Morgunblaðið - 04.10.2013, Side 41
hærri iðgjöld á kaskótryggingum
ökutækja úti á landi enda aukin
áhætta þar á útafakstri og veltu og
þ.a.l. má búast við hærri tjónskostn-
aði í kaskótryggingum. Iðgjöldin
taka líka að hækka hjá þeim öku-
mönnum sem oft lenda í slysum og
eru í órétti. „Vitaskuld hefur það
engin áhrif ef ökutækið lendir í
árekstrum þar sem ökumaður var í
rétti, en þeir ökumenn sem virðast
mjög oft valda tjóni með aksturslagi
sínu fara fljótt að sjá þess merki á
verði tryggingarinnar. Til að gefa
viðmiðun er hægt að nefna að þeir
sem eru miklir hrakfallabálkar í um-
ferðinni geta þurft að greiða allt að
tvöfalt hærra iðgjald en þeir sem
tjónlausir eru. Er þó rétt að taka
fram að tjón þar sem skemmdir
kosta undir 80.000 kr. hafa ekki áhrif
á tryggingamatið.“
Einar segir að litlar breytingar
hafi orðið á bílatryggingakaupum á
undanförnum árum. Greina megi
merki hér og þar um að sumir bíleig-
endur hafi ákveðið að spara með því
að sleppa kaskótryggingu. „Eftir
hrunið sáum við líka merki þess að
mörg heimili fækkuðu bílum og líka
að aksturslag virtist batna töluvert.
Spilaði þar inn í aukið eftirlit lögreglu
á vegum úti en líka að umferðin varð
léttari og margir tóku að aka hægar
til að ná fram meiri sparneytni.“
Draga að tilkynna tjónið
Segir Einar líka bera á því nú að
sumir bíleigendur virðast draga að
tilkynna tjón því þeir eiga ekki fyrir
sjálfsábyrgðinni. „Viðgerðarkostn-
aðurinn er kannski 3-400 þús. krónur
en sjálfsábyrgðin 100-150 þús. sem er
meira en margir ráða við. Fyrir vikið
sjáum fleiri bíla í umferð sem bera
enn merki hnjasks og árekstra þrátt
fyrr að vera tryggðir.“ Minnir Einar
á að ábyrgð tryggingafyrirtækisins
fyrnist ef tjón er ekki tilkynnt innan
eins árs. „Eftir að tjónið hefur verið
tilkynnt fyrnast síðan bótaréttindin
ef þau eru ekki nýtt á fjórum árum.“
ai@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ | 41
440 1000 | N1 HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
COOPER DISCOVERER M+S 2
• Nýtt og endurbætt neglanlegt vetrardekk
• Mikið skorið
• Einstaklega gott grip
• Hentar vel við íslenskar aðstæður
• Hannað fyrir Skandinavíumarkað
COOPER DISCOVERER M+S
• Neglanlegt vetrardekk fyrir jeppa
• Mikið skorið með góðu gripi í snjó og ís
(sérhannað snjómunstur)
• Nákvæm röðun nagla eykur grip
á ísilögðum vegum
• Endingargott dekk
• Vinsælt heilsársdekk fyrir þá sem vilja
sem mest grip yfir veturinn.
COOPER SA2
• Nýtt óneglanlegt vetrardekk
• Frábært veg og hemlunargrip
• Góð vatnslosun
• Góður míkróskurður
• Mjúkt og endingargott
GRÍPANDI AKSTURSLAG
Mikil mótorhjóladella magnaðist upp á Íslandi í góðærinu og margir létu
langráðan draum rætast um að kaupa sér mótorfák. Þessi mikla fjölgun
mótorhjólaökumanna skapaði þrýsting á og svigrúm fyrir tryggingafélögin
að bjóða hagkvæmari tryggingar en lengi vel höfðu bifhjólatryggingar þótt
sérdeilis dýrar.
Einar segir ekki hægt að greina að dregið hafi úr mótorhjólaáhuganum
en TM endurskoðaði fyrir nokkrum árum hjá sér bifhjólatryggingar með
það að markmiði að meta áhættu af meiri nákvæmni og skila við-
skiptavinum sanngjarnara verði. Útkoman var mjög áhugaverð:
„Við gátum t.d. lækkað iðgjöldin á „hippunum“ svokölluðu enda leiddu
tölur okkar í ljós að á þeirri gerð hjóla var slysahættan minni. Hins vegar
kom skýrt í ljós að breytinga var þörf á iðgjöldum mótorkross-hjóla þar
sem slysahættan er mikil enda hjólin til þess gerð að skoppa og spana um
keppnisbrautir og malarhauga.“
Dýrar tryggingar á bifhjólum segir Einar að komi til vegna þess að hvert
slys á hjóli geti verið mjög kostnaðarsamt. „Ef ökumaður bifhjóls lendir í
byltu og brýtur t.d. viðbein eða ökkla hleypur slysakostnaðurinn á millj-
ónum króna. Ef ársiðgjöldin eru t.d. 60.000 kr. þá sést að það þarf stóran
hóp iðgjaldagreiðenda til að standa undir tjóninu og örfá slys til viðbótar
geta orðið til þess að þessi titekni tryggingaflokkur er rekinn með miklu
tapi.“
Morgunblaðið/Eggert
Gátu lækkað iðgjöldin á
„hippunum“
Bílaáhugamenn geta fundið heil-an hafsjó af áhugaverðummyndböndum á YouTube.
Varla er til sá bíll að ekki hafi ein-
hver bílaþátturinn eða áhugamað-
urinn sett inn eins og eina umsögn
eða reynsluakstur á myndbands-
form og skellt á netið.
Einn afkastamesti bílarýnirinn á
YouTube er ungur suðurríkjamaður
með brennandi bíladellu. Kyle Lind-
sey heitir drengurinn, nýútskrifaður
lyfjafræðingur sem fékk þá hug-
mynd einn daginn að gera sérlega ít-
arleg myndbönd um bæði nýja og
notaða bíla.
Myndskeiðin geta verið vel á 30
mínútur að lengd og er upplifunin
eins og að vera á bílabúðargólfinu
þar sem Kyle rýnir í hvert smáatriði
í innra og ytra byrði bílsins, leyfir
áhorfendum að heyra vélarhljóðið,
og jafnvel skoða ofan í skottið og
hanskahólfið.
Greinir þetta Kyle Lindsey frá
öðrum bíladellumönnum á YouTube
sem yfirleitt gera mun yfirborðs-
kenndari bílavídeó. Skemmir suð-
urríkjahreimurinn ekki fyrir og
greinilegt að þarna er á ferð hreinn
og beinn drengur sem fékk gott upp-
eldi.
Þeir sem hafa á huga á ein-
hverjum bíl ættu að leita að „saa-
abkyle“ á YouTube og sjá hvort þar
er ekki búið að taka bílinn rækilega
fyrir frá öllum hliðum.
ai@mbl.is
Upprennandi Þáttastórnandinn ungi, Kyle Lindsay, hefur greinilega mikið
yndi af bílum enda rýnir hann þá ofan í kjölinn. Skjáskot úr þáttunum.
Skoðar hvern krók og kima