Morgunblaðið - 04.10.2013, Side 4
4 | MORGUNBLAÐIÐ
E
kki hafa allir verið jafn
sannfærðir um ágæti og
hagnýti þess að skipta
jarðefnaeldsneytinu út fyr-
ir rafmagn og fyrir fáein-
um árum, þegar bílarnir frá Tesla
komu fyrst í umræðuna fundu marg-
ir þeim flest til foráttu. „Það var árið
2008, man ég, að bloggheimar log-
uðu stafna á milli í umræðu um að
Tesla mundi óhjákvæmilega fara á
hausinn. Viðskiptamódelið myndi
ekki ganga upp því forsendur væru
einfaldlega ekki fyrir rafbíl af þess-
ari gerð. Fyrir bragðið var fullyrt að
allir sem myndu setja pening í fyr-
irtækið, eða borga inn á eintak af
fyrsta módelinu, Tesla Roadster, til
að tryggja sér hann til kaups,
myndu óumflýjanlega tapa sínum
peningum. Á þessum nótum var um-
ræðan að miklu leyti,“ segir Gísli um
upphaf þess að hann afréð að
tryggja sér umboðið fyrir bílunum.
„Það breytti þó engu um að ég varð
alveg heillaður af þessu dæmi, og
þóttist sjá að þetta væri framtíðin
þar eð þarna væri á ferðinni tækni
sem enginn annar hefði yfir að ráða.
Ég ákvað því að tryggja mér eintak
og millifærði innborgun tafarlaust.“
Staðið við stóru orðin
Þessari pöntun muna menn í höf-
uðstöðvum Tesla eftir, segir Gísli og
kímir við. „Þeir hafa síðan þá sagt
mér að þá hafi rekið í rogastans þeg-
ar pöntun barst frá Íslandi, af öllum
stöðum. Þeir hugsuðu með sér að
annaðhvort væri maðurinn al-
gjörlega úr takti við umheiminn –
því líkast til væri ekki einu sinni net-
samband á Íslandi – eða þá hann
hefur virkilega trú á okkur! Þeir
muna eftir þessari pöntun því hún
barst þeim þegar allt var í kaldakoli
hvað umræðuna varðaði, jafnvel þó
að þeir hafi vitað að þeir voru að
gera hárrétta hluti.“ Í framhaldinu
fór það þó svo að allt stóðst sem þeir
Tesla-menn sögðu, og Elon Musk og
félagar hjá Tesla skiluðu bílnum, og
öðrum til, á tilsettum tíma og á til-
settu verði. Grundvallaratriði á
þeirri vegferð er að sögn Gísla sú
sýn sem aðalsprauta fyrirtækisins,
Elon Musk, hafði frá upphafi. „Hann
réði átta stráka til að búa til fyrstu
frumgerðina að Tesla Model S eftir
hans hugmyndum og leiðbeiningum.
Það tók þá átta mánuði að ljúka
þeirri smíði og þá voru þeir komnir
með bíl sem hægt var að prófa. Aft-
ur á móti má benda á að þegar
General Motors ákvað að búa til raf-
bíl, sem úr varð Chevrolet Volt, þá
tók það 250 verkfræðinga heil tvö ár
að hanna þann bíl og smíða.“ Gísli
bætir því við að fyrirmæli hans hafi
verið einföld í grunninn. „Tesla
Model S átti að vera 7 manna bíll,
sem kemst 500 kílómetra á hleðslu,
er hraðskreiður og flottur þannig að
tekið er eftir honum. Flestir sögðu
slíkt ekki vera hægt, en hann fann
bara liðið sem taldi þetta vera hægt,
og gerði það.“
Byrjað á dýrari endanum
Gísli fer ekki leynt með aðdáun sína
á stofnanda og forstjóra Tesla Mot-
ors, Elon Musk. „Hann er snillingur
sem hugsar einfaldlega ekki eins og
annað fólk, ekki ósvipað Steve Jobs.
Hann vildi smíða rafbíl frá grunni
sem væri í hærri verðflokki, og síð-
an vildi hann nýta tæknina niður á
við. Þetta er hvort sem er dýr tækni
og þá er miklu skynsamlegra að
setja hana í dýran bíl. Allir aðrir
framleiðendur eru að smíða litla bíla
sem standast illa samkeppni á sínum
markaði því þeir eru oftast mun dýr-
ari en sambærilegir bílar með bens-
ínvél. Tesla ákvað að smíða þá frek-
ar high-end bíl, dýran bíl með dýrri
tækni. Þannig gat fyrirtækið búið til
bíl, Tesla Model S, með nýrri tækni
á sambærilegu verði og sambæri-
legir bensínbílar. Þannig kostar
grunngerðin af Tesla Model S það
sama og grunngerðin af Porsche
Panamera í Bandaríkjunum.“
Næstu skrefin hjá fyrirtækinu eru
að kynna til sögunnar fyrsta Tesla-
jeppann, og því næst verður það bíll
á verði fyrir hinn almenna bíleig-
anda. „Eftir þrjú ár kemur svo bíll
sem fer 320 kílómetra á hleðslunni,
er hugsaður fyrir almenning og mun
kosta 35.000 dollara – búinn bestu
tækni sem fáanleg er.“
Stuttur afgreiðslufrestur
Hérlendis sem erlendis hafa viðtök-
urnar við Tesla Model S verið afar
jákvæðar og dómar um bílinn lof-
samlegir. Það má því gefa sér að eft-
irspurnin sé talsverð og Gísli tekur
undir það. „Það er sex mánaða bið
eftir bílum í Evrópu. Ef ég vil hins
vegar panta bíla fyrir viðskiptavini
sem verða komnir fyrir áramót þá
dugar að panta þá fyrir 10. októ-
ber.“ Aðspurður hvernig standi á
þessum sérstaka afgreiðslufresti á
jafn litlu markaðssvæði og Ísland í
raun er, segir Gísli að ástæðuna
megi rekja til þess þegar hann hitti
hr. Musk á alþjóðlegu bílasýning-
unni í Frankfurt árið 2009. Þá fékk
Gísli að sögn stuttan fund með frum-
kvöðlinum, og hafði honum verið
uppálagt að vera stuttorður, gagn-
orður og sérstaklega var honum
bent á að nefna ekki neinar óraun-
hæfar tölur. „Svo ég kynnti mig,
sagðist heita Gísli og vera frá Ís-
landi og ég vildi semja um að selja
eitt þúsund Tesla-bíla á tilteknu
tímabili. Það leist honum ljómandi
vel á, bauð mér að setjast og sagði
að við skyldum fara yfir málin. Að
spjalli loknu sagði hann sínu fólki að
nótera hjá sér að þessi maður hérna
skyldi fá þúsund bíla til að selja og
hvenær sem ég vildi panta bíl skyldi
ég fá hann. Fyrir bragðið nýtur
Even þess að vera í talsverðum for-
gangi, fyrir utan að við erum eina
fyrirtækið sem fær að selja bíla fyrir
Tesla; á öðrum markaðssvæðum
gera þeir það sjálfir. Og þessa þús-
und bíla vil ég auðvitað helst selja
alla á Íslandi.“
Ekki aftur snúið úr þessu
Flestir telja þá þróun óumflýjanlega
að bílar knúnir öðrum orkugjöfum
en jarðefnaeldsneyti ryðji sér í
auknum mæli til rúms. Í því sam-
bandi hefur sú spurning iðulega
vaknað hvort aðgengi sé tryggt að
viðkomandi orkugjafa þegar fólk er
á ferðinni. Hvernig horfir þetta við
rafbílum, að mati Gísla? „Það góða
við Tesla Model S er það að hann er
ekki háður því að þurfa að hlaða
annars staðar en heima hjá sér, því
hann fer svo langt á einni hleðslu,
eða 500 kílómetra. Það er því hægt
að rúlla til Akureyrar í einum rykk
án þess að þurfa að stinga í sam-
band á leiðinni. Hvað fjöldann varð-
ar þá eru um 60.000 hleðslustöðvar
fyrir hann um land allt, og þá meina
ég heimilin í landinu. Svo það er
aldrei svo að hleðslustöð sé ekki ná-
læg. Það sem við erum að vinna að
um þessar mundir er að setja upp,
með aðgengilegum hætti, venjuleg-
ar innstungur og þriggja fasa inn-
stungur. Ef þú kemst í þriggja fasa
rafmagn, 16 amper, þá geturðu full-
hlaðið þennan bíl á átta klukkutím-
um. Þá þarftu enga stöð, þannig lag-
að – þú þarft bara innstungu. Það er
auðvelt í uppsetningu og kostar lítið.
Fljótlega munum við tilkynna um
uppsetningu hleðslustöðva á al-
mannafæri, landið um kring, og þá
verður aðgengið ennþá betra.“ Gísli
bætir því við að áhyggjur af raf-
hlöðuendingu séu með öllu óþarfar
enda sé 8 ára ábyrgð á þeim; þær
muni, ef eitthvað er, lifa bílana sem
þær knýja. „Byltingin er hafin, það
er á hreinu. Við höfum þurft að bíða
dálítið eftir henni, en nú loksins er
þetta að fara að gerast.“
jonagnar@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Framtíðin „Það góða við Tesla Model S er það að hann er ekki háður því að þurfa að hlaða annars staðar en heima hjá sér, því hann fer svo langt á einni hleðslu, eða 500 kílómetra. Það er því hægt að rúlla til Ak-
ureyrar í einum rykk án þess að þurfa að stinga í samband á leiðinni. Hvað fjöldann varðar þá eru um 60.000 hleðslustöðvar fyrir hann um land allt, og þá meina ég heimilin í landinu,“ segir Gísli Gíslason.
Byltingin er hafin
Rafbílavæðingin heldur áfram og rafbílarnir frá
Tesla hafa vakið talsverða athygli. Even er umboðs-
aðili Tesla á Íslandi og forstjórinn Gísli Gíslason er
ekki í vafa um hver þróunin verður á næstu mán-
uðum, misserum og árum.
„Það er sex mánaða bið
eftir bílum í Evrópu. Ef ég
vil hins vegar panta bíla
fyrir viðskiptavini sem
verða komnir fyrir áramót
þá dugar að panta þá fyrir
10. október.“