Morgunblaðið - 04.10.2013, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 04.10.2013, Blaðsíða 18
18 | MORGUNBLAÐIÐ Fáir eru næmari á ökumenninguna en einmitt ökukennararnir. Guðrún segir hvorki hægt að segja að um- ferðarmenningin á Íslandi hafi batnað eða versnað síðustu árin og virðast bílstjórar enn glíma við sömu brestina. „Einkum þykir mér vanta aukna tillitssemi við aðra ökumenn og eins að halda góðu bili á milli bíla á ferð. Þegar kemur að ökukennslunni sjálfri sýna flest- ir viðeigandi nærgætni en þó er alltaf einn og einn sem ekur of ógætilega í kringum nemandann.“ Hún segir að allir mættu kynna sér og tileinka sér nýútkominn um- ferðarsáttmála. „Ef allir sýna svo hver öðrum smá þolinmæði og til- litssemi í umferðinni, brosa fram- an í náungann og tileinka sér ein- faldar kurteisisreglur sem nýútkominn umferðarsáttmáli fel- ur í sér getum við í sameiningu fækkað óhöppum og slysum enn meira.“ Umferðarsáttmálinn er svo- hljóðandi: Ég er aldrei undir áhrifum í umferð- inni Ég gef stefnumerki í tæka tíð Ég virði hraðamörk Ég læt hvorki síma né annað trufla mig Ég fer ekki yfir á rauðu ljósi Ég held hæfilegri fjarlægð Ég þakka fyrir mig Ég nýti „tannhjólaaðferð“ þegar við á Ég held mig hægra megin Ég er sýnileg(ur) Ég legg löglega Ég tek mið af aðstæðum Ég sýni ábyrgð Vantar enn á tillitssemina Þ egar Guðrún Sigurfinns- dóttir lærði sjálf að aka bíl átti hún í mestu vand- ræðum með að finna kvenkyns ökukennara. „Hjá þeim fáu konum sem störfuðu við ökukennslu á þessum tíma var löng bið eftir plássi. Það var strax þá sem þessi draumur tók að blunda í mér: að þörf væri á fleiri kvenkyns ökukennurum og ég gæti þar lagt mitt lóð á vogarskálarnar.“ Guðrún segist annars ekki vera með mikla bíladellu, ólíkt því sem staðalímynd ökukennarans myndi láta mann halda. Segir hún næga ökudellu að finna í fjölskyldunni hjá föður hennar og fjórum eldri bræðr- um. „Raunar er ég ekki einu sinni með meirapróf, sem var skilyrði fyrir ökukennsluréttindum allt þar til breytingar voru gerðar á reglum um námið árið 2006. Þá var tekið upp 30 eininga nám til ökukennslu- réttinda við Kennaraháskólann og krafan um meirapróf afnumin. Ég beið ekki boðanna, skráði mig í námið og útskrifaðist þremur önn- um síðar,“ útskýrir hún en í náminu er m.a. farið í kennslufræði, náms- sálfræði og uppeldisfræði til við- bótar við mikið nám á sviði aksturs og umferðar. Algjör einbeiting Starf ökukennarans hefur reynst Guðrúnu bæði gefandi og krefjandi. Gaman hafi einnig verið fyrir hana að verða hluti af ökukennarastétt- inni á tímum áhugaverðra breytinga og framfara í akstursnámi. Ökukennsla getur verið lýjandi og ætti ekki að koma á óvart að það getur reynt á taugarnar að sita í farþegasætinu hjá ökumanni sem er að halda um stýrið í fyrsta sinn. Hún man enn vel eftir stressinu sem fylgdi því að leyfa fyrsta nem- andanum að stíga á bensíngöfina. „Ég get ekki neitað því að dagarnir geta verið erfiðir ef margir nýliðar eru í kennslu og það krefst mikillar orku að vera með algjöra einbeit- ingu og athygli við bæði það sem nemandinn er að gera og aðrir í um- ferðinni.“ Guðrún starfar hjá Ökuskóla 3, Ökukennslan reynir stundum á taugarnar Man vel eftir stressinu þegar hún tók við fyrsta nemandanum í öku- kennslu. Breyttar áherslur í kennslu og breytingar á reglum um óreynda ökumenn virð- ast vera að skila sér í fækkun slysa Morgunblaðið/Rósa Braga Samtaka „Ef allir sýna svo hver öðrum smá þolinmæði og tillitssemi í umferðinni, brosa framan í náungann og tileinka sér einfaldar kurteisisreglur getum við í sameiningu fækkað óhöppum og slysum enn meira,“ segir Guðrún Sigurfinnsdóttir. kennslumiðstöðinni við Borgartún þar sem SVR var áður til húsa. Með nýlegum breytingum á reglum um ökunám var þessi nýja kennslustöð tekin í gagnið en þar hafa nem- endur afnot af sérhæfðum kennslu- tækjum sem geta m.a. hermt eftir aðstæðum í hálku og sömuleiðis hermt eftir þeirri upplifun að vera um borð í bíl sem veltur. „Við Öku- skóla 3 er sömuleiðis farið ítarlega í forvarnir varðandi akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna, og ábyrga hegðun í umferðinni,“ út- skýrir hún en ökunám er þannig skipulagt í dag að fyrst kemur inn- gangsnám í Ökuskóla 1 samhliða fyrstu ökutímunum, þá æfingakstur og Ökuskóli 2 með ítarlegra bóklega námi og loks að nemendur þurfa að klára námsefnið hjá Ökuskóla 3 til að mega þreyta verklega ökuprófið. Slysunum fer fækkandi Segir Guðrún að þetta nýja fyr- irkomulag á náminu virðist vera að ná tilætluðum árangri um að draga úr dauðsföllum og slysum á ungu fólki í umferðinni. „Bæði varð sú nýbreytni árið 2007 að handhafar bráðabirgðaskírteinis sem fá fjóra punkta fyrir umferðarbrot eru sett- ir í akstursbann, þurfa að sitja sér- stakt námskeið og þreyta próf að nýju áður en banninu er aflétt, og árið 2010 var Ökuskóli 3 settur á laggirnar. Nýustu tölur frá Umferð- arstofu benda til þess að slysum á ungum ökumönnum hafi fækkað og má eflaust þakka það þessum ný- legu úrræðum í forvörnum, eftirliti og kennslu.“ ai@mbl.is Hjá þeim fáu konum sem störfuðu við ökukennslu á þessum tíma var löng bið eftir plássi. Það var strax þá sem þessi draumur tók að blunda í mér. Guðrún segir hægt að greina einhver merki þess að niður- sveiflan í hagkerfinu hafi dregið úr ásókn í ökunámið. Sjálf finnur hún ekki fyrir að nemendum fækki en heilt yfir stéttina virðist sem fleiri ungmenni dragi það ögn að læra að aka bíl. Hún segir líka allan gang á því hvernig námið er borgað: sum- ir unglingarnir verði greinilega að greiða fyrir ökutímana sjálfir, en aðrir fá kennsluna að göf frá foreldrum sínum og enn aðrir deila kostnaðinum. Þann tíma sem hún hefur fengist við ökukennsluna segir Guðrún ekki hægt að greina að nemendurnir hafi farið batn- andi eða versnandi en hins vegar geti verið mikill munur á milli nemenda í sama árganginum. „Þroski unglinga við bíl- prófsaldur getur verið æði misjafn. Sumir eru mjög þroskaðir, agðir og samviskusamir, en aðrir eru enn að taka út þroska og þurfa að læra að hegða sér rétt undir stýri. Greina má hjá sumum ungu mönnunum að þeir hafa fengið margar af sín- Með ranghugmyndir úr tölvuleikjum Morgunblaðið/Styrmir Kári Umferð Aðstaða til ökukennslu hefur batnað með kennslubílum sem herma m.a. eftir hálku. um hugmyndum um akstur úr tölvuleikjum og þurfa sér- stakalega mikla tilsögn fyrir vikið.“ Reglulega koma upp í þjóðfélagsumræðunni hugmyndir um að hækka bílprófsaldurinn eða gera skilyrðin fyrir öku- leyfi enn strangari. Guðrún segist sjálf vera efins um að það að bæta t.d. einu ári við bílprófsaldur myndi breyta miklu um slysatíðni. „Áhugaverðastar þykja mér þær hugmyndir að skírteini ungra ökumanna hafi þær takmarkanir að þeir megi ekki aka með marga farþega, eða ekki hafa farþega í bílnum seint á kvöldin og um helgar. Kemur þessi hugmynd til af því að verstu slysin virðast henda þegar ungu ökumennirnir eru á ferðinni að skemmta sér með vinum sínum. Athyglin er þá stundum við annað en veginn eða að menn fara að metast, sýnast og eggja hver annan áfram í hegðun sem ekki á heima í umferðinni. Sumir hafa þroskann til að láta ekki undan svona þrýstingi og aka af ábyrgð, en aðrir fara sér að voða.“ 2ja ára ábyrgð á Iveco varahlutum Dalvegur 6-8 201 Kópavogur Sími 535 3500 www.kraftvelar.is kraftvelar@kraftvelar.is H 2 h ö n n u n eh f. Umboðsaðili fyrir Iveco á Íslandi og vinnu við að setja varahlutinn í ef viðgerð fer fram hjá Kraftvélum.* Bjóðum varahluti á góðu verði. *Nema um venjulegt slit sé að ræða

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.