Morgunblaðið - 04.10.2013, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ | 35
K
onur hneigjast fremur að mönnum á vistvænum
bílum en þeim sem aka um á bensínhákum.
Meira en helmingur kvenna er á því að
ökumenn dýrra sportbíla séu hrokafullir. Marg-
ar konur eru hins vegar á því – og karlmenn líka
– að ökumenn á vistvænum bílum á borð við Nissan Leaf
og Toyota Prius séu skylduræknir, klárir og öruggir bíl-
stjórar. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem gerð var
fyrir breskt bílarit og 2.000 manns tóku þátt í. Þar kom
einnig fram að 48% karla eru sannfærð um að áhugi
kvenna á þeim aukist eftir því sem bíll þeirra er dýrari.
Það kemur ekki alveg heim og saman við álit kvenfólksins
því 53% kvenna stimpluðu ökumenn dýrra sportbíla sem
hrokagikki, 48% töldu þá síngjarna og 38% kvenna töldu
þessa menn beinlínis hættulega á vegunum.
Skondnar persónulýsingar
Vera má að það hljómi undarlega, en karlar gáfu yfirleitt
lítið fyrir kynbræður sína á utanvegarökutækjum. Sögðu
34% karla ökumenn á fjórdrifnum bílum vera hrokafulla
og 29% sögðu þá vera rudda í framkomu.
Konur voru aftur á móti á því að eigendur fólksbíla á
borð við Ford Mondeo, Renault Megane og Volkswagen
Passat væru dugnaðarforkar og öruggir bílstjórar. Eig-
endur stallbaka voru aftur á móti taldir vera hófsamir að
eðlisfari. Markaðsstjóri Motors segir að könnunin gefi
skemmtilega og áhugaverða mynd af því hvernig fólk
skynjar ökumenn. Þar lifi góðu lífi sú hversdagslega og
langlífa hugmynd að vondu strákarnir einir keyri sport-
bíla. agas@mbl.is
Áreiðanlegur Ökumaður Toyota Prius er í augum kvenna skyldurækinn, klár og öruggur ökumaður.
Karlar á „grænum“ bílum
höfða mest til kvenna
Vistvænn Konur kváðu hafa augastað á karlmönnum sem
aka um á Nissan Leaf. Hörkutólin fara hinsvegar halloka.
Vega- og framkvæmda-
merkingar
Síðumúla 28
108 Reykjavík
Sími 510 5100
www.ismar.is Við mælum með því besta
Gæði, reynsla og gott verð!
Armor All Shield lakkvörnin er jafnvel betri en vaxbón. Auðvelt að bera
á og byltingarkennd formúla myndar sameindabindingu við lakkið og
húð sem hindrar að óhreinindi og ryk loði á ökutækinu. Þegar Shield
hefur verið borið á endurnýjast virkni þess og gljái við þvott í allt að
10 skipti. Getur bónið þitt gert þetta?
Armor All Shield fæst hjá Bílanausti, á sölustöðum N1 og hjá fleiri
bílavöruverslunum.
VERNDAÐU BÍLINN
GEGN VEÐRI OG
VINDUM
MEÐ SHIELDÁN SHIELD
GÆÐA
VARA FYR
IR BÍLINN!
REYKJAVÍK, Bíldshöfða 9, Funahöfða 13
KÓPAVOGUR, Smiðjuvegi 4a, græn gata
HAFNARFJÖRÐUR, Dalshrauni 17
REYKJANESBÆR, Krossmóa 4, SELFOSS, Hrísmýri 7
AKUREYRI, Furuvöllum 15, EGILSSTAÐIR, Lyngás 13
Sími: 535 9000
www.bilanaust.is
Shield og Shield
for Wheels unnu
nýlega verðlaun
Auto Express
fyrir bestu kaupin
og Auto Express
Editors Choice
sem uppáhalds-
vara.
SJÁÐU HVERNIG
ÞAÐ VIRKAR!
www.armorall.eu