Morgunblaðið - 04.10.2013, Side 40

Morgunblaðið - 04.10.2013, Side 40
40 | MORGUNBLAÐIÐ Sumar tryggingar eru val- kvæðar en aðrar eru það ekki. Öllum ökutækjum þarf, lögum samkvæmt, að fylgja ábyrgð- artrygging og slysatrygging ökumanns og eiganda. Rúðu- trygging er valfrjáls en kostar sáralítið og er nánast orðin óformlegur hluti af staðaltrygg- ingu íslenskra bíla. Kaskótrygging er líka valfrjáls en hún bætir tjón þar sem öku- tækið var í órétti, s.s. í bílveltu, eða með öðrum hætti ekki hægt að sýna fram á hver olli tjóninu. Iðgjaldið ræðst þá bæði af því hversu gamall og dýr bíll- inn er og hve mikla sjálfsábyrgð tryggingataki vill bera. Einnig er til svokölluð hálf- kaskótrygging sem m.a. er vin- sæll kostur fyrir vinnuvélar í landbúnaði. Sú trygging bætir t.d. tjón af völdum bruna, þjófnaðar, veltu og rúðubrots en ekki tjón vegna áreksturs, enda ekki mikil þörf á slíkri tryggingu við almennan akstur á túnum. Íslensk tryggingafélög leggja mikla áherslu á að bjóða upp á víðtæka tryggingapakka og gefa afslætti af iðgjöldum eftir því sem tryggingunum fjölgar. Seg- ir Einar að þeir sem eru með margar tryggingar hjá TM geti átt von mun betri kjörum en þeir sem eru með mjög fáar tryggingar hjá félaginu. Hálfkaskó fyrir trak- torinn E flaust kannast margir við þá sögu að rauðir bílar séu dýrari í tryggingum en aðr- ir. Einar Þorláksson er vörustjóri ökutækjatrygg- inga hjá TM og segir hann það vera mýtu að liturinn á bílnum hafi áhrif á iðgjöldin. Hins vegar er litið til aldurs ökumanns, hversu kraftmikill bíllinn er og ekki hvað síst til tjónasögu öku- mannsins; þeir sem aka af varkárni og skynsemi uppskera ódýrari trygg- ingar. „Í raun mættu íslensk trygginga- félög að leggja hærra álag á suma hópa ökumanna. Ef við berum t.d. saman íslenska markaðinn og þann breska þá þurfa ungir breskir menn að greiða tvö- til fjórfalt hærri trygg- ingar en þeir íslensku, og hvað þá ef þeir eru komnir á kraftmikið öku- tæki,“ útskýrir Einar. Iðgjöldin end- urspegla að yngstu ökumennirnir eru þeir sem eru líklegastir til að lenda í slysunum og sérstaklega ef ökutækið er kraftmikið. „Oft er talað um að þurfi um 100.000 km akstursreynslu áður en ökumaður hefur öðlast nægi- lega færni til að ráðlegt sé að hann setjist undir stýri á hraðskreiðum sportbíl. Að ná slíkri reynslu undir stýri tekur nokkur ár m.v. dæmi- gerðan akstur. Við tökum tillit til þessarar reynslu með því að við 25 ára aldur hættir iðgjaldið af trygg- ingunni að taka mið af hversu kröft- ugur bíllinn er.“ Varkárnin borgar sig Þeir sem búa úti á landsbyggðinni greiða lægri iðgjöld á skyldutrygg- ingum en íbúar í þéttbýli því minni hætta er á árekstrum á fáförnum dreifbýlisvegum en hins vegar eru Ábyrgur akstur skilar sér í lægri iðgjöldum Dýrt getur verið að hafa langa tjónasögu í um- ferðinni. Líklegt að senn verði boðið upp á trygg- ingar sem miðast við upplýsingar úr ökurita og endurspegla gott eða slæmt aksturslag ökumanns. Morgunblaðið/Ómar Sparnaður Einar Þorláksson segir aksturslag íslenskra ökumanna hafa batnað síðustu árin. „Spilaði þar inn í aukið eftirlit lögreglu á vegum úti en líka að umferðin varð léttari og margir tóku að aka hægar til að ná fram meiri sparneytni.“ Vitaskuld hefur það engin áhrif ef ökutækið lendir í árekstrum þar sem öku- maður var í rétti, en þeir ökumenn sem virðast mjög oft valda tjóni með akst- urslagi sínu fara fljótt að sjá þess merki á verði tryggingarinnar Ökuritar gætu vel orðið framtíðin í bílatryggingum. Segir Einar að tækninni fleygi fram og er farið að verða tiltölulega auðvelt að meta aksturslag hvers ökumanns og þannig ákvarða af meiri ná- kvæmni hversu mikil hættan er á tjóni og slysum. TM er nú að gera prófanir á kerfi af þessu tagi og lofa fyrstu niðurstöður góðu. „Tölvurnar í bílunum skynja t.d. hvernig ökumaðurinn hemlar, hversu skarpar beygjur hann tek- ur eða hversu mikið hann gefur í. Ef tryggingafélögin geta metið aksturslagið með þessum hætti er hægt að bjóða upp á mun sanngjarnari tryggingar og segja skilið við eldri breytur sem not- aðar hafa verið til að meta áhættu s.s. aldur ökumanns.“ Einar segir ökurita hafa reynst vel við flotastýringu fyrirtækja og virðist almennt leiða til ábyrgara aksturslags. Þurfi þó að ganga úr skugga um að upplýsingaöflun tryggingafyrirtækja sé í samræmi við lög um persónuvernd og eins að þær mælingar sem lagðar eru til grundvallar endurspegli sem best þá áhættuþætti sem mik- ilvægir eru til að mæla aksturslag og áhættu af akstri ökumanns. Greitt í sam- ræmi við aksturslagið Bílskúrshurðir fyrir íslenskar aðstæður Gjáhella 4 • 221 Hafnarfjörður • Sími 569 2100 • hedinn.is Héðinshurðir eru glæsilegar og endingargóðar bílskúrshurðir sem hafa sannað sig í rysjóttu íslensku veðurfari. Gerðar úr galvanhúðuðu stáli með þykkri einangrun, þola mikið vindálag og kulda. Fyrsta flokks viðhalds- og varahlutaþjónusta. Ítarlegar leiðbeiningar um uppsetningu fylgja.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.