Morgunblaðið - 05.09.2013, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 05.09.2013, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2013 BAKSVIÐ Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Chad R. Pike, aðalframkvæmda- stjóri og varaformaður fjárfest- ingasjóðs Blackstone í Evrópu, sem stendur að fjárfestingum í Fljót- unum ásamt Orra Vigfússyni, situr í stjórn Verndarsjóðs villtra laxa- stofna sem Orri setti á laggirnar en þeir Orri hafa þekkst til fjölda ára. „Hann er mikill áhugamaður um náttúrvernd og uppbyggingu í strjálbýlum héruðum og hann er mikill útivistarmaður,“ segir Orri. Pike, sem er rúmlega fertugur, er einnig auðugur. Hann er háttsettur yfirmaður hjá Blackstone, sem er bandarískur fjárfestingasjóður og einn sá stærsti í heimi. Pike er vara- framkvæmdastjóri og formaður Blackstone í Evrópu og situr í nefnd sem sér um fjárfestingar Blackstone í fasteignum. Á vef Blackstone kemur fram að frá því Pike gekk til liðs við fyrir- tækið árið 1995 hafi hann stýrt fjár- festingum upp á 20 milljarða banda- ríkjadala (2.400 milljarða íslenskra króna) í Bandaríkjunum, Evrópu og Asíu. Á Bahama-eyjum og Deplum Fyrir nokkrum árum setti Pike á laggirnar ferðaþjónustufyrirtækið Eleven Experience sem býður upp á lúxusgistingu í Ameríku og Evrópu. Gistihús undir merkjum fyrirtækis- ins er þegar að finna í skíðabænum Crested Butte í Klettafjöllunum í Bandaríkjunum, annað í Tarantaise í frönsku Ölpunum og hið þriðja í Ed- ington, skammt frá borginni Bath á Englandi. Þá boðar fyrirtækið að það muni opna gistihús á Deplum sumarið 2014 og fljótlega verði opn- að gistihús þeirra á Bahama-eyjum. Í öllum tilfellum er um sannkallaða lúxusgistingu að ræða. Auk gistingar er alls kyns þjón- usta í boði, eingöngu fyrir gesti Ele- ven Experience og mikil áhersla er lögð á að gestir geti notið næðis. Í skálanum í Klettafjöllum er t.a.m. boðið upp á einkaleiðsögn um fjöllin, einkabílstjóra og einkakokk. Ljóst er af vef fyrirtækisins að ekki er í kot vísað í gistihúsum Eleven Ex- perience. Innisundlaug með saltvatni Í skálanum í Ölpunum er t.d. inni- sundlaug með saltvatni og í húsinu í Klettafjöllunum eru herbergin með búnaði sem gerir gestum kleift að stilla súrefnismagnið í herbergj- unum, eigi þeir í vandræðum með að aðlagast hæðinni (2.700 metrar yfir sjávarmáli). Í Crested Butte er þó ekki hægt að fara í þyrluskíðaferðir en slíkt verður hægt að gera frá bænum Deplum. Orri Vigfússon keypti jörðina Depla fyrir um þremur árum í félagi við Pike. Í fyrra bættist jörðin Knappstaðir við og frá 2003 hefur Orri leigt jörðina Bergland í tengslum við veiðiréttindi í Fljótaá. Orri segir að nú standi til að reisa nýtt gistihús við Depla þar sem verður gisting fyrir 10-20 manns. Byggingin verði væntanlega fjár- festing upp á nokkur hundruð millj- ónir, þegar allt verði komið til alls. „Það er verið að teikna hinar og þessar útgáfur af húsum og það er verið að skoða hitt og þetta. En við ætlum að gera þetta glæsilega,“ seg- ir Orri. Hann bendir á að Strengir hafi nýlega byggt veiðihús við Selá í Vopnafirði sem hafi kostað 300-400 milljónir. Orri segir að enn sé ekki búið að ganga endanlega frá því hvernig þátttöku Chad R. Pikes í fjárfest- ingum í Fljótunum verði háttað. „En hann mun örugglega spila lykilhlutverk,“ segir hann. Á Deplum hefur verið stundaður sauðfjárbúskapur og Orri segir að svo verði áfram. Hjónin á Þrasastöð- um muni sjá um það. Leikur lykilhlutverk í fjárfestingum  Chad R. Pike, aðalframkvæmdastjóri hjá Blackstone, er mikill áhugamaður um laxveiði og útivist  Pike stofnaði Eleven Experience sem býður upp á lúxusgistingu  Nokkuð hundruð milljónir Ljósmynd/Eleven Experience Þyrluskíðamennska Orri Vigfússon og félagar hófu í fyrravetur að bjóða upp á þyrluskíðaferðir á Tröllaskaga. Það þykir einstakt að geta skíðað frá fjallstoppum og niður að sjávarmáli. Orri segir pláss fyrir fleiri en eitt fyrirtæki. Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Tillaga Húsafriðunarnefndar, ef hún verður samþykkt, kallar ekki á að breyta þurfi núverandi deiliskipulagi,“ segir Hjálmar Sveinsson sem situr í um- hverfis- og skipulagsráði borgarinnar. Honum virðist tillagan lúta að því að skerpa á orðalagi. Samkvæmt deili- skipulagi stendur til að á Landsíma- reitnum verði m.a. tónleikastaður með svipuðu sniði og Nasa, segir Hjálmar. „Við erum ánægð með þessa stuðn- ingsyfirlýsingu Húsafriðunarnefndar,“ segir Björn B. Björnsson, fulltrúi BIN- hópsins svokallaða sem stendur fyrir: Björgum Ingólfstorgi og Nasa. Umskipti nefndarinnar Deilur hafa staðið um skemmtistað- inn Nasa og salinn allt frá árinu 2008. Þá samþykkti Húsafriðunarnefnd að friða gamla Kvennaskólann við Austurvöll, þar sem skemmtistaðurinn Nasa var til húsa. Árið 2011 var ytra borð hússins, þ.e.a.s. gamla Kvennaskólans, friðað. Árið 2008 kynntu borgaryfirvöld til- lögu að nýju deiliskipulagi á Landsíma- reitnum þar sem gert var ráð fyrir að endurbyggja Nasa-salinn í sömu mynd inni í nýbyggingunni. Í fundagerð Húsafriðunarnefndar frá 9. október 2008 er því fagnað að í skipu- lagstillögu sé gert ráð fyrir að salurinn skuli endurbyggður í sömu mynd. Því lagði nefndin ekki til frekari friðun sal- arins. Þessi skipulagstillaga, sem Húsa- friðunarnefnd fagnaði, var hins vegar ekki samþykkt. Fjórum árum seinna, 10. júlí 2012, kvað við annan tón hjá nefndinni. Þá telst salurinn í núverandi mynd ekki til þjóðminja. Þar af leiðandi var ekki farið fram á friðun hans. Nú á síðasta fundi var sama umræða komin upp og árið 2008. Vísað var til þess að ekki væru skýr ákvæði um endurreisn salarins á núverandi stað í nýlega samþykktu deiliskipulagi. Auk þess stendur: „Hafa fjölmargir orðið til þess að benda á sögu- legt og tilfinningalegt gildi salarins.“ Tillaga um friðlýsingu var því sam- þykkt. Umskipti gagnvart Nasa-salnum Morgunblaðið/Jim Smart Nasa-salurinn Húsafriðunarnefnd hefur skipt nokkrum sinnum um skoðun á menningarsögulegu gildi salarins. Árið 2012 taldist hann ekki til þjóðminja.  Tillagan um friðlýsingu mun ekki hafa áhrif á deiliskipulag  „Ánægð með stuðningsyfirlýsinguna,“ segir talsmaður BIN „Ég hafna þessu. Rétt var staðið að boðun fundarins,“ segir Magnús Skúlason, for- maður Húsafriðunarnefndar, um ásakanir Magnúsar Karels Hannessonar, varamanns í nefndinni, um að ekki hafi verið rétt stað- ið að boðun varamanns á fundinn. Magnús segir að þar af leiðandi sé friðlýsing NASA-salarins byggð á mjög veikum grunni. Magnús Karel er skipaður í nefndina af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Hann hefði átt að taka sæti Margrétar Leifsdóttur, sem er að- almaður tilnefnd af sambandinu, þar sem hún átti ekki heim- angengt. Magnús Karel hafði ekki tök á að sitja fundinn. Í stað þeirra sat Snorri Freyr Hilmarsson, varamaður fyrir ráð- herraskipaðan aðalmenn án tilnefningar í Húsafriðunarnefnd. Magnús Karel segir Snorra ekki hafa umboð frá sveitar- félögunum eða Sambandi íslenskra sveitarfélaga í þeirra nafni. Fyrir fulltrúa sveitarfélaganna í Húsafriðunarnefnd er skipaður sérstakur varamaður og hann einn getur setið fundi í forföllum aðalmannsins, segir Magnús Karel. Formaður Húsafriðunarnefndar, Magnús Skúlason, segir að hún sé ekki pólitísk skipuð heldur sé hún ráðgefandi fagnefnd. Hann tel- ur að rétt hafi verið að boða aðra menn sem eru skipaðir án tilnefningar svo nefndin hafi getað verið starfhæf. Formaðurinn segir rétt staðið að boðun fundar DEILT UM VARAMANN Á FUNDI HÚSAFRIÐUNARNEFNDAR Magnús Karel Hannesson Í Morgunblaðinu í gær birtist viðtal við Jökul Bergmann sem hefur rekið þyrluskíðafyrirtæki á Tröllaskaga frá 2008 þar sem Jökull segir að þar sé aðeins pláss fyrir eitt slíkt fyrirtæki. Þessu er Orri ósammála. Það sé ekki á margra færi að bjóða upp á þyrluskíðaferðir og það sé ósennilegt að þyrluumferð um fjöllin verði slík að til vand- ræða horfi. Þá hafi Jökull ekki ríkari rétt til að bjóða upp á þyrluskíðaferðir en aðrir og þeir lögfræðingar sem hann hafi rætt við telji að þeir samn- ingar sem Jökull hafi gert um einkarétt á tilteknum fjöllum og brekkum muni ekki stand- ast, verði gerður ágreiningur um gildi þeirra. Hann segist ekki geta sagt til um hvort til standi að gera slíkan ágreining. Jökull benti á að ósnertar skíðabrekkur væru takmörkuð auðlind. Spurður hvort hið sama eigi ekki við um laxveiðar og þyrluskíðamennsku, að of mikil sókn eyðileggi auðlindina, bendir Orri á að laxveiði sé háð einkaeignarrétti en það eigi ekki við um flugumferð. Orri bendir á að hann hafi byrjað að bjóða upp á þyrlu- skíðaferðir í fyrravetur en í Morgunblaðinu í gær kom fram að hann hygðist bjóða upp á þær frá og með næsta vetri. Beðist er velvirðingar á mistök- unum. Annað fyrirtæki sem hygg- ur á slíkar ferðir er Viking Heliskiing. Í gær kom í ljós að ósk þeirra um einkaaf- notarétt um afnot af landi Fjallabyggðar var hafnað, að svo stöddu. Efast um samninga EKKI MEÐ RÍKARI RÉTT Orri Vigfússon

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.