Morgunblaðið - 04.10.2013, Síða 16

Morgunblaðið - 04.10.2013, Síða 16
16 | MORGUNBLAÐIÐ IÐAN fræðslusetur Skúlatúni 2 - 105 Reykjavík www.idan.is - s. 590-6400 Prófnefnd bifreiðasala Undirbúningsnámskeið vegna prófs til að öðlast leyfi til sölu notaðra ökutækja verður haldið í Reykjavík 14.- 30. október 2013 ef næg þátttaka næst. Umsóknarfrestur er til 6. október 2013. Nánari upplýsingar og skráning er í síma 590 6400 eða fjola@idan.is og www.idan.is Dugguvogi 23, 104 Reykjavík • S: 581-4991 • rafstilling@rafstilling.is Alternatorar og startarar eru okkar mál Viðgerðarþjónusta og sala Þ að hefur verið margt um að vera í verksmiðjum Volvo, því um miðjan nóvember hefst framleiðsla nýrra véla. Það eru ekki aðeins vélarnar sem breytast heldur hafa allir bílarnir fengið andlitslyftingu, eða facelift og nýir litir standa við- skiptavinum til boða. Ágúst Hall- varðsson er ráðgjafi hjá Brimborg og er vel inni í þeim breytingum sem Volvo hefur tekið útlitslega og véla- breytingunum sem bílarnir munu taka á næstu vikum. Tæknibyltingin og umhverfið „Tæknibreytingarnar byggjast alfar- ið á tveggja lítra, fjögurra strokka dísilvélunum. Mesta breytingin er ný tækni við innsprautun á eldsneyti inn í brunahólfin. Það sem maður þekkir til dæmis í dag sem „common rail“ eða samrásarinnsprautun þar er þrýstingnum dælt ójafnt og óreglu- lega inn í bruna- hólfin. Þá er kannski ekki mikil stjórnun á því eins og verið hefur. Þessi nýja tækni gerir það að verk- um að sérstök tölvustýring kem- ur inn í hvert hólf fyrir sig,“ segir Ágúst. Með því móti ætti að nást jafnari bruni enda verður hægt að stýra þrýstingnum nákvæmlega og segir Ágúst að hann geti verið hundrað prósent jafn. Það ætti að þýða mun betri nýtingu á eldsneytinu og um leið ætti CO2 gildið að minnka. „Til dæmis má nefna að tveggja lítra vél sem er 181 hestafl, fer úr 126 grömmum af CO2 niður í 99 grömm og þetta er enginn kettlingur heldur hörku-kraftmikil vél.“ Breytingarnar á bensínbílunum verða með öðru móti þar sem þeir notast meira við túrbínur og for- þjöppur sem vinna saman, annars vegar fyrir lægra hraðasvið og hins vegar hærra. Tölvustýrða innspýt- ingin breytist líka. „Nú er þetta allt sett inn í brunahólfin á mun meiri þrýstingi heldur en áður. Til dæmis í bensínbílunum er 200 bara þrýst- ingur en upp í 2.500 í dísilbílnunum,“ segir Ágúst. 285 hestafla umhverfisvænn bíll Nýr hybrid-bíll, Volvo V60 Plug-in Hybrid, er væntanlegur frá framleið- andanum og er ljóst af kynningarefn- inu að Volvo bindur miklar vonir við þann bíl. „Þetta er venjulegur dísilbíll með stóru dísilvélinni en fær raf- magnsvél við afturhjólin sem gerir hann í fyrsta lagi fjórhjóladrifinn og í öðru lagi getur þetta unnið saman líka. Þú hefur val því það eru þrjár stillingar þar sem þú getur valið hvort þú lætur hann ganga bara á raf- magninu, hybridinu eða svokölluðu power þar sem hann gengur á þessu öllu saman.“ Í hybrid-stillingunni hleður bíllinn stöðugt við akstur og eyðir um 1,9 lítrum af eldsneyti á hundraðið og CO2 gildið er 49 í blönd- uðum akstri. Þessar tölur eru áhuga- verðar, ekki síst í ljósi þess að bíllinn er 285 hestöfl. Ágúst, sem sjálfur hef- ur prófað bílinn, segir að það sé ein- stök upplifun að aka þessum bíl. Bæði í rafmagnsstillingunni og auðvitað á fullu afli. Mestu breytingar sem gerðar hafa verið Þær breytingar sem nú verða á 2014- árgerðunum frá Volvo eru, að sögn Ágústs, þær mestu sem gerðar hafa verið á heilli línu. „Þeir eru að breyta núna S60, V60, XC60, V70, S80 og XC70. Þá er í raun og veru öll línan uppfærð nema XC90 og hann kemur nýr í byrjun árs 2015,“ segir Ágúst. Útlitsbreytingarnar á bílunum eru nokkrar en þó ekki það miklar að Volvo-einkennin dofni. XC60-bíllinn breytist mest útlitslega og fær alveg nýjan framenda, verður samlitur á hliðunum og afturendinn breytist líka. Hinir bílarnir breytast eingöngu að framan. Það er ljóst að Volvo tekur mið af umræðu um loftslagsmál heimsins og sífellt verður ljósara að eyðsla og útblástur er eitthvað sem neytendur vilja draga úr eins og hægt er. malin@mbl.is Ferðabíll Volvo XC70 er stór skutbíll sem býr yfir skemmtilegum aksturseiginleikum sem koma að góðum notum á fjallvegum. Hann er fjórhjóladrifinn og með öfluga spólvörn og veggripsskynjara. Nýtt útlit Allir bílarnir hafa fengið andlitslyftingu og dálítið kraftalegra útlit. Sportlegur V60 er rennilegur og með breytt fas. Hybrid útgáfa verður fáanleg. Breyttur XC60 er sá bíll sem tekur mestum útlitsbreytingum af öllum bílunum. Fjölskyldubíllinn V70 er með feykistórt skott og er aðalfjölskyldubíll flotans. Volvo tekur stakkaskiptum Mestu breytingar sem gerðar hafa verið á heilli línu hjá Volvo verðar kynntar á næstunni. Höfuðáhersla er lögð á sparneytni og umhverfisvænar vélar. Útlits- breytingarnar eru nokkrar en þó ekki svo miklar að einkenni Volvo dofni. Í hybrid-stillingu eyðir V60 Plug-in um 1,9 lítrum af eldsneyti á hundraðið og CO2 gildið er 49 í blönd- uðum akstri. Ágúst Hallvarðsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.