Morgunblaðið - 04.10.2013, Blaðsíða 20
Morgunblaðið/Kristinn
Húsið Sýningarsalur og söluráðgjafar, hraðþjónusta, varahlutir og verkstæðismóttaka er hér í einu opnu rými og ef gestir
þurfa að bíða eftir einhverju þá gerir hann það hér í þægilegri setustofu,“ segir Páll Þorsteinsson, upplýsingafulltrúi Toyota.
H
ér er einn inngangur í
húsið og þá þjónustu
sem það býður upp á,
en á Nýbýlaveginum
voru inngangarnir tíu,“
segir Páll Þorsteinsson, upplýs-
ingafulltrúi Toyota. „Auk þess vor-
um við á sex stöðum í bænum,
bókstaflega úti um allt. Það var
einn varahlutalager hér og annar
varahlutalager þar, verkstæði úti
um allt svo menn voru af illri
nauðsyn að keyra á milli. Hér er
aftur á móti einn inngangur í alla
þá þjónustu sem viðskiptavinir
sækja í hverju sinni.“ Páll bætir
því við að Lexusinn sé reyndar að-
skilinn og út af fyrir sig af því það
er sér vörumerki. „En að öðru
leyti flæðir hér óhindrað á milli
sem gerir viðskiptavinum okkar
sem þægilegast að sækja þá þjón-
ustu sem óskað er eftir hverju
sinni. Sýningarsalur og söluráð-
gjafar, hraðþjónusta, varahlutir og
verkstæðismóttaka er hér í einu
opnu rými og ef viðskiptavinur
þarf að bíða eftir einhverju þá
gerir hann það hér í þægilegri
setustofu þar sem boðið er upp á
ókeypis nettengingu, kaffi og vín-
arbrauð.“
Mótað eftir eigin höfði
Páll útskýrir að þegar Toyota
flutti starfsemi sína í húsið fyrir
rúmu ári hafi starfsfólk haft á orði
að húsnæðið, sem er 12.000 fer-
metrar að flatarmáli, hafi í reynd
verið tvö herbergi og eldhús þegar
þau tóku við því. Það hafi þó í
raun verið mikill kostur því það
gerði Toyota kleift að laga og
móta rýmið algerlega eftir eigin
höfði. Húsnæðið í heild hýsti áður
BYKO og þar sem timbursalan var
áður er verkstæðið í dag, og það
er töluvert stórt að flatarmáli.
„Hér þurftum við að færa einn
vegg en að öðru leyti var rýmið
óskrifað blað. Verkstæðið var því
skipulagt og innréttað nákvæm-
lega eins og við teljum að henti
best fyrir svona starfsemi í byrjun
21. aldarinnar. Við fengum allar
okkar óskir uppfylltar og verk-
stæðið er klæðskerasniðið að okk-
ar þörfum, og viðskiptavinarins.“
Á verkstæðinu er að finna 43 lyft-
ur, í loftinu eru um 3 kílómetrar af
leiðslum fyrir olíu, vatn, rúðu-
vökva og þvíumlíkt, og fyrir hverja
tvennu af stæðum er einn „bar“ af
helstu tækjum og tólum svo hver
starfsstöð hefur allt sem þarf inn-
an seilingar. „Við störfum eftir
umhverfisstaðlinum ISO 14001 svo
hér er farið afskaplega vel með öll
efni og allt endurnýtt sem hægt
er, flokkum og seljum sorpið okk-
ar í stað þess að borga fyrir förg-
un. Við leggjum alla áherslu á að
fara vel með öll efni, bæði með
umhverfið og starfsfólk okkar í
huga.“
Varahlutalagerinn við höndina
Stór kostur við húsnæðið er að
sögn Páls að varahlutalagerinn er
við hliðina á verkstæðinu. „Það
skiptir gríðarlega miklu að hafa
lagerinn ekki aðeins í sama húsi
heldur í nokkurra skrefa fjarlægð
frá verkstæðinu. Hann er auk-
inheldur það vel búinn að við eig-
um lang oftast það sem beðið er
um. Ef hlutirnir eru ekki til á lag-
er er yfirleitt ekki löng bið eftir
þeim frá Evrópu,“ bætir Páll við.
„Fremst og næst verkstæðinu
geymist það sem hraðast fer og
eftir því sem innar dregur eru sér-
tækari hlutir sem sjaldnar þarf að
sækja. Við fáum einn gám á viku
af varahlutum og hver sending
deilist í framhaldinu á stöðina hér
og svo viðurkennda
þjónustu- og söluaðila okkar
víða um land. Þá sjaldan sem við
eigum ekki til varahlut sem þörf
er á er hægt að fljúga honum til
landsins með sólahringsfyrirvara,
ef mikið liggur við, svo öll umsýsla
með varahluti er laus við allt ves-
en.“ Páll bendir á að í raun sé
minna gólfpláss undir lagerinn í
Kauptúninu en var á gamla staðn-
um; munurinn liggi í því að loft-
Sprautun Fullbúið réttinga- og sprautuverkstæði er í Kauptúninu þar sem lofthæð er mik-
il, loftræsting góð og loftgæði eftir því mikil. Áhersla er á fyrsta flokks starfsumhverfi.
Úrval Varahlutir og hvers konar viðhaldsvörur eru á einu stóru svæði. til vinstri sést í biðsalinn þar sem kaffi, vín-
arbrauð og frítt wi-fi netsamband eru í boði meðan beðið er eftir ráðgjafa eða úrlausn erindis.
Öll þjónusta undir einu þaki
Við Kauptún í Garðabæj-
arhrauninu standa aðal-
stöðvar Toyota og hafa
gert síðan fyrirtækið
flutti þangað í júlí á síð-
asta ári. Þar er nú að
finna alla þjónustu við
Toyota-eigendur en því
var ekki að heilsa í
gamla húsnæðinu.
Mátun Í sýningarsal nýrra bíla hjá Toyota eru gestir hvattir til að máta bílana.
Við fundum það strax
á fyrsta degi hversu
miklu munar að hafa
einn inngang, sama
hvert erindið kann að
vera hverju sinni.
20 | MORGUNBLAÐIÐ
NÝTT FRÁ DICK CEPEK
Trail
Country
Fun
Country
Mud
Country
NÝT
T!
NÝT
T!
Trail Country er fínmynstrað alhliða jeppadekk
sem er rásfast og þægilegt í akstri innanbæjar, en býr
einnig yfir frábærum aksturseiginleikum utan vega.
Trail Country er frábært alhliða heilsársdekk
fyrir flestar gerðir jeppa og jepplinga.
Fun Country var hannað með það í huga að ná
fram einstökum askturseiginleikum utanvega, auk
þess að vera hljóðlátt og endingargott innanbæjar.
Fun Country er ætlað nútíma jeppum
sem vilja komast lengra!
Dekkið er fáanlegt í stærðum frá 32“ til 37“.
Kletthálsi 3
110 Reykjavík
Sími 540 4900
arctictrucks.is