Morgunblaðið - 05.09.2013, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2013
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Grænmetisuppskeran er um mánuði
seinna á ferðinni nú en í venjulegu
árferði. Útiræktað grænmeti er
mestmegnis ræktað á Suðurlandi og
mikil vætutíð þar í sumar hefur
áhrif á uppskeruna.
Gunnlaugur Karlsson, fram-
kvæmdastjóri Sölufélags garðyrkju-
manna, segir árið hafa verið mjög
óvanalegt og ræktunarskilyrði erfið.
Sérstaklega verður gulrótaupp-
skeran lítil. „Gulrætur hafa ekki
skilað sér inn á markaðinn ennþá í
neinu magni. Við búumst ekki við
miklu af þeim vegna uppskeru-
brests, bæði vegna bleytu og svo
eyðilagði frost í vor sáninguna hjá
stórum ræktanda,“ segir Gunn-
laugur.
Bleyta og kuldi hefur líka tafið
kartöfluuppskeruna og býst Gunn-
laugur við að hún verði undir með-
alári. „Kartöflurnar eru ekki nægi-
lega vel sprottnar. Það verður að
treysta á að þær braggist núna í
september og þá gæti uppskeran
orðið ágæt,“ segir Gunnlaugur.
Eftirspurn eftir íslensku græn-
meti hefur sjaldan verið meiri að
sögn Gunnlaugs. „Í síðustu viku var
gífurleg sala í þeim vörum sem eru
komnar í gang. Við erum búin að
vera hér meira og minna með tóm-
an lager á hverjum einasta degi í
sumar, það hefur aldrei gerst áður.
En inn í það spilar að varan er sein
á markað, magnið er lítið og svo er
eftirspurnin ofboðsleg.“
Ýmist í ökkla eða eyra
Ragnhildur Þórarinsdóttir hjá
S.R. grænmeti á Flúðum var að
taka upp gulrætur með höndunum í
gærmorgun þegar blaðamaður hafði
samband. Hún segir virkilega erfitt
að komast um garðana núna vegna
bleytu, sérstaklega þá sem eru í
mýrarjarðvegi.
„Þetta er bara allt á kafi í vatni,
meira og minna. Ég kemst ekki
með gulrótaupptökuvélina um
garðinn og því þurfum við að
taka upp með höndunum og
það gengur miklu hægar.
Sex manns ná kannski að
taka upp um 300 kg á
einum og hálfum tíma
en vélin tekur upp hálft
tonn á tuttugu mín-
útum.“
Ragnhildur man ekki eftir öðru
eins sumri og segir margt spila inn í
lélega uppskeru. Fræin sem hún
sáði í vor hafi skilað sér illa. „Í
svona rigningu skolast áburðurinn
úr jarðveginum og við höfum þurft
að bera tölvert oftar á en ég hef
kynnst. Svo við tölum ekki um arf-
ann, þetta eru kjörskilyrði fyrir
hann.“
Ragnhildur segir þau vera búin
að taka upp töluvert en allt sé um
þremur vikum á eftir því sem er í
venjulegu árferði, auk þess að vera
miklu smærra og léttara. Tekjutap-
ið er nokkurt. „Síðasta mánuð hafði
ég ekki einn þriðja af tekjunum sem
ég var með eftir sama tíma í fyrra,
en það var sérstaklega gott ár. Í
fyrra fór mikill tími og kostnaður í
að vökva en það er frá þetta sum-
arið. Það er ýmist í ökkla eða eyra.“
Morgunblaðið/RAX
Uppskerutími Gærdagurinn var vel nýttur í upptöku á Melum enda lét sólin loksins sjá sig. Hér má sjá starfsfólkið taka upp kál af kátínu.
Lítil gulrótauppskera
Kuldi og rigningar í sumar seinka grænmetisuppskerunni um mánuð
Uppskerubrestur í gulrótum Mikil eftirspurn eftir íslensku grænmeti
Mál sérstaks
saksóknara
gegn þremur
fyrrverandi
starfsmönnum
Glitnis var þing-
fest í Héraðs-
dómi Reykjavík-
ur í gær.
Mennirnir neituðu allir sök, en þeir
voru ákærðir fyrir umboðssvik,
markaðsmisnotkun og brot gegn
lögum um ársreikninga.
Þeir ákærðu eru Birkir Kristins-
son, fyrrverandi starfsmaður einka-
bankaþjónustu Glitnis, Jóhannes
Baldursson, sem var framkvæmda-
stjóri markaðsviðskipta, Elmar
Svavarsson, sem var verðbréfamiðl-
ari, og Magnús Arnar Arngrímsson,
fyrrverandi framkvæmdastjóri
fyrirtækjasviðs.
Atvik málsins eru þau að í nóvem-
ber 2007 veitti Glitnir félaginu
BK-44, sem var í eigu Birkis, lán upp
á 3,8 milljarða króna vegna kaupa á
hlutabréfum í Glitni. Glitnir seldi
bréfin og veitti BK-44 peningamark-
aðslán til kaupanna. Á sama tíma
gerði Glitnir annan samning við
BK-44, en efni samningsins er ekki
ljóst vegna þess að fyrir mistök var
hann ekki bókaður í kerfi bankans,
að því er fram kemur í bókun sem
lögð var fram við þingfestingu í gær.
Þó er vitað að samningurinn tak-
markaði bæði mögulegt tap og hagn-
að BK-44. Þegar upp komst um
stöðu mála var gengið frá uppgjöri á
umræddum viðskiptum, en efnislega
fór það fram þannig að BK-44 skilaði
hlutabréfunum í Glitni aftur til
Glitnis og gerði þannig upp peninga-
markaðslánið, en félagið hafði í milli-
tíðinni selt hluta bréfanna og gekk
afrakstur þeirrar sölu til lækkunar á
peningamarkaðsláninu.
Atburðarásin slitin í sundur
Reimar Pétursson, verjandi Jó-
hannesar Baldurssonar, lagði fram
bókun við þingsetninguna, en í henni
segir að enginn hafi hagnast eða tap-
að á viðskiptunum og engin sérstök
áhætta hafi tengst þeim. Ennfremur
segir að ekkert í atburðarásinni í
heild sinni geti talist refsivert, en
ákæruvaldið hafi í því skyni kosið að
slíta atburðarásina í sundur með
ósanngjörnum hætti. Af hálfu Jó-
hannesar var þessari ákæruaðferð
mótmælt í bókuninni. agf@mbl.is
Glitnis-
menn
neita sök
Mótmæla ósann-
gjarnri ákæruaðferð
Tveir menn voru í gær dæmdir í
Héraðsdómi Reykjavíkur í 16 og 18
mánaða fangelsi fyrir rán og frelsis-
sviptingu. Í dómnum segir að við
ákvörðun refsingar verði að líta til
þess að brot mannanna tveggja sé
„mjög ófyrirleitið og alvarlegt“.
Mennirnir tveir sem fengu
þyngsta dóma voru ákærðir fyrir að
ráðast inn á heimili manns í Reykja-
vík, berja hann, sparka í hann, ógna
honum með hnífi og fjötra hann.
Þeir neyddu hann til að afhenda sér
lykil að skotvopnaskáp í íbúðinni,
þaðan sem þeir tóku átta skotvopn,
fimm haglabyssur, tvo riffla og
kindabyssu, og höfðu á brott með
sér. Þeir skildu manninn eftir fjötr-
aðan á höndum og fótum.
Þriðji maðurinn fékk sex mánaða
dóm fyrir aðild að málinu. Mennirnir
játuðu brot sín. Sá sem fékk 16 mán-
aða dóm var einnig ákærður fyrir
vörslu fíkniefna. Þeir sem fengu
þyngsta dóma eru báðir fæddir 1993,
en þriðji maðurinn 1989.
Brotið sagt
„ófyrirleitið
og alvarlegt“
„Það er mun minni uppskera en
vanalega. Það sem var plantað
út í júní og átti að uppskera í
ágúst fór illa. En uppskeran er
að komast í gang núna,“ segir
Guðjón Birgisson, garðyrkju-
bóndi á Melum á Flúðum. „Sum-
arið var svo kalt og blautt. Það
sem er plantað út í lágum með-
alhita vex hægt. Vöxturinn
stoppaði eiginlega í júlí. Það
verður minni uppskera á hekt-
ara í ár og allt sem kom í ágúst
var léttara og smærra,“ segir
Guðjón. „Þetta verður ekki
úrvalssumar fyrir okkur
tekjulega, ég verð feginn ef
ég kemst á núllið þetta
árið. En við getum ekki
svarað neinu fyrr en
við sjáum hvernig
haustið ræðst. Ef
haustið er gott er
framtíðin bjartari.“
Verður ekki
úrvalssumar
„EF HAUSTIÐ ER GOTT ER
FRAMTÍÐIN BJARTARI“
Guðjón
Birgisson
Svað Erfitt er að komast um garðana núna vegna bleytu, sérstaklega þá sem eru í mýrarjarðvegi.
Einstakt Ragnhildur grænmetisbóndi man ekki eftir öðru eins sumri.