrátt fyrir langvarandi veik- indi og harða baráttu við Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Myndir | Hafi mynd birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviá- gripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent má senda myndina á netfangið minn- ing@mbl.is og gera umsjón- arfólki minningargreina viðvart. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.