Morgunblaðið - 05.09.2013, Qupperneq 40
40 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2013
Nýtt!
Heilbrigt hár á
náttúrulegan hátt!
Hárvörurnar frá Weleda eru mildar en áhrifaríkar, örva hársvörðinn og stuðla að náttúrulegu
heilbrigði hársins. Hárvörurnar eru unnar úr þremur ólíkum korntegundum, hirsi, hveiti og
höfrum. Það er margt líkt með korni og hári. Korn vex í frjóum jarðvegi og til að hárið verði
fallegt, þarf hársvörðurinn að vera heilbrigður. Hver vara hefur sinn sérstaka ilm.
Í samhljómi við mann og náttúru. www.weleda.is
Útsölustaðir Weleda eru heilsuverslanir og apótek um allt land
www.facebook.com/weledaísland
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú þarft að berjast fyrir sjálfstæði
þínu bæði heima fyrir og í vinnunni. Leggðu
þig fram um að leita sátta og hlustaðu vel
á alla aðila því sjaldan veldur einn þá tveir
deila.
20. apríl - 20. maí
Naut Fólk mun tala. En, ef þú leyfir þér að
finna sársaukann rétt sem snöggvast áttu
heila eilífð í bata framundan.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Rifrildi við fjölskyldumeðlimi er
líklegt núna. Skuld sem þú taldir þig eiga
vangoldna er nú að fullu greidd. Þú átt það
til að mikla hlutina fyrir þér.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þér kann að finnast þú umsetin/n
og eiga erfitt með að gera nokkurn skap-
aðan hlut. Vertu því opin/n og óhrædd/ur
við að takast á við nýja og spennandi hluti.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Annríkið er svo sannarlega mikið en
hægt er að stöðva allt með einu brotnu
tannhjóli. Líttu í eigin barm og skoðaðu
málin í rólegheitunum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er alltaf eitthvað að gerast í
hausnum á þér. Þér líður afar vel þessar
vikurnar, mundu eftir þessari líðan þegar
syrtir í álinn.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú hefur heppnina með þér í dag. Oft-
ar en ekki er nauðsynlegt að ræða út um
hlutina svo allir séu sáttir við þá stefnu,
sem mál taka.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Mundu að það er ekki bara
það sem sagt er sem skiptir máli, líka
hvernig það er sagt. Þó að skjólið sé gott
er samt nauðsynlegt að takast á við lífið
fyrir utan.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Ef þú ætlar þér að hafa vit fyrir
öðrum kanntu að rata í harðar deilur í dag.
Passaðu þig á að láta ekki lítið rifrildi spilla
stóru verkefni.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Fólk sækir að þér úr öllum áttum
og þú skilur síst hvað veldur því. Einhver
gerir eitthvað í dag, sem færir hana/hann
úr ytri hring í hinn innri.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ekki leyfa rökhugsuninni að af-
neita fyrirbærum á borð við töfra og
heppni. Kannski er ekki úr vegi að leggja
spilin á borðið á næstunni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú þarft að eiga við vandræðageml-
inga, erfitt fólk. Leggðu þig fram um að sjá
málin í víðara samhengi. Þú hefur heppnina
með þér á næstunni.
Það er jafnan líf í tuskunum í ár-legri haustferð Iðunnar, en
hún verður farin á laugardaginn
kemur og er brottför frá BSÍ stund-
víslega kl. 8.30. Á meðal við-
komustaða verða Eiríksstaðir undir
leiðsögn Sigurðar Jökulssonar á
Vatni, Hjarðarholt kirkjustaður og
bær Ólafs Pá, Sælingsdalslaug,
Krosshólaborg bænastaður Auðar
djúpúðgu, Hvammur fæðingar-
staður Snorra Sturlusonar. Venju
samkvæmt mun standurinn ganga
um rútuna og er gert ráð fyrir að
ritblý fyrir vísur, hlífðarföt og skór
við hæfi verði í farteskinu. Þorvald-
ur Þorvaldsson annast skráningu
en hann er með netfangið:
vivaldi@simnet.is.
Í fréttabréfi Iðunnar kennir ým-
issa grasa. Höskuldur Búi Jónsson
kastar fram limru:
Hugfangin heyrðum við forðum
um hagvöxt í tölum og orðum.
Lifnar því lund
og léttist um stund
er brauðmylsnan hrynur af borðum.
Sigrún Haraldsdóttir orti yfir
sjónvarpsfréttum:
Þótt háin taki Huppu í kvið
og hylji meðal tík
er ekki slegið slöku við
slátt í Reykjavík.
Fundir Iðunnar fara fram í
Gerðubergi og verður kvæðalaga-
æfing þar 2. október en félags-
fundur þar sem hagmælskunni er
gert hátt undir höfði 4. október.
Fundirnir hefjast kl. 20 og eru öll-
um opnir. Eflaust mun Þórarinn M.
Baldursson láta að sér kveða, en
hann yrkir:
Varkárni ég mikils met,
minna gæti skrefa,
fyrirvara fyrst ég set,
flest svo dreg í efa.
Konráð Erlendsson las vísuna um
að Valdimar Gunnarsson væri sest-
ur í helgan stein:
Líða fer á lífs míns hlaup
litlu fæ ég um það breytt.
Í framtíðinni fæ ég kaup
fyrir að gera ekki neitt.
Hjálmar Freysteinsson gerðist
háfleygur er hann frétti af því að
Pétur Stefánsson hefði selt bílinn
sinn norður:
Laufblöð sölna og litka börð
líður senn að vetri.
En ekki prýðir Eyjafjörð
Elantran frá Pétri.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af efasemdum, slætti
og haustferð Iðunnar
Í klípu
BANKAÐU ALLTAF! LEYDARDÓMAR
SNYRTIATHAFNA KARLMANNA
ERU BEST GEYMDIR Í LEYNI.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„EINHVERN DAGINN MUNTU GLEÐJAST YFIR
ÞVÍ AÐ VERA MEÐ ÞESSA LÍFTRYGGINGU“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að hita handa henni
súkkulaði þegar hún
getur ekki sofnað.
SÖTR
HRÓLFUR, MÉR
FINNST EINS OG
ÞÚ TAKIR MÉR SEM
SJÁLFSÖGUÐM HLUT!
ÞAÐ ER
EKKI SATT,
HELGA...
...ÞÚ ERT
STÆRSTI
HLUTINN
AF LÍFI MINU
ÉG TÓK BARA SVONA
TIL ORÐA, ÁSTIN MÍN!
HVERNIG ER
KAFFIÐ?
ÞAÐ
SKILAÐI
SÍNU!
Víkverja finnst pólitísk umræðaiðulega festast í hjólfari, sem hún
kemst ekki upp úr, og snúast fremur
um aukaatriði en aðalatriði. „Nútím-
inn er trunta með tóman grautar-
haus,“ söng Egill Ólafsson á fyrstu
plötu Þursaflokksins og uppfærði þar
rómverska orðskviðinn o tempora, o
mores, sem útleggst hvílíkir tímar,
hvílíkir siðir. Nýlega hlustaði Víkverji
á pallborðsumræður í tilefni af vænt-
anlegum kosningum í Þýskalandi á
þýskri vefsíðu þar sem heimspeking-
urinn Richard David Precht var með-
al þátttakenda. Þar talaði hann um að
stjórnmálamenn væru fangar nú-
tímans. Öll pólitísk umræða snerist
um núið, samtímann. Alla sýn skorti á
framtíðina. Ekki heyrðist til dæmis
aukatekið orð um það hvernig Evr-
ópusambandið ætti að líta út eftir tíu
ár eða tuttugu.
x x x
Precht, sem er höfundur bókar-innar Hver er ég – og ef svo er
hve margir? er kom út á íslensku í
fyrra, rakti þetta meðal annars til
þess mikla magns upplýsinga, sem
steyptist yfir nútímamanninn. Úti-
lokað væri að nokkur maður kæmist í
gegnum upplýsingaflóðið og það
gerði að verkum að nánast væri
ógerningur að fá yfirsýn. Allt færi að
snúast um hvernig ætti að vinna á
vanda dagsins í stað þess að leggja
línur til framtíðar. Á slíku ferðalagi er
hætt við því að tilviljanir ráði för
fremur en ásetningur.
x x x
Framkvæmdir á Hofsvallagötu hafaverið í fréttum. Þar hefur verið
þrengt að umferð bíla og málaðir
hjólreiðastígar. Þessu fylgir mikil
litagleði, en mesta athygli hafa þó
vakið fuglahús, sem standa á staur-
um. Sumir hafa velt fyrir sér hvort
þetta sé leið til þess að fjölga íbúum
við Hofsvallagötu og eigi að verða til
þess að þétta byggð. Víkverja finnst
ólíklegt að fuglum finnist eftirsóknar-
vert að gera sér bústað ofan í umferð-
inni á Hofsvallagötu. Einhver benti
hins vegar á að ætlunin gæti verið að
ganga lengra en bara þrengja að um-
ferð í götunni. Nú yrði hægt að banna
alla umferð um hana meðan á varp-
tíma stæði.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Að óttast Drottin er upphaf speki, þeir
vaxa að viti sem hlýða boðum hans.
Lofstír hans stendur um eilífð.
(Sálmarnir 111:10)