Morgunblaðið - 05.09.2013, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 05.09.2013, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2013 ✝ Guðrún Mar-grét Sölvadótt- ir fæddist í Efri- Miðvík í Aðalvík 21. júlí 1923. Hún lést á heimili sínu 29. ágúst 2013. Foreldrar henn- ar voru Sölvi Þor- bergsson, frá Efri- Miðvík í Aðalvík, f. 22.3. 1895, d. 11.11. 1960, og Sigurlína Guðrún Guðmundsdóttir frá Nesi í Grunnavík í Jökul- fjörðum, f. 9.12. 1901, d. 21.11. 1990. Guðrún Margrét var næstelst sex systkina, elstur var Guð- mundur Fertram, f. 24.7. 1922, d. 21.5. 2012, en hin eru: Karit- as, f. 23.5. 1926, Eiríkur Sig- urður Hafsteinn, f. 12.4. 1928, Ásta María, f. 14.7. 1930, og Hilmar Rafn, f. 26.12. 1936. Guðrún Margrét kynntist Friðriki Lunddal Baldvinssyni sölumanni, f. 28.4. 1924 í Reykjavík, d. 27.1. 1992, og gengu þau í hjónaband 22. maí 1948. Foreldrar Friðriks Lund- dals voru Baldvin Ragnar Sig- urjón Helgason, f. 17.10. 1905, d. 10.11. 1973, og Magnea Þur- íður Oddfriðsdóttir, f. 31.5. föðurhúsum í Efri-Miðvík fram á unglingsár við ýmis heimilis- og bústörf svo og í vinnu við barnavistun í sveitinni og inni á Ísafirði fram að 18 ára aldri er hún fór að vinna á sjúkrahúsinu á Ísafirði, þar sem hún smitaðist af berklum og í framhaldi af þeim veikindum var hún flutt suður á Vífilsstaðaspítala. Eftir að hafa náð sér af veikindum sínum fór hún vestur sér til heilsubótar en fór aftur suður til Reykjavíkur til eftirlits. Eftir komu sína suður hóf hún störf við sauma í Vinnufatagerð Ís- lands og stuttu eftir kynntist hún tilvonandi eiginmanni sín- um Friðriki Lunddal. Þau hófu búskap sinn í Vesturbænum og bjuggu á ýmsum stöðum þar til þau festu kaup á húsnæði í Álftamýri 38 í desember 1963, sem varð heimili þeirra í tæp 50 ár. Síðustu ár starfsævi sinnar vann Magga Sölva við fram- reiðslustörf, lengst af á Hress- ingarskálanum eða í 17 ár. Magga hætti störfum 68 ára og sinnti fjölskyldu sinni og afkom- endum sínum af miklu ástríki og umhyggjusemi. Gleði hennar og hlýja leiddi til þess að það var ávallt líflegt og margt um manninn á heimili hennar enda ávallt eitthvað í ofninum eða ný- bakað. Útför Guðrúnar Margrétar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, 5. september 2013, og hefst athöfnin kl. 13. 1898, d. 11.3. 1979. Börn Möggu og Friðriks eru þrjú, elst er: a) Marta Lunddal, f. 20.8. 1953, maki Gestur Halldórsson, f. 29.5. 1952. Börn þeirra eru: Friðrik Lunddal, f. 20.1. 1971 og Ingibjörg Aðalheiður, f. 1.7. 1986, barnabörn þeirra eru tvö. b) Ásta Lunddal, f. 16.9. 1954, maki Eðvarð Björgvinsson, f. 16.12. 1951. Börn þeirra eru: Rúnar Berg, f. 29.3. 1977, Margrét Ása, f. 26.11. 1983, Erla María, f. 23.9. 1985, Aron Rafn, f. 1.9. 1989 og Viktoría Diljá, f. 9.4. 1997, barnabörn þeirra eru sex. c) Gunnar Lunddal, f. 6.4. 1958, maki Helena Bragadóttir, f. 15.2. 1966. Börn þeirra eru: Sig- rún Ósk Lunddal, f. 31.7. 1978, Magnús Emil, f. 16.4. 1980, Sara Björk Lunddal, f. 17.5. 1985, Róbert Lunddal, f. 14.5. 1988, Vigdís Helga Lunddal, f. 27.6. 1992, Kolbrún Lára Lunddal, f. 24.2. 1997 og fósturdóttir, Brynja, f. 27.5. 1993, dóttir Hel- enu, barnabörn þeirra eru sex. Guðrún Margrét ólst upp í „Ég á bara góðar minningar um Mögg-ömmu … og endalaust af þeim,“ sagði Brynja dóttir mín á dánardægri Mögg-ömmu eins og við kölluðum hana alltaf. Þessi orð eru lýsandi fyrir þá persónu sem Magga tengdamamma mín hafði að geyma og hafa setið í mér síðan. Þau eru líka lýsandi fyrir þær tilfinningar og minn- ingar sem við geymum með okk- ur sem þekktum Möggu. Magga sýndi afkomendum sínum hlýju og áhuga, og líka þeim sem komu inn í fjölskyldu hennar eftir að ég kynntist Gunnari syni hennar um aldamótin. Mér leið alltaf eins og við dóttir mín hefðum verið í fjöl- skyldu hennar alla tíð. Í síðustu heimsókn minni til tengda- mömmu spurði hún mig af ósviknum áhuga úti í hvenær Brynja kæmi heim en hún var búin að vera au-pair í Englandi á annað ár. Áttum við mjög gott spjall um hvenær hún kæmi og fleira sem tengdist því og öðru sem ég hafði verið að sýsla. Ég fann fyrir svo miklu næmi og innsæi í samtali okkar og hafði það á orði við Gunnar á leiðinni heim. Magga var með mikla til- finningagreind, naut þess að vera innan um börnin sín og afkom- endur. Enda var hún aldrei ein- mana, undi sér vel, var sjálfri sér nóg en alltaf glöð og þakklát þeg- ar einhver datt í heimsókn. Sat þá gjarnan í sófanum, fréttirnar á, vopnuð tveimur fjarstýringum sem hún stjórnaði af mikilli fimi. Stundum í nútímanum er talað um ofurkonur. Þegar ég hugsa um lífshlaup Möggu fær hugtak- ið ofurkona nýja merkingu. Magga fæddist í torfbæ á Horn- ströndum en lauk ævinni í þjón- ustuíbúð á Norðurbrún. Hver sá sem hefur bæði orðin torfbær og þjónustuíbúð í sínu æviágripi hefur upplifað meiri samfélags- legar breytingar en flest okkar. Magga talaði oft um bernsku- stöðvarnar og hvernig var að alast upp á slíkum stað. Á bæ í Efri-Miðvík sem kúrði utan í hlíð við útbreiddan faðm Atlantshafs- ins. Gleði og þakklæti einkenndu þessar frásagnir. Ómetanlegt að heyra sögurnar hennar frá Horn- ströndum. Hún sagði líka frá því þegar hún fór sem unglingur til Ísafjarðar til að nema hjúkrun og var ásamt öðrum unglingi falið að sinna berklaveikri konu. Magga fékk berkla fyrir vikið, fór á Víf- ilsstaði og ekkert varð úr hjúkr- unarnámi. Þetta er eina skiptið sem heyrðist eftirsjá hjá Möggu þegar hún fór yfir lífshlaupið. Draumarnir rættust ekki þarna þó að aðrir draumar gerðu það síðar. Magga eignaðist þrjú börn með Friðriki manni sínum sem hafa sinnt henni af mikilli natni síðustu árin, ásamt barnabörn- um. Magga var ótrúlega flott, og fór í gegnum stórar breytingar í sínu lífi með mikilli reisn, nú síð- ast þegar hún ákvað að flytja í þjónustuíbúð fyrir tæpu ári og kveðja heimili sitt á 3. hæð í Álftamýri til tæplega fimmtíu ára. Fór í gegnum það með reisn, sátt og virðuleika. Magga verður áfram fyrir- mynd mín í mörgu. Hún hefur kvatt þetta líf, vonandi sjálf með þá vissu að hún hefur lifað fögru lífi. Helena Braga. Mín ástkæra tengdamóðir er látin, hún Guðrún Margrét Sölvadóttir. Já, Magga er fallin frá, og er þar mikið skarð komið í fjöl- skylduna. Hún fæddist í Efri- Miðvík í Aðalvík á Ströndum og ólst þar upp, en rétt fyrir tvítugt var hún send suður vegna veik- inda sinna. Eftir að hafa náð bata á veikindum sínum hóf hún vinnu fyrir sunnan og kynntist síðar manni, manni sem var gull af manni, þ.e. Friðrik Lunddal Baldvinssyni, sem seinna varð svo eiginmaður hennar, Friðrik lést í ársbyrjun 1992. Magga og Friðrik hófu búskap sinn í Vest- urbænum enn fluttust svo í Álftamýrina og bjuggu þar æ síðan. Það er varla hægt að lýsa kynnum sínum af svona stór- kostlegri konu, sem hún Magga var. Vinnusöm, ósérhlífin og hjálpsöm. Gleði hennar og hlýja leiddi til þess að það var ávallt líflegt og margt um manninn á heimili hennar enda ávallt eitthvað í ofn- inum eða nýbakað. Hún var stundum búin að útbúa heilu veislurnar án þess að nokkur tæki eftir því. Smákökur eins og listaverk og kökurnar skreyttar með handbragði að unun var að og hvað þá að borða. Umhyggja hennar fyrir börn- um sínum, barnabörnum og barnabarnabörnum var mikill. Og árangurinn var eftir því, því það er leitun að samrýmdari fjöl- skyldu, því samheldnari stórfjöl- skyldu er vart hægt að finna, allt þeim heiðurshjónum Möggu ömmu og Friðrik afa að þakka. Fjölskyldan er rík að eiga slíkt bakland. Og ekki hafa tengdabörnin svo farið varhluta af þessari um- hyggju og hlýju, en ég get ekki annað en þakkað henni fyrir móttökurnar þegar ég kynntist og síðar kvæntist henni Mörtu dóttur hennar og umhyggju hennar alla tíð fyrir börnum okk- ar og barnabörnum, já, það verð- ur tómlegt hjá okkar litlu fjöl- skyldu að hafa þig ekki í laugardagslærinu á heimili okk- ar. Ég vil með þessum fátæklegu orðum þakka Möggu tengda- móður minni fyrir okkar ánægjulegu samveru sem lokið er hér á jörð eftir tæp 45 ára kynni. Hún var stórkostleg per- sóna sem fyllti alla af gleði og hamingju, að lokum, Magga mín, blessuð sé minning þín og þakka þér innilega fyrir allt og ég kveð þig með þessari litlu kveðju, enn með miklum söknuði. Hvíl í friði. Þinn tengdasonur, Gestur Halldórsson. Elsku besta amma mín. Ég trúi því ekki ennþá að þú sért farin frá okkur. Það er erfitt að kveðja svona fallega og ynd- islega konu eins og þú varst. Það var alltaf gaman að sjá hvað þú tókst öllum vel, sama hver það var, þú varst alltaf svo glöð að sjá alla og allir sem hittu þig tóku ástfóstri við þig því þú lést öllum finnast þeir vera svo sérstakir. Ég á aldrei eftir að kynnast neinum sem er jafn góðhjartað- ur, frábær og skemmtilegur og þú varst. Ég mun alltaf segja strákunum mínum frá Möggu ömmu eins og að þú sér ennþá hjá okkur svo að minningin um þig hverfi aldrei. Ég mun sakna þín svo ólýsanlega mikið og þú munt alltaf eiga stóran part af hjartanu mínu. Mér líður svo vel að vita að núna ertu glöð og ánægð að vera komin til hans afa eftir allt of langan aðskilnað. Hvíldu í friði, fallegi engillinn minn. Ég elska þig og mun aldrei gleyma hvað þú varst alltaf góð við mig. Kær kveðja Erla María. Elsku Magga amma. Það er ennþá hálfóraunveru- legt að þú sért farin frá okkur. Við erum handviss um að þér líði miklu betur núna og þú sért kom- in á betri stað, til Friðriks afa, eftir alltof langan aðskilnað og að þið fylgist með okkur öllum að of- an. Við eigum ótal minningar um þig, elsku besta amma okkar, og munum við ávallt búa að þeim. Álftamýrin spilaði stóran sess í lífi okkar þar sem okkur leiddist ekki að fara í heimsókn þangað og leika okkur með allt dótið eða horfa á vídeóspólurnar sem þú hafðir keypt fyrir barnabörnin. Það var allt leyfilegt hjá Möggu ömmu. Við systurnar lékum okk- ur með skartgripina þína og slæðurnar, allar litríku og fallegu slæðurnar og bræðurnir fengu allt sem þeir óskuðu sér. Ósjald- an náðum við að sníkja nætur- gistingu sem var það besta sem til var, fá að kúra uppi í sófa með ömmu yfir sjónvarpinu, borða allskyns sætindi sem þú hafðir upp á að bjóða og toppurinn var að fá að fara í Kringluna sem var jú bara örfá skref frá. Við fórum aldrei svöng frá þér. Þú varst alltaf í þjónustuhlut- verkinu, bæði heima og í vinnunni. Sama hversu oft þú varst beðin um að setjast niður og slaka á sussaðirðu bara niður í slíkum beiðnum og barst fram hverjar kræsingarnar fram á fætur öðrum. Þú bakaðir heims- ins bestu pönnukökur og við reglulega heimsókn í Álftamýr- ina voru pönnukökurnar oftar en ekki á boðstólum og seinna þegar langömmubörnin komu í heiminn klikkaði það ekki að þú komst með pönnukökurnar með þér í sérhvert afmæli. Ekkert afmæli var fullbúið fyrr en Magga amma mætti með pönnukökurnar, al- gjörlega ómissandi hluti af veisl- unni. Þá má ekki gleyma hinum stórbrotna ananasfrómas sem var borinn fram í eftirrétt í hverju matarboði. Þú hafðir afar sterkar skoð- anir á ýmsu og fórst ekki leynt með þær margar. Eitt atvik stendur upp úr fyrir okkur þar sem þú varst ansi nálægt því að hringja í útvarpsstjóra til að kvarta yfir endalausum sýning- um á fótbolta á RÚV en á móti alltof lítið sýnt af handbolta. Barnabarnið þitt var jú komið í landslið Íslands í handbolta og því fráleitt að landsmenn fengju ekki að njóta þess að horfa á hann spila án þess að þurfa að greiða fyrir það áskriftargjöld að íþróttastöð á meðan fótboltinn fékk að rúlla á ríkissjónvarps- stöðinni óáreittur. Þetta þótti þér með ólíkindum. Þú varst með stærsta hjarta sem fyrirfinnst í þessari veröld og snertir við öllum sem þú hittir og tókst öllum opnum örmum, sama hvernig á stóð. Þetta risa- stóra hjarta og þessi yndislegi persónuleiki er vandfundinn og við erum endalaust montin af því að hafa fengið að eiga þig sem ömmu. Það muna allir eftir hressu og skemmtilegu Möggu ömmu okkar. Þú varst svo stolt af okkur öllum og lést okkur heyra það hvenær sem við þurft- um á því að halda. Við söknum þín, elsku besta Magga amma okkar. Við erum að eilífu þakklát fyrir það að hafa átt svona stóran hlut í lífi þínu, og þú okkar, og við munum ávallt halda minningu þinni lifandi hjá börnum okkar og barnabörnum Hvíl í friði, besta amma í heimi. Rúnar, Margrét, Aron og Viktoría. Þá kom kallið, Magga amma og Friðrik afi hafa sameinast á ný. Magga amma varð 90 ára í júlí, bauð ættingjum og vinum til veg- legrar veislu, þar kom fólk sem hún hafði ekki hitt lengi og þótti henni afar vænt um það, mánuði síðar var hún tilbúin að kveðja. Elsku amma, það sem við fjöl- skyldan höfðum gaman að því að koma til þín í Álftamýrina og hlusta á allar sögurnar frá því í gamla daga, sögur úr Aðalvík- inni, Hótel City, Sögu, og Hress- ingarskálanum, minningarnar hrannast upp, þegar ég var lítill naut ég þess að vera fyrsta barnabarnið og man ég að í þess- um heimsóknum fékk ég sko verkefni sem ég hafði gaman af, vaska upp, skrúbba símabekkinn eða eldhúsbekkinn en eftirminni- legast er þegar við fórum niður í geymslu að sækja dót, það er lyktin sem tók á móti mér, geymslulyktin ein vekur upp margar góðar minningar. Spenn- andi fannst mér að fá að fylla á vindlingabakkana sem boðið var upp á í öllum flottum veislum í Álftamýrinni. Skemmtilegast fannst mér þó að koma til þín niður á Hressó til að fá kökusneið. Alltaf tókst þú á móti mér með bros á vör. Talandi um kökur, við gátum verið viss með það, að amma var annaðhvort nýbúin að baka eða var með eina hnallþóru tilbúna inni í frysti fyrir gesti og gang- andi, þér fannst svo gaman að taka á móti gestum. Eins og Hildur sagði stundum „það er ekki hægt annað en að elska hana ömmu þína“ og það er sko satt, alltaf tókstu á móti okkur með opinn faðm og fallegum orð- um, þú lést manni líða eins og maður væri einstakur, ég er ég ekki frá því að hundunum okkar hafi liðið eins. Þú ert ein af þeim sem maður vill að hafi eilíft líf. Á tímabili hélt ég það … það stoppaði þig ekk- ert, fædd í torfbæ, fékkst berkla ung að árum, áttir við maga- vandamál að stríða og nokkrar sjúkrahúsvistir á seinni árum, alltaf varst þú mætt aftur heim í Álftamýrina (að baka). Ég segi nú bara he, he (eins og þú sagðir svo oft), þessir kettir sem hafa níu líf hafa ekki kynnst henni ömmu minni. Nú kveð ég með söknuði flott- ustu stelpuna í Aðalvík og er hún án efa fallegasti engillinn núna. Fallegu góðu minningarnar eru ótal margar, takk fyrir allt, elsku amma mín, þú verður alltaf í hjarta mínu og efast ég ekki um að þú takir á móti okkur seinna með pönnukökum og draum- tertu. Ég er þakklátur fyrir að hafa nýtt þessi síðustu ár vel með þér. Sól að hafi hnígur hamra gyllir tind, með söngvum svanur flýgur, sunnan móti þýðum vind. Króna hægt á blómum bærist, brosa þau svo unaðsrík. Kvölds þá yfir friður færist, fegurst er í Aðalvík. (Jón Pétursson.) Blessuð sé minning þín, elsku amma, langamma. Friðrik, Hildur, Þórkatla og Valgeir. Þá er komið að því að kveðja ömmu mína, hana Guðrúnu Mar- gréti Sölvadóttur. Þessi frábæra kona fagnaði 90 ára afmæli sínu í enda júlí og ætlaði sér að fagna 100 ára afmæli sínu tíu árum seinna. En mánuði eftir afmælið sitt var hún tilbúin að kveðja þennan heim og sameinast afa aftur, manni sínum, honum Frið- riki Lunddal. Magga amma er með þeim yndislegustu og bestu konum sem ég þekki, hún var alltaf til staðar fyrir mig og á ég henni svo mikið að þakka. Ég elskaði gömlu tímanna þegar við frænk- urnar vorum að gista hjá ömmu og fengum að vaða í fataskápinn og máta öll fötin, skartgripina og snyrti dótið og sváfum svo allar prinsessurnar saman í hjóna- rúminu. Eins þegar við barna- börnin vorum að leika okkur í stigaganginum í Álftamýrinni í leiknum gulur, rauður, grænn og blár, þegar ég hugsa til baka finnst mér skrítið að nágrann- arnir hafi ekki verið brjálaðir af látunum og hlátrinum í okkur. Hún var alltaf tilbúin með köku í ísskápnum eða búin að rúlla upp pönnukökum sem var borðað með bestu lyst. Þegar ég eða einhver annar kom í heimsókn þá tók hún á móti manni með svo mikilli ást og hlýju, hver og einn var svo sér- stakur þegar hann kom í heim- sókn „nei, sjáðu hver er komin, er það ekki Inga Heiða mín“ og mun ég alltaf geyma þau orð sem þú sagðir við mig í síðustu heim- sókn: „Inga Heiða mín, það er alltaf svo gaman að sjá þig, það geislar alltaf svo af þér.“ Henni fannst ekki leiðinlegt að segja sögur, þá sérstaklega frá sveitinni sinni í Aðalvík og elsk- aði ég að heyra sögurnar frá henni. Henni fannst stundum ekki nóg að segja sögurnar þann- ig að hún byrjaði að teikna upp sveitina sína, öll fjöllin og mold- arkofana. Þegar það var svo ekki lengur nóg að segja sögur eða teikna upp sveitina þá komu leik- arahæfileikar hennar í ljós. Það er erfitt að hugsa til þess að við fáum ekki að njóta nær- veru hennar lengur, þessari drottningar. Erfitt verður að fylla það tómarúm sem hún skil- ur eftir sig en það sem hún kenndi mun lifa með okkur. Mun minning hennar lifa í hjörtum okkar allra og hefur enn einn verndarengillinn tekið sér sæti við vaktina. Elsku amma mín, þú ert ein- stök kona, með stórt hjarta og mun ég sakna þín óendanlega mikið. Ég tek frá sæti og helli í kaffibolla fyrir þig þegar ég út- skrifast frá háskólanum þar sem þú átt part í þeirri gráðu. Fallið lauf undir fótum mér, minningin dauf er það sem óttast ég. Ég lýt höfði er ég hugsa hlýtt um þig og líkt og fallið lauf færist kuldinn um mig. Minning þín stendur eftir hér, er vindur hvín finnst ég heyr ’ í þér. Það er sárt að kveðja, elsku hjartans vinur minn. En með þungum harmi ég kveð þig um sinn. Ég hugsa um þig og ég sé minningar sem elska ég og sama hvert ég mun fara veit ég að þú vakir yfir mér. Fallið lauf er fokið burt, það þögnina rauf þó svo smátt og þurrt. En það mun skilja sporin eftir sig, þegar fellur lauf sé ég þig. (Sverrir Bergmann/Paolo Nutini.) Blessuð sé minning þín, elsku amma. Ingibjörg Aðalheiður Gestsdóttir (Inga Heiða). Guðrún Margrét Sölvadóttir ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN HELGA ÞÓRARINSDÓTTIR, Skúlagötu 40, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut laugardaginn 24. ágúst. Útförin fer fram frá Neskirkju mánudaginn 9. september kl. 13.00. Þórarinn Gíslason, Bryndís Benediktsdóttir, Guðný Gísladóttir, Sigurgeir Guðmundsson, Guðmundur Ingi Gíslason, Vigdís A. Gunnlaugsdóttir, Hrafnkell V. Gíslason, Björg Eysteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.