Morgunblaðið - 04.10.2013, Side 39

Morgunblaðið - 04.10.2013, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ | 39 V élarhitari gerir ekki bara bílinn heitan og notalegan á köldum morgnum heldur dregur hann úr bensín- eyðslu og bætir endingu vélarinnar. Þetta segir Páll Leifsson, sölustjóri hjá Bílasmiðnum. Bílasmið- urinn á Bíldshöfða selur vélarhitara frá þýska framleiðandanum Webasto og segir Páll að tæknin sé orðin svo háþróuð í dag að ræsa má hitarann í gegnum snjallsímann ef svo ber und- ir. Vélarhitarar segir hann að séu mun útbreiddari í Norður-Evrópu en á Íslandi og fjárfesting sem fleiri ættu að skoða. „Vélarhitarinn hitar kælivatn bíls- ins. Um er að ræða hitaelement sem tengt er við eldsneytisleiðslur og raf- magnskerfi bílsins og færir hita kæli- vatnsins upp í 76 °C og kveikir á mið- stöð bílsins við 50 °C. Er hægt að tengja hitarann við miðstöðina og þá hitnar farþegarýmið einnig. Hitarann má hafa á tímastilli sem hentar vel þeim sem leggja t.d. alltaf af stað til vinnu á sama tíma, eða að nota má fjarstýringu og jafnvel senda hita- kerfinu skilaboð yfir farsíma um að hefja hitun bílsins.“ Páll segir slíta bílmótornum mikið að ræsa hann kaldan. Vélarhitarinn skapar kjörhitastig í vélinni og minnkar slitið stórlega. Um 20-30 mínútur þarf til að kaldur bíll nái rétta hitastiginu. „Mælingar hafa sýnt að það að ræsa bílvél þegar hita- stigið er 5 °C eða lægra slítur vélinni jafnmikið og 500 km akstur. Á Íslandi má reikna með að um 200 daga á ári sé hitastigið undir 5 gráðum að morgni til og jafngildir slitið því við- bótarakstri upp á 10.000 km ef bílinn er ræstur kaldur alla þessa morgna.“ Hitari á því að geta lengt töluvert endingu vélarinnar en á líka að geta sparað eldsneytisnotkun. „Atvinnu- bílstjórar hafa sérstaklega mikinn ávinning af hitaranum því stóran hluta vinnudagsins eru þeir með vél- ina í lausagangi. Vélarhitari þýðir að slökkva má á vélinni en hafa þægilegt hitastig í farþegarýminu á meðan beðið er eftir næsta viðskiptavini eða verkefni.“ Má færa milli bíla Eini gallinn er sá að vélarhitari kost- ar sitt. Með uppsetningu segir Páll að Webasto-vélarhitararnir kosti um 260.000 kr. með fjarstýringu sem tengd er við farsímakerfið. Verðið lækkar um 35.000 kr. ef valinn er hit- ari með tímastilli. „En á móti kem- ur að hitarinn á að endast í kringum 12-15 ár og þarfnast sáralítils við- halds. Markaður- inn með notaða bíla er þannig á Ís- landi að yfirleitt er ekki hægt að fá mikið aukalega fyr- ir viðbætur af þessu tagi við endursölu á notuðum bíl og því grípa margir einfald- lega til þess ráðs að fjarlægja hitarann úr bílnum við sölu og koma fyrir í nýja bíln- um.“ Í sumum tilvikum er jafnvel vél- arhitari þegar til staðar í bílnum án þess að eigandinn geri sér grein fyrir því. „Það á t.d. við um VW Tiguan og Touareg að þessir bílar eru með vél- arhitara þegar þeir koma úr verk- smiðjunni og aðeins spurning um að tengja við miðstöðina og koma fyrir tímarofa til að eigandinn njóti allra kosta bílsins.“ ai@mbl.is Kveikt á hitaran- um gegnum snjallsímann Að ræsa kalda bílvél getur verið jafnslítandi og 500 km akstur. Vélarhitari nær upp rétta hita- stiginu og eykur á þægindi farþega. Morgunblaðið/Golli Þarfaþing „Á Íslandi má reikna með að um 200 daga á ári sé hitastigið undir 5 gráðum að morgni til og jafngildir slitið því viðbótarakstri upp á 10.000 km ef bíl- inn er ræstur kaldur alla þessa morgna,“ segir Páll Leifsson. „Mælingar hafa sýnt að það að ræsa bílvél þegar hitastigið er 5 °C eða lægra slítur vélinni jafnmikið og 500 km akstur. Funahöfði 1 | 110 Reykjavík Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is JEEP WRANGLER UNLIMITED SAHARA 4 04/2012, ekinn 37 Þ.km, sjálfskiptur. Verð 5.690.000. Raðnr.135694 TOYOTA Yaris terra Nýskr. 02/2012, ekinn 18 Þ.KM, bensín, snertiskjár, 5 gírar. Verð 2.390.000. Rnr.400097 MAZDA 3 S/D T PLUS 03/2007, ekinn 115 Þ.km, sjálfskiptur. Verð 1.490.000. Raðnr.310818 NISSAN X-trail LE Disel Nýskr. 01/2008, ekinn 126 Þ.KM, sjálfskiptur, lyklalaust aðgengi, álfelgur. Verð 3.290.000. Rnr.410534 VOLVO S40 KINETIC 06/2010, ekinn 66 Þ.km, bensín, sjálfskiptur. Verð 3.290.000. Raðnr.310677 LAND ROVER DEFENDER 110 TDS STORM 11/2005, ekinn 132 Þ.km, dísel, 5 gíra, Snorkel o.fl. Verð 3.990.000. Raðnr.310897 SKODA Octavia Ambiente Nýskr. 10/2005, ekinn 166 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur. Verð 990.000. Rnr.410203 MMC PAJERO INSTYLE 10/2007, ekinn 124 Þ.km, dísel, sjálfskiptur. Verð 4.690.000. Raðnr.310813 FORD Kuga trend Diesel Nýskr. 11/2011, ekinn 77 Þ.KM, rafmagn í rúðum, lyklalaust aðgegni. Verð 3.750.000. Rnr.400021 TOYOTA LAND CRUISER 100 VX 38“ 06/2004, ekinn 129 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur, leður, mjög vel búinn. Verð 6.790.000. Raðnr.310896 DI ES EL DI ES EL EY ÐI R L IT LU DI ES EL DI ES EL ÓD ÝR TOYOTA Land Cruiser 120 Nýskr. 05/2003, ekinn 174 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur. Verð 2.690.000. Rnr.410512 HYUNDAI Tucson 4x4 Diesel Nýskr. 09/2007, ekinn 90 Þ.KM, 6 gírar. Verð 2.150.000. Rnr.400127 Funahöfði 1 | 110 Reykjavík Sími 580 8900 | www.bilalind.is ERGO – Við fjármögnum bíla með reynslu ERGO – Við fjármögnum bíla með reynslu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.