Morgunblaðið - 04.10.2013, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ | 25
Nánari upplýsingar í síma 590 2045 eða á benni.is
Lendir þú í
biðröð í haust?
Eitt er öruggt; veturinn kemur og þegar hann kemur gerist það
með hvelli. Flestir hafa nóg annað við tímann að gera en að standa
í biðröðum. Notkun á Toyo harðskeljadekkjum er ekki bundin við
ákveðnar dagsetningar og þau mega því fara undir bílinn strax.
Toyo harðskeljadekkin hafa fyrir löngu sannað sig við íslenskar
aðstæður. Þau eru einstaklega gripsterk, hljóðlát og umhverfisvæn.
Komdu strax og tryggðu þér Toyo öryggi.
Toyo harðskeljadekkin mega
fara undir bílinn strax
ÖRY
GGI
ALLA
N
HRI
NGIN
N
Söluaðilar um land allt
Þ
eir sem eiga peninga í po-
kavís og hafa smitast af
mótorhjóladellu geta auð-
vitað ekki sætt sig við að
vera á venjulegu verk-
smiðjuframleiddu vélhjóli. Eins
gaman og það er að vera á huggu-
legum Harley eða kröftugri Haya-
búsu þá gengur ekki að láta sjá sig á
svona alþýðlegum hjólum meðan
hægt er að finna eitthvað enn betra.
Ríka og fræga fólkið pantar hjólin
sín hjá bandaríska framleiðandanum
Confederate Motors.
Í bænum Birmingham í Alabama
leynist eitt framúrstefnulegasta
mótorhjólafyrirtæki sem finna má.
Var reksturinn stofnaður árið 1991
og hefur síðan fest sig í sessi (ef utan
er skilið gjaldþrot árið 2001 og end-
urvakning árið 2003) sem framleið-
andi hjóla sem virðast nánast fengin
beint úr vísindaskálsögum.
Kosta hjólin á við litla íbúð. Ódýr-
asta módelið er Hellcat sem kostar
55.000 dali á meðan t.d. R131 Fig-
hter kostar frá 100.000 dölum og
verður að sérpanta.
Þegar litið er yfir viðskiptavina-
listann rekur þar hver stórstjarnan
aðra. Hjartaknúsarinn huggulegi
Brad Pitt sést t.d. gjarnan þeytast
um á Confederate-hjólinu sínu,
Bruce Springsteen er með sitt hjól í
bílskúrnum líka, Steven Tyler úr Ae-
rosmith sömuleiðs og knatt-
spyrnukempan David Beckham svo
aðeins séu nokkrir nefndir.
Eins og vera ber er enginn skort-
ur á kröftum en það eru ekki hest-
öflin sem gera hjólin frá Confede-
rate Motors svona sérstök heldur
útlitið. Virðist sem hefðirnar séu til
þess gerðar að brjóta þær og útkom-
an skemmtilega tröllsleg farartæki
sem verka á líkamann eins og væn
sprauta af testósteróni.
Nánar má skoða hjólin á
www.confederate.com
ai@mbl.is
Lögun Að sjá þennan tank!
Línur Hellcat er með töffaralegri farartækjum sem finna má á götunum og amerískt í húð og h́ar.
Ljós Handbragðið er einstakt.
Dreki R131 Fighter er hreint út sagt skuggalegt mótorhjól og óvenjulegt á alla vegu.
Hjól sem
lætur ekki
fara lítið
fyrir sér