Morgunblaðið - 04.10.2013, Page 23

Morgunblaðið - 04.10.2013, Page 23
H vað er það sem gerir bíl að draumabíl? Hvaða töfrar eru það sem fá hjartað til að slá örar við það að sjá smíði úr gleri, stáli og gúmmíi standandi í bíla- stæðinu? Er það útlitið? Eru það kraft- arnir? Er það hljóðið í vélinni eða áferðin á sætunum? Bíllinn Equus Bass 770 svarar kannski þessari spurningu. Lítil bílaverksmiðja í Michigan á heiðurinn að þessum einstaklega laglega bíl sem, eins og myndirnar bera með sér, fær lánuð útlits- einkenni frá mörgum vinsælustu og fegurstu „köggum“ bandarískrar bílasögu. Saman við klassískar línurnar er blandað nýjustu tækni og nútíma- legri hönnun, og innviðirnir eru þaktir krómi, leðri og öllum þeim stjórntækjum sem orðin eru ómiss- andi í bíl árið 2014. Vélin skilar 640 hestöflum og er bíllinn rétt um 3,4 sekúndur að fara upp í hundraðið. Þeir sem vilja eignast þessa dýrð þurfa að stunda námið vel og leggja sig fram í vinnunni, því ekki er verðmiðinn á allra færi. Grunn- útgáfan kostar 250.000 dali, en fullbúinn er bíllinn að fara á 290.000 dali út úr búðinni. Er það sambæri- legt við grunnútgáfuna af Ferrari FF. Á þá eftir að bæta við verðið þeim svimandi háu gjöldum sem fylgja innflutningi til Íslands. ai@mbl.is Hestur Framendinn er þakinn ljósum og geislar af klassískum þokka Hringir Mælarnir eru á sínum stað. Króm Mælaborðið er nútímalegt. Draumur á fjórum hjólum Gleði Eins og sést á myndunum er bíllin undir miklum áhrifum frá fallegasta tímabili Mustang vöðvabílsins. Sófi Sætin eru þægileg á að líta. MORGUNBLAÐIÐ | 23 2 fyrir 1 Rúðuvökvi 5L tilboðsverð 1.199,- m/vsk Rúðuþurrkur í miklu úrvali. Tilboð gildir til 12. október 2013. S: 530 5900 | poulsen.is Skeifan 2 á rúðuþurrkum + 2x Rúðuvökvi 5L + Rúðuvökvasápa tilboðsverð 2.398,- m/vsk

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.