Morgunblaðið - 05.09.2013, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 05.09.2013, Blaðsíða 42
42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2013 Z-Brautir og gluggatjöld Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 - z.is Úrval - gæði - þjónusta Allt fyrir gluggana á einum stað Mælum, sérsmíðum og setjum upp Heimsþing alþjóðasamtaka rithöf- unda, útgefenda og blaðamanna, PEN, verður haldið í Reykjavík dag- ana 9. til 12. september. Samkvæmt upplýsingum frá skipuleggjendum er von á þrjú til fjögur hundruð gestum á þingið, rithöfundum, útgefendum og starfsfólki mannréttindaskrifstofa. Alþjóðasamtök PEN voru stofnuð ár- ið 1921 og styðja bókmenntir og tján- ingarfrelsi, en þau eru elstu starfandi manréttindasamtökin. Helsta verk- efni samtakanna er rekstur stofnunar sem safnar upplýsingum um fangels- aða og ofsótta höfunda og stendur fyrir herferðum og beinum aðgerðum til að fá fólk laust undan því. Yfirskrift þingsins í ár er: „Digital Frontiers – Linguistic Rights and Freedom of Speech“ og verður það mál rætt frá ýmsum hliðum. Alþjóð- lega bókmenntahátíðin í Reykjavík er samstarfsaðili PEN, en þingið og há- tíðin skarast svo sameiginlegar dag- skrár verða í Hörpu og Norræna hús- inu. Morgunblaðið/Einar Falur Kynning Að mati Johns Ralston Saul, forseta PEN, veitir alþjóðaþing sam- takanna hérlendis Íslendingum mikilvægt tækifæri til að kynna sig. Heimsþing PEN hefst á mánudaginn kemur Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Hlutverk Bókmenntahátíðar er að kynna íslenskum lesendum spenn- andi höfunda utan úr heimi og veita ferskum straumum hingað til lands,“ segir Stella Soffía Jóhannesdóttir framkvæmda- stjóri Bók- menntahátíðar í Reykjavík sem haldin verður í ellefta sinn dag- ana 11.-15. sept- ember nk. Spurð um helstu áherslur Bókmenntahátíð- ar í ár segir Stella Soffía að þar beri hæst tjáningar- og ritfrelsi vegna samstarfsins við PEN, alþjóða- samtök rithöfunda, sem halda heimsþing sitt í Reykjavík dagana 9.-12. september. „Pallborðs- umræður og aðrir dagskrárliðir þar sem staða tungumálsins er skoðuð, hvort öll tungumál séu jafnrétthá og fleira eru áberandi ásamt spurning- unni um frelsi okkar til tjáningar og skrifa. Fjölbreytileiki höfundanna er einnig eftirtektarverður, en þeir koma alls staðar að, m.a. frá Búlg- aríu, Grænlandi, Hvíta-Rússlandi, Kína, Indlandi og Palestínu. Þá má líka segja að áherslan í ár sé á þýdd- ar bækur, en óvenjumargar bækur eftir höfunda Bókmenntahátíðar hafa komið út á eða eru að koma út á íslensku,“ segir Stella Soffía og tek- ur fram að í raun megi segja að Bók- menntahátíð þjófstarti jólabóka- vertíðinni. „Bókabúðirnar eru nú að fyllast af nýjum og spennandi verkum höf- unda Bókmenntahátíðar og lesendur fá heilmargt fyrir sinn snúð,“ segir Stella Soffía og nefnir sem dæmi að væntanlegar í búðir séu bækurnar Ekkert nema strokleður eftir Mazen Maarouf, Náttúruleg skáldsaga eftir Georgi Gospodinov, Söngur Akkiles- ar eftir Madeline Miller, Horfin arf- leifð eftir Kiran Desai, Árið sem tvær sekúndur bættust við tímann eftir Rachel Joyce og Bréfberinn eftir Antonio Skármeta auk þess sem Þorsteinn frá Hamri sendir frá sér Skessukatla sem er 25. ljóðabók höfundar. Einnig er væntanlegar bækur eftir Kim Leine sem og Her- man Koch, birt verða nokkur ljóð eftir Ewu Lipska í Tímariti Máls og menningar, ásamt smásögu eftir Can Xue og nokkrir smátextar eftir Jenny Erpenbeck. Þá hafa áður komið út ljóðaþýðingar Kjell Esp- mark og Öreigarnir í Lodz eftir Steve Sem-Sandberg. Hátíðin ekki síður vinsæl meðal erlendra útgefenda Aðspurð segir Stella Soffía hátíð- ina afar vinsæla meðal erlendra höf- unda. „En hún er ekki síður vinsæl á meðal erlendra útgefenda. Frá árinu 2000 hefur erlendum útgefendum verið boðið að taka þátt, þeir taka þátt í málþingi útgefenda, hlýða á upplestra bæði íslenskra og er- lendra höfunda og styrkja tengslin við íslenska kollega og mynda ný. Það hefur gefist afar vel að kynna ís- lenska höfunda á heimavelli og þykir mjög eftirsóknarvert á meðal er- lendra útgefenda að vera boðið á há- tíðina.“ Spurð hvort dagskrá Bók- menntahátíðar í ár litist af því að heimsþing PEN fari fram í aðdrag- anda hátíðarinnar svarar Stella Soffía því játandi. „Öll opna dagskrá PEN-þingsins er í samstarfi við Bókmenntahátíð, en þar er boðið upp á pallborðsumræður sem snúast m.a. um stöðu tungumála og frelsi á netinu, en vangaveltur um frelsi ein- staklega á netinu hafa verið háværar eftir að ljóstrað var upp njósnir yf- irvalda og fyrirtækja um netnot- endur. Þá verður einnig haldið sam- eiginlegt upplestrarkvöld Bókmenntahátíðar og PEN-þings í Eldborg, miðvikudaginn 11. sept- ember þar sem fjöldi rithöfunda kemur fram auk tónlistarmanna,“ segir Stella Soffía og bendir á að auk þess verði skipulagðir PEN-höfunda á kaffihúsum víða um bæinn dagana fyrir setningu hátíðarinnar. Bókaball í Iðnó Beðin að nefna hvað beri hæst á hátíðinni í ár segir Stella Soffía: „Hinn 11. september verða liðin 40 ár síðan herinn rændi völdum í Síle. Af því tilefni hafa Bókmenntahátíð í Reykjavík og Norræna húsið efnt til málþings um atburðina í Síle og lýð- ræðisþróun þar í landi eftir að Pi- nochet lét af völdum. Meðal þátttak- enda í þinginu er síleski rithöfundurinn Antonoi Skármeta, sem fór í útlegð á áttunda áratugn- um, en eftir að lýðræði komst á sneri hann aftur heim. Hann hefur ritað bæði leikrit og kvikmyndahandrit sem byggjast á þessum atburðum,“ segir Stella Soffía og bendir á að Skármeta, sem sennilega er best þekktur hérlendis fyrir skáldsöguna um bréfberann sem kvikmyndin Il Postino byggðist á, muni auk þess lesa upp í Eldborg hinn 11. sept- ember og vera í höfundaviðtali í Norræna húsinu 15. september. „Í framhaldi af fyrrgreindu mál- þingi í Norræna húsinu er gestum boðið í Bíó Paradís þar sem sýnd verður síleska kvikmyndin No frá árinu 2012 sem tilnefnd var til Ósk- arsverðlauna sem besta erlenda kvikmyndin. Myndin segir frá raun- verulegum atburðum sem áttu sér stað í Síle þegar kjósendur völdu að segja nei við áframhaldandi setu Pi- nochet á valdastóli.“ Myndin verður sýnd í almennum sýningum í Bíó Paradís til 18. september. „Annar höfundur sem er mikill fengur að fá til Íslands er hvít- rússneski rithöfundurinn Svetlana Alexievitch. Hún hefur skrifað margar bækur þar sem hún fjallar um hlutskipti venjulegs fólks sem upplifir óvenjulega atburði. Bækur hennar eru oft mörg ár í smíðum, því hún tekur viðtöl við 500 til 1.000 manns við undirbúning hverrar bók- ar. Í bókum Alexievitch fá raddir þessa fólks að njóta sín á mjög áhrifaríkan hátt, því hún sem skrá- setjari hefur sig lítið í frammi. Árni Bergmann hefur þýtt kafla úr nýj- ustu bók hennar sem hægt verður að lesa í Tímariti Máls og menningar. Alexievitch mun bæði taka þátt í upplestri í Iðnó og spjalla við sænsk- an útgefenda sinn í Norræna húsinu fimmtudaginn 12. september,“ segir Stella Soffía og minnir að lokum á Bókaballið sem haldið verður í Iðnó laugardaginn 14. september þar sem heppnir gestir geta dansað við uppá- haldshöfundinn sinn. Allar nánari upplýsingar um hátíðina er á: bok- menntahatid.is. Ferskir straum- ar til Íslands  Bókmenntahátíð í Reykjavík verður sett í ellefta sinn 11. september nk.  Fjöldi bóka gefinn út samhliða hátíð Stella Soffía Jóhannesdóttir Skáld Sílemaðurinn Antonio Skármeta, Búlgarinn Georgi Gospodinov og Hollendingurinn Herman Koch. Fjölþjóðabragur Palestínumaðurinn Mazen Maarouf, Indverjinn Kiran Desai og Svíinn Kjell Espmark.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.